Þjóðviljinn - 26.11.1978, Síða 10

Þjóðviljinn - 26.11.1978, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. ndvember 1978 Rætt við Ólaf Hauk Símonarson um nýja skáldsögu hans, sem Mál og menning gefur út „Sel það ekki dýrara en ég keypti það” Ól a f u j> Haukur Símonarson hefur nýlega sent frá sér skáldsögu, er hann nefnír „Vatn á myllu kölska". Mál og menning gefur bókina út og er þetta fyrsta eiginlega skáldsagan eft- ir ólaf, en hann hefur áöur'sent f rá sér smásög- ur og Ijóð, aö ógleymdum vinsælum hljómplötum fyrir börn og fullorðna. Otgefin verk ólafs til þessa eru: Unglíngarnir í eldofninum 1972, Má ég eiga við þig orð, 1973 — önnur útgáfa '76 — ,Dæmalaus ævintýri, 1973, Svarta og rauða bókin 1974 Rauði svifnökkvinn 1975, Haust- sýning 74, 1975, Vélarbil- un i næturgalanum og hljómplöturnar Eníga meníga 1975 og Kvöld- fréttir 1977. Sunnudagsblaö Þjóöviljans kom aö máli viö Ólaf Hauk i sambandi viö útgáfuna á hinni nýju skáldsögu hans, og spuröi hann fyrst um efni bókarinnar. — Þetta er fyrst og fremst fjölskyldudrama eöa ættar- krónfka i góöum gömlum stll. Aöalpersónan er maöur á fertugsaldri, er starfar sem dagskrárgeröarmaöur viö siónvarp. Ekki endilega viö sjónvarpiö, en þó gerist sagan greinilega á Islandi og meira segja i Reykjavfk, ef betur er aö gáö. Þaö eru raktar ymsar kring- umstæöur hjá fjölskyidunni f höfuöborginni og greint frá þvf hvernig þessi borgaralega fjöl- skylda, s$m er vel efnum búin, tengist hinum ýmsu valda- punktum f þjóöfélaginu. Maöur- inn, eöa strákurinn, er svolftið tæpur, fjölskyldan hanskast meö hann, hann er ómyndugur aö vissu leyti, en er þó leitandi. Hann er óöruggur og ótryggur og hallast upp aö flöskunni blessaöur — Er þetta eins konar lykii- róman um sjónvarpiö? — Þetta er eiginlega ekki nein analýsa á sjónvarpinn sem sliku. En brugöiö er upp mynd af starfsfélögum aöalpersón- unnar, starfsmöguleikum stofn- unarinnar er lýst og hvernig verkefni eru leyst viö gefnar kringumstæöur. — Hver er' þá kjarni sögunn- ar? — Þetta er tilraun til aö sýna sneiö af borgaraskapnum á tslandi. Reynt aöútiista hvernig valdaþræöir og klikuskapur koma saman. Ég hef reynt aö lýsa þessu ástandi i gegnum persónurnar, frekar en aö taka aö mér hlutverk útskýrandans. En auövitaö er aldrei hægt aö komast hjá þvi, aö láta persón- urnar segja, hugsa eöa fram- kvæma eigin skoöanir. — Hvernig vannstu söguna? — Eg er búinn aö vera meö þessa skáidsögu lengi I smiö- um. Ég hef aldrei skrifaö fullvaxna skáldsögu áöur — ég lit varla á Vélarbilun f nætur- gaianumsem skáldsögu, og þvi er þetta viss frumraun hjá mér. Ég prófaöi ýmis afbrigöi eöa tilbrigöi, en aöallega hef ég reynt aö skera höfundinn sjálf- an niöur, og látiö persónurnar stiga fram. Aö lesa skáldsögu er gömul og heföbundin bók- menntavenja á tslandi, og ef maöur vill koma einhverjum félagslegum boöskap til lesand- ans, er gefin leiö aö skrifa skáldsögu. Beinasta leiöin aö iesandanum er hin Vaunsæis- lega söguaöferö. — Sagan gerist f Reykjavik. Hvaöa augum lftur þú á þessa höfuöborg okkar? — Reykjavik er hvorki nógu stór til aö veita ákveöna friö- helgi, né nógu litil til aö foröast róg. Hér hálfþekkja allir alla, og sögusögnum er auöveidlega komiö á flot. Sagan er lfka undarlega fljót aö berast I þess- ari borg, og menn eru mjög vilj- ugir aö barna slfkar gróusagnir, en láta alltaf fljóta meö: „Ég sel þaö ekki dýrara en ég keypti þaö”. —im Vatn á myllu kölska Gunnar Hansson og Brandur Friöfinnsson skála í rauöum eyrnamergi og Brandur kippir sér ekki upp viö tannkremsbragö- iö úr glasinu. Þvf flúorinn gerir tennurnar sterkari og sterkari meö hverjum sopa. Aö venju veröur þeim tförætt um stofnunina. Skipulagsleysiö sem herjar einsog drepsótt, hroka og vangetu yfirmannanna, hiö smánarlega kaup, upphafningu sumra, niöurlægfngu annarra. Þeir ræöa um kumpán sinn Hans Grétar. Kunnáttuleysi hans, hégómagirni, fégræögi og karakt- erheimsku. Sá maöur muni aldrei læra, ekki einusinni af reynsl- unni. Og þaö veröi umfram allt aö sneiöa hjá honum I þvf mannlega. — Þaö fer bókstaflega hrollur um mig þegar hann opinberar sfnar pólitisku hugmyndir, segir Brandur. Þá er skárra aö heyra hann vaöa elginn um kvikmynda- gerö, allavega er þaö meinlaus- ara. Gunnar Hansson samsinnir. — Um aö gera aö ræöa viö hann um eitthvaö sem gelgjuskeiössál hans gripur, segir Brandur, ein- falda hluti: peninga, riöingar, byssur, hraðbáta, bila — þaö skil- ur hann. Snúist umræöa hinsveg- ar aö menningarmálum og listum — ég nefni ekki stjórnmál — þá vellur karakterheimskan fram einsog gröftur úr kýli. — Eitt má hann þó eiga, segir Gunnar tilaö vega á móti þessari ófögru lýsfngu, hann finnur lykt af peningum lángar leiðir. — Þaö er rétt, segir Brandur og kínkar kolli, þaö er laukrétt. En aö klippa saman tvo filmubúta, þaö kann hann ekki. Meirasegja klippiboröin óttast handbrögö hans, þvf yfirleitt bila þau bara ef hann nálgast þau. Þeir kunna margar kátlegar sögur af vinnubrögðum Hans Grétars. En þeir kunna jafnvel ennú furöulegri sögur af öörum yfirmönnum stofnunarinnar. Sögurnar eru flestar lýginni lfk- astar, en hafa allar aö geyma sannleikskjarna. Og þó þær væru aö hluta til lognar þá breytir þaö engu, segir Brandur, lýgin getur aldrei oröiö eins lýgileg og raun- veruleikinn blákaidur og ótil- reiddur. Þaö eru margir stórmerkir andar i stofnuninni, um þaö eru þeir félagar hjartanlega sam- mála. Þaö er deildarstjóri Geim- rannsóknadeildar. Og þaö er leiö- togi Geödeildar. En þeim bland- ast samt ekki hugur um aö af öll- um yfirmönnum Sjónvarpsstööv- arinnar er Spámaöurinn, ööru nafni Björn Brandsson, sá láng- samlega merkilegasti. Hann ber af einsog gull af eiri. — Þaö er eitthvað yfirskilvit- legt viö hann, segir Brandur, eng- inn stenst dýrinu snúninginn. Og þeir rif ja upp sögur af Spá- manninum. Sögur af skoplegum, dularfullum og óhugnanlegum uppátækjum. Sögur af hryllileg- um geðsveiflum, ótrúlegu purk- unarleysi og refshætti. Spámaö- urinn er fullur meö leikræna tján- íngu, sjór af þjóölegum fróöleik, brunnur kúnstugra uppátækja. Hann er margir menn i senn. Kannski öll þjóöin i einum búki. Spaugarinn, þjóðháttafræöingur- inn, glimukappinn, trúmaöurinn, rimnaþulurinn, kerfisrottan, póli- tikusinn. Hann er ofsakátur með gleöitár á hvörmum eöa einsog umsnúinn hrossskrokkur. Hann er ljúfur einsog freyöibaö eöa glefsinn einsog vargur. Allt þetta i einum búki! Og hvaö af þessu er ekta, hvaö uppgerö og leikara- skapur? — Þaö er á viö Fróðárundrin aö karlinum skuli hafa tekist aö bola undir sig Upplýslnga & Fróöleiks- miöstöö landsins, segir Brandur og tottar vindilstúfinn, maöur sem hefur miklu meiri áhuga á rimum en alþjóöamálum. En hann malar allt undir sig meö kjaftavaölinum, þaö kemur eins- konar málþreyta I fólk, enginn stenst til lángframa þennan mal- anda. Þeir þrástagast á þvi hvaö Björn Brandsson sé merkilegur persónuleiki. Aöferöir hans viö fréttaöflun og fréttamat séu væg- ast sagt mjög persónulegar. Þaö sé lýginni likast hvaö hann megni aö sneiöa hjá stórtiöindum i heiminum. Hvaö hann sé fljótur aö segja fyrir tiöindi sem alls ekki gerast. Og hvaö hann sé naskur aö slá niöur óæskilegar uppákom- ur. Honum sé lagiö aö draga alla náttúru úr frettahandriti bara meö þvi aö veifa hlutleysisregl- unni. Sem getur þýtt allt aö þvi aö hlutveruleikinn sé snögglega úr sögunni. Og hvaö Spámaöurinn kunni einfaldar skýringar þegar sérfræöingar heimsins standi á gati. Hvortsem þaö er olluþurrð i jöröu, hrynjandi gjaldeyris- markaöir, stúdentauppreisnir átök í Mið-Austurlöndum — or- sakir ogafleiöingar alls þessasér Spámaöurinn i hendi sér. — Ljós hans er ekki týra mann- legrar skynsemi, segir Brandur, ljós hans kemur aö ofan. Hann er i beinu simasambandi viö æöri máttarvöld. — Hann veit sinu viti, segir Gunnar Hansson, sem alltieinu er oröinn hundleiöur á þvi aö rakka niöur Björn Brandsson. — Vist er um þaö, segir Brand- ur Friöfinnsson sem er alls ekki á þeim buxunum aö hætta aö tala um Björn, kallinn veit sinu viti. Allavega er þaö andskoti merki- legt hvaö hann kemst oft aö hent- ugum niöurstööum. Já, þaö er oröið, hentugum. Þaö er nefni- lega kerfi I vitleysunni hjá hon- um. Hann lætur ekki hánka sig. Hann flýtur oná einsog korkur. Aldrei skal honum veröa hált á pólitikinni, hann er hreinlega skyggn á smæstu gárur I þorsk- hausunum á Alþingi. Brandur kveikir sér I vindli. Blæs frá sér reykjarmóöu. — Og þó, segir hann, og þó — aöferðin er ekki flókin, hún er sú aö sýna öllu jákvæöan skilning, en styöja samt alltaf afturhaldiö þegar á reynir. Gunnar Hansson veröur aö kveöa uppúr um þaö aö sér liki bæði vel og flla viö Björn Brands- son, þyrfti hann ekki aö vinna meö honum gæti hann meirasegja haft gaman af tilburðum karlsins. — Eitt veröur maöur aö gera sér ljóst, segir Brandur. Megin- styrkur karlsins er fólginn i hæfi- leika hans tilaö stækka sig á smæö annarra. Hann setur nær undantekningarlaust undirmáls- menn næst sér. Og hann hefur óskeikula eölisávisun um þaö hvar garöurinn er lægstur. Þaö gerir hann aö óvinnandi vigi. — Ég held þú ofmetir hann, V æntan- legar bækur á vetrar- markaði segir Gunnar Hansson. Kannski er hann ekki eins útsmoginn og þú vilt vera láta. — Eitthvað var karlinn aö kvelja þig I gær? segir Brandur. Gunnar Hansson litur upp. — Þaö var rifa á dyrunum, segir Brandur til skýríngar og glottir. Segöu nú frá! Brandur gerir enga tilraun tilaö dylja forvitni sina. Gunnar Hansson haföi reyndar séö þaö á andlitunum i matsaln- um I hádeginu aö sagan væri þeg- ar I loftinu. — Ég veit ég get treyst þag- mælsku þinni, segir Gunnar Hansson. — Þaö segir sig sjálft, hlær Brandur. Þjóö veit þá þrir vita. — Þaö kom til minniháttar ágreinings milli okkar Björns, segir Gunnar Hansson, ágrein- ingurinn snérist um mörk hins framkvæmanlega. Björn haföi eina skoöun á málinu, en ég haföi aöra. Af þvi hann er mörgum launaþrepum fyrir ofan mig reyndist hann náttúrlega hafa á réttu aö standa. Mér dettur ekki til hugar aö gera veöur útaf jafn sjálfsögöum hlut. — Enda stendur kallinn af sér öllveður, segir Brandur ánægöur. Gunnar Hansson skýrir frá þvi, aö hann hafi setið púngsveittur I marga daga viö það aö leggja drög aö kvikmyndahandritum, hann hafi gert kostnaöaráætlanir, ráögert hvernig mætti nýta betur tækjakost og mannafla stofnun- arinnar. Meö öörum oröum, reynt aö finna leiðir til þess aö gera kvikmyndir innan ramma stofn- unarinnar, myndir sem menn þyrftu ekki aö skammast sin fyrir. Ef menn einusinni settust .íiöur og hugsuöu sig um, væri kannski von til þess aö tækist aö gera, þó ekki væri nema fáeinar heiöarlegar myndir um lifiö I þessu iandi. Þaö kumrar I Brandi. Gunnar Hansson heldur áfram einsog ekkert hafi i skorist. — Myndir um lifið einsog þaö er bakviö hina viöurkenndu fram- hliö. Gunnar Hansson heyrir sjálfan sig endurtaka nákvæm- iega orö Kristinar. Sleppa masinu og blekkingunni, gera myndir um venjulegt fólk, gefa fri I eina um- ferö, þótt ekki væri meira, anda- læknum, músikölskum iönrek- endum, frystihúsaeigendum, sér- vitringum og öörum heföbundn- um sjónvarpsmubblum. — Ætlaröu aö telja mér trú um aö þú hafir orðað þetta svona viö kallinn? spyr Brandur og ráng- hvolfir I sér augunum. — Reyndar ekki, viöurkennir Gunnar Hansson. — Þaö var eins gott! þrumar Brandur. Hvar mundí þaö enda ef allir I stofnuninni færu aö hugsa ? Gunnar Hansson segist hafa gengiö fyrir karlinn, hann allur hinn kumpánlegasti, fáöu þér sæti Gunni minn, gaman aö sjá þig, hvaö gét ég gert fyrir þig vinur minn? Nú, já, drög aö mynda- flokki Gunni minn, þar sér maöur þaö, ekki er setiö auöum höndum fremuren fyrri daginn! Vinsam- legur uppfyrir haus, tók blööin,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.