Þjóðviljinn - 14.02.1979, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 14.02.1979, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 14. febrúar 1979 — Sömu laun fyrir sömu vinnu ER krafa Sóknar, sagði Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir þegar blaða- maðUr Þjóðviljans bar undir hana grein Hild- ar Jónsdóttur sem birt- ist á jafnréttissiðu blaðsins s.l. laugardag undir yfirskriftinni ,,Sömu laun fyrir sömu vinnu ætti að vera krafa Sóknar.” — Launakröfur okkar miöast viö laun sem fólk i sambærileg- um stör,fum hefur innan BSRB. Viö tökum miö af ófaglæröum hjúkrunarmönnum. Þeir komast hæst i 201.002 krónur eftir 15 ára starf, en krafan hjá okkur er 207.934 kr. eftir 5 ár. Hildur skilur litiö I launamálum ef hún telur aö viö viljum ekki launajafnrétti. Ég skil ekki hvaö Hildur er aö tala um launajafnrétti innan BSRB; hún ætti aö vita aö þar eru konur yfirleitt I lægstu launaflokkunum. Hvar eru fóstrur, t.d.? Það er fróðlegt að bera kjör þeirra saman viö kjör rafvirkja. Það sama gildir um háskólamenntaöa hjúkrunar- fræðinga, þær búa viö miklu verri kjör en aörir háskóla- borgarar. Yfirleitt eru hjúkr- unarfræöingar og sjúkraliöar i svo lágum launaflokkum aö þær ganga fyrir aukavinnu. Afstadan til BSRB i Þaö er lika ruglingur hjá Hildi ef hún heldur aö okkar hlutverk sé að visa fólki inni önnur stéttarfélög. Okkar hlutverk er að standa vörð um réttindi okk- ar félaga innan okkar stéttar- sambands. Ég er enginn BSRB-and- stæðingur, sagði Aöalheiður. — Ég tel aö viö eigum aö standa saman. Við vinnum aöallega á svæði BSRB og þaö er eðlilegt að samanburður sé geröur þegar upp kemur svona mikill munur á kjörum, einsog gerst hefur eftir tvenna undanfarna samninga. Þaö er rétt aö innan Sóknar hefur verið talsverö hreyfing i þá átt að fara yfir I BSRB, en þetta er ekkert auöveld leiö. Til þess aö svo megi veröa þarf I Sömu laun fyrir sömu vinnu er krafa Sóknar Ekki okkar hiutverk aö visa fólki inn i önnur stéttarfélög, segir Aðalheiöur. fyrsta lagi aö samþykkja tillögu þar að lútandi á félagsfundi i Sókn, og i ööru lagi þarf aö fara fram allsherjaratkvæðagreiösla þar sem tveir þriðju hlutar félagsmanna gætu samþykki sitt. Ég efast um aö þessi meirihluti sé fyrir hendi, enda þyrfti þá aö vera sannaö aö til mikils sé aö vinna. A Akranesi var ákveðið aö fara I verkfall á þeirri forsendu að annað hvort yröi gengiö inn i STAK eöa samiö um sambæri- leg kjör, en það tókst ekki. Þaö kemur fram i yfirlýsingu formanns Snótar i Vestmanna- eyjum, að konurnar þar hafi ekki viljaö ganga inn i bæjar- starfsmannafélagiö þar vegna þess aö þeim hafi veriö boönir svo lágir launaflokkar aö þær vildu ekki ganga að þeim. Slik yfirlýsing hefur ekki komiö frá Akranesi, en hinsvegar hefur mér verið sagt þaö I sima þaöan aö þeim hafi iika veriö boöinn lágur launaflokkur. Gott væri aö fá staöfesta ástæöuna fyrir þvi aö Akraneskonurnar fóru ekki inn I STAK. segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir Kristján Thorlacius hefur lýst þvi yfir aö laun séu ekkert sjálf- gefin innan BSRB. Viö vitum öll aö röðun er þar mjög mikil, og ég er ekkert viss um aö minar konur sætti sig viö þaö aö vera raöar niöur hér og þar i laun- stiga BSRB Önnur félög Varðandi það sem Hildur segir um aö önnur félög kynnu að feta i fótspor Sóknar ef viö gengjum inn i BSRB segi ég aö mér ber ekki að svara fyrir önn- ur félög. Hitt er ljóst, aö yfirgefi Sókn ASl gætu fleiri komið á eftir. Ég hef á undanförnum árum gagnrýnt margt i störfum ASÍ, en þaö hef ég gert meö þvi hugarfari að ég hef viljað koma þar ýmsu fram sem ég tel til bóta. Ég hef yfirleitt gert mér far um að meta hlutina einsog þeir snúa aö mér. Vissulega biðst ég ekki afsök- unar á þvi aö þiggja góða aöstoö frá félögum minum i ASÍ — mér finnst þvert á móti að ég stæöi ekki I stööu minni sem formaöur stéttarfélags innan ASl ef ég hagnýtti mér ekki þá aðstoð sem hagdeild ASI hefur veitt mér nú I þessum samningum. En það er Sókn sem er aö semja, og I þetta sinn á eigin vegum. Sá sem lætur sig eitt- hvað varöa hagsmuni Sóknar hlýtur aö hvetja til samstööu en ekki sundrungar á slikum tim- um. Fæðingarorlof Hildur minnist lika á fæöingarorlofiö og lætur aö þvi liggja aö ég sé aö versla meö það. Þaö hef ég aldrei gert og mun aldrei gera. Ég hef alltaf veriö þeirrar skoöunar aö fæöingarorlofiö ætti aö vera þrir mánuöir og greiöast úr Al- mannatryggingum. Þessvegna mun ég aldrei samþykkja aö þaö veröi sett inn I okkar samn- inga gegnum atvinnuleys- istryggingasjóö, né heldur aö skylda eigi konur til aö mæta aftur til vinnu. Verkalýðshreyfingin heföi átt aö vera búin aö semja um þaö fyrir löngu aö fæöingarorlof væri greitt beint úr tryggingun- um, og ég tel aö ASI eigi að taka það upp sem baráttumál að þaö fari inn-á næstu fjárlög. Fyrir þvi vil ég berjast i félagi viö hvern sem er. Ég tel að fæöingarorlofið væri fyrir löngu komiö I gegn ef ekki væri ríkjandi það viöhorf karla- samfélagsins að fæöing sé eitt- hvaö sem konum einum komi viö. Ég hef alltaf verið þeirrar skoöunar aö erfitt sé aö aöskilja hagsmuni foreldra og barna, og tel þvi vel til fundiö aö þetta stóra hagsmunamál foreldra og barna I verkalýösstétt veröi afgreitt á Alþingi á barnaárinu, sagöi Aöalheiöur aö lokum. ih VERKAKONUR A AKRANESI Fengu aldrei tilboð um inngöngu í STAK I viötalinu við Aöalheiöi Bjarnfreösdóttur kemur fram ósk um aö verkakonur á Akra- nesi gefi yfirlýsingu um ástæö- una fyrir þvi aö þær gengu ekki I STAK, en sem kunnugt er var mikiö rættum þaöþegar Verka- iýösfélag Akraness stóö f samn- ingagerö nú nýlega. Blaöamaður hringdi I Herdisi ólafsdóttur, formann kvenna- deildar Verkalýösfélags Akra- ness, og haföi hún þetta um máljð aö segja: — Þegar ákveöiö varaö fara I verkfall var þaö ekki gert til aö þrýsta sér inn i STAK, heldur var verkfalliö liöur i okkar launadeilu og til þess gert aö þr-ýsta samningum okkar áfram. Viö sóttum um inngöngu i STAK vitandi þaö, aö sam- kvæmt samningum er enginn STAK-félagi i lægri launaflokki en 5., og I framkvæmd er þaö svo aöenginner þar fyrirneöan 6. launaflokk. Viö reiknuöum þvi meö aö okkar konur kæmu inn i 6. flokk. Hinsvegar fengum viöaldrei neitt tilboöfrá STAK, en i samninganefndinni var óformlega ýjaö aö þvi aöef kon- urnar gengju þar inn yröi komiö á sérstökum launaflokki fyrir þær, sem yröi lægri en sá fimmti. Viö gátum aö sjálfsögöu ekki fariö aö semja um launa- flokka fyrir STAK. Viö heföum stutt okkar konur til inngöngu i STAK ef þær heföu fengið kjarabætur með þvi, en til þess kom aldrei. Starfs- mannafélag Akranessbæjar lagöi þvi'aldrei opinbert liö aö konurnar fengju inngöngu i STAK. ih SLÁTURTÍÐ! Þeir hafa sjálfsagt veriö ófáir Alþýðubandalagsmennirnir sem héldu sigurhátiö aö morgni 29. maí. Ihaldiö var falliö og nú skylduganga I hönd nýir ogbetri timar. Þegar sigurviman var liö- in hjá og menn fóru aö spekjast byrjuðu sjálfsagt flestir vinstri menn á alvarlegri hugleiöingum um nýskipan í borgarmálum og geröu sér fljótt ljóst aö breytingar yröu ekki framkvæmdar á einum degi eöa tveimur. Þegar á leiö timann geröust þónokkrir óþolin- móöir og vildu fá betrumbætur hiö snarasta, og geröust jafnvel svo ósvifnir aö fara I hálfgildings verkfall til áherslu kröfum sin- um. Brugöist var fljótt og vel viö. Guörún Helgadóttir borgarfull- trúistakk niöur penna, báð menn aö vera rólega þvi þess væri ekki aö vænta aö öllu tækist aö kippa i lag svona strax eftir aö tekið væri við þrotabúi ihaldsins. „Biöiö bara róleg... þetta er ekki komiö enn þá... en þetta er þó alveg aö koma” var boöskapur Guörúnar. — Og viö biöum! Stóra stundin rann upp. I dag- blaöinu Visi 7. feb. fengu allir aö vita hvaö var ,,i pakkanum.” Stórfelldur niöurskuröur, sem fyrst og fremst beindist að mál- efnum barna ogunglinga.Kleifar- vegsheimiliö skyldi lagt niður, engin starfsemi i Tónabæ, Mæðraheimiliö á aö hverfa, Fæö- ingarheimilið viö Eiriksgötu,' fækka skaL kennurum á Reykja- vikursvæöinu á kostnaö nem- endafjölda I bekkjum, stóru lof- oröin um auknar f járveitingar til dagvistunarmála hafa hlaupiö i þvotti.og siöasten ekki sistskyldi Útideild lögö niöur. Lái okkur svo hver sem vill, aöviö lásum grein- ina bæöi i tvlgang og þrlgang. trtideild: Óþarfi mun aö tíunda tilgang og starfeemi útideildar hér, svo mikiö hefur veriö rætt og skrifaö um þaö málefni aö undanförnu. Ekki hyggjumst viö heldur reyna aö leiöa rök aö árangri af starfi deildarinnar, þvi bæöi er, aö ýms- ir aörir eru betri til þess og svo hitt aö ekki veröur séö aö slik sjónarmiöráöi neinu i ákvöröun á þessum niöurskuröi. Bæöi fé- lagsmála- og æskulýösráö mæltu einróma meö óbreyttum rekstri deildarinnar. Kjörnir fulltrúar meirihlutans i borgarráöi vissu þóbetur. An nokkurssamráös viö ráöin, hvaö þá starfsfólk Úti- deildar var deildinni fórnaö meö einu pennastriki. (Og svo fær starfsfólk þar eins og reyndar á fleiri stööum aö lesa i dagblööum að þaö sé svipt vinnunni). Starfsfólk Útideildar hélt i sak- leysi sinu aö einhverjar veiga- miklar faglegar röksemdir hlytu aö liggja til grundvallar svo af- drifarikri ákvöröun. Viö fórum þvi strax á stúfana og ræddum viö all flesta sem aö ákvöröun þess- ari stóöu. En undrunin varö rnik- fl, þvi I ljós kom aö aumingjans fólkiö haföi nánast allt veriö aö vinna gegn betri vitund. Allir voru sem sé sammála um ágæti Útideildar og ekki tókst okkur að þefa uppi neitt þaö sem rökstyddi slátrunina. Mest mæöir þó á okk- ur Alþýöubandalagsmönnum. I Þjóöviljanum lO.feb. getur aö lita tárvotar yfirlýsingar Sigurjóns Péturssonar þar sem hann harm- ar meir en tárum taki afdrif úti- deildar.... en greiöir nú samt at- kvæöi meö niöurfellingunni. Já þeir eru nú margir Pilatusarnir! Kosningarnar unnust I vor. Þær unnust ekki vegna þess aö fólk væri aö kjósa flokk meö ööru nafnisér til dægrastyttingar. Þær unnust vegna þess aö fjöldi fólks trúöi á aö Alþýöubandalagiö vildi vinna aö félagslegum umbótum. Ekkert okkar dreymdi um að flokkurinn myndi skipa sér I fylk- ingu sem stæöi aö félagslegu niö- urrifi. Afsökunina um aö bjarga þurfi samstarfinuer ekki hægt að teygja endalaust. Veröi niöurfell- ing útideildar aö raunveruleika á borgarstjórnarfundi á morgun verður þaö að skoöast sem hnefa- högg i andlit unglinga I Reykja- vlk, og þeirra sem vinna aö mál- efnum unglinga. Fari svo er vist orðiö tímabært aö borgarstjórn- armenn hætti aö glamra um barnaáriö. Siguröur Ragnarsson Sólveig Reynisdóttir Nýjustu athuganir: Gæsin sýkn saka Bændur hafa löngum att kappi viö annan vargfugl en þann sem birtist þeim reglubundiö I leiöur- um Dagblaösins. Þannig hefur ' grágæsin mátt þola margt köpur- yröiö úr munnum bænda fyrir fikn hennar i ræktarlönd þeirra að vori og hausti. Telja þeir marga nýræktina hafa iila spillst af heimsóknum þessa fiöurfén- aös. Annar er sá fugl sem þeir hafa mælt til ekki miður beiskleg- ar en þaö er álftin. Þrátt fyrir fjölmæli þau sem gæs og álft hafa þolað gegnum árin sökum meints grasastulds úr túnum bænda, hafa ekki miklar athuganir veriö geröar á réttmæti þessa áburöar. Úr fjárveitingu svo nefndrar „Þjóöargjafar” fékkst þó fjármagn til aö standa straum af athugun Rannsóknar- stofnunar Landbúnaöarins á þeim búsif jum sem bændur sæta af beit gæsa og álfta. A Neöra-- Hálsi I Kjós voru um þriggja ára skeiö athuguö áhrif álftabeitar og jafiiframt var haldiö úti könnun á ásókn grágæsa i ræktarlönd. Einnig voru viöhorf bænda til tjóns af völdum fugla könnuö og reynt að koma mati á þaö meö beinum mælingum. Aö auki var freistaö aö koma tölu á fjölda fugla istofnum. Niöurstöður uröu þær, aö grá- gæsastofninn virtist hafa vaxiö um helming frá 1963 og munu nú 60 þúsund fuglar dvelja hér aö sumarlagi. Hins vegar nemur beit alls grágæsastofnsins á rækt- uöu landi ekki nema um 0.1% af uppskeru allra túna á Islandi. Aiftastofninn er tlfalt minni og hlutfall hans i beit á ræktuöu landi minna. Þaö má þvi telja aö gæsir og álftir séu nú hreinsaðar af þeim hvimleiöa áburöiaö þær hnupli úr túnum bænda i umtalsveröum mæli. Ekki er þó jafnvist aö bændur sætti sig viö þessi mála- lokogtam. mun nokkur kurrhafa veriðiráöunautum er þessar niö- urstööur voru kynntar þeim á fundum Búnaöarfélagsins aö Hót- el Sögu i fyrri viku.____ÖS Fundir um skólamál Félög kennara og skólastjóra viö grunnskóla Reykjavikur hafa bundist samtökum um aö standa aö fræöslu- og kynningarfundum um ýmsa þætti skólamála. Fyrsti fundur á þessu skólaári fjallaöi um námsmat, en þrlr næstu eru fyrirhugaöir: 7. mars: Nýjungar i kennslu- skipan, 20. mars: Skólaskipan i Reykjavik, 2. april: Uppeldi — skólastarf. Þeir frummælendur sem þegar hafa verið fengnir eru: Guöný Helgadóttir og Siguröur Slmonar- son, sem ræddu um námsmat skólans, Kristján Benediktsson, formaöur fræösluráös, sem fjall- ar um skólaskipan I Reykjavik og Þórir Guöbergsson, félagsráð- gjafi, sem ræöir um uppeldi og skólastarf. Allir fundirnir eru I Vikingasal Hótels Loftleiða .oghefjast klukk- an 20.30.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.