Þjóðviljinn - 04.11.1978, Page 4
4 StÐA ^ ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. nóvember 1978
UOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýós-
hreyfingar og þjóöfrelsis
tHgefandi: Otgáfufélag ÞjóOviljans
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson.
Afgreiðslustjóri: Filip W. Franksson
Blaðamenn: Alfheiður Ingadóttir, Einar Om Stefánsson, Erla Sig-
urðardóttir, Guðjón FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur
Margeirsson. Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta-
fréttamaður: Asmundur Sverrir Pálsson.
Þingfréttamaður: Siguröur G. Tómasson
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Otlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson. Sævar Guðbjömsson.
Handrita- og prófarkalestur, Blaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir,
Elias Mar, óskar Albertsson.
SafnvörBur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: RUnar SkarphéBinsson, SigrlBur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuðrUn GuBvarBardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
AfgreiBsla: GuBmundur Steinsson. Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: SigrUn BárBardóttir.
HUsmóBir: Jóna Sigurðardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla: Sölvi MagnUsson, Rafn GuBmundsson.
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: SIBumUla 6.
Reykjavlk, simi 81333
Prentun: BlaBaprent h.f.
Það er ekki bara
karbaratorinnl
„Það er karbaratorinn”, sagði hrossið i sögunni
sem var nærstatt þegar bill bilaði út i sveit. Þegar
bileigandinn fann að þvi við bóndann að „sjúkdóms-
greiningin” hefði ekki verið rétt sagði sá siðar-
nefndi. „Bessaður vertu, taktu ekki mark á Grána,
hann hefur ekkert vit á vélum.”
Þeir eru margir þessa dagana sem þykjast bera
gott skynbragð á verðbólguvélina líkt og hrossið á
bilvélina. Það er visitalan segir einn, það er vaxta-
stefnan segir annar, það er kaupið segir sá þriðji.
Það er lengi hægt að telja upp verðbólguhvat-
ana i islensku þjóðfélagi: Velgengni verðmyndun-
arkerfisins er einn, sveiflur i sjávarútvegi annar,
offjárfesting og léleg nýting fastafjármuna sá
þriðji. Á einhverju stigi verður svo skuldasöfnun
rikisins við útlönd, visitölubinding launa, ofvöxtur-
inn i yfirbyggingu efnahagskerfisins, gengisfelling-
ar og væntingar almennings og atvinnurekenda um
verðbólguhagnað að oliu á verðbólgubálið. Svona
væri hægt að halda áfram til þess að sýna fram á
að verðbólguvél okkar er flóknara fyrirbæri en svo
að einhver ein aðgerð, eitt pennastrik þar og ann-
að hér, dugi til þess að stilla ganginn á hægari
snúningshraða.
Þeir sem halda þvi fram að hægt sé að hægja á
verðbólgunni með einu pennastriki verða ætið sak-
aðir um að hafa ekki vit á vélum eins og hrossið
Gráni. Þar dugir ekkert minna en samræmd heild-
arstefna, skipulagshyggja og áætlunarbúskapur ef
ætlunin er að vinna þjóðina út úr verðbólguvandan-
um. Þótt þetta séu orðaleppar sem eru orðnir býsna
slitnir i pólitiskri umræðu hafa þeir þó sitt innihald.
Einmitt nú er tækifæri til þess að móta slika
stefnu i samráði rikisstjórnarflokkanna og verka-
lýðshreyfingar sem miðaði að þvi að halda uppi
mannsæmandi lífskjörum i landinu um leið og hægt
yrði á verðbólguhjólinu. Takist það ekki, er launa-
fólk illa á vegi statt. Takist ekki að fylkja pólitisk-
um meirihluta á Alþingi kringum leið út úr vandan-
um mun illa fara. Takist það hinsvegar að rikis-
stjórn og verkalýðshreyfing nái samstöðu um
stefnu i efnahags- og kjaramálum til nokkurrar
frambúðar þurfa ramakvein verðbólgubraskara,
atvinnurekendasamtaka og ihaldsmálgagna ekki
að valda áhyggjum.
I blaðaviðtali drepur Svavar Gestsson við-
skiptaráðherra á þennan vanda og segir meðal ann-
ars: „Meginatriðið er það að við fikrum okkur út úr
þeim vitahring verðbólgunnar, sem nú umlykur
okkur í þessu þjóðfélagi. Það verðum við að gera
með samræmdum aðgerðum, þar sem við beinum
átakinu að peninga- og bankamálum, að fjárfest-
ingunni, innflutningnum og versluninni og að við
náum þannig árangri stig af stigi með sameiginleg-
um heildaraðgerðum. Engin ein aðferð dugir til
þess að leysa vandann og samræmdar aðgerðir
leysa vandann heldur ekki á einu augnabliki. Það
tekur tima.
Vonandi fær núverandi rikisstjórn tima til þess að
vinná sig út úr þessum vanda. Annars er hætta á þvi
að framundan sé ný kollsteypa stærri og hættulegri
en nokkru sinni fyrr. Sú kollsteypa gæti i senn haft
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir kjör fólksins i
landinu og fyrir allt atvinnulifið á islandi. Sú koil-
steypa gæti þýtt það, að við glötuðum efnahagslegu
forræði okkar með einhverjum hætti i hendur út-
lendina. Þess vegna er barátta núverandi ríkis-
stjórnar öðrum þræði sjáifstæðisbarátta”.
Það er semsagt ekki bara karbaratorkin heldur
verður að gera alla vélina upp með skipulegum
hætti.
Raunasaga
hávaxtamanna
Af hálfu hávaxtamanna eru
settar fram kenningar um aö
raunvextir tryggi i senn hags-
muni sparifjáreigenda og leysi
veröbólguvandann. Háleit og
góö markmiö f sjálfu en leiöin er
ekki einhlit. Lúövik Jósepsson
geröi þvi m.a. skil i þingræöu
nýveriö aö aldrei heföi veriö
fariö ver meö sparif járeigendur
heldur en eftir aö byrjaö var aö
fikra sig eftir hávaxtalinunni á
vegum Seölabankans sem völd-
in hefur i þessum efnum. Nú
skal stuöst viö nokkrar rök-
semdir Lúöviks.
Vaxtaaukareikningarnir voru
myndaöir 1. mai 1976 og fólki
gefinn kostur á aö leggja inn á
þá fé og greiddir 22% vextir.
Næsta stökk á eftir varö 1. ágúst
1977. bá voru vextir á þessum
reikningum færöir upp I 26%.
Slöan 21. nóv. 1977 voru þessir.
vextir færöir upp i 29% og 21.
febr. 1978 voru þessir vextir
færöir upp I 32% og þaö eru þeir
enn i dag.
A árinu 77 var einnig ákveöiö
aö binda vexti viö veröbólgu-
stigiö meö veröbótaþætti á
þriggja mánaöa fresti, en þegar
skyndilega átti samkvæmt for-
múlunni aö hækka vexti um 13%
úr 32% í 45%. Viö næsta útreikn-
ing þrem mánuöum siöar þoröu
hávaxtastefnumenn heldur ekki
aö taka stökkiö. Þeir gáfust ein-
faldlega upp á framkvæmdinni.
Veltum, veltum
vöxtunum
En hvernig tókst til um þaö
markmiö aö vernda hag spari-
fjáreigenda á þessu tilrauna-
timabili I hávaxtastefnu Ef
miöaö er viö þjóöarframleiöslu-
verömæti voru raunvextir nei-
kvæöir um 21.4% 76, 22,4% 77
og áætlaö er aö þeir veröi nei-
kvæöir um 28 til 31% I ár.
Bent hefur veriö á þaö aö
vaxtastefna geti veriö árang-
ursrfkt hagstjórnartæki I öörum
efnahagskerfum en þvf fs-
lenska. Eitt eöa tvö % hækkun á
vaxtakjörum geturoröiö til þess
aö skilja á milli hinna veikari og
hinna sterkari i efnahagskerf-
inu þannig aö hinir fyrrnefndu
neyöist til þess aö hætta van-
buröugum rekstri.
Við búum hinsvegar viö allt
annaö verömyndunarkerfi. Ná-
lega allir sem þurfa aö greiöa
háa vexti hafa rétt til þess og
möguleika innan okkar verö-
myndunarkerfis aö velta há-
vöxtunum út i verölagiö og
þurfa ekki aö standa undir þeim
sjálfir.
Vaxtavelta
atvinnuveganna
Verslunin i landinu er skráö
fyrir24 miljaröa lánum i banka-
kerfinu og hún þarf ekki aö taka
á sig þá 2.4 miljaröa króna viö-
bót sem leiddi af 10% vaxta-
hækkun. A reikningum er
vaxtakostnaður og hækkanir á
honum færöir upp sem hver
annar kostnaöarliöur og velt út i
verölagiö eins og öörum liöum.
Sama gildir um landbúnaö og
iönaö, sem hafa 14 og 17 milj-
aröa króna aö láni i bankakerf-
inu. Vaxtakostnaöurinn kemur
ekki sem skattlagning á bændur
og iönrekendur heldur er honum
velt út i verölagiö á heröar neyt-
enda.
1 ágúst sl. var sjávarútvegur-
inn skráöur fyrir tæplega 52
miljaröa króna lánum i banka-
kerfinu. Og hann hefur lika
fundiö leiö til þess aö velta af
sér vöxtunum þótt hann búi viö
fast útflutningsverölag. Hann
heimtar fleiri krónur fyrir
framleiðsluna, gengislækkun
m.a. til þess aö velta vöxtunum
af sér þangaö til ný umferð
hefst. Okkar verölags og verö-
myndunarkerfi er einfaldlega
þannig aö vaxtaútgjöld lenda
annaöhvort út i verölagiö og /
eöa kalla á gengisfellingu.
Spekúlantarnir
sjá um sig
Lágvaxtastefna er gróðalind
veröbólgubraskara sem skapa
sér eignir án uppgefinna tekna
eöa rekstrarafgangs. Satt var
oröiö I mörgum tilfellum en þó
veröur aö taka tillit til þess aö
meginhluti fjárfestinga I
sjávarútvegi, iönaöi og verslun
er ekki veröbólguspekúlation og
þessutan aö meginhluta til
komin vegna opinberra stjórn-
valdsákvarðana.
Og meöan hávaxtastefnan eöa
aörar aögeröir stööva ekki
veröbólguna og þetta sjálfvirka
verömyndunarkerfi þar sem
nánast allir geta velt af sér
hverskyns kostnaöarauka út A
verölagiö munu þaö alltaf
veröa þeir hinir fjáöu verö-
bólguspekúlantar og lánamenn
sem græöa og hafa hag af aö
velta lánum hversu há sem
vaxtaprósentan er. Til þessara
aöila þarf aö ná meö skattlagn-
ingu.
Vinnan og
vextirnir
En hvaöa áhrif heföi þaö éf
vextiryröu hækkaöir um rúman
helming til þess aö ná jákvæö-
um raunvöxtum. 1 fiskiðnaðin-
um þar sem taliö er aö vextirnir
séu nú um 10% aö meöaltali af
kostnaöarveröi framleiöslunnar
myndi tvöföldun þeirra leiöa til
þess aö vaxtakostnaöur yröi
svipaöur og vinnulaun, og yröi
þá annaöhvort aö lækka vaxta-
kostnaöurinn eöa vinnulaunin.
Hávaxtastefnan leiöir lika til
þess aö þaö borgar sig ekki aö
vinna viö framleiösluvöruna
nema tiltekinn tima og þegar er
svo komiö' aö framleiöendur
flytja frekar út óverkaöan salt-
fisk en verkaöan vegna vaxta-
kostnaöar á verkunartimanum.
175 þásund
í vexti
Dæmiö af kjallaraibúöinni i
Reykjavik sem kostaöi 9,5 milj-
ónir er oröiö þekkt. í 5,5 miljón
króna útborgun þurftu viðkom-
andi aö leggja fram 4,5 miljónir
umfram sparifé. Tvö vaxta-
aukalán meö 33% vöxtum, lif-
eyrissjóöslán meö 26% vöxtum
og 18% vextir af 4 miljón króna
eftirstöövum björguöu málinu.
Af þessari litlu Ibúö þurftu þessi
hjón aö borga krónur 175 þúsund
i vexti á mánuði, bara vextina,
enga afborgun, engin gjöld af
húsinu. Svo telja menn að kaup-
iö I landinu sé of hátt.
Gengiö valtara
en vaxtaveltan
Leiða má rök aö þvi aö há-
vaxtastefna leiöi til tiöra
gengisfellinga ásamt meö ööru.
Gengisfellingar eru mesti
brennsluofn sparifjárs sem um
getur. Fyrir mánuöi siöan var
allt innstæöufé i bönkum um 115
miljaröar króna. Meö 15%
gengisfellingu i haust var verö-
gildi þessarar summu gagnvart
erlendum vörum skoriö niöur
um 17 miljaröa eöa erlendu vör-
urnar hækkuöu i hlutfalli viö
verögildi innanlands um 20
miljaröa. Hvaö stoöar spari-
fjáreigendur smávegis vaxta-
hækkun gagnvart þvilíkri
brennslu?
Ráð eru til
Þorri sparifjáreigenda er um
leið í hópi lántakenda, en er
ekkert ráö til þess aö vernda
hagsmuni þeirra?
Þegar til lengri tfma er horft
er þau aö sjáfsögöu til. Meö þvi
aö draga úr skuldasöfnun er-
lendis og yfirdrætti ríkissjóös
hjá Seölabanka, draga úr yfir-
vexti í efnahagskerfinu og
minnka yfirbyggingu (banka-
kostnaöur hér er um 40% hærri
en annarsstaöar á Noröurlönd-
um miöaö viö sömu þjónustu)
miöa fjárfestingar viö innlend-
an sparnaö og beina þeim fyrst
og fremst i iönað og fiskvinnslu
og grunngerö þjóöfélagsins,
hætta áhættusömum risafram-
kvæmdum á vegum rikisins,
breyta verömyndunarkerfinu,
endurskipuleggja efnahagslífiö
og miöa viö fullnýtingu þróaðra
framleiöslutækja, en hætta
músarholurekstri á framfæri
rikisins mætti á allmörgum
árum vinna sig út úr veröbólgu-
vandanum, framleiöa sig út úr
honum.
Mœtti biðja um
„heildarhyggju”
Engin rfkisstjórn hefur til
þessa haft burði til þess aö
vinna á samræmdan hátt aö öll-
um þessum verkefnum. I hinu
sundurvirka efnahagskerfi
neysluþjóöfélagsins velta menn
vandanum á undan sér og yfir á
aöra I staö þess aö standa I I-
staöinu. Þaö er kjarni máls og
patent-lausnir eins og jákvæöir
raunvextir, verötrygging allra
inn- og útlána, afnám visitöiu-
erfisins, eöa gengisfellingar
leysa einar sér engan vanda.
Miklu nær er aö álita eins og
einn fiskvinnsluforstjóri sagöi
fyrir sföustu kosningar aö fara
þurfi allar leiöir til lausnar
efnahags- og veröbólguvand-
ans. Almennar efnahagsaögerö-
ir eiga viö á sumum sviöum,
sérstakur atbeini og fyrir-
greiösla rikisvaldsins viö á öör-
um, hávaxtastefna getur átt viö
gagnvart vissum tegundum út-
lána og fjárfestinga, en ekki i
útflutningsgreinum sem standa
i samkeppni á alþjóöamörkuö-
um. Og svo framvegis.
Þaö sem svo átakanlega vant-
ar er samræmd heildarstefna
þar sem reynt er að fella hinar
tiltæku leiöir saman af skyn-
samlegu viti og pólitfsk-
ur meirihluti sem treystir sér
til þess aö fylgja stefnunni
fram. Hvorugt er fyrir hendi og
þvi togar hver i sinn hagspeki-
lega enda. Ot úr þvi kemur ekki
einu sinni sæmilegur kapital-
ismi heldur bara vitleysa.
— ekh.
-ekh