Þjóðviljinn - 04.11.1978, Side 12

Þjóðviljinn - 04.11.1978, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. nóvember 1978 Kjarvalsstaðaræða Sjafnar Sigurbjörnsdóttur í borgarstjórn: Hafði ekki hugmynd um fundargerðaráhugann A borgarstjórnarfundi s.l. fimmtudag vakti Sjöfn Sigur- björnsdóttir, formaður stjórnar Kjarvalsstaða máis á þeirri stöðu sem upp er komin i hiisinu sem listamenn hafa sett I sýningar- bann frá og með 1. nóvember. Sjöfn sagði: Eins og borgarfulltrúum er kunnugt um sitjum viö þrjú i stjórn Kjarvalsstaða. Hafa allar samþykktir stjórnarinnar verið geröar sam- hljóða þar til nú aö Guðrún Helgadóttir borgarfulltrúi telur sig allt i einu vera komna i minni- hluta sem er þó mjög fljótfærnis- lega ályktaö af henni þar sem samningum viö listamenn var og er aDs ekki lokið og samningar höfðu ekki siglt i strand. Enda Guðrúnu Helgadóttur fullkunnugt um þaö eftir margitrekaöar yfir- lýsingar minar i stjórn Kjarvals- staða að ég vildi undir engum kringumstæðum eiga þátt I þvi að upp úr samningum slitnaöi og Kjarvalsstaðir bannfærðir af listamönnum. Er það þvi fljótfærni Guðrúnar Helgadótturaökennaaðsvoernú komið að listamenn hafa sett Kjarvalsstaði i bann. Ég vil vekja athygli á þvi að þaöer ekki á valdi stjórnar Kjar- valsstaöa að ákveða hvers konar samningar eru geröir við lista- menn um Kjarvalsstaöi, heldur er það á valdi borgarráös og borgarstjórnar. Þetta ætti Guð- rún Heigadóttir að vita en henni láðist aö koma þeirri vitneskju til vina sinna i FIM og BÍL. Þaö er að minu mati fávislegt af Guð- rúnu Helgadóttur að hvetja lista- menn til þess að lýsa yfir banni á Kjarvalsstaði, þegar þeir aðilar sem raunverulega ráöa allri samningagerð við listamenn hafa ekki einu sinni fjallaö um málið þ.e.a.s. borgarráð og borgar- stjórn. Auk þess vil ég sérstak- lega vekjaathygli borgarstjórnar á þvi að stjórn Kjarvalsstaöa hefir engar tillögur samþykkt til borgarráðs enda samningar við listamenn i gangi. Hitt er svo annaö mál hvort Guðrúnu Helgadóttur hefur tekist að rugla listamenn svo i riminu að þeir geti ekki fallist á starfs- reglur þessar jafnvel þó svo fari að borgarstjórn Reykjavikur úr- skurði að hinir tveir fulltrúar BIL og FIM skuli hafa atkvæðisrétt 1 stjórn Kjarvalsstaöa eins og segir I bókun Guðrúnar Helgadóttur borgarfulltrúa. Vil églýsa vonbrigðum mfnum með framkomu Guörúnar Helgad. borgarfulltrúa i þessu máii sem einkennst hefir af fumi og fljótfærni. Reynir nú enn einu sinni á mahndóm G.H. og á ég þá við það að hún þori aö viðurkenna að henni var fullljóst og var búin að vita lengi að ég myndi aldrei láta kom til þess að listamenn lýstu yfir banni á Kjarvalsstaði vegna þess að samningar næðust ekki, þó ég viöurkenni fúslega að min skoöun var og er sú ákjósan- legasta lausnin sé sú að 2 Usta- menn sitji í stjórninni með mál- frelsi og tillögurétti. En það ætti öllum að vera ljóst og Guðrúnu Helgadóttur lika aö i samsteypustjórn og lýöræðislegri kjörinni nefnd þar sem I sitja full- trúar 3 flokka verður að semja um málin. Auk þess og ég endur- tek það enn einu sinni, samningar við listamenn stóðu yfir — þeir voru ekki sigldir í strand — þaö er fljótfærni Guðrúnar Helgadóttur að kenna hvernig komiö er. Ásökunum hennar um ólýöræðis- leg vinnubrögð vlsa ég til fööur- húsanna sem rakalausum þvætt- ingi. I drögum að starfsreglum fyrir stjórn Kjarvalsstaða eru 9 grein- ar. Um 8 fyrstu greinarnar er fullt samkomulag I stjórn Kjarvalsstaða. I 9. greininni kemur fram það atriöi sem ágreiningi hefur valdið i stjórn Kjarvalsstaða en þar segir svo m.a.: A fundi stjórnar skal sitja fulltrúi sem B.t.L. tilnefnir og fulltrúi sem F.t.M. tilnefnir og um þetta atriði er enn fullt sam- komulag I stjórn Kjarvalsstaða og siöan segir: og hafa þeir þ.e.a.s. fulitrúi Bandalags Is- lenskra iistamanna og fulltrúi i F.l.M. máifrelsi og tillögurétt. Vegna þessarar málsgreinar lét Guðrún Helgadóttir borgarfull- trúi bóka: ,,Þeir skulu hafa atkvæðisrétt um þau mái sem snerta iistræna starfsemi” — en viö Davið Odds- son létum bóka: „Frá þvi að slöast voru gerðir samningar við samtök iista- manna um stjórn og rekstur Kjarvalsstaða hafa forsendur al- farið breyst. Myndlistarmönnum hefurveriö greidd út hlutdeild þeirra i bygg- ingu Kjarvaisstaða og hafa þeir opnað sinn eigin sýningarsal, þar sem þeir hafa haldið haustsýn- ingu sfna sem áður var árviss á Kjarvaisstöðum. Stjórn Kjar- valsstaða gerir ráð fyrir að ráða til starfa sérstakan listráðunaut sem á að vera i forsvari fyrir stjórnarinnar hönd um listrænan rekstur og tryggja að fagleg þekking sé jafnan til staöar. Jafn- framt er stefnt aö þvf I þeim til- lögum sem fyrir Uggja að þrátt fyrir framangreindar breyttar forsendur eigi F.l.M. og BÍL að tflnefna sinn fulltrúann hvor sam- tök sem sitji I stjórn hússins með málfrelsi og tillögurétti.” Af framangreindum ástæðum styðj- um við þá tiilögu að reglum, sem fyrir liggja.” Af þessu er ljóst aö innan stjómar Kjarvalsstaöa er aðeins ágreiningur um þaö hvort þeir tveir fulltrúar listamanna sem gert er ráð fyrir að sitji I stjórn Kjarvalsstaða skuli hafa at- kvæðisrétt um þau mál sem snerta listræna starfsemi eða ekki. Eins og ég hef áöur sagt er þaö borgarstjómar að fella sinn úrskurð um þetta eina mál sem ágreiningur hefur orðiö um I nú- verandi stjórn Kjarvalsstaöa. Munum við Daviö Oddsson að sjálfsögðu hlita úrskurði borgar- stjórnar Reykjavlkur I þessu máfl. Ég fuDyröi vegna ásakana Guð- rúnar Helgadóttur I Þjóðviljanum að fundargeröir stjórnar Kjar- valsstaða eru meðal þeirra sem fyrst berast til borgarráðs. Jafn- framt lýsi ég þvf yfir að ég haföi ekki hugmynd um að borgarfull- Sjöfn Sigurbjörnsdóttir: Von um að blómleg Ustastarfsemi hefjist hið fyrsta á Kjarvalsstöð- um með farsælli þátttöku Is- lenskra listamanna. trúa Guðrúnu Helgadóttur væri sérstaklega umhugað um að koma siðustu fundargerð strax i borgarráð. Þegar ég talaði við borgar- stjóra á þriðjudagsmorgun, nánar tiltekið rétt fyrir ellefu, vegna beiðni hans um að koma fundargeröarbókinni i hans vörslu lét borgarstjóri ekki I ljós við mig eða gaf til kynna á neinn hátt, að Guðrún Helgadóttir borgarfulltrúi eða nokkrir aðrir borgarfulltrúar stæðu þar á bak- við. Um málefni Kjarvalsstaöa eins og þau standa nú 1 dag vegna fljótfærni Guðrúnar Helgadóttur vil ég segja þetta: Ég óska eftir þvl að samninga- viðræðum við listamenn verði haldið áfram eins og ekkert hafi i skorist, þar til farsæl iausn fæst 1 deilum borgaryfirvalda og Usta- manna um fyrirkomulag á Kjar- valsstöðum. Er ég sannfærð um, aö ef unnið er að þeim málum af fyllstu einurð og hreinskilni þá muni nást farsæl lausn á þessari deilu, sem báðir málsaðilar megi una velviö og hafiaf fullan sóma. 1 von um að blómleg listastarf- semihefjisthið fyrsta á Kjarvais- stöðum með farsælli þátttöku is- lenskra listamanna læt ég máli minu lokiö. Guðrún Helgadóttir: Fundar- gerðir feiur enginn fyrir mér, né læt ég skrökva upp i opiö geöiö á mér, ekki einu sinni i nafni jafn- réttis og bræðralags. A eftir Sjöfn Sigurbjörnsdóttur tók Guðrún Helgadóttir, varafor- maður stjórnar Kjarvalsstaða til máls og sagöi: Astæðan til þess, að málefni Kjarvalsstaða hafa nú orðið blaöamál, er ekki fyrst og fremst sá ágreiningur, sem er um stjórn- un staðarins, heldur hvernig að þeim málum hefur verið staöið. Skal ég vikja að þvi fyrst. . Allt frá þvl að viö þremenning- arnir vorum kjörin I stjórn staö- arins, höfum viö rætt hvernig hlutdeild listamanna skyldi vera þar að. Mér hefur fundist það mál dragast aliverulega á langinn og þegar komið var aö þvi aö umsóknarfrestur um stööu list- ráöunauts var aö renna út, var brýnt að afgreiöa reglugerð fyrir húsið til borgarráðs. Afstaöa okk- ar þriggja var löngu orðin ljós, og loks bókuð 1 fundargerö frá 27. okt. s.l.. Þaö var orðinn langur aðdragandi að endanlegri gerð reglugeröarinnar og ég haföi m.a. komið með ýmsar munnlegar til- lögur til að reyna aö ná sam- komulagi á milli stjórnarinnar og listamannanna, en formaöur hef- Guðrún Helgadóttir í borgarstjórn: Borgarstjóm þarf álista- mönnum sánum að halda ur aldrei vikiö frá þvi sjónarmiöi sinu, aö þeir skyldu engan atkvæöisrétt hafa um stjórnhúss- ins. Viö veltum þeim möguleika upp öll i fyrstu, þar sem rekstur húss- ins hafði veriö afar slæmur á sið- asta kjörtimabili, þrátt fyrir til- vist listráðs. Þá voru I raun tvær stjórnir Ihúsinu, og samkomulag forstööumanns hússins og fram- kvæmdastjóra Ustráðs á þann veg, að I sliku andrúmslofti þrifst ekkert.allrasistlist. En þaðvarð strax ljóst, aö listamannasam- tökin myndu aldrei sætta sig viö einhliða stjórn stjórnmálamanna 1 húsinu, og þvi lá beint viö að leita samkomulags viö þá. Hér er um það fyrst og fremst að ræða, aö menningarmiðstöö Kjarvals- staða verði rekin svo til sóma sé, en ekki að háð sé þar lltilsigld valdabarátta þröngsýnna borgar- fulltrúa. Það var svo sannarlega hægt að afgreiöa reglugeröina á siðasta fundi, en formaöur kraföist frest- unar. Það gat skilistsvo, aö hún ætlaði jafnvel að hugsa málið enn, svo að við þvi var orðiö. En samkvæmt seinni viötölum er alveg ljóst, að svo er ekki. Til hvers var þá frestunin? Jú, til þess að málið kæmi ekki til afgreiöslu hér á þessum fundi, og til þess að listráöunautur vissi ekki nákvæmlega um hvaö hann væri aö sækja. Fundargerðin átti þó að liggja fyrir borgarráöi á þriðjudag, en þá ber svo viö aö hún kemur ekki fram. Og aöspuröur tjáir for- stöðumaöur mér að formaöur hafi stöðvaö prentun hennar þar til eftir borgarráðsfund. Borgar- stjórier beðinnað heimta fundar- geröina, en honum er þá tjáð — eða fulltrúahans —aö hún sé ekki I lagi, þarfnist lagfæringar. Ég sem ritari get upplýst, aö engin lagfæring hefur átt sér stað, enda hafði ég þegar undirritaö hana. Formaöurerþábeöinnað mæta á borgarráðsfundi, en siðan koma skilaboð um aö þvl miöur geti hún ekki komið. Hvergi var hægt að ná til hennar. Um þau ósannindi, sem forstööumaöur viðhafði allan mánudag og þriöjudag viö mig, er best að hafa sem fæst orð. Það þarf langa reynslu I refskap til aö kunna þær kúnstir. Alíka ósannindi eru þau, að ég hafi átt einhvern þátt I ákvörðun FIM. Ég er ekki I þvi félagi. Samstarf okkar Sjafnar Sigur- björnsdótturer byggt á samvinnu tveggja óllkra — afar ólikra — stjórnmálaflokka. Allt til þessa hef ég látiö mér lynda þó að hún hunsaöi flest það sem ég hef haft til málanna aö leggja. Fundar- geröir felur enginn fyrir mér, né læt ég skrökva upp i opið geðið á mér, ekki einu sinni i nafni jafn- réttis og bræðralags. Oröið freisi stendur einhvers staðar þar ná- lægt lika. Ég þurfti að skýra fyrir listamönnum borgarinnar, almenningi og öðrum borgar- fulltrúum gang þessa máls. Þegar fundargerðin gat ekki oröið þar til upplýsingar, var ein- ungis málgagn mitt, Þjóöviljinn, eftir. Viö sjálfan ágreininginn um reglugeröinaer ekkertaðathuga. Or honum sker borgarstjórn aö sjálfsögöu. Okkur meirihluta- mönnum er auövitað alveg ljóst, að okkur hlýtur oftlega aö grána á. Þó ekki fyrr en á allar sáttatil- raunir hefur reynt. Ég óttast ekki úrslit þess máls. Það er sjálfsagt og eðlilegt, að þeir menn sem skapa list i þetta hús — Kjarvals- staði — hafi tvo fulltrúa I stjórn- inni með atkvæðisrétt um mál, sem snerta listræna starfsemi hússins. Um þetta þarf ekkert striö aö vera. Fyrrverandi meiri- hluti leysti þetta mál á sínum tima, og ég trúi ekki ööru en hann geri það einnig nú. Það er engum minnsta þægö i að kynda stríðs- elda um þetta hús. Þar þarf aö fara að vinna. Alþýðubandalagiö ætlar ekki I striö viö listafólk borgarinnar, og ég held aö Alþýðuflokksfólk vilji þaö ekki heldur. Ég hygg að þarna sé á feröinni óvenjuleg óbilgirni, sem er litt skiljanleg, á aðra hönd, og striðni Daviös Oddssonar á hina. Abyrg borgarstjórn á ekki að taka þátt I slikum leik. Borgar- stjórn þarf á listamönnum slnum aö halda til aö geta rekið þetta hús. Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna: Samkoma í tilefni byltingarafmælisins Félagiö MtR, Menningar- tengsl íslands og Ráðstjórnar- rlkjanna minnist afmælis Öktóberbyltingarinnar i Rúss- landi og þjóðhátiöardags Sovétrikjanna með samkomu i veitingahúsinu Lækjar- hvammi, Hótel Sögu,. sunnudaginn 5. nóvember kl. 3 siðdegis. Þar flytja ávörp Eyjólfur Friögeirsson fiski- fræðingur og Georgi Farafonov ambassador Sovétrikjanna á tslandi og ólöf K. Harðardóttir óperusöngkona syngur einsöng við undirleik Jóns Stefánssonar. Þá verður efnt til skyndihappa- drættis og eru meðal vinninga nokkrir eigulegir og sérstæöir gripir af úkrainsku listmuna- sýningunni sem opin var að Kjarvalsstöðum frá miðjurn september til miös október og vakti mikla athygli. Kaffi- veitingar veröa á boðstólum á samkomunni, en aögangur að henni er öllum heimiil meðan húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning frá MIR)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.