Þjóðviljinn - 13.02.1979, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 13.02.1979, Qupperneq 9
Þriöjudagur 13. febriiar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 I hverfi þvi sem Austurbæjarskdlinn átti aö þjóna búa nii fá börn og er ekki tilvaliö aöstugga þeim burt og breyta byggingunni f ráöhiis? ■n I engu húsi af svipaöri stærö hefur veriö komiö upp jafn niöangurslegu tröppukerfi. Framlag Reykjayíkurborgar til árs fatlaðra 1981? Ginnungagap milli stjóm- sýslu og fatlaðra Sjálfsbjörg, félag fatlaðra I Reykjavik, efndi I fyrrahaust til aögeröa til þessaövekja athygli á vandamálum fatlaöra I höfuöborg islands og raunar um land allt. Fór félagiö fram á þaö aö fá aö skiptast á skoöununt viö fulltrúa þeirra flokka sem aöild eiga aö borgarstjórn Reykjavíkur og var ákveöiö aö sá fundur skyldi fara fram á Kjarvalsstööum. Jafn- framt ákvaö Sjállsbjörg aö fund- urinn skyldi hafa aödraganda, fatlaöir færu I fylkingarbrjósti jafnréttisgöngu frá Sjómanna- skóla tQ Kjarvalsstaöa, en til- gangurinn var sá að kanna undir- tektir borgarbúa. Þær reyndust jákvæöari en nokkur haföi þoraö aö gera sér vonir um; blööin töldu aö um tfu þúsundir manna heföu tekiö þátt i göngunni eöa fylgst meðhenni og tekiðundir jafnrétt- iskröfuna; ég hef ekki fregnir af hliðstæöum stuöningi viö fatlaö fólk I nokkru ööru iandi. Inni á Kjarvalsstöðum blómg- aðist þennan dag mikil bjartsýni með skjótum hætti. Fulltrúar allra flokka í borgarstjórn kepptu hver viðannan i yfirlýsingum um skilning á högum fatlaðra, stuðn- ing við málstað þeirra og mikla hlýju.Svo mikil var bjartsýnin að ferlinefndfatlaðra.sem hefur þaö verkefni að fylgjast með fram- kvæmdum utan húsaog innan og kanna hvorttekið sé tillit til fatl- aðra við gerð þeirra, bauðst til þessað festa upp merki i anddyri Kjarvalsstaða sem sönnun þess að húsið fullnægði öllum þörfum fatlaðs fólks. Borgarstjórn Reykjavikur þáði þessa viður- kenninguogtók þar á sig siðferði- lega skuldbindingu. Eftir aö Kjarvalsstaðir höfðu tæmst að loknum fundinum, tóku verkamenn til við að jafna mölina fyrir framan húsið og afmá bráðabirgða brautina sem fatlað fólk í hjólastólum haföi notaö til þess að komast inn, þó með hjálp ófatlaðra. Siðan hefur enginn fatlaður maður, bundinn við hjólastól, komist inn á Kjarvals- staði til þess að skoða merkið frá ferlinefndinni, gera vettvangs- könnun i bitbeini skriffinna og listamanna, eða ganga örna sinna á salerninu sem lagfært var fyrir jafnréttisdaginn I fágætum skiln- ingi þess aö fatlað fólk i hjólastól- um hefur meltingarfæri og flest meira að segja þvagblöðru. „Leyfið böraunum að koma til min.” Jafnréttisdagurinn I fyrra kom upp ihuga minn á dögunum, þeg- ar ég las i blöðum að allir borgar- fulltrúar I Reykjavlk virtustsam- mála um að breyta Austurbæjar- barnaskólanum i ráðhús. Hug- myndir um ráðhús i Reykjavik hafa alla tið verið torskildar, og verða væntanlega ekki skýrðar nema meö hliðsjón af kenningum Freudsj ég minnist þess t.a.m. mjög vel þegar borgarstjórn Reykjavikur samþykkti einróma að byggja ráðhús úti i Reykjavik- urtjörn, væntanlega við ljós draumsjóna um Feneyjar á Itali'u, og sætti færi að dagsetja samþykktina á afmæli borgar- stjórans, sjálfs Gunnars Thor- oddsens. Nú virðist borgárstjórn- in aftur vera sammála um ráðhús þótt samþykkt hafi enn ekki verið gerð formlega, enda veit ég eldcki hvort Egill Skúli á stórafmæli i bráð. Astæöan til þess aö hús Austur- bæjarbarnaskólans viröist liggja á lausu er sú stefna Reykjavikur- borgar að þenja byggðina út um holt og grundir; einkanlega holt, þar sem hægt er að hýsafólk sem hæst ofan sjávarmáls, þar sem frost verða hörðust, rammastir vindar gnauða og félagslegur kostnaöur reynist mestur. í slik- um hverfum býr nú meginþorri ungraforeldra iReykjavík ásamt börnum sinum, en I hinni upphaf- Þetta tröppukerfi er ærin torfæra fyrir ófatlaö fólk á öllum aldri. legu Reykjavik býr aldrað fólk og fatlað og fær fæst að sjá barna- börnin sin nema endrum og eins. í hverfi þvi sem Austurbæjar- barnaskólinn átti aö þjóna búa nú fá börn, og er þá ekki tilvalið aö stugga þeim burt og breyta skóla- byggingunni i ráðhús? En það væri einnig hægt að fara hina leiðina. Ef hinn sameiginlegi flokkameirihluti i Reykjavikur- borg og ríkisstjórn vildi, væri sjálfsagt að breyta Hallgrims- kirkju i sambýlishús handa barn- mörgu ungu fólki. Siðan væri hægt að skrá á stórhýsin bæði hin fleygu orð Jesúsar Jósefesonar: „Leyfið börnunum að koma til min...” Framlag til árs fatlaðra Annars voru það ekki skipu- lagsmál Reykjavikur sem komu upp i huga minn þegar ég las í blöðum um sameiginlegan áhuga allra borgarfulltrúa á ráðhúsi við Skólavörðuholtið, heldur annað vandamál sem hefur verið áleitn- ara við mig siðustu árin. Þegar Austurbæjarbarnaskólinn var byggöur var það viðhorf alger- lega rikjandi að fatlað fólk væri utangarðsmenn i þjóðfélaginu og um þaö ætti alls ekkert aö hugsa. t samræmi við það var skóla- byggingin teiknuð og byggð. 1 engu húsi f Reykjavik af svipaðri stærð hefur verið komið fyrir jafn niöangurslegu tröppukerfiierfið þrep sem teygja sig stall af stalli með greinum upp i afkima i öllum áttum. Þetta tröppukerfi er ærin torfærafyrir ófatlað fólk á öllum aldri, ■ enda hafa margir fatlast I skólanum, þótt tölur um það séu trúlega engar til. Ef stjórnsýslu- kerfi Reykjavikurborgar yrði komið fyrir i þessari byggingu, væri komið á algeru torleiði milli fatlaðs fólks og skriffinnskukerfis borgarinnar, einnig þeirra stofn- ana sem eiga að sinna fötluðum, öldruðum, sjúkum og snauðum. Ráðhús Reykjavikur mundi þá bætast i hóp sem ærinn er fyrir, Alþingishús, Stjórnarráö, Þjóö- leikhús, Tryggingastofnun rikis- ins, Norrænahúsið og Þjóðminja- safnið, svo að dæmi séu nefnd. Þjóðminjasafnshúsið var gjöf þjóðarinnar til sjálfrar sin i tilefni lýðveldisstofriunar —■ en auðvitað eru fatlaðir ekki hluti af þjóðinni. Samkvæmtblöðunum eruþetta þær hugmyndir sem nú eru i fyr- irrúmi hjá borgarfulltrúunum sem héldu ræðurnar fögru á Kjar- valsstööum i fyrrahaust. Kannski á þessi framkvæmd að verða framlag til árs fatlaöra 1981. Magnús Kjartansson Tíma- ritið Þroska- hjálp hefur göngu sína Tímaritið Þroskahjálp hóf göngu sína á s.l. ári og kom þá út eitt tölubiað. Það var gefið út af Landssamtökunum Þroskahjálp, og ritstjóri þess er Margrét Mar- geirsdóttir, formaður samtak- anna. 1 inngangsgrein sinni Nýtt spor segir Margrét m.a.: „Einsog kunnugt er voru Landssamtökin Þroskahjálp stofnuð i október ár- ið 1976. AUt frá stofnun þeirra hefur mönnum verið ljós nauðsyn þess að þau hefðu yfir að ráða málgangi til að koma á framfæri ýmiskonar fræöslu og upplýsing- um sem að gagni mættu koma og stuðlað gætu aö auknúm skilningi á málefnum þroskaheftra al- mennt.” Meðal efnis i timaritinu eru greinar um Foreldrastarf og for- eldrafræðslu, Sérdeildir i Hliða- skóla, Heilalömun hjá börnum, Þjálfun þroskaheftra, Olnboga- börn og allsnægtir. Námskeið um málörvun þroskaheftra og Laga- setningu um málefni þroska- heftra. Birteru lög landssamtak- anna Þroskahjálp og gerð grein fyrir starfsemi hinna ýmsu aðild- arfélaga. Sagt er frá norrænum samtökum um málefni þroska- heftra og frá sýningunni Viljinn i verki, sem haldin var að Kjarvalsstöðum i mars 1978, i til- efni af 20 ára afmæli Styrktarfé- lags vangefinna i Reykjavik. Margt fleira efiiier i ritinu, sem er 88 bls. að stærð i litlu broti, prentaö I Steindórsprenti. ih 133.55 tonn af sementí framleidd 78 Arið 1978 voru framleidd 95.900 tonn af sementsgjalli hjá Semeritsverksmiðju rikisins og 133.500 tonn af sementi. Skiptist framleiðsla sements þannig, aö framleidd voru 104.600 tonn af portlandsementi og 28.900 tonn af hraðsementi. Þar sem notkun sements innanlands er verulega meiri en afkastageta ofnsins á Akranesi, varð aö flytja inn 26.300 tonn af sementsgjalli erlendis frá. Erlenda gjallið var siöan malað og úr þvi framleitt hraðsement i verksmiðjunni á Akranesi. Sala sements varð alls 130.455 tonn, þar af voru 100.390 tonn portlandsement, 29.990 tonn hraö- sement og 75 tonn af hvitu og lituöu sementi. Pípulagnir Nýlagnir, breyting- ar, hitaveituteng- ingar. Sími 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.