Þjóðviljinn - 04.11.1978, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 04.11.1978, Qupperneq 20
DJOÐVIUINN Laugardagur 4. nóvember 1978 Aftalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12 og 5 — 7 á laugardögum. Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaös- ins i þessum Simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, Utbreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348. Skipholti 19, R. I BÚÐlKl slmi 2980«. (5 linurU—__________ Verslið í sérverslun með litasjónvörp og hljómtœki ; Stefnumörkun í landbúnaði Meðalbúin eru hagkvæmust í rekstri Steingrimur Hermannsson landbúnaöarráöherra, sagði á fundi með blaðamönnum I gær að tillögur sjömannanefndarinnar yrðu lagðar fram á Alþingi i frumvarpsformi. Er stefnt að þvi að kvótakerfið komist til fram- kvæmda næsta haust. Fram kom að framleiðsla sauð- fjárafurða hefur aukist um 8% á árinu umfram neyslu og mjólkur- afurðir um 4-5%. Smjörbirgöir hafa einnig aukist. Nú eru til 1460 tonn af smjöri i landinu eöa liö- lega ársbirgöir, en að öllu óbrey ttu munu birgðirnar nálgast 2000 tonn I lok næsta árs. Landbúnaðarráöherra lagði áherslu á að tillögur nefndarinnar væru fyrsta skrefið i átt til stefnu- mörkunar i landbúnaöarmálum, en þær væru þó aöeins bráða- birgöaráöstafanir til að mæta þeim vanda sem við blasir. Meö þeim væri stefnt að þvi að fá bændur til að draga Ur bústærð, þvlþaöheföi sýnt sig að meöalbú- in væru að öllu ieyti hagkvæmust i rekstri. Steingrimur taldi aö viö stefnu- mörkun i landbúnaöi'þyrfti eink- um að hafa þrennt aö leiðarljósi: Tryggja þyrfti bændum sambæri- legar tekjur miöað viö aöra þjóð- félagshópa, miða þyrfti fram- leiðsluna sem mest við innan- landsmarkaö og gera hana fjöl- breyttariogloks þyrfti að gæta að byggöamálum, þvi landbúnaður- inn væri hornsteinn byggöastefn- unnar. Ráðherra sagðist stefna að þvi að leggja fram þings- ályktunartillögu i vetur um stefnumörkun i landbúnaöi. Styrki til landbúnaðarins taldi hann alltof rigbundna i lögum og þyrfti aö gera þá mun sveigjan- legrirenda værisamstaöa um þaö meöal bænda. Steingrimur sagðist hafa beitt sér gegn þvi við gerö fjárlaganna að útflutningsuppbætur eða styrkir til bænda yrðu skertir. Stefiia rikisstjórnarinnar væri aö reyna að tryggja launþegum um- saminn kaupmátt og gengi slik skerðing þvert á þá stefnu. Gunnar Guöbjartsson formaöur Stéttarsambands bænda sagði að landbúnaðarlöggjöfin væri orðin meiraen 30áragömul. Þegarhún var sett var skortur á land- búnaöarvörum og átti löggjöfin þvi að stuðla aö aukinni búvöru- framleiðslu. Nú fyrst væri gerð tilraun til aö breyta þessari stefnu. Gunnar sagði að samkvæmt út- reikningum væru hagkvæmustu búin meö 25-30 kýr eða 350 ær. Þróunin væri i átt til sérhæfingar en fleiri tækju þó eingöngu upp sauöfjárrækt en kúabúskap. Mjólkurframleiðsluna taldi hann meira vandamál en sauð- fjárbúskapinn. Hún hefði aukist undanfarin ár en sauöfjárfram- leiöslan staðið fremur I stað. Þannig hefðu safnast upp smjör- birgðir, sem enginn markaöur væri fyrir. Hinsvegar væri ullar- og skinnaiönaöur vaxandi þáttur I útfiutningsframleiðslunni og skapaði mikla atvinnu i iðnaöi. Miðaö viö innlenda neyslu er umframframleiðsla sauðfjáraf- urða 32-3% en offramleiösla Steingrfmur Hermannsson land- búnaðarráðherra: Styrkir til landbúnaðar þurfa að vera sveigjanlegri en nú er. mjólkurvara miðað viö innlenda neyslu er 16%. Ekki hefur komiö fram sú aukning i smjörsölu sem búist var viö eftir siðustu lækkun smjörs. Nú er starfandi nefnd á'Vegum landbúnaðarráöuneytisins um endurskoðun framleiðslulög- gjafarinnar i samræmi viö stefnuyfirlýsingu rikisstjórnar- innar um aö teknir verði upp beinir samningar við bændur. Hákon Sigurgrimsson starfs- maöur Stéttarsambands bænda, hefur verið ráðinn til land- búnaöarráðuneytisins sem sér- stakur ráöunautur og mun hann eingöngu vinna að stefnumótun i landbúnaöarmálum. —eös Slysagíldrur í Borgarnesi Slysagildrurnartvær, sem sjást á þessum myndum, eru I Borgar- nesi. A annarri myndinni sést raf- magnskapall, sem liggur ofan- jarðar, en á hinni er húsgrunnur, háiffuliur af vatni. Starfsmenn Rafmagnseftirlits rikisins sögöu að það væri ský- laust brot á reglugerð aö grafa kapalinn ekki i jörö og stafaöi af þvi mikil hætta. Það er augljóst hvilika hættu það getur haft i för með sér, ef börn leika sér óvar- lega með þennan kapal. Húsgrunnurinn stendur við hliöina á íbúðarhúsi, sem fjöl- Happdrætti Þjóðviljans 1978 Glæsilegir ferðavinningar Takið þátt i aö rétta markaöslögmálin af Miðar i happdrætti Þjóðviljans hafa nú verið sendir út til um- boðsmanna og áskrifenda um land allt. Eins og áður er brýn þörf á þvi að velunnarar blaðsins styðji við bakið á útgáfu með miðakaupum i happdrættinu. Vegna sérstöðu sinnar i stjórn- málum verður Þjóðviljinn aldrei útgefinn sem markaðsvara ein- göngu og þessvegna er það sem leitað er árlega til velunnara blaðsins til þess að rétta markaðslögmálin af. Vinningar I happdrætti Þjóð- viljans að þessu sinni eru aöal- lega ferðavinningar samtals að verðmæti 2.8 miljónir króna. Hér er um að ræða orlofsferðir til Grikklands, Kanarieyja, Irlands, MaQorca, Costa del Sol og Costa Brava á Spáni og til Italíu. Verö miða i happdrætti Þjóö- viljans 1978 er kr. eitt þúsund og verður dregið 1. desember næst- komandi. Upplýsingar eru veittar hjá umboösmönnum og I sima 17500 og 81333. 1 Reykjavlk er hægt að greiöa miða á skrifstofu Alþýðubanda- lagsins aö Grettisgötu 3 og I Þjóö- viljahúsinu Sföumúla 6. Þegar eftir að útsending miða hófst fyrir nokkrum dögum hefur fólk komið á þessa staði til þess að greiöa heimsenda miöa. Eins og oft áður er það fyrst og fremst ■ eldra fólk sem stutt hefur mál- staöinn lengi og vill leggja sitt að mörkum af litlum efnum sem er fyrst til þess að gera skil. —ekh Mógröfin býður hættunum heim skylda með litil börn er nýflutt i. Ibúar hússins hafa árangurslaust óskað eftir þvi við lögregluna I Borgarnesi, að hún sjái um aö dælt verði upp úr grunninum. 1 skipulagslögum er kveðiö á um, aö ef hætta stafi af framkvæmd- um, eigi byggingaryfirvöld á hverjum stað að krefjast úrbóta. Ef þeim er ekki sinnt, hafa yfir- völd vald til aö framkvæma verk- ið á kostnað viðkomandi aðila. Húsgrunn þennan mun eiga að fylla upp hvort eð er, og er ekki vitaö eftir hverju er verið aö biöa með að framkvæma þaö verk. Oft hafa oröið slys á börnum, og nokkur banaslys, I ógirtum gryfj- um og grunnum. Ekki þarf að fjölyröa um þá hættu sem ósynd- um börnum er búin af sllkum slysagildrum. Yfirvöld I Borgarnesi ættu að sjá sóma sinn i að lagfæra þessar hættulegu slysagildrur, áður en verra hlýst af. —eös Rafmagnskapallinn liggur ofan- jarðar Friðarsamiiingur á stutt í land WASHINGTON/ 3/11 (Reuter — Cyrus Vance utanríkisráðherra Bandaríkjamanna sagði í dag að friðarsamningur ísraelsmanna og Egypta væri nú á ytri höfninni og liði ekki á löngu þar til hann legðist upp að. 1 gær átti hann fund með Begin forsætisráöherra sem staddur var I New York, til að veita friðarverðlaunum viötöku sem kirkjuráð borgarinnar gafu honum. Sagði Vance fund þeirra hafa verið mjög gagnlegan. Og heföu margir hnútar leyst. Hins vegar greindi þá enn um ný- byggingar á herteknu svæöun- um. Sagði hann Israelsmenn og Egypta munu gera samkomu- lag varðandi hugsanlega sjálf- stjórn Palestinumanna. Ef Jór- danir neituðu enn aö taka þátt i viöræðunum, gætu fulltrúar Palestinuaraba setiö I sendi- nefnd Egypta. Innrásin í Tansaníu: Amin vlll hnefalelka í stað styrjaldar NAIROBI Kenya 3/11 (Reuter) — Idi Amin kom fram I dag og stakk upp á að I stað blóðsúthellinga á orustuvellinum, gætu þjóö- höfðingjar hinna tveggja striðandi landa, Uganda og Tanzanfu útkljáð sin mál með hnefaleikaeinvigi. Idi Amin er maöur mikill að velli og auk þess fyrrver- andi hnrfaleikari. Stéttar- bróöir hans i Tanzaniu, Nyerere er hins vegar væskilslegur og hefur aldrei nálægt hnefaleikum komið. Tanzanlumenn kunnu ekki aömeta friðartillögur Amins og svöruöu þvi til að Amin væri brjálaður hnefaleikari sem þjáðist af syfilis ekki slöur en Hitler. Einnig köll- uðu þeir hann djöfullegan galdralæknisson. Hins vegar er styrjöld sU sem nú geisar enginn brand- ari. Yfirvöld i Dar-es-Salam skýrðu frá þvi I dag að Tanzaniuher hefði skotiö tvær herflugvélar frá Ug- anda niður, þar sem þær reyndu aö sprengja brú I Tanzaniu. Ekki var þess get- iö hvað varð um brúna. Þar var einnig skýrtfrá að her landsins heföi skotið þrjár herflugvélar frá Ug- anda niður i slðustu viku og auk þess aðrar þrjár frá þeim sjálfum i misgripum. Flugvéla- móðurskipið Forrestal: Missti 22 báta í ofviðri 19. okt. Skýringin á bátun- um sem hafa fund- ist hér við land Slysavarnarfélagið hefúr nú fengið skýringu frá bandariska sjóhernum á gúmmibjörgunarbátunum sex sem fundist hafa sunnan við land. Þeir eru úr flugvélamóö- urskipinu Forrestal sem var á leið frá Evrópu til Ameríku og lenti I ofsaveðri 19. októ- ber s.l. Þegar veðrið var af- staðiö kom i ljós aö 22 af 38 björgunarbátum af þessari gerð (25 manna) hafði skolað út. Þetta var suður af íslandi og hafa nú 6 komið i leitirnar svo að vitað sé eins og áöur sagði. —GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.