Þjóðviljinn - 19.09.1978, Side 10

Þjóðviljinn - 19.09.1978, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 19. september 1978 íþróttlr og útivist eru líka fyrlr fatlaða. Styðjum jafnréttisbaráttu fatlaðra. íþróttasamband íslands ENSKAN Kennslan í hinum vinsælu enskunámskeiðum fyrir f ullorðna hefst f immtudag 22. september Byrjendaf lokkar Framhaldsf lokkar Samtalsflokkar hjá Englendingum Ferðalög Smásögur Bygging málsins Verslunarenska Síðdegistimar — kvöldtímar Sfmar 10004 og 11109 (kl. 1 — 7 e.h.) Málaskólinn Mímir Brautarholti 4 Blaðberar óskast Tómasarhagi (1. október) Laugarásvegur (sem fyrst) Sunnubraut (sem fyrst) D/OOVIUINN Siðumúla 6. Simi 8 13 33 / |j| % 2 w Tilboð óskast i salt til hálkueyðingar fyrir hreinsunardeild Reykjavikurborgar Otboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, Reykjavik. ,5 Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 10. okt. 1978 kl. 11.00 fyrir hádegi. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELE-X 2006 Svanhvit Magnúsdóttir Björn Jóhannesson Magnús GarAarsson. CJ nr LJ a A O O 0 0 / F' Rætt ÞJÁLFARASKOLI HSÍ við nokkra /Éi nemendur Fyrir skemmstu var hér fjallað um þjálfaranámskeiö i handknatt leik, sem haidið var á vegum sér- staks þjáifaraskóla HSt. Sökum mikiliar aðsóknar þá varð að end- urtaka námskeiðið og miðviku- daginn 13. þ.m. til laugardagsins 16. var svo gert i Haukahúsinu i Hafnarfiröi. Á þessum námskeið- um tóku nemendur próf á A-stigi, en það er aðeins eitt af fjórum stigum skólans. Þegar blaöamann bar að garði, voru kennarar skói- ans að afhenda nemendum vott- orð um, að þeir hefðu staðist kröf- um þessa stigs. Meðal nemenda aö þessu sinni voru þau Björn Jó- hannesson, Svanhvit Magnús- dóttir og Magnús Garðarssonjöll voru þau ánægð meö kennsluna, sem þau fengu á námskeiðinu. Björnhafði þetta meðal annars að segja: ,,Ég er búinn-að vera þjálfari i tvö ár hjá yngri flokkun- um i Armanni og oft hafa vaknað spurningar sem mér hefur veist erfitt að svara, en hér hef ég feng- . ið svör við mörgum þeirra. Ég er hrifinn af þvi, hve leiðbeinend- urnir hér fóru vel I undirstöðu- atriöi þjálfunar. Næstum hvern einasta þjálfara yngri flokka skortir þekkingu á þessum undir- stööuatriðum og þvi er þetta námskeið mjög brýnt. Viöa á landinu er æfingaaðstaða léleg. Þrátt fyrir það má byggja grunn- inn en til þess þarf þekkingu, ef allt á að fara vel”. Svanhvithefur þjálfað 3. flokk kvenna hjá FH i tvö ár. Sagði hún, að áframhaldið á námskeiöinu hefði verið svolitið stift. Betra hefði verið að fá meiri tima til að glugga i viðfangsefnin og ræða þau. Ennfremur sagði hún: ,,Ég sé það núna, að ég hef litið kunnað fyrir mér sem þjálfari, en eftir þetta námskeið er ég mun betur undirbúin til að sinna starfinu. Ég hef t.d. aldrei hugsað út i það, að þjálfari ber ábyrgð á leikmanni, sem meiðist, en hér var haldinn mjög góður fyrirlestur um það efni. Mikil áhersla var lögð á iþróttasálarfræði, sem er mjög nauðsynleg. Ég hef alltaf haldið þvi fram, að þessi þáttur þurfi að vera um 50% af starfi þjálfara. Þjálfarinn veröur að gera sér það ljóst, að hann er að einhverju leyti uppalandi, bæði hvað varðar aga og siðferði”. Magnús hefur verið þjálfari 4. flokks karla i Keflavik s.l. tvö ár. ,,Ég sé nú best viðvaningsbrag- inn, sem hefur verið á tilsögn minni”, sagði Magnús. „Hérhafa kennarar verið að banna margt af þvi, sem ég hef verið að gera. Það sem kom mér einkum á óvart var sálfræðilega hliöin. Ég hef eigin- lega ekki hugsaö út i það, né heyrt um það talað, að sálfræðin hangi svo saman við önnur atriði þjálf- unar. I Keflavik er mjög illa á handknattleiksþjálfun haldið. Þó að æfingaaðstaðan sé ekki góð suður frá, má samt talsvert gera með þá þekkingu sem við öðluð- umst hér.” Þau Björn Svanhvit og Magnús ætla sér öll að halda áfram i skól- anum og hvetja þjálfara til að sækja hann. Kennarar á námskeiðinu voru Jóhann Ingi Gunnarsson, Jó- hannes Sæmundsson, Jens G. Einarsson, Janus Guðlaugsson og Halldór Matthiasson. Gruia Vegna viötals í laugar- dagsblaðinu viö Rúmenann loan Kunst- Ghermanescu/ hafa nokkrir lesendur blaðsins komið að tali við okkur og óskað frekari upplýsinga um þá Gruia og Birtalan. Ekki þarf að segja þeim, sem vel hafa fylgst með handknattleik, hvernig þessir menn eru viðriðnir íþróttina. Engu að síöur er sjálfsagt, að við gef um þær upplýsingar um mennina, sem okkur eru tiltækar í augnablikinu. Gruia og Birtalan eru kunnir af skothörku sinni og hittni. Ot á það m.a. hafa þeir orðið einhver allra stærstu nöfnin i handknattleikn- um. Báði eru þeir Rúmenar og einhverjar mestu driffjaðrir i rúmenska landsliðinu, hvor á sin- um tima. Eins og fram kom i viötalinu er Gruia nú þjálfari i Mexico. Hann var markahæstur í rúmenska landsliðinu sem varð heims- meistari árið 1970. Þá skoraöi hann 30 mörk i keppninni og skorti aðeins 1 mark til að deila markakóngsnafnbótinni með Makismov frá Sovétrikjunum. Birtalan með þrumuskot. Enn urðu Rúmenar heims- meistarar árið 1974 eða i fjórða sinn frá upphafi keppninnar, og þá skoraði Birtala 43 mörk fyrir liö sitt, sem voru jafnframt fleiri mörk en nokkur annar ein- staklingur skoraði i þeirri keppni. A HM i Danmörku á þessu ári geröi hann aftur 43 mörk og kom næstur á eftir þeim Klempel frá Póllandi og Kovacs frá Ungverja- landi, sem skoruðu 47 mörk hvor.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.