Þjóðviljinn - 26.11.1978, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. nóvember 1978
DWÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: Otgáfufélag ÞjóBviljans
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson.
AfgreiBsiustjóri: Filip W. Franksson
BlaBamenn: ÁlfheiBur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Erla Sig-
urBardóttir, GuBjón FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur
Margeirsson. MagnUs H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta-
fréttamafiur: Ingólfur Hannesson
ÞingfréttamaBur: SigurBur G. Tómasson
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Gtlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson. Sævar GuBbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur, BlaBaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir,
Elias Mar, öskar Albertsson.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: RUnar SkarphéBinsson, SigrlBur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuBrUn GuBvarBardóttir, Jón Asgeir SigurBsson.
AfgreiBsla: GuBmundur Steinsson. Kristln Pétursdóttir.
Slmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, SigrlBur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: SigrUn BárBardóttir.
HUsmóBir: Jóna SigurBardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi MagnUsson, Rafn GuBmundsson.
Ritstjórn, afgreiBsla og auglýsingar: SiBumUla 6.
Reykjavlk, slmi 81333
Prentun: BlaBaprent h.f.
Stríðið um
fjölmiðlana
• Eftir langt þóf sem á sér margra ára forsögu hef-
ur aðalfundi UNESCO, menningarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, tekist að gera samþykkt um fjöl-
miðla, sem fulltrúar hinna ólikustu sjónarmiða i
austri, vestri og suðri gátu sameinast um.
• Eitt helsta ágreiningsefnið var það, að margir
fulltrúar þriðja heimsins vildu fá inn i UNESCO-
yfirlýsinguna ákvæði, sem stefnt væri gegn vest-
rænni einokun á miðlun frétta og upplýsinga. Full-
trúar Vesturveldanna andæfðu á þeim forsendum,
að i þeim drögum að ályktun.sem lengst af voru til
umræðu, væri reynt að gera rikisstjórnir ábyrgar
fyrir fjölmiðlum i landi sinu undir þvi yfirskyni að
koma þyrfti i veg fyrir rangar og niðrandi upplýs-
ingar um önnur riki og þjóðir. Þar væri verið að
bjóða heim aukinni ritskoðun, beinni og óbeinni.
Nýfundinn í
Suður-Afríku
Fyrir skömmu gerðust
þau tíðindi í demantsnám-
unni Premier í Suður-
Afríku, að Stoffél Nel
námuverkamaður fann
gríðarmikinn stein, sem
var á stærð við eldspýtu-
stokk og vóg 354 karöt og er
Stóru rósirnar tver — enginn veit hvar þer nú eru niöur komnar.
Dýrasti demanturinn
• Svo vill til, að báðir höfðu rétt fyrir sér. Það er
rétt, að fjórar fréttastofur vestrænna stórvelda hafa
um 80% allrar upplýsingamiðlunar i höndum sér.
Það er lika rétt að þetta vald yfir fréttamiðlun, sem
stappar nærri einokun, verður i reynd mjög óhag-
stætt þeim löndum sem venjulega eru kennd við
þróun. í reynd fara varla aðrar fréttir frá þeim um
heiminn en tiðindi af stórslysum, hungursneyð.inn-
byrðis styrjöldum eða þá fáránlegum tiltækjum
einstakra þjóðhöfðingja. Fulltrúar þróunarland-
anna hafa bent á það, að vestræn blöð hafi gert
meira veður út af krýningarstússi Bokassa keisara
en öllum þeim tiðindum sem gerst hafa i atvinnulifi
Afriku samanlagðrar á undanförnum tiu árum.
• Hitt er jafnvist, að þegar fulltrúar þróunarrikja
kvarta yfir þessu ástandi, þá er alls óvist að það sé
gert i þágu hlutlægni og fjölbreytni i fjölmiðlun. I
mjög mörgum tilfellum er hér um að ræða viðleitni
til að tryggja opinberum aðilum vissa möguleika til
að koma á framfæri hagstæðri mynd af athöfnum
stjórnvalda, og þá stjórnvalda sem dettur ekki i hug
að sleppa úr hendi ströngu eftirliti með blöðum og
öðrum fjölmiðlum i eigin landi. í flestum löndum
þriðja heimsins, sem og i Sovétrikjunum og grann-
rikjum þeirra, er opinber stjórnun á fjölmiðlun og
áherslum i þeim alkunn staðreynd, og árangurinn
er ekki það glæsilegur að hann freisti til eftirdæmis,
hversu mjög sem menn vilja gagnrýna frammi-
stöðu fréttarisanna fjögurra, AP, UPI, Reuters og
AFP.
• Það var þvi að vonum, að málamiðlun varð ofan á
hjá UNESCO: bæði var tekið tillit til vilja þróunar-
rikjanna til að bæta stöðu sina og uggs þeirra, sem
ekki vildu að góð áform væru notuð til að efla i
reynd ýmislega ritskoðun, sem meira en nóg er af
fyrir. Mál þetta leiðir vel fram tvennskonar vanda
þeirra sem vilja reyna - að átta sig á þeim
heimi sem þeir lifa i og breytingum sem á honum
verða. Annarsvegar eru möguleikar þeirra skertir
af opinberri ritskoðun. Hún er afleit, en hefur þó
þann kost að hún villir ekki á sér heimildir. Hinn
vandinn er sá, að þeir öflugu fjölmiðlar.sem starfa i
nafni frelsis og margbreytni, eru i raun mjög
bundnir af viðhorfum og fordómum ráðandi stétta i
örfáum hinna auðugustu Vesturvelda. í baráttu við
þessa tvo þursa fer upplýsingastriðið fram á degi
hverjum.
-áb
nú orðinn dýrastur steina í
heimi.
Nel greip aö sönnu andann á
lofti, en geröhræringin leiö skjótt
hjá — hann vissi aö hann átti ekki
neitttilkall til fundarlauna. Innan
skamms var hann farinn aö tala
um fótbolta yfir tebolla meö
vinnufélögum sinum — „en viö
tölum aldrei um vinnuna” sagöi
hann.
Þessi hvitblái eöalsteinn var
seldur Joe Mouw demantsala I
Jóhennesarborg fyrir sem svarar
l,5miljaröikróna. Mouw læsti aö
sér og velti lengi vöngum yfirdem
antinum. Hann gætti þess vel aö
vernda dýrgrip þennan vel fyrir
hljóöbylgjum — ekki mátti beita
hamri eöa skella huröum:
demantur er aö sönnu haröasta
efni sem til er, en getur veriö afar
brothættur. Til aö skapa sem
bestar forsendur fyrir þvi aö slipa
steininn þurfti aö kljúfa hann i
tvennt. Leitin aö sem bestum
skuröfleti tók heila viku. Ungur
demantslipari vann siöan i tvo
mánuöi aö þvi aö saga steininn I
sundur þannig aö „mylsna” yröi
sem allra minnst. Af þessari
vinnu uröu til tveir steinar, Stóra
rósin, sem er 279,9 karöt, og
Littla rósin sem er 70 karöt og svo
flis sem heitir „Baby Rose” og
vegur 6,1 karöt. Joe Mouw kvaöst
selja mundu þessa þrenningu
alla saman, og vildi fá fyrir um
3,3 miljaröi króna.
Steinninn fannst fyrir sjö
mánuöum, og var seldur en eng-
inn veit hvar Rósirnar þrjár eru
nú niöurkomnar. Menn geta upp á
Bokassa keisara, Iranskeisara
eöa einhverjum olíúfurstanna. En
Joe Mouw er bundinn þagnarheiti
og segir ekki orö.
Meira
borðstofusettið komið aftur
Þetta glæsilega borðstofusett fæst nú á mjög hagstæðu verði I þremur við-
artegundum.Hinar vinsælu Meira skápa- og hillusamstæður væntanlegar
i vikunni.
Veljum islenskt. Verslum
hjá framleiöanda. Opiö á
föstudögum til kl. 7 og á
laugardögum til kl. 4.
Á.GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Simi 73100