Þjóðviljinn - 14.02.1979, Page 3
Miövikudagur 14. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Kór Verslunarskólans flytur lög eftir Bitlana. (Ljósm. —eik)
Sömdum allt
efnið sjálf
sagði Herdís Jónasdóttir formadur
skemmtinefndar
t kvöld halda nemendur
Verslunarskólans árshátið sina
meö vandaöri kvöldskemmtun i
Austurbæjarbiói. Skemmtunin i
kvöld er aðeins fyrir nemendur
og kennara skólans, en næst-
komandi laugardag veröur
skemmtunin endurtekin og er
þá opin fyrir alla. Hefst hún kl.
14.00 I Austurbæjarbiói.
„Allt efnið sem við flytjum á
skemmtuninni nema tónlist
eftir Bitlana, er samið af nem-
endum sjálfum, m.a. leikrit sem
Tinna Gunnlaugsdóttir leikstýr-
ir, það er eftir Olaf Garðarsson
nemanda i skólanum”, sagði
Herdis Jónasdóttir formaöur
skemmtinefndar Verslunar-
skólans.
Herdis sagði að dagskráin
yröi, danssýning, leikrit, skóla-
skaup, kórsöngur skólakórsins
og verða flutt lög eftir Bitlana.
Skemmtunin stendur yfir i
tæpar 3 klukkustundir.
„Við höfum æft látlaust allt
siðan i haust og siöustu 2 vikur
höfum við haft æðislega mikið
Herdis Jónasdóttir formaöur
skemmtinefndar Verslunar-
skólans (Ljósm. —eik)
að gera, varla litið upp”, sagði
Herdis.
—S.dór
Hæpinn
spamaður
Mótmæli á mótmæli ofan
fyrir borgarráði í gær
Mótmæli frá þremur
starfsráðum borgarinnar
vegna niðurskurðar á f jár-
hagsáætlun lágu fyrir
borgarráðsfundi í gær.
Æskulýðsráð mótmælti
lokun Útideildar, Fræðslu-
ráð mótmælir niðurskurði
hjá meðferðarheimilinu
við Kleifarveg og Félags-
málaráð mótmælir lokun
Mæðraheimilisins og úti-
deildar.
Þjóðviljinn hefur áður sagt frá
afstöðu félagsmálaráðs, en sneri
sér I gær til Kristjáns Valdimars-
sonar, annars fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins i Æskulýðsráði.
Sagði hann, að ákvörðun um lok-
un tJtideildarinnar hefði verið
tekin aigerlega án samráös við
æskulýösráö eða starfsmenn þess
og aldrei hefði verið spurt um
leiðir til sparnaðar I starfsemi
Gtideildar.
A fundi Æskulýðsráðs á mánu-
dag lögðu Kristján Valdimarsson
Haukur Björnsson, yfirlæknir
flutti s.I. mánudag erindi um
hreyfihömlun hjá börnum.
Um 200 manns taka þátt i námskeiði Þroskahjálpar og Námsflokka Reykjavikur um þroskaheft börn.
Myndin var tekin i Tjarnarbió s.i. mánudag.
Ljósm. — eik.
Námsflokkar Reykjavikur og Þroskahjálp:
Nær 200 manns á námskeið-
um um þroskaheft börn
Sprengdu utan af sér tvö hús
„Upphaflega ætluðum
við að hafa námskeiðið i
setustofu hér í Miðbæjar-
skólanum, enda bjuggumst
við ekki við svona mikilli
þátttöku," sagði Guðrún
Halldórsdóttir, skólastjóri
Námsflokka Reykjavíkur í
samtali við Þjóðviljann i
gær. „Þegar þátttakendur
voru orðnir 130 snerum við
okkur til Norræna hússins
og fengum húsnæði þar, en
næsta dag var það einnig
sprungið, enda voru þátt-
takendur þá orðnir nær 190
ta Isins."
Námskeiðið sem þannig
sprengdi utan af sér tvö hús, og
endaöi i Tjarnarbiói er haldið á
vegum Námsflokkanna og Lands-
samtakanna Þroskahjálpar og
fjallar um þroskaheft börn. 12
fyrirlesarar fjalla um ýmis atriði
sem tengjast þroskaheftum börn-
um og umönnun þeirra á 10 kvöld-
um, en námskeiðin eru haldin
hvert mánudagskvöld og hefjast
kl. 20.
Mánudaginn 5. febrúar f jallaði
Höröur Bergsteinsson læknir um
súrefnisskort hjá nýfæddum
börnum, afleiðingar hans og með-
ferð. 1 fyrrakvöld hélt Haukur
Þóröarson yfirlæknir erindi um
hreyfihömlun og næst komandi
mánudag fjalla Hörður Þorleifs-
son, augnlæknir og Margrét
Sigurðardóttir blindrakennari um
sjóngalla sem leiða til þroska-
hömlunar og kennslu blindra og
sjónskertra. Námskeiöinu verður
svo fram haidiö alia mánudaga
fram til 9. apríl, og veröur m.a.
fjallað um einhverf börn,
heyrnarskerðingu og kennslu
heyrnarskertra, sjúkraþjálfun
þroskaheftra barna, tannvernd,
leiktækjasöfn, unglingsár þroska-
heftra og réttindi þeirra.
Aö sögn Guörúnar Halldórs-
dóttur eru þátttakendur á nám-
skeiöinu foreldrar þroskaheftra
barna, nemendur Þorskaþjálfa-
skólans, starfsfólk á stofnunum
fyrir þroskahefta og annaö á-
hugafólk svo sem kennarar og
hjúkrunarkonur. Þátttaka I nám-
skeiðinu öilu kostar 5000 krónur
en hægt er að mæta kvöld og
kvöld og kostar þaö þá 500 krónur
i hvert skipti. Námsflckkar
Reykjavikur hafa á undanförnum
árum haldiö ýmis námskeið I
samvinnu viö áhugamannasam-
tök eins og Þroskahjálp nú.
Nefndi Guðrún Blindrafélagið,
Sjálfsbjörg, og Rdióamatöra. Þá
er I undirbúningi námskeið fyrir
Sóknarkonur og verður þátttaka i
námskeiöinu metin til kauphækk-
unar skv. kjarasamningum. Þar
verður fjallað um ýmsa þætti sem
álitnir eru mikilvægir fyrir þá
sem starfa I heilbrigðisstofnunum |
og annast börn og gamalmenni.
„Við ervm alltaf til viötals, ef
félagasamtök vilja koma upp
námskeiöum,” sagði Guörún að
lokum.
—AI
og Margrét S. Björnsdóttir, full-
trúar Alþýðubandalagsins ásamt
Kristni Ag. Friðfinnssyni, full-
trúa Framsóknarflokksins fram
svohljóðandi tillögu:
„Með vísan til áður yfirlýstrar
stefnu fulltrúa I Æskulýðsráði
Reykjavikur mótmælir ráðið
harðlega Jieim fyrirætlunum að
leggja (Jtideild niður. Vill ráöið
leggja áherslu á að öil sú starf-
semi sem leitast viö að leysa þau
félagslegu vandamál, sem ungl-
ingar i borginni standa frammi
fyrir, sé það, sem sist skyldi spar-
aö til i f járveitingum til æskulýðs-
máia. Enda hæpinn sparnaöur
fyrir samfélagið séu málin skoðuð
I viðara samhengi, aö framlengja
og þar meö jafnvel auka félagsleg
vandamál ungmenna. Beinir ráö-
ið þvf þeirri eindregnu áskorun til
borgarstjórnar, aö hún tryggi viö
lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunar
áframhaldandi starfsemi (Jti-
deildar.”
Með tillögunni greiddu atkvæði
auk flutningsmanna, Davfð Odds-
son og Skúli Möller, og var hún
þvi samþykkt. Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir sat hjá og óskaði eftir að
eftirfarandi væri bókað:
„A fundi , sem 8 borgarfulltrú-
ar meirihlutans héldu fyrir viku,
var samþykkt samhljóða m.a.
með atkvæðum Alþýðubanda-
lágsmanna aö leggja niður starf
(Jtideildar mestan hluta árs 1979.
Tel ég þvf eðlilegt að þessu máli
sé visað til endanlegrar af-
greiöslu á fundi borgarstjórnar
næstkomandi fimmtudag.”
Komiö í veg fyrir fyrir-
byggjandi starf
Kristinn, Kristján og Margrét
óskuðu þá sameiginlega eftir aö
bókaö væri eftirfarandi:
„Vegna umræöna um framtíð
(Jtideildar viljum við undirrituð
láta færa neöanskráö til bókar i
ráðinu til frekari útskýringar á
afstöðu okkar:
Með þvi að leggja (Jtideild niður
teljum viö að verið sé að koma I
veg fyrir áframhaldandi fyrir-
byggjandi starf meðal unglinga —
samfélaginu og einstaklingnum
til heilla. Ef af ákvörðun þessari
veröur teljum við að veriö sé að
spara aurinn en kasta krónunni,
þvi að í framtiðinni mun það sýna
sig að meiri kostnaður mun af
hljótast en fyrir vinnast. Viö telj-
Framhald á 18. siðu
I rétta átt
Bráðabirgöatölur frá Seðla-
bankanum um þróun greiöslu-
jafnaðar og gjaldeyrismála 1978
liggja nú fyrir. 1 flestum greinum
stefnir þar i rétta átt þótt ástand-
ið hafi á sumum sviðum verið
slæmt sl. haust. Vöruskiptajöfn-
uður reyndist vera um áramót
óhagstæður um rúma 2 miljarða á
móti 0.3 miljöröum 1977.
Greinargeröin var
ekki send fjölmiðlum
Birgir Jónsson, annar þeirra
sem stóö að greinargerð um raf-
orkumál Austurlands, hafði
sambandi viö blaðið vegna við-
tals viö Hjörleif Guttormsson,
iönaðarráöherra, sem birtist i
blaðinu I gær.
Vildihann kom þvi á framfæri
að greinargeröin hefði ekki ver-
ið send fjölmiölum, heldur heföi
henni verið dreift meöal al-
þingismanna og eintök send i
iðnaðarráöuneytiö og fjár-
málaráðuneytið á fimmtudag-
inn i siðustu viku. Visir birti
hins vegar útdrátt úr henni á
föstudaginn og sáu þeir þá ekki
ástæöu til annars en að senda
hana til fjölmiðla.
isg
LOKUN ÚTIDEILDAR