Þjóðviljinn - 19.09.1978, Side 7
Þriöjudagur 19. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
ÁFENGISLÖG
í ÝMSUM LÖNDUM
Nýlega tóku Frakkar f lög að
lögreglan mætti stöðva bila og
láta ökumenn blása i biöðruna
vinsælu, jafnvel þött þeir hefðu
ekkert gert af sér og akstur
þeirra gæfi ekki beinllnis til
kynna neina ölvun ökumanns-
ins. Skyldi það teljast refsivert
ef ökumaður hefði meira
áfengismagn i blóðinuen 0,8 g af
þúsund.
Þetta eru miklar nýjungar
þar i landi, þvi að til þessa gat
lögreglan þvi aðeins athugað
ástand ökumanns að hann hefði
valdið slysi eða á einhvern hátt
brotið af sér gegn umferðar-
lögunum. Olli þessi nýja laga-
setning talsverðum umræðum i
Frakklandi, og voru margir
henni mjög andvigir — bæði af
efnahagsástæðum og öðrum.
Sumir óttuðust að ýmis litil
kaffihús og veitingahús yrðu
gjaldþrota ef lögreglan færi að
framfylgja þessum lögum, og
var atvinnuleysistalan það há
aðekki var á það bætandi. Aðrir
óttuðust aukna erfiðleika hjá
vinbændum, en þeir eru nægir
fyrir. Loks töldu sumir að það
væri skýlaust brot gegn hinum
einföldustu mannréttindum aö
stöðva menn svona án sérstaks
dómsúrskurðarogþvinga menn
til likamsrannsóknar.
Lögin voru samþykkt (þótt
sumir byggjust við að þingmenn
vinræktarhéraða myndu reyna
að stöðva þau), en frönsk lög-
regla viðurkenndi þó að fram-
kvæmd þeirra kynni að verða
ýmsum erfiðleikum háð. Lög-
regluyfirvöld ákváðu þvi að
fara að öllu með gát: þegar lög-
regluþjónar byrjuöu fyrst á þvi
að stöðva bíla og láta ökumenn
blása i blöðrur tilkynntu þeir
þaðrækilega áður hvar og hven-
ær þeir myndu verða á ferðinni
og hvernig þeir myndu fara að,
svo það ætti ekki að koma nein-
um óþægilega á óvart. Þeir
fengu einnig fyrirskipun um að
fara sem mildilegast að öllu.
En jafnvel þegar Frakkar
verða farnir að framfylgja
lögunum af fullum krafti, verða
þau samt ein hin mildustu I
álfunni. Einungis Italir hafa
mildarilög, þvi þar i landi getur
ökumaður hreinlega neitað að
gangast undir rannsókn, og má
lögreglan þá ekkert gera. En i
flestum öðrum löndum eru lögin
mun strangari.
I Danmörku nær áfengis-
löggjöfin til allra ökumanna
hvaða farartæki sem þeir stýra,
og eru ökumenn hestvagna ekki
undan skildir. Mörkin eru eins
og i Frakklandi 0,8 g af þúsund
og eru tiu þúsund menn teknir
fastir ár hvert fyrir ölvun við
akstur. Sektin er 2.500 danskar
krónur ef áfengismagnið er rétt
yfir þvi' sem leyfilegt er. En ef
það fer yfir 1,2 g af þúsund
missir ökumaðurinn réttindin i
eitt ár og hlýtur þar að auki
þunga sekt sem fer eftir þvi hve
auðugurhanner. Ef magnið fer
yfir 1,5 g af þúsund er öku-
maðurinn dæmdur I 14 daga
fangelsi og missir ökuleyfið i
eitt og hálft ár. Fyrir skömmu
var auðugur og sauödrukkinn
Dani þannig dæmdur til að
greiða 40.000 d. kr. i sekt!
Hollenska áfengislöggjöfin er
þó enn strangari. Þar eru
mörkin 0,5 g af þúsund, og fær
sá sem hana brýtur 300 gyllina
sekt, a.m.k. þriggja mánaða
fangelsi og missir ökuleyfið i
fimm ár. Það er þó siður i Hol-
landi að ökumaður, sem lög-
reglan gómar, getur krafist
þess að fá að útnefna annan -
lækni eftir eigin vali til að fram-
kvæma blóðrannsókn, þannig að
lögreglan fjallar ekki ein um
slik mál.
1 Belgiu og Vestur-Þýskalandi
eru yfirvöldin eilitið frjáls-
lyndari: þar eru mörkin 0,8 af
þúsund. Belgiskir lögreglu-
þjónar geta stöðvað ökumenn og
rannsakað ástand þeirra þegar
þeir vilja, en ökumaðurinn
hefur þó rétt á að biðja um hálf-
tima frest áður en hann blæs i
belginn. Ef niðurstöður rann-
sóknarinnar eru jákvæðar er
hann sviptur ökuskirteininu i —
sex klukkustundir! Þá gengst
hann undir nýja rannsókn og ef
hún reynist neikvæð fær hann
loks ökuskirteinið aftur. Annars
er hann sviptur ökuskirteininu i
aörar sex klukkustundir o.s.frv.
1 Vestur-Þýskalandi er
nákvæmur „verðlisti” yfir hin
ýmsubrot, fyrsta brot „kostar”
500 mörk, annaö 1000, hið þriðja
1500 o.s.frv. upp i 10.000
mörk. Sektirnar geta einnig
farið eftir tekjum þess sem
brotlegur gerist: i sumum til-
vikum verður hann að borga
sem svarar einum mánaðar-
launum. 1 hvert skipti sem
maður hlýtur dóm af þessutagi
fær hann fjóra „punkta” sem
skráðir eru I spjaldskrá eina. Sá
sem safnar saman á þennan
hátt 18 punktum missir öku-
leyfið i a.m.k. sex mánuði. Ef
áfengismagnið er yfir 1,3 g af
þúsund fær brotlegur ökumaður
fangelsisdóm frá einu ári upp i
sex ár.
A Englandi er hámarks-
refsingin fyrir ölvun við akstur
hins vegar 1000 sterlingspunda
sekt, sex mánaða fangelsi og
missir ökuleyfis.
Sem sagt: aðgát skal höfð i
nærveru skálar.
(„LeMatin”)
„Tímar í Iffi þjódar”
Almenna bókafélagið gefur út þrjár
skáldsögur eftir Indriða G. Þorsteinsson
Almenna bökáféfagið hefur
sent frá sér sem ritröð (trilogia)
skáldsögur Indriða G. Þorsteins-
sonar LAND OG SYNIR,
NORÐAN VIÐ STRtÐ og
SJÖTIU OG NtU AF STÖÐINNI.
Þessi ritröð hefur hlotið heitið
TÍMAR t LtFI ÞJÓÐAR og stend-
ur það heiti framan á spjöldum
bökanna, en siðan heldur hver
saga sinum upphaflega titli á kili
og titilblaði.
Þessar þrjár skáldsögur
Indriða G. Þorsteinssonar eiga
það sameiginlegt m.a. að þær
gerast allar á mestu
umbreytingatimum sem yfir
tslendinga hafa gengið og á þeim
sviðum þar sem mestu breyting-
arnar áttu sér stað. Um
sameiginlegar persónur er ekki
aðræða og er þvi hver saga alger-
lega s jálfstæð, en sögurnar leitast
allar við að lýsa þvi fólki sem lifði
breytingarnar, viðhorfum þess og
andlegri liðan.
Land og synir er hér fyrst i
timanum og gerist i sveitinni
fyrir striðið þegar heimskreppa
Framhald á 14. siðu
Ét Jafnréttis
<fc_ gangan
ICA- 1978
ídag kl:15.QQ
Safnast verður saman vió Sjómannaskólann kl:15.QQ og gengið
þaóan til HQarvalsstaða þar sem fundur veröur haldinn.
Borgarstjóri og borgarfulltrúar mæta á fundinn.
LúÖrasveit leikur fyrir göngunni.
StuÓningsmenn jafriréttis fjölmennið
Sjálfsbjörg félag fatlaóra, Reykjavík