Þjóðviljinn - 16.12.1978, Side 1
UOWIUINN
Laugardagur 16. desember 1978 — 279. tbl. 43. árg.
Hlaupast kratar klofnir undan merkjum?
Réttarbót
um
áramót
Ragnar Arnalds, sam-
gönguráðherra, hefur sett
reglugerö um eftirgjöf á hinu
fasta ársfjóröungsgjaldi
venjulegs sima hjá elli- og
örorkulifeyrisþegum frá og
meö áramótum. ókeypis
fastagjald af síma fá þá þeir
elli- og örorkulifeyrisþegar
sem njóta tekjutryggingar, en
þaö eru um 3,-4000 manns i
landinu, sem búa viö þannig
aðstæður aö þeir þurfa á sér-
stökum sima aö halda, ekki
sist i öryggisskyni.
Kúvenda þrisvar á dag!
klufu fyrst meirihluta
fjárveitinganefndar en
skrifuðu síðan undir
1 fyrrinótt samþykkti
ffokksstjórn Alþýðuf lokks-
ins með andstöðu við-
staddra ráðherra og fleiri
flokksstjórnarmanna nýja
úrslitakosti fyrir áfram-
haldandi stuðningi við
rikisstjórnina. Fram kom
á Alþingi í gær að frum-
varp það um jafnvægis-
stefnu í efnahagsmálum
sem flokksstjórnin hefur
sent fjölmiðlum yrði lagt
fram á þingi og þess
krafist að það verði af-
greitt á undan eða um leið
og fjárlög og lánsfjár-
áætlun. Efnahagsmála-
frumvarp þetta er að
meginstofni útfærsla á
fyrirvörum Alþýðuflokks-
ins sem áður hafa komið
fram auk ýmissa atriða
Banaslys í
umferðinni
Átján ára piltur, Ólafur
Gfsli Magnússon, Haga-
braut 12, Garðabæ, lést i
umferöarslysi i fyrrinótt.
Tildrög slyssins voru þau
aö stóru bifhjóli var ekið
suöur Kringlumýrarbraut og
norðan viö Sigtún varö
Ólafur Gisli fyrir hjólinu
og lést samstundis eftir aö
hafa borist meö þvi langa
vegu. ökumaöur bifhjólsins,
sem er 21 árs, haföi það aö
láni og var aö reynsluaka
þvi. Þetta mun vera 25 bana-
slysið i umferöinni i ár.
sem ríkisstjórnin hefur
einsett sér að taka á eftir
áramót. Með frumvarpinu
er stefnt að lögbindingu
stórfelldrar kjaraskerð-
ingar og atvinnuöryggi
landsmanna stofnað í
hættu.
Samþykki ráðherra
að engu haft
Meö þessari kröfu meirihlutans
i þingflokki og flokksstjórn
Alþýöuflokksins er aö engu haft
samþykki ráöherra flokksins viö
þaö samkomulag sem oröiö var
innan rikisstjórnar um tekjuöflun
og lokaafgreiöslu fjárlaga. Þaö
vakti og athygli i gær aö ráöherr-
arnir Benedikt Gröndal og
Magnús Magnússon sáust vart i
þinghúsinu i gær, enda fullkom-
lega veriö ekiö yfir þá i máls-
meöferö kratanna.
Standa ekki að
eigin samkomulagi
Alþýöubandalagið og Fram-
sóknarflokkurinn munu hafa til-
kynnt fulltrúum Alþýöuflokksins i
fjárveitinganefnd i gær aö þeir
myndu i samræmi viö samkomu-
lag allra stjórnarflokkanna
leggja fram álit meirihluta fjár-
veitingarnefndar svo f járlög gætu
komiö til umræöu i dag, laugar-
dag, eins og samiö heföi veriö um.
Þá neituöu fulltrúar Alþýöu-
flokksins fyrirvaralaust aö skrifa
undir meirihlutaálitiö og var sú
ákvöröun studd af þingflokknum.
Sömuleiöis var þar samþykkt aö
standa ekki aö neinum nefndar-
álitum i sambandi viö tekju-
! öflunarhliö fjárlaganna eöa láns-
fjáráætlun.
Fulltrúar Alþýöuflokksins
höföu tekiö fullan þátt i
störfum fjárveitingarnefndar
og stóöu aö umræddu meirihluta-
áliti alveg þar til undirskriftar
kom.
„Maöur fer auðvitaö aö hugsa
sitt ráö, og ýmsir mundu telja þaö
jafngilda vantrausti”, 'sagöi
ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráöherra i gær, er hann var
spurður um viöbrögö sin ef kratar
fengju meö tilstilli Sjáifstæöis-
flokksins samþykkta frestun á
annari umræöu um fjárlögin sem
hefjast á kl. 2 i dag. — Ljósm.:
eik.
Kemur frestunartillaga?
Þegar hér var komiö sögu I gær
ákváöu fulltrúar Alþýöubanda-
lags og Framsóknarflokks aö
leggja álitiö fram sem álit fyrsta
minnihluta fjárveitingarnefndar
og yröi svo látiö reyna á stuöning
viö fjárlagatillögurnar I meöferö
þingsins i dag. Þessi ákvöröun
Framhald á 18. siðu
Síðustu
fréttir
Þegar biaöiö var komið i
prentun bárust fregnir af þvf aö
fulltrúar Alþýöuflokksins hygö-
ust skrifa undir álit meirihluta
fjárveitinganefndar. Þeir hafa
hinsvegar þann fyrirvara á, aö
þeir komi fram efnahagsmála-
frumvarpi sinu miili annarrar
og þriöju umræöu. Er þvi enn
alit óljóst um lokaafgreiöslu
fjárlaga fyrir jól.
_______________-sgt
Ólafur
Jóhannesson
Ekki
gengið að
skilyrðum
Alþýðu-
flokks
í gær var þingfundum frestaö
um klukkustund vegna funda i
þingflokkum. t upphafi fundar i
neöri deild kvaddi Geir Hall-
grímsson sér hljóös utan dag-
skrár og spuröist fyrir um þaö
hvernig ætlunin væri aö haga
þingstörfum til jóla. Var þessari
fyrirspurn beint til forsætisráð-
herra og tók Geir fram aö hún
væri fram borin aö gefnu tilefni,
þe. i fyrsta lagi heföu birst fréttir
af þvi aö flokksstjórn Alþýöu-
flokksins heföi gert samþykkt um
aö Alþýöuflokkurinn stæöi ekki aö
samþykkt fjárlaga nema gengiö
væri aö skilyröum sem hann setti
og I ööru lagi væri mælst til þess
af stjórnarandstöðunni aö hún af-
greiddi fjáröflunarfrumvörp i
tengslum viö fjárlög meö afbrigö-
um án þess aö hafa haft tækifæri
til þess aö athuga þau.
1 svari Ólafs Jóhannessonar
kom fram aö ætlunin er aö af-
greiöa fjárlög fyrir jól eða ára-
mót og aö önnur umræöa um þau
yröi I dag, laugardag. Um til-
lögugerð Alþýöuflokksins fór
Ólafur lofsamlegum oröum og
kvaö margt I þeim eflaust geta
notast, þegar rikisstjórnin tæki
þessi mál til vinnslu eftir áramót
en þaö hefði veriö meiningin meö
þau atriði sem fram heföu komiö
I greinargerö meö frumvarpi
rikisstjórnarinnar um siðustu
mánaöamót.
Þá tók til máls Sighvatur
Framhald á 18. siðu
Nýjung á
Laugaveginum
Jóla-
strætó!
Siöast liöinn laugardag skapaö-
ist algjört umferöaröngþveiti i
borginni, sérstaklega á Lauga-
veginum og i kringum hann. Allt
leiöakerfi Strætisvagna Reykja-
vikur fór úr skoröum og i úthverf-
unum uröu menn aö biöa von úr
viti meðan vagnarnir voruaö sil-
ast niöur Laugaveginn.
i dag veröur gerö sérstök til-
raun til aö bæta úr þessu, en
verslanir veröa opnar fram til
klukkan 22,og biiast má viö fjölda
fólks i miðbænum i þessu bliö-
skaparveöri.
Klukkan 13 til 19 verður Lauga-
vegur milli Snorrabrautar og
Skólavörðustfgs lokaöur fyrir
allri umferö nema strætisvögn-
um, sem ganga munu á fárra
mfnútna fresti niöur Laugaveg og
upp Hverfisgötu. Eru þaö ein-
dregin tilmæli til fólks aö þaö
leggi bilum sinum fyrir innan
Hlemm, eöa skilji þá eftir heima,
og notfæri sér siöan strætis-
vagnaferöirnar fram og til baka.
Gnægö bllastæöa eru fyrir ofan
Hlemm i Holtunum, i Skúla- og
Borgartúni, viö Skátaheimiliö á
Snorrabraut og viöar en á Lauga-
Framhald á 18. siöu
FYRRVERANDI FORSTJORT HAFSKIPS H.F. AK/FRfH ÍR
Eitt stærsta fjársvikamál
sem hér hefur komið upp
I gær, sendi stjórn Haf-
skips h.f. rannsóknarlög-
reglu rikisins ákæru á
hendur Magnúsi Magnús-
syni, fyrrverandi for-
stjóra fyrirtækisins fyrir
meint f jármálamisferli,
skjalafals auk annarar
misbeitingar. Þetta kom i
Ijós við úttekt á ýmsum
bókhalds og rekstrarþátt-
um fyrirtækisins. Við þá
úttekt komu ýmis vafa-
söm atriði í Ijós sem gáfu
tilefni til frekari rann-
sóknar af hálfu félagsins.
Við þá frumrannsókn,
sem nú er lokið kom i Ijós
eitt mesta fjársvikamál
allra tima á Islandi.
Upphæöin, sem hér um ræöir
skiptir miljónatugum og er eins
og fyrr segir eitt stærsta fjár-
svikamál sem upp hefur komið
hér á landi. Þarna er um aö
ræða samantvinnuö fjársvik,
skjalafals og aöra misbeitingu.
Viöskiptavinir svo og viö-
skiptabanki fyrirtækisins hafa
ekki skaðast neitt, heldur ein-
ungis fyrirtækiö sjálft. Þó telur
fyrirtækiö aö fjárhagslegir
hagsmunir þess séu tryggöir i
málinu.
Eins og fyrr segir kunngeröi
lögfræöingur Hafskips h.f.
rannsóknarlögreglu rikisins
þessa kæru i gær og er þvi rann-
sókn á vegum lögreglunnar ekki
haíin enn.
Magnús Magnússon lét af
stöfum, sem forstjóri Hafskips
h.f. i nóvember 1977 en á enn
sæti I stjórn fyrirtækisins.
S.dór