Þjóðviljinn - 19.09.1978, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 19.09.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN- Þriðjudagur 19. september 1978 a/ erlendum vettvangi „Svarti fijádagur” í Teheran Laugardagskvöldið 19. ágiíst var kveikt i kvikmyndahtisi einu að nafni „Rex” I irönsku oliuborg. inni Abadan við Persaflóa. Verið var að sýna „mynd fyrir alla fjöl- skyiduna” og voru þvi konur og börn i meirihluta meðal kvik- myndahúsgesta. Samt gat enginn vafi leikið á þvi að ætlun brennu- varganna var sii að verða sem flestum að bana, þvi að dyrum kvikmyndahússins hafði verið lokað og kveikt var i á mörgum stöðum i einu. Aðeins tiu menn komust lifs af, en allir hinir fórust I eldinum, fjögur hundruð eöa fleiri — tölunum bar ekki saman. Lik þeirra sem fórust i kvikmyndahússbrunanum íranskur almenningur rís upp gegn spilltum valdhöfum Þetta voru alvarlegustu at- burðir sem gerst höfðu i íran um langtskeið, e.t.v. siöan óeirðirnar miklu urðu þar i júni 1963, en þó höfðu þess sést ýmis merki næstu mánuði á undan að nokkur ólga væri að grafa um sig meðal landsmanna. 1 janúar birti stjórnarmálgagn eitt mjög niðr- andi grein um trúarleiötogann Khomeini, sem dvalist hefur i út- legö i Irak i fimmtán ár, og olli hún nokkuð viðtækum uppþotum, þar sem einir sextiu menn biðu bana. Samkvæmt irönskum venj- um fór fram sorgarathöfn um hina látnu 40 dögum siðar, og urðu þá enn óeirðir og menn létu lifið. Eftir þetta kom stöðugt til uppþota 1 landinu á fjörutiu daga fresti eða svo, þangað til föstu- mánuöurinn Ramadan hófst i á- gúst. Rómaður i vikublöðum Þessi ólga virðist þó ekki hafa komið Vesturlandabúum sérlega á óvart. Eins og allir vita sem flett hafa erlendum fjölskyldu- blöðum hefur oliukeisarinn straumlinulagaöi Reza Pahlavi yfirleitt mjög góða pressu i iðn- væddum löndum: hann hefur nefnilega þann kost að likjast bæði i framkomu og útliti þeim auðkýfingum vestrænum, sem vikublöð af ýmsu tagi viðfrægja sem fyrirmynd, og hefur auk þess skapað um sig þá sögu að hann stefni að þvi að gera trana að nú- tima menningarþjóð, þ.e.a.s. aö- laga þá á sama hátt að efnahags- kerfi kapitalismans og hann sjálf- ur hefur tileinkað sér lifnaðar- hætti yfirstéttar kapitaliskra rikja .Vegna þessarar sérstöku aug- lýsingamyndar af manninum — sem margútbásúnuð fjölskyldu- mál hans hafa siðan breitt út með- al almennings — virðast menn gjarnan lita svo á aö stöðugt stefni i „framfaraátt” i Iran og andstæðingar keisarans séu ann- að hvort launaðir undirróðurs- menn i þágu.erlends valds eöa of- ofstækisfullir Múhameðstrúar- menn, sem vilji righalda i mið- aldaþjóöfélag. Um hvoruga þess- ara manna veröur sagt aö þeir njóti sérstakrar samúðar á Vesturlöndum og hafa menn eignað þeim allt sem illt gerist i íran. Yfirvöldin brugðu því skjótt við eftir kvikmyndahússbrunann og skelltu skuldinni á „marxiska Múhameðstrúarmenn”, hverjir sem það nú voru, og bergmálaöi þessi skýring um viða veröld gegnum fréttastofur. Svo virðist sem menn hafi gjarnan trúaö a.m.k. seinnihluta ákærunnar, og talið sennilegt að brennuvargarn- ir hafi verið heitttrúaðir Mú- hameðstrúarmenn, sem ekki hafi þolaö kvikmyndasýningu i miðj- um Ramadan. En stjórnarand- stæðingar i Iran visuðu ákærun- um hins vegar á bug, og gengu ýmsir þeirra svo langt að ásaka leynilögreglu keisarans (hina ill- ræmdu „Savak”) eða einhvern annan slikan aðila fyrir að hafa framið ódæðið — til þess einmitt að sverta andstæðingana og fá á- tyllu til að ofsækja þá. Bentu þeir á ýmis undarleg atvik ikringum brunann máli sinu til sönnunar — t.d. það að björgunarstarfið gekk svo klúðurslega að engú var íik- ara en tafið væri fyrir af ásettu ráði — og sögðu einnig að heitt- trúaðir tilræðismenn hefðu e.t.v. kosiðað beina geirum sfnum gegn öörum en konum og börnum sem voru að horfa á fjölskyldumynd. Þótt leynilögreglan teygi viða út armana hefur rannsóknin á i- kveikjunni ekki borið neinn ár- angur þegar þetta er ritað, — og bendir það fremur til þess að eitt- hvað sé gruggugt við þetta mál. En hvernig sem það er, hefur hlotist af brunanum meiri háttar uppgjör milli keisarastjórnar- innar og trúarleiötoga landsins, og var það e.t.v. það sem til var ætlast. í þeim flóknu atburðum, sem siðan hafa gerst, hefur keis- arinn fylgt mjög markvissri stefnu, sem miðar að þvi annars vegar að vinna sér samúð hins al- menna trúaða borgara, en berja hins vegar niður með öllum til- tækum ráðum þá sem eru eða gætu verið i virkri stjórnarand- stöðu. „Svarti frjádagur” Rúmri viku eftir brunann skip- aði keisarinn þannig nýja stjórn, sem átti að hafa það að höfuð- verkefni að „vinna að markmiö- um Múhameð6trúar” og fá þann- ig hylli trúaðra manna. Fyrsta verk stjórnarinnar var að loka öllum spilavitum og taka aftur i gildi timatal Islams, sem látið hafði verið vikja fyrir „keisara- timatali” árið 1976; varð þá ártái- ið „1357 eftir flótta Múhameös” I stað ártalsins 2537 sem verið hafði eftir „keisaratimatalinu”. En þessar aðgerðir nægöu þó ekki til aðlægja ólguna, og héldu mót- mælaaögeröir áfram. Föstudag- inn 1. september urðu gffurlegar óeirðiri Teheran; um 20.000 menn komu saman við Fatemie-bæna- húsið til bænahalds, en þeir fóru fljótlega að hrópa nafn trúarleið- togans Khomeinis og vigorð eins og „Islam, Islam”. Þá var hern- um beitt gegn þessum mönnum, og er talið að einir 30 hafi fallið. Þetta mannfall olli mikilli reiði almennings. Trúarhátiðin Aid el Fitr, sem markar enda Ramad- an-mánaöar og var að þessu sinni haldin hátiðleg mánudaginn 4. september, breyttist i gifurleg mótmæli gegn yfirvöldunum. I þaöskipti hafðist herinn ekki að, og töldu menn þá að stjórnin réöi ekki lengur við ástandiö. Þess vegna var efnt til mikillar göngu til að mótmæla framferði hersins 1. september, og fór hún fram fimmtudaginn 7. september. Þessi mótmælaganga var talin ein hin stærsta i sögu landsins: um hálf miljón manna mun hafa tekið þátt i henni og hrópuðu menn vigorð til stuðnings við Khomeini, eins og „dauðann eða Khomeini” eða „Iranerlandokk- ar og Khomeini er okkar leið- togi”. öðrum vigorðum var hins vegar beint gegn keisaranum eins og „burt með keisarann æru- snauða”. Þegar svo var komið virðist keisarinn hafa ákveðið að beita öllum ráðum, hversu grimmúðleg þau væru, til að berja niður and- spyrnu almennings. Morguninn eftir var lýst yfir herlögum i tólf borgum landsins. Almenningur efndisamt til mótmælaaðgerða, i Teheran.en I þetta sinn urðu viö- brögð hersins önnur. Að sögn franska dagblaðsins ,,LeMonde” hóf herinn skyndilega skothrið á 2000 vopnlausa stúdenta, sem sátu á aðalgötu i Jale-hverfi og höfðust ekki að. Mikið mannfall varð, og þegar sú frétt breiddist út, urðu alls staðar uppþot og mótmælaaðgerðir. Götuvigi voru byggð, enherinn braut alla þessa andstöðu miskunnarlaust á bak aftur. Þeir sem tilþekkja telja að mannfallið hafi verið nálægt 3000, ef ekki meira, og hafa þessir atburðir þegar fengið nafniö „svarti frjádagur” I sögu Irans. En meðan þessufórfram á götum höfuðborgarinnar stóð lögreglan íyrir mjög viðfækum hándtök- um, og eltist þá einkum við trúar- leiðtoga en einnig við foringja Mannréttindahreyfingar og aðra slika. Enn er óvíst hver verður niður- staða þessa uppgjörs, en svo mik- ið hefur þó þegar komið i ljós að hæpið er að tala um deilur keis- arastjórnarinnar við „trúarleið- toga” — eða „ofsatrúarmenn” — eins og oft hefur verið talað um: Það getur enginn vafi leikið á þvi að þessir „heittrúuðu Múhameðs- trúarmenn1* eru yfirgnæfandi meirihluti irönsku þjóðarinnar og þvi fer fjarri aö orsakir uppreisn- arinnar séu einungis af trúarleg- um rótum. Pótemkintjald Sú iðnvæðing, sem á samkvæmt orðum keisarans sjálfs að skipa irönum i hóp fimm voldugustu þjóða heims, er nefnilega eitt hiö furðulegasta „Pótemkin-tjald” sem um getur. Þegar keisarinn, sem bandariska leyniþjónustan CIA hafði sett aftur á valdastól 1953 til að hafa þægilegan lepp i þvilandi, boðaði „hvita byltingu” i Iran skömmu eftir 1960, virtust skilyrðin nokkuð góö til að vinna þar að verulegum framförum. Landið bjó yfir oliuauölegð, sem gerði það að verkum að ekki þurfti að óttast neinn fjárskort til framkvæmda. En þær gifurlegu fjárfestingar, sem siðan hafa ver- ið gerðar, virðast algerlega gagnslausar og hafa ekki stuölað að þvi á neinn hátt að bæta kjör almennings. Sem dæmi má nefna að Iransstjórn, sem þarf vitan- lega ekki að óttast neinn orku- skort i landinu vegna hinna miklu birgða þess bæði af oliu og jarö- gasi, hefur samt gert samninga við erlendar stjórnir um — kaup á kjarnorkuverum! Þannig hafa Frakkar samþykkt að selja þeim fjögur slik ver. Auk þess hafa Iranir keypt af Bandarikjamönn- um vopnabirgðir sem eru ekki i nokkru minnsta samræmi við þarfir þjóðarinnar og það hlut- verk sem hún getur gert sér vonir um að leika; fara nú 30% útgjalda i vopnakaup og eru Iranar stærsti viðskiptavinur bandariskra vopnasala. Þær skipulagsbreyt- ingar, sem gerðar hafa verið á landbúnaði hafa haft þær afleiö- ingar einar að bændur hafa flosn- að burtu og jarðirnar komist i eigu auðhringa (með bandarisku fjármagni), Sem rekið hafa rán- yrkju án nokkurs tillits til stað- hátta og spillt jarðveginum. 1 fljótu bragði er erfitt að sjá hver er ætlunin með framkvæmd- um af þessu tagi — t.d. byggingu kjarnorkuvera i einu mesta oliu- landi heims. En ástæðurnar virð- ast þó einkum veía tvær: annars vegar hrein sýndarmennska, eða vilji til að láta þetta vanþróaða land lita út eins og það væri i far- arbroddi i tækniþróun, og hins vegar þjónkun við bandariska hagsmuni sem kemur fram i þvi að setja oliudollarana, sem inn i landið streyma, strax i umferð aftur. Við þetta mætti svo bæta þriðju ástæðunni, sem er sú að i skjóli þessara miklu „framfara” blómstrar i íran gerspillt afætu- stétt, sem dregur til sin ómældan gróða, og eru ýmsir nánir ætt- ingjar keisarans sjálfs meðál þessara gróðamanna. I öllu þessu hefur hagsmunum almennings i Iran hins vegar ver- iö fórnað með öllu. Hefðbundið þjóðfélagskerfi hefur verið eyði- lagt og ekkert komið i staðinn, og hafa t.d. bændur flosnaö upp af jörðum sinum i mjög miklum mæli, og flust i blikktunnuhverfi stórborganna þar sem þeir verða algerir öreigar. Iranar, sem voru fyrir skömmu aflögufærir um landbúnaðarvörur og fluttu þær út, verða nú að flytja inn helming allra þeirra landbúnaðarvara, sem þeir þurfa. Talið er að 28% ibúa séu vannærðir, og hrein hungursneyð vofir yfir ef inn- flutningur bregst. Gifurleg örbirgð rikir þvi meðal almenn- ings. Fylgismenn Aiis Það er svo engin tilviljun að eini farvegurinn fyrir óánægju almennings er trúarbrögðin: „marxistar” þeir, sem keisaran- um verður tiörætt um, eru mjög fáir i landinu og miskunnarlaus harðstjórnin hefur bælt niður alla skipulega stjórnarandstöðu. Þá er fátt eftir nema prestastéttin, enda hefur almenningur i landinu skynjað þær miklu „framfarir”, sem orðið hafa i landinu og svo mjög hafa dregið niöur lifskjörin, sem árás á Múhameðstrúna sjálfa og það forna þjóðfélag sem af henni mótaðist. En við þetta bætist þó eitt, sem mönnum hætt- ir gjarnan til að gleyma: Múhameöstrúarmenn skiptast i tvo flokka, Súnnita, sem eru reyndar yfirgnæfandi meirihluti þeirra og hafa skapað þá hefð- bundnu menningu Islam, sem vesturlandabúar þekkja best, og Sji’ita. sem eru mjög viða ofsótt- Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.