Þjóðviljinn - 09.01.1979, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — ÞriBjudagur 9. janúar 1979.
Leikdeild Skallagríms
Gott starf
á lidnu ári
Leikdeild UMF. Skalla-
gríms í Borgarnesi var
meö athafnasamasta móti
árið sem leið/ að því er
Theodór Þórðarson, for-
maður deildarinnar, segir í
Röðli.
í janúarmanuW lauk leiknám-
skeiöi en þegar i kjölfar þess
undirbjö deildin skemmtiatriöi og
kynningu á leiknámskeiöi og var
þaö efni sýnt á öskudagsfagnaöi
UMF. Skallagrims 18. febrúar.
Hinn 30. mars hófust svo æfingar
á einþáttungunum „Friöur sé
meö yöur”, eftir Þorstein Marels-
son og „Flugurnar i glugganum”,
eftir Hrafn Gunnlaugsson.
A meöan þær æfingar stóöu yfir
tók deildin aö sér aö flytja efni á
Borgfiröingavöku þann 20. april.
Var þá saminn og æföur lát-
bragösþáttur, sem hlaut nafniö
„Frá morgni til kvölds” og hinn
siöan fluttur meö til heyrandi
hljóö-„effektum”. Um þennan
þátt sáu þau Jón Þór Geirsson,
Oddný Þórunn Bragadóttir,
Einar Pálsson og Pétur Ásgeirs-
son. Þau endurtóku svo þáttinn
þann 1. mai, hjá stéttarfélögun-
um i Borgarnesi. Einþáttungarn-
ir áöur nefndu voru frumsyndir
29. april. Uröu sýningar alls 9, þar
af fjórar utanbæjar. Um 25
manns tóku þátt i uppfærslunni á
einn- eöa annan hátt og höföu
flestir veriö á leiknámskeiöinu I
janúar. 1 maílok enduöu sýningar
á einþáttungunum. Þótti ýmsum
þær takast vei en aðsókn heföi
mátt vera betri.
í júli sóttu þeir Sveinn M. Eiðs-
son og Siguröur Páll Jónsson
námskeiö I leikrænni tjáningu og
framsögn. Fór Sveinn til Reykja-
vikur en Siguröur i Reykholt. 1
ágúst hófst undirbúningsvinna aö
barnaleikritinu „Leifi ljóns-
öskri”, eftir Torben Jetsmark.
Fenginn var leikstjóri frá
Reykjavik, Guðrún Snæfriöur
Gisladóttir. Hófust æfingar i októ-
berlok og var leikritiö frumsýnt 3.
des. Hefur aösókn veriö góö og
verkinu vel tekiö. Rætt hefur
veriö um aö sýna þaö einnig eftir
jól, eöa i byrjun barnaárs.
Guörún Snæfriöur Gisladóttir
útskrifaöist úr Leiklistarskóla
rikisins fyrir rúmu ári og hefur
tvivegis áöur sviösett leikrit hjá
skólum i Reykjavik. Þá hefur hún
og leikið hjá Sjónvarpinu og 1
Þjóöleikhúsinu I einþáttungunum
„Mæörum og sonum”. En Guörún
geröi ekki aöeins aö leikstýra
verkinu, heldur bjó hún til allar
grimur, sem notaöar eru, hannaði
búninga, samdi texta og útvegaöi
lög eftir Sigurö Bjólu, Spilverks-
mann, og lög og texta eftir Ólaf
Hauk Simonarson rithöfund,
lagasmiö og ljóöskáld.
Leikdeild Skallagrlms hefur á
aö skipa ungu og áhugasömu fólki
en nokkuð háir verkefnavali
skortur á eldra fólki. Er ástæöa til
aö benda á, að leikdeildin stendur
opin öllum þeim, sem áhuga hafa
á leikstarfi, á hvaöa aldri sem
þeir eru.
tþ/mhg
r
Veröbólguþankar
"i
Eftirfarandi grein
Guömundar Þorsteinssonar á
Skálpastööum I Borgarfirði
birtist I siöasta tbl. Rööuls og
veitti höfundur hennar Land-
pósti góöfúslega leyfi til aö
endurprenta hana hér:
Magnús Torfi Ólafsson lét svo
ummælt i vor, aö veröbólgan
ógnaöi sjálfstæöi þjóöarinnar
meira en hersetan. Ég er hreint
ekki fjarri þvi aö geta tekiö
undur þau orö og vil þó ekki
gera litiö úr þeirri skeröingu á
sjálfstæöi okkar, sem nærvera
erlends hers hefur I för meö sér.
Ekki þarf aö fjölyröa um þaö
hvernig veröbólgan vinnur sin
skemmdarverk á atvinnu- og
efnahagslifinu, fælir fólk frá
hófsemi og sparnaði en ýtir þvi
út I fjárfestingarkapphlaup og
eyöslu, I stuttu máli, gerir æski-
legar ákvaröanir heimskulegar
en slæmar ákvaröanir
réttlætanlegar.
Veröbólgan er kerfi, sem
flytur I sifellu fjármuni frá hin-
um hófsömu og sparsömu til
skuldakónganna og eyðslu-
klónna, spillir afkomu útflutn-
ingsatvinnugreinanna og sam-
keppnisiönaöar ogkallar þannig
fram gengisfellingar, sem aftur
magna veröbólguna. Þannig
nærist hún og þrifst á eigin
afuröum.
Frumorsökin
Ég hef fyrir satt, aö frum-
orsök veröbólgunnar sé sú, aö
heildareyösla þjóöarinnar sé
meiri en svo, aö verömætasköp-
unin i' landinu standi undir
henni. Eigi árangur aö nást 1
baráttu viö hana verður aö
koma á jafnvægi aö þessu leyti.
Þaö er hinsvegar ógerningur
meöan núverandi veröbólgu-
hugarfar ræöur feröinni i öllum
fjárhagslegum ákvöröunum
almennings og jafnvel þess
opinbera lika.
Til aö umræddu jafnvægi
veröi náö er þvi nauösynlegt aö
auka verömætasköpun meö
skynsamlegri fjárfestingu og
aukinni framleiöni og draga úr
rekstrarkostnaöi bæöi hjá þvi
opinbera og einkaaöilum.
Nauðsyn aukinnar
hagkvæmni
Mér er ekki grunlaust um aö
þaö hendi margan góöan
sósialista aö afgreiöa hugtök
eins og „arösem iskröfur”,
„framleiösluaukning” og „hag-
ræöing” sem illar uppfyndingar
kapitaiismans, til þess eins
fallnar aö klekkjaá launþegum.
Þeir hafa raunar þaö til sins
máls, aö stundum er gengiö aö
þessum hlutum meö meira
kappi en forsjá og ekki tekiö til-
lit til aðstööu og aöbúnaöar
starfsfólks. Rlk ástæöa er til að
benda á þau viti til varnaðar, en
þau mega ekki veröa til þess, aö
mönnum sjáist yfir þaö, aö hag-
kvæmni i rekstri, á hvaöa sviöi
sem er, er sá eini grunnur, sem
hægt er aö reisa raunverulegt
Guðmundur Þorsteinsson.
Guömundur
Þorsteinsson,
Skálpastöðum
skrifar:
velferöarrlki á viö okkar aö-
stæöur.
önnur nauösynleg forsenda
fyrir árangri I glimunni viö
veröbólguna er aö þannig veröi
aö verki staðiö, aö fólk sann-
færist um aö árangur eigi aö
nást, muni nást og helst aö þaö
óski eftir aö árangur náist.
Hið eina örugga
Þær aöferöir ,'sem hingaö til
hefurveriö gripiö til, hafa ekki
veriö sannfærandi. t hálfan
fjóröa áratug hefur veröbðlgan
verið þaö eina, sem hægt hefur
verið aö reiöa sig á i islensku
efnahagsllfi. Það þarf þvl meira
en kák og sýndarmennsku til aö
uppræta verðbólguhugsunar-
háttinn.
Raunvextir eru eitt þeirra
meðala, sem um er rætt og um
er deilt. Orugglega yröu þeir
mörgum þungir i' skauti og
viötækar hliöarráöstafanir yröu
aö fylgja, en ég spyr: dugir eitt-
hvaö minna til aö sannfæra fólk
um, aö ekki sé áreiöanlega best
aö koma hverri krónu I lóg strax
og hún er I hendi og þó helst
löngu fyrr?
Næðist umtalsverður árangur
á þessu sviöi myndi draga úr
hinni ofboðslegu einkaneyslu og
eyöslu, sem hvarvetna blasir
viö augum, en ráöstöfunarfé
lánastofnana vaxa I sama mæli
og þar meö geta þeirra til stuön-
ings viö atvinnulifiö, einstak-
linga og stofnanir.
Villukenning
Nú er mikiö haft á oröi aö
beita rlkisfjármálum til aö
hamla gegn veröbólgu. Sú villu-
kenning hefur oft heyrst, aö
aukin rlkisumsvif örvi verb-
bólguna. Þaö gerist þvl aöeins
aö þau byggist á erlendum lán-
um eöa yfirdrætti rlkissjóös viö
Seölabankann. Byggist rikis-
umsvifin á aukinni skattheimtu
og þess um leiö gætt, aö ekki sé
halli á rikisbúskapnum, geta
þau dregið úr einkaneyshi og þó
hamlaö á móti atvinnuleysi meö
vel völdum opinberum
framkvæmdum.
Aukin álagning skatta á háar
tekjur hefur einnig áhrif til
tekjuöflunar, ef skattaeftirlit er
virkt, og mér finnst þaö réttlát-
ari, geöfelldari og liklega
árangursrikari leiö til aö draga
úr einkaneyslu en lækkun
kaupmáttar allra launa. Þaö
hefur þvi oft vakiö furöu mina,
aö þaö viröist eitt af keppikefl-
um ASI aö draga úr álagningu
tekjuskatts.
Tvieggjað kerfi
Ekki veröur svo skiliö viö
hugleiöingar um veröbólgu, aö
vlsitölukerfiö beri ekki á góma.
Ég hygg, að lesendum þessa
blaös sé almennt ljóst, aö þaö er
fyrst og fremst varnartæki
launþega gegn veröbólgu. Hins-
vegar er ljóst, aö I vissum til-
fellum orsakar það launahækk-
anir, sem engin forsenda er
fyrir og sem oliuveröhækkanir
siöustu áraeruglöggt dæmi um.
Vi'sitala viöskiptakjara er hins-
vegar tortryggilegur mæli-
kvarði, ekki sist þegar haföar
eru I huga nýlegar upplýsingar
um verömyndun innfluttra
vara, sem sýna, aö
innflytjendur geta hækkaö verö
þeirra aö eigin geöþótta meö
töku umboðslauna erlendis.
En mér hefur stundum flogiö I
hug, aö veröi tekist á viö verö-
bóiguna af fullri alvöru, kæmi
til álita aö miöa kaupgjaldsvisi-
tölu viö visitölu matvæla, fatn-
aöar og húsnæöis og veröhækk-
anir á þessum liöum yröu bætt-
ar meö sömu krónutölu I öllum
launaflokkum. Auövitaö kæmi
slikt þvi aöeins til greina, aö
fullur trúnaöur rlkti milli
samtaka launþega og rlkisvalds
um að ekki yröi um misbeitingu
aö ræöa og fullt samráö haft um
allar aögeröir.
Hvað er i húfi?
Ekki blandast mér hugur um
að skoðanir eru skiptar um
þessar hugmyndir allar. En þaö
er sannfæring min, aö takist
ekki aö rjúfa vitahring verö-
bólgunnar fyrr en siðar, þá
veröi brátt tómt mál aö tala um
efnahagslegt og þar meö
stjórnarfarslegt sjálfstæöi þess-
arar þjóðar.
VerCtoólgubröskurum og öör-
um afætulýö liggur þaö sjálf-
sagt I léttu rúmi, en þaö er ósk
min og von, að þau öflugu sam-
tök, sem mest láta sig skipta
sjálfstæöismál þjóöarinnar i
oröi, Alþýöubandalagiö og
verkalýöshreyfingin, sýni á
boröi skilning á þvi, hvaö I húfi
Magnús frá Hafnarnesi skrifar:
Aldarminning Sigurdar frá Arnarholti
1 tílefni af aldarafmæli Sigurö-
ar skálds Sigurössonar frá Arnar-
holti á næsta ári, gengst bóka-
safniö i Vestmannaeyjum fyrir
kynningu á verkum hans og er
þaö vel til fundiö. Upplestur úr
ritum hans annast leikarar úr
Leikfélagi Vestmannaeyja, einn-
ig mun Jón Geir, iögreglumaöur,
sem er söngmaöur góöur, syngja
tvö bestu ljóö hans: í dag er ég
;i „„.xilfcttE. og Sefur sól hjá Ægi.
v '~~~'Sfýúröur frá Arnarholti var
"Tæddttr óskilgetinn, eöa á alþýöu-
^ffefTTyiausaleik. Faöir hans var
s SigtiEÖur Sigurösson, kennari viö
ILaar&tskólann I Reykjavik. Móðir
'dwre'var dönsk og hét Flora Con-
cordia Oreila Jensen, verkakona
og blaöamaöur, einn af frumherj-
um sósialismans I Danmörku.
Hún leið mikiö fyrir skoöun sfna,
eins og titt var þá ogbregöur fyrir
ennþá. Hún varö aö þola frelsis-
sviptingu og fangelsisvist.
Siguröur Sigurðsson frá Arnar-
holti var barn aö aldri sendur i
pósti til Islands þvi Flóra móöir
hans gat ekki annast uppeldi
hans, eins og gefur aö skilja,
frelsissvipt manneksjan. var
þetta Dönum Iikt engu síður en
maökaöa mjöliö og ryögaöa járn-
iö sem þeir seldu okkur. Bót er þó
I máli aö Islendingar eignuöust út
frá þessari einsdæma póstsend-
ingu skáld og þaö gott.
Faöir Siguröar kom honum i
fóstur hjá Birni M. Olsen, rektor.
Siguröur hóf nám i Læröaskólan-
um en varö aö hætta námi á siö-
asta vetri vegna áfengisneyslu,'
sem var meinsemd I lifi hans.
Hann var kallaður Siggi Slembir.
Hann nam siöan lyfjafræöi en
lauk ekki prófi. Hann geröist lyf-
sali I Vestmannaeyjum áriö 1913
og var þaö til 1931 er hann fluttist
til Reykjavikur. Þar lést hann 4.
ágúst 1949.
Siguröur frá Arnarholti geröi
margt til umbóta i Vestmanna-
eyjum. Hann var m.a. hvatamaö-
ur aö stofnun Bjra-gunarfélagsins
og kaupunum á björgunarskipinu
Þór.
Siguröur Sigurösson frá Arnar-
holti var frábært skáld. Flest
ljóöa hans eru dýrmætar perlur
Islenskra bókmennta. Eftir hann
liggja aöeins þrjár bækur: Tvl-
stirni 1906, Ljóö 1912 og Siöustu
ljóö 1939. Þaö dró mikiö úr skáld-
skap hans er á ævina leiö og mun
vlnhneigö hafa valdiö þvi. Þrátt
fyrir þaö veröur hann aö teljast
meö merkari skáldum slns tlma.
Siguröur Sigurösson fæddist i
Kaupmannahöfn 17. september
1879. Ljóö hans og nafn munu lifa
meö þjóöinni, enda gædd þvi llfi,
sem ekkert fær grandaö.
Magnús frá Hafnarnesi.
E.S. Eins og greinin ber meö sér
er hún skrifuö fyrir síöustu ára-
mót.
Siguröur Sigurösson skáid frá
Arnarholti.