Þjóðviljinn - 26.11.1978, Síða 3
Sunnudagur 26. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Íi
4
Virki og vötn
eftir Ólaf Jóhann Sigurösson
Að ýmsu leyti svipar Virkjum og vötnum til tveggja
siðustu ljóðabóka Olafs. Þessi ljóð geta þó talist fjöl-
breyttari tilbrigöi sömu eða svipaðra stefja.Sá lýriski
strengur sem hefur verið meginkostur kvæða Olafs
Jóhanns hljómar hér i allri sinni mýkt og veldi og hér
er að finna mikið af tærri náttúrulýrik. En það sem
knýr þann streng eru áleitin viðfangsefni samtimans,
uggur um mannleg verðmæti og llf vort á jöröu, leit
að mótvægi, „virki”, i breyttum og viösjálum heimi.
Útkoma slikrar ljóðabókar er fágætur viðburður og
ljóðaunnendum mikið fagnaðarefni.
Flateyjar-Freyr
eftir Gudberg Bergsson
í bókinni eru 32 ljóð sem beint er til Freyslikneskis
Jóns Gunnars Arnasonar i Flatey á Breiðafirði. Þetta
er ismeygilegur og forvitnilegur skáldskapur og vinn-
ur mjög á við nánari kynni. Skáldið ljóðar á guðinn
hugleiðingum um hin margvislegustu efni, forna
heimsmynd og nýja, málfræði og hagfræði, list,
mannlif, þjóðfélag.
Átt þú heima hér?
eftir Úlfar Þormóðsson
Skáldsaga sem gerist i dæmigerðum og ef til vill kunn-
uglegum útgerðarbæ, þar sem rikir i raun fámennis-
stjórn- eða einræði eins manns i skjóli fyrirgreiðslu-
kerfis. Margt kemur við sögu, meðal annars útsmogin
togarakaup erlendis og nýstárlegar bókhaldskúnstir i
útgerðarrekstri. Og þegar grunur leikur á að til standi
að gera uppskátt allt sem fram fer i bænum bregðast
máttarstólpar við á dæmigerðan hátt.
Sögur úr seinni striðum
eftir Böðvar Guðmundsson
Sögur þessar eru ólikar að efni og fjalla um ýmsar
hliðar á islenskum veruleika siðustu 39 árin eða svo.
Striðin sem sögurnar fjalla um eru af ýmsu tagi, allt
frá heimsstyrjöldinni miklu til þess striðs sem menn
heyja gegn annarlegum óargardýrum i kálgarðinum
heima hjá sér, að ógleymdum erjum viðskiptalifsins
og heilagri baráttu um sálir manna sem selt hafa sig
djöfli!
Vatn á myllu kölska
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Snjöll og margslungin skáldsaga sem erfitt er að lýsa i
fáum orðum. Hún gæti kallast fjölskyldusaga eða
ættarkrónika i gömlum stil. Hún er hvöss og markviss
ádeilusaga og afhjúpandi samtiðarlýsing. Vettvangur
sögunnar er Reykjavik nútimans. Aðalpersóna er
sjónvarpskvikmyndagerðarmaður sem er orðinn
uppgefinn á starfi sinu. Hann stefnir hraðfara til glöt-
unar. Á þeim dögum i lifi hans sem sagan segir frá
verðurhannmargsvisari,ekki síst um sekt og úrkynj-
un þeirrar voldugu fjölskyldu sem á bak við hann
stendur.
ÓLARW JOHANN SIGUBDSSON
vc
FLATEYJAR -FREYR
LJÓOFÓRNIR
ÁTTÞÚ
HEIMA
HÉR?
H'
«3HI! m «
ilÍHIVAR ajDMUNOSSON
K8LSKA
Máli og menníngu
LISTMUN AM ARKAÐUR