Þjóðviljinn - 26.11.1978, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 26.11.1978, Blaðsíða 15
Sunnudagur 26. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 ( læknavísinda- og líf- fræðistofnuninni í Moskvu tók hópur sjálfboðaliða þátt í tilraun, sem hefur fært læknavísindin spori nær því að leiða í Ijós hina duldu getu mannslíkamans Geta menn dvalist langan tima úti i geimnum? Já. Búnaður geimskipa getur skapað áhöfn- inni mjög eölilegar, jaröneskar aðstæður. Það eina, sem ekki hef- ur tekist enn sem komið er, er aö sigrast á þyngdarleysinu. Áður en maðurinn hóf flug út i geiminn, gat enginn sagt ákveðiö um það, hvaöa áhrif slikt flug Æfingar I þyngdarleysi. Stundum gátu þeir ekki myndi hafa á mannslikamann. Þess vegna var tikin Lajka fyrst send út I geiminn. Hún var fulL komlega eðlileg eftir þá ferð. Tveir aörir hundar, Bélka og Strélka, snéru lika aftur til jarðar heilu og höldnu. Þegar læknar gáfu leyfi fyrir flugi Júrl Gagarins, vissu þeir þegar, að engar sjúklegar breyt- ingar myndu eiga sér stað i lik- ama geimfarans á meðan hiö stutta geimflug stæöi yfir. Flug Gagarins stóð yfir I 108 mlnútur. Næsta geimför var lengd upp I 24 klukkustundir. Herman Titov, geimfari númer tvö, átti erfiðar með að sigrast á varanlegu þyngdarleysi og að gera hlutlæga grein fyrir tilfinningum slnum. Snemma á áttunda áratugnum héldu vlsindamenn áfram viötæk- um rannsóknum á áhrifum þyngdarleysis á mannlegan llk- ama. Ný stefna I geimlæknisfræöi kom til sögunnar. 1 Sovétrlkjun- um og Bandarikjunum hófu vlsindamenn tilraunir með að likja eftir þyngdarleysi. Til- raunadýrin voru sett I sérstakan vökva, sem að nokkru leyti vó upp á móti llkamsþunganum I fullu samræmi við lögmál Arkimedes- ar og dæmdi þau til varanlegs hreyfingarástands, sem kallað er hypokinesia. Þetta náði þó skammt til þess að bregða upp heildarmynd af þvl, hvaða áhrif þyngdarleysi hefði á likamann. Hve lengi gat maðurinn búiö við þyngdarleysis- ástand án þess að þaö hefði óhjá- kvæmilegar afleiöingar fyrir þolað hvem annan heilsu hans? Hvers konar llkams- æfingar myndu fullnægjandi I baráttunni við hypokinesiu? Þaö vissi enginn. 1 stuttu máli: Þörf var á meiriháttar, alvarlegum tilraunum. Það var ekki auðvelt verk að velja „tilraunadýrin”. Alitið var, aö aöeins kæmu til greina heilsu- hraustir einstaklingar á aldrinum 35—40 ára, en það er meðalaldur geimfara. Loks voru valdir 18 menn, er stunduöu óllk störf, voru ólikir að skapgerð og áttu ólikan feril aö baki. Þeim var skipt I þrjá hópa. Sá fyrsti var látinn prófa þær fyrirbyggjandi aðferðir, sem ætlað var að vega upp á móti þyngdarleysi og hypokinesiu, og fylgdu þeir flugáætlun geimfara nálega I einu og öllu. Annar hóp- urinn fékk hálft starfsálag. Þriöji hópurinn fékk engar fyrirbyggj- andi aögerðir. Með fætur upp fyrir haus Hugsum okkur, að þú sért heilsuhraustur, lokaður innan fjögurra veggja I viku og fáir ekki einu sinni að ganga. Það eru ekki allir, sem þola sllka reynslu. 1 umræddri tilraun gekkst heilbrigt fólk þó sjálfviljugt undir þaö, aö reyna aö lifa þannig I sex mánuði. Og það I mjög óþægilegri stell- ingu, meö fætur hærra en höfuö, en það er ástand, sem likist mjög þyngdarleysi. Eftir viku finnur enginn lengur til þess, aö hann liggur með höf- uðið niður. Honum finnst hann liggja alveg lárétt. En hann liður ltkamleg óþægindi og líkamshit- inn lækkar. Skortur á hreyfingu orsakar vöðvaverki. Llkamshit- inn lækkar um nokkrar gráöur. Allt verður að gera liggjandi I þessari stellingu, að þvo sér, raka sig, borða, lesa. Manni er ekki einu sinni leyft að risa upp á olnboga. Þaö eina, sem hann fær að gera, er aö snúa sér á hliöarn- ar til skiptis. Fyrri hluta dagsins er variö til læknisrannsókna, sem taka til meira en 50 atriða. Eftir hádegisverö fara þátttakendur I fyrstu tveim hópunum út I leik- fimisal til starfa I sérstökum þjálfunartækjum. „Fara” er að vlsu ekki alveg rétta orðiö. Það er farið meö þá á vagni og þeim velt yfirá hann úr rúminu, einnig meö höfuöið niður. Og æfingarnar eru allar framkvæmdar i sömu stell- ingu. Einn þeirra lærði að prjóna Einn af þátttakendunum, Pjotr Perevalov, sundþjálfari, lýsir svo sumum atriðum-tilraunarinn- ar: „Tlminn sniglaðist kveljandi hægt áfram. Sérstaklega þegar viö höföum ekkert verk aö vinna. 1 sex mánuði töluöum við um allt Visindi Inni- lokaðir jt I sex mánuði: undir sólinni. Granni minn á hægri hönd, Mikjail Malikov, var að eölisfari þögull. En hann gat talað klukkustundum saman um landa slna i Dagjestan. Hann sagði okkur frá venjum fólks i Kákaslu og fór meö ljóð eftir uppáhaldsskáld sitt, Rasul Gamzatov, i Avar. Verkfræðingn- um Juri Glúkjov þótti mjög gam- an aö vlsindalegum umræöum. Annar verkfræöingur, Vladimir Alexejev, gat talað endalaust um kúlulegur. Júrl Savotsjkin ákvaö að eyöa ekki tima sinum til ein- skis og lærði aö prjóna. Hann var alltaf aö biðja hjúkrunarkonurn- ar um leiðbeiningar. Loks prjón- aði hann vettling. Hann lærði einnig að rfða fiskinet.” „Vladimir Goldstein, sem var útvarpsverkfræðingur, hafði tek- ið með sér áhöld og geröi viö út- varpstæki. Byggingatæknifræö- ingurinn Valentin Sofronov reyndist einnig vera úrsmiður. Þegar fjöðrin I úrinu mlnu, sem var gamalt og hafði áður veriö I eigu fööur mins, brotnaði, gerði hann við hana. Eftir það var jafn- vel komiö til hans með vekjara- klukkur I viðgerð. Meöan á þess- ari tilraun stóö lauk ég bréfa- skólanámskeiði. Stundum eyddi ég tlmanum I aö teikna.” Þótt allir þátttakendur lægju afturábak, reyndi hver og einn að fást við uppáhaldsstarf sitt i tóm- stundum sinum. Og aö sjálfsögðu vörðu þeir miklum tlma I aö lesa, hlusta á tónlist og horfa á sjón- varp. Sjálfstjórn í hættu Sumir sögðu að þeir finndu til skyndilegrar löngunar til þess að risa á fætur og fara heim löng- unar, sem þeir bældu niöur. Þeir sem fyrir tilrauninni stóðu höföu séö það fyrir, aö erfiðleikar til- raunarinnar myndu ekki svo mjög felast I glataðri ánægju þess að hreyfa sig, heldur I taugaálagi. Hypokinesia merkir stöðugt . innra álag. í sex mánuði voru mennirnir sviptir venjubundnu starfi slnu og umheiminum; einu tengslin viö hann var sjónvarps- skermurinn. Þeir báru oft ástand sitt saman við ástand geimfara. 1 eðli sinu var tilraunin eftirllking á þyngdarleysisástandi, svo og á varanlegu geimflugi. Það var ekki aö furða þótt „tilraunadýr- in” segðu hvert við annaö, að svo og svo margir dagar væru eftir þar til þau „lentu”, og áttu þá viö lok rúmvistar sinnar. Taugar þeirra voru svo mjög á brestipunkti, að stundum gátu Framhald á bls. 22 ^í desember bjóðum við sérstök plafargjöld frá Norðurlöndum til íslands. Þessi jólafargjöld sem eru um 30% lægri en venju- lega, gera fleirum kleift að komast heim til íslands um jólin. Ef þú átt ættingja eða vini erlendis, sem vilja halda jólin heima, þá bendum við þér á að farseðill heim til íslands er kærkomin gjöf.. Slíkur farseðill vekur sannarlega fögnuð erlendis. FLUCFELAC LOFTLEIDIR ÍSLAMDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.