Þjóðviljinn - 09.01.1979, Side 10
ÍOSÍÐA — ÞJÓÐVILJINN —Þriðjudagur 9. janúar 1979.
íþróttir (2 iþróttir
íþróttir (5
Umsjón: Ingólfur Hannesson
Jafnteffi gegn Pólverium 23:23
Jón Pétur
Jónsson átti'
stórleik og
skoraði
7 inörk
Þegar 3 mín 55 sek. voru
til leiksloka í seinni lands-
leik fslendinga og Pólverja
náði Þorbjörn Guðmunds-
son að jafna leikinn 21 —
21. Pólverjar svöruðu strax
með marki og íslending-
arnir fengu knöttinn. Þor-
björn reyndi aftur skot, en
nú fór knötturinn í stöng-
ina. Ennskoruðu Pólverjar
23 — 21 og rúm mínúta eft-
ir. Jón Pétur minnkaði
muninn í eitt mark, 18 sek.
eftir. Pólverjarnir freist-
uðu þess að halda knettin-
um, en misstu hann og Is-
lendingarnir náðu að hef ja
sókn. Löng sending fram á
Bjarna Guðmundsson, sem
sendi boltann af firna-
krafti i net pólska liðsins
og í þann mund gall flaut-
an við. Leiknum lokið og
jafntefli gegn einni sterk-
ustu handknattleiksþjóð
heimsins staðreynd,
23—23.
Sami frlskleikinn var i byrjun
yfir islenska liðinu og i fyrri
leiknum og virtist að nú ætluöu
menn ekki aö iáta einhverja
slæma kafla koma i veg fyrir hag-
stæð úrslit. Landinn náði strax
forystunni, 1-0, 3-2 og 5-3. Pólverj-
arnir héngu i okkar mönnum, en
virtust ekki ná tökum á leiknum.
En auövitað kom slæmi kaflinn
seint og um siðir, 7 sóknarlotur I
lok fyrri hálfleiksins skópu Pól-
verjum gott forskot 12-10.
1 upphafi seinni hálfleiksins
kom enn einn slæmi kaflinn, 6
sóknir i röð mistókust og staöan
virtist oröin algjörlega vonlaus,
17-11 fyrir Pólverjann. Þá hófst
Jóns Péturs þáttur Jónssonar.
Jón hafði komiö inná I fyrri hálf-
leiknum, látiö verja hjá sér eitt
skot og verið kippt útaf snarlega.
Hann var nú settur inná, jafn-
framt þvi, sem stórskyttan
Klempel var tekinn úr umferð
ásamt Katuzinski (13). Við þetta
riðlaöist allur leikur pólska liðs-
ins og Jón Pétur sá um að skora
mörkin á hinn fjölbreytilegasta
hátt. Staðan breyttist úr 17-111 18-
14 og siðar I 17-19. Jón var ekkert
aö hugsa um að láta við svo búið
sitja, heldur raðaði inn þremur
mörkum i röð meöan Pólverjar
skoruöu eitt, 20-20 og áhorfendur
trylltust af spenningi. Klempel
þrumaði i samskeytin, 21-20 og
var þetta 12. mark hans i leikn-
um. Lokamfnútunum hefur áður
verið lýst, en þætti áhorfenda á
þessum lokaminutum hefur ekki
verið gerö skil. Þegar landinn fór
að saxa á forskotiö tóku áhorf-
endur heldur betur viö sér og
linntu ekki látum fyrr en með
ógurlegu öskri þegar Bjarni Guö-
mundsson jafnaði 2 sek, fyrir
leikslok. Svona stuðning þurfa
okkar menn aö fá á heimavelli.
Pólverjarnir breyttu allmikið
um taktik frá fyrri leiknum og
munaði mest um það, aö sá frægi
Klempel fór að sýna klærnar svo
um munaði. Markvarslan hjá
þeim var til muna slakari og
e.t.v.hefur þaðráðiðúrslitum. Þó
var undarlegt að sjá þessa snill-
inga missa niður unninn leik i
jafntefli fyrir eintóman klaufa-
skap og hugsunarleysi, þvi vissu-
lega átti aö vera auövelt fyrir þá
að innbyrða sigurinn.
Það verður gaman aö fylgjast
með þvi hvernig fer þegar þessar
þjóðir mætast i Baltik keppninni
nú i vikunni.
Þessi leikur var nokkur upp-
reisn æru fyrir tvo menn i is-
lenska landsliðshópnum. Annars
vegar fyrir Jóhann Inga, lands-
liösþjálfara, sem hefur veriö
gagnrýndur nokkuð óvægilega
Framhald á bls. 14
ólafur Jónsson, Vlkíngi kom mjög vel frá landsleikjunum gegn Pólverjum og sýndi og sannaði það, aö
hann er einn besti hornamaður sem við höfum lengi átt. Hérna hefur hann snúiö á hinn fræga Klempel
og skömmu siðar lá knötturinn i netinu.
* ■ ' /«v
i
Enska
knatt-
spyrnan
vegna
veðurs
A laugardaginn var áætluð heil
umferð i ensku bikarkeppninni,
en fresta varð nær öllum leikjun-
—um. Aöeins tókst að ljúka þremur
bikarleikjum og tveimur leikjum
í 3. deild. Elstu menn segja að
enska knattspyrnan hafi ekki
_fengiöverriútreiöil6ár,en I árs-
byrjun 1963 þurrrkuðust út marg-
ar umferöir i deildakeppninni.
Enn verra var það þó fyrsta frið-
arveturinn, ’45-’46, en þá voru
vetrarhörkurnar það miklar, að
notaðar voru flugvélar til þess að
varpa niður kolum á fjöldamörg-
um stöðum á Englandi.
Nú, umræðuefnið var vist enska
knattspyrnan á laugardaginn var
og hér eru úrslitin i bikarnum:
Leicester-Norwich 3:0
Sheff. Wed. — Arsenal 1:1
Shrewsbury - Cambridge 3:1
IÞeir eru ekki margir, sem hafa
'skorað 7 mörk hjá pólska iands-
liðinu i einum hálfleik og það i
jafnmörgum tilraunum, en þaö
gerði Valsmaöurinn Jón Pétur i
leiknum á sunnudagskvöldið.
ungustrákarnir i liöinu ekki
orönir nógu leikreyndir enn-
þá.
— Okkar frammistaða var
mjög góö i heildina og flestir
strákarnir stóðu sig vel.
Hvað mina frammistöðu
varðar þá bara lét ég vaða á
markiö og það heppnaðist og
heppnaðist. 1 byrjun var ég
settur inná, en var of bráður
viö að skjóta vegna tauga-
veikiunar. Þetta er i raun-
inni fyrsti landsleikurinn,
sem ég fæ að spila að ráöi á
„Mér heppnaðíst allt
sem ég ætlaði mér”
sagði Jón Pétur Jónsson
Jón Pétur Jónsson lék á
aits oddi, eftir leikinn á
s unnu d a gs k völ di ð, er
fþróttasiðan hitti hann að
máli i búningskiefanum. Þar
vartalaðum Jón Klempel og
fleira i þeim dúr. Hann var
spurður um styrkleika Pól-
verjanna og frammistöðu ts-
ienska liðsins f leiknum.
— Það kom mér mjög á
óvart hve taugaveiklaöir
Pólverjarnir uröu þegar
Klempel var tekinn úr um-
ferð. Maðurhélt að þeir væru
vanir þessu, ei eílaust eru
móti sterkri þjóö og það gef-
ur meira.
— Ég hef trú á þvi, að við
komumst klakklaust i gegn-
um Baltik keppnina 1 Dan-
mörku, þvl við erum með
stericara liö nú en i fyrra.
Núna er þjálfarinn til staðar,
ekki þjálfað I gegnum ein-
hvern bréfaskóla. Þá er búið
að velja hópinn fyrir all-
löngu. Ég er b jartsýnn á góö-
an árangur i B keppninni á
Spáni. Við höldum okkur i B
hópnum og e.t.v. komumst
við lengra. IngH
Áhugaleysiö
einkenndi
þegar KR sigraði ÍS 88:66
„Fer þessi vitleysa ekki
bráðum að verða búin,” kallaði
Einar Bollason fyrirliði K.H. tii
áhorfenda þegar langt var liðið á
leik þeirra vesturbæinga gegn
I.S., en Einar var staddur inná
vellinum. Þessi orö eru e.t.v.
táknræn fyrir þann áhuga sem
leikmenn beggja liðanna sýndu
og var leikurinn, i einu orði sagt
hrútleiðinlegur.
I upphafi var leikurinn nokkuð
jafn, K.R.-ingarnir sprækari
fyrst, en stúdentar voru ekki á þvi
að láta sinn hlut baráttulaust og
náðu fljótlega forystunni, 17-12.
Þeirra voru undirtökin næstu
minúturnar, en vesturbæingarnir
hristu af sér slenið og höföu yfir I
hálfleik 42-36.
Yfirburöir K.R. jukust I seinni
hálfleiknum, um leiö þvarr mót-
staða stúdentanna og kæruleysi
og uppgjöf varð allsráðandi i leik
þeirra. Dirk Dunbar, sá frægi
kappi,var settur inná I fyrsta sinn
til þess að bjarga þvi sem bjarga
mætti, en Dunbar fann ekki
leiöina I körfuna og stórtap blasti
viö stúdentunum. Lokatölur urðu
siöan 88-66 fyrir K.R.
Eins og áður sagði var Dumbar
litið sem ekkert meö vegna
meiðsla, en i hans stað lék gamli
K.R.-ingurinn Gisli Gislason og
stóð hann sig einna jafnbest i liöi
stúdentanna. Þá var Ingi Stefáns-
son sprækur framanaf. Ekki er
gott að segja hvernig fer með þá
stúdenta fari Dunbar utan
alfarinn eins og heyrst hefur.
Eitthvað viröist sóknarleikur
K.R.-inganna stirður þessa
dagana. Á móti I.R. var hann
hörmulegur og svo var einnig i
fyrri hálfleiknum gegn stúdent-
unum á sunnudaginn. Jón
Sigurðsson er greinilega aö ná sér
á strik eftir stuttan en slæman
kafla og er það góðs viti. Þeir i
K.R. hafa yfir aö ráða jöfnu og
sterku liði, sem verður með i
toppbaráttunni i vetur.
Eitt er það, sem er hvimleitt við
K.R. og er þaö hið sifellda nöldur
og nagg, sem sumir leikmennirn-
ir ástunda i flestum leikjum,
hvort sem þeir eru innan vallar
eða utan. Þetta þarf að laga.
Stigin fyrir l.S. skoruöu: Gisli
14, Ingi 13, Bjarni Gunnar 11, Jón
H. 11, Jón O. 6, Dumbar 3, Gunnar
2 og Steinn 2.
Stig K.R.-inganna skoruðu: Jón
30, Hudson 19, Einar 12, Gunnar 8,
Birgir 8, Garðar 7, Björn 2 og Arni
2.
IngH.