Þjóðviljinn - 26.11.1978, Síða 21
Sunnudagur 26. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐÁ 21
Rjúka boðar byltist hrönn
Veturinn hefur nú um skeiö
látiö aö sér kveöa I hamförum
hriöa og frosta. Veöurfræöing-
arnir þurfa varla oröiö aö spá,
því veöriö er næstum þaö sama
dag eftir dag. Menn sem eru
vanir því aö gá til veöurs um
leiö og þeirstiga Ut á bæjarhell-
una aö morgni, eru ekki I nein-
um vafa hvernig veöriö veröur
þann og þann daginn. Samt
finnst mönnum talsvert öryggi I
þvi aö sjá veöurstofupiltana i
sjónvarpinu á kvöldin, einsog til
aö fullvissa sig um aö þeirra
eigin veöurspá af húshellunni
hafi veriö óskeikul.
Lengst af hafa íslendingar
haft bæjarhelluna fyrir spástöö.
Þaö var ekki fyrr en áriö 1926 aö
veöurstofan var stofnsett meö
tveimur starfsmönnum, Þorkeli
Þorkelssyni og aöstoöarmanni
hans.
Óvist er hvort eöa hve mikiö
af veöurspám hafi veriöskráö á
blöö fyrir daga veöurstofunnar,
en menn gáöu til veöurs, lásu Ur
skýjafari, blikum á lofti, vind-
áttum og gigtarflogum i eigin
skrokk, ásamt ýmsu fleiru,
einsog þessi visa segir:
..Veltast I honum veörin stinn”,
veiga mælti skoröan.
„Kominn er þefur í
koppinn minn.
Kemur hann senn á noröan”.
Til er mikill fjöldi af vlsum
um veöurspár. Hér er t.d. vlsa
eftir séra Ólaf Guömundsson,
prest i Sauöanesi á 16. öld:
Rauöa tungliö vottar vind,
vætan bleiku hiýöir.
Sklni ný meö skærri mynd,
skirviöri þaö þýöir.
Sjómenn þóttu oft veöur-
glöggir, enda átt mjög mikiö
undir veöur aösækja, er sjösókn
viö kom.
Hreggviöur Eirlksson, f. 1767,
skáld, sjómaöur og bóndi á
Kaldrana á Skaga, var manna
hraökvæöastur og lika veöur-
glöggur svo af bar, en i þann
tima uröu menn aö treysta á
eftirtekt sina og skarpskyggni
viö aö lesa á ölduskriö og skýja-
far áöur en á sjó var fariö.
Félagi Hreggviös og heima-
maöur, sem einnig var hag-
mæltur, ávarpaöi hann einn
morgun, er Hreggviöur haföi
gengið út og gáö til veðurs, meö
þessari visu:
Ekki eru tamir óös viö stjá
allir menn I heimi.
Hreggviöur minn, hermdu frá
hvernig list þér veöriö á.
Ekki stóð á svari hjá Hregg-
viö. Hann svaraöi meö tveimur
vlsum, sem lýsa vel athyglis-
gáhi hins reynda sjómanns:
Hann er úfinn, alhvltur,
eldur kúfa á fjöllum,
hengir skúfa i haf niöur,
um háls og gljúfur él dregur.
Lööriö dikar land upp á,
lýra kvikar stofan,
aldan þykir heldur há,
hún ris mikiö skerjum á.
Jafnvel landkrabbarnir heföu
getaö séö aö ekki var sjóveöur
þann daginn.
Oöru sinni er Hreggviöur var
spuröur um veöurútlitiö, svar-
aöi hann:
Ljós er bjart I landnoröur,
ljótt er margt I útsuöur,
hann er svartur, svipillur,
samt er partur heiörikur.
Veöur hafa oft oröið hagyrö-
ingum tilefni til vlsnagerðar.
Sumar visurnar lifa höfunda
sina, þ.e. aö um höfunda er ekki
vitað. Þó eru margar visur sem
ekki hafa skiliö við feöur sina,
og er þaö vel.
Þorlákur Kristjánsson fyrr-
um kennari stóö eitt sinn á
fjörukambinum, komst ekki á
sjó vegna veöurs og kvaö:
Rjúka boöar, byltist hrönn,
bylgja soga hraflar,
ýfir voga einsog fönn,
æöa froöuskaflar.
Sólog vindar ráöa miklu I lifs-
baráttu Islendinga. Þaö er svo
margt sem fer eftir veöri, þaö
gefur ekki á sjó, þaö er bræla á
miöunum, þaö veröur ófært um
þjóövegina, þaö er ekki flugveö-
ur, kennslafellurniöur I skólum
vegna veöurs.
Veöriö er yrkisefni á öllum
timum árs. Þórhildur Sveins-
dóttir frá Hóli I Svartárdal kvaö
veturinn 1974, áöur en þjóö-
hátiðin var haldin:
Áöur brosti hjaili og hliö
— hjartaö nostur dáir- .
Nú er frost og noröan hrlö,
nú eru kostir fáir.
Alit I kring er klaki og snjór,
kuldi lyngiö beygir.
Aldrei klingir orðasjór.
Allir vingulslegir.
Þó aö hriöin hamist striö
heröi á lýöa kjörum,
þegna biöur þjóöhátiö,
þvi mun kviöi á förum.
Aftur hlánar efalaust,
allra þánar sinni,
himinn biánar, bllökast raust,
betur lánast kynni.
Þá skal heröa hljóö á ný,
hefja ferö um strindi.
Þá mun veröa vakin hlý
vlsnamergö i skyndi.
Gieymast vetrar veörin hörö,
voriö hvetur braginn.
Skýrist letur, lifnaö jörö,
léttir betur haginn.
Aila gieöur gæöafjöld,
góölynd veöur kæta.
Dýrin seöur, yngist öld,
allt vill geöið bæta.
Sól I heiöi hýrgar lund,
hverfur neyö og tregi.
Nýta breiöir nægtamund,
neinum leiðist eigi.
Þó aö frjósi fold og mar,
fljótt þó kjósum bætur.
Allar rósir anga þar
eftir ljósar nætur.
Smáu ljóöi ljúka fer,
litt er hróöur mætur.
Þeim sem óö i brjósti ber
biö ég góöar nætur.
Þetta eru visur um veður af
ýmsum áttumá ýmsum timum,
og aö nokkru um sálarveður
manna.
Vetrarveörin geta haft áhrif á
innri veðrabrigöin, eins og þessi
visa ber vott um hjá Sigurgeir
Þorvaldssyni I Keflavik:
Haustiö llöur hægt og þétt,
haröur blöur vetur.
Innan tlöar undur létt
aö mér kviöa setur.
A vetrarhvörfum kvaö Lárus
Salómonsson i Kópavogi:
Vetur kaldur heldur heim,
honum gjaldi voriö,
slokkni aldrei eldur þeim,
ársól haldi sporiö.
Sói á mjailar skikkju skin
skýrast hjallaborgir.
Seiöir fjalla fögur sýn
frá mér allar sorgir.
1 rósa-
garðinum
Grettis var hefnt í Mikia-
garöi
Smyslov vann hinn kinverska
Guömundarbana (þann sem sigr-
aöi Guömund Sigurjónsson i
Buenos Aires.) Dagblaöiö
Byltingarafliö fundið
Hinn eyöileggjandi kraftur
frjálsra ásta er svo vel þekktur,
aö þaö fólk sem hefur visvitandi
reynt aö eyöileggja hiö lýöræöis-
lega þjóöfélag hefur notfært sér
þetta sem aöalvopn Vlsir
Töfrar ónáttúrunnar
Er einhver sem hefur trú á þvi,
aö samband milli hjóna geti haid-
ist eölilegt og fullnægjandi þegar
allskonar óeöli og ónáttúra eru
sýnd? visir
Vandamál bandarísks
lýöræöis
Hann haföi óttast þessa spurn-
ingu frá þvi Jackie haföi veriö
valin til aö vera á lista yfir best
klæddu konur heims. Er Jackie
frétti um þetta gladdi þaö hana
m jög en hún reyndi aö láta ekki á
þvi bera þvi Kennedy brást illur
viö og hrópaöi á hana, aö „óeöli-
legur áhugi þinn á fatnaði kemur
til meö aö eyöileggja stjórn
mina.” Vlsir
Aðgát skal höfö í nærveru
jóla
„Viö afgreiöum jólapóstinn
meö sérstakri tilfinningu”
Fyrirsögn I Dagblaöini
Vatnsleysi?
Japanir ekki til Gullfoss á
meöan þaö er ekki hægt aö þvo
sér þar.
v FyrirsögniVisi
Blindur er bóklæs maður
Vonandi fer ekki fyrir þjóöinni
eins og karlinum, sem sagöi öll-
um aö hann læsi aldrei
„Moggann” en settist eitt sinn
skömmu fyrir síöustu kosningar
inn I strætisvagn snemma morg-
uns á leið I Breiöholt til vinnu
sinnar og dró upp úr pússi slnu
Morgunblaðið og gleymdi sér svo
gjörsamlega yfir þvi að hann tók
ekki eftir réttu stoppistööinni,
þegar hann kom aö henni. Þótti
þetta broslegt þvi karlinn haföi
lengi veriö á móti þessu blaöi og
var alltaf aö hrósa sér af þvi aö
hann væri áskrifandi aö Þjóðvilj-
anum. Visir
Til fööurhúsanna?
Dufliö sem fannst viö Vest-
mannaeyjar veröur sent til
Bandarikjanna.
Fyrirsögn I VIsi
&
sjónvarpió
bilaó? t
\ >
Skjárinn
SjónvarpsverRskði
Begstaðaárati 38
— Hver er Jeremias? Ammai(allaöi á hann þegar ég labbaöi
framhjá henni...
SUÐURNES
Hundahreinsun á Suðurnesjum fer fram
eins og hér segir:
í Keflavik mánudaginn 27. nóv. kl. 10-12 i
bilskúr við Faxabraut 13.
í Njarðvik þriðjudaginn 28. nóv kl. 10-12 i
Krossinum.
í Höfnum sama dag kl. 14-15 i bilskúr við
höfnina
í Vatnleysustrandahreppi miðvikudaginn
29. nóv. kl. 10-12 við Áhaldahúsið i Vogum.
í Grindavik fimmtudaginn 30. nóv. kl. 10-
12 við Áhaldahúsið.
í Miðneshreppi föstudaginn 1. des kl. 10-12
við Áhaldahúsið
í Garðinum sama dag kl. 14-15 við Áhalda-
húsið.
Svelta þarf hundana fyrir inngjöf.
Hreinsunargjald greiðist á staðnum.
Áriðandi er að allir hundar á greindum
stöðum séu færðir til hreinsunar þvi
að annars má búast við að lóga verði dýr-
um sem ekki er komið með.
Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja.
1 ^
Útboð — Fjölbýlishús
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum i
byggingu fjölbýlishúss við Hólabraut nr.
3. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjarverkfræðings frá þriðjudeginum 28.
nóv. n.k. gegn 20 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 12. des. n.k. kl. 11 f.h.
Bæjarverkfræðingur
Ferðamálaráð islands
auglýsir laust til umsóknar starf forstöðu-
manns eða konu fyrir landkynningarskrif-
stofu íslands i New York sem rekin er sem
sérstök deild i sameiginlegri land-
kynningarskrifstofu Norðurlandanna.
Starfið veitist frá 1. mars 1979.
Umsóknarfrestur um framangreint starf
er til 20. desember n.k. og skulu skriflegar
umsóknir sendast skrifstofu Ferðamála-
ráðs íslands Laugavegi 3 Reykjavik.