Þjóðviljinn - 14.02.1979, Page 4

Þjóðviljinn - 14.02.1979, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 14. febrúar 1979 UOBVIUINN Málgagn sósialisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis l tgrfundi: útgáfufélaK l»jóftviljans Kramkvrmdahtjóri: Kiftur Bergmann Kithtjórar Arni Bergmann,. Kinar Karl Haraldsson. Frétlahtjóri: Vilborg Harftardóttir Kekstrarstjóri: Úlfar Þormóftsson Auglýsingastjóri: Runar Skarphéftinsson Afgreiftslustjóri: Filip W Franksson Blaftamenn: Alfheiftur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson. Erla Sigurft- ardóttir. Guftjón Friftriksson. Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Mar- geirsson, Magnús H Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. tþróttafrétta- maftur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttarnaftur. Sigurftur G Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson. Leifur Rögnvaldsson t'tlit og hönnun: Guftjón Sveinbjörnsson, Sævar Guftbjörnsson Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir. Elias Mar. Safnvörftur: Eyjólfur Arnason Auglvsingar: Sigríftur Hanna Sigurbjörnsdóttú, Þorgeir Olafsson Skrifstofa: Guftrún Guftvarftardóttir. Jón Asgeir Sigurftsson. Aígreiftsla : Guftmundur Steinsson. Hermann P Jónasson. Kristín Pét- ursdóttir Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriftur Kristjánsdóttir. Bflstjóri -. Sigrún Bárftardóttir Húsmóftir: Jóna Sigurftardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir. Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon. Rafn Guftmundsson. Kitstjórn. aígreiftsla og auglýsingar: Slftumúla 6. Reykjavlk. tfml 8 13 33 Prentun: Blaftaprent hf. Sprengja Ólafs • Ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa í ríkisstjórn stöðvað frumvarp ölafs Jóhannessonar forsætisráð- herra og hafnað algjörlega ýmsum meginatriðum þess. Ástæðan er sú að það er í veigamiklum atriðum ekki i samræmi við þá samstarfsyf irlýsingu sem ríkis- stjórnarsamstarfið byggir á, ekki í samræmi við þau efnisatriði, sem samstaða var um í ráðherranefndinni í lok janúar og enn síður í samræmi við þau grundvallar- atriði sem verkalýðshreyfingin telur að eigi að móta stefnu stjórnvalda í efnahags- atvinnu- og kjaramálum. • Það er deginum Ijósara að frumvarp Ölafs Jóhannes- sonar hæfir vel sem grundvöllur að stjórnarsamstarfi Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Alþýðuflokkurinn leggur ofuráherslu á að frumvarp Ólafs verði lagt fram á Alþingi nú þegar í óbreyttri mynd og þar gætu Sjálfstæðismenn skrifað upp á það í megindráttum. Þessi áhugi kemur ekki á óvart, enda er frumvarp forsætisráðherra æði svipað efnahagsmála- frumvarpi þvi sem Alþýðuflokkurinn kynnti í febrúar. Og þvi krataf rumvarpi gaf Ragnar Arnalds þá einkunn í Þjóðviljanum í gær að það væri réttnef nt „frumvarp um skipulagt atvinnuleysi og sjálfvirka kjaraskerðingu". Þannig hefur forsætisráðherra nú lagt pilsfald Framsóknarmaddömunnar yfir smákratana, og stoðar lítið þótt þeir kíki undan faldinum og kalli frumvarp Ólafs sitt. • Annars er það íhugunarefni hversvegna forsætisráð- herra hagar málum eins og raun ber vitni. Hann leggur fram viðamikið plagg sem greinilega er samið af efna- hagssérf ræðingum í Þjóðhagsstof nun og Seðlabanka og miðaraðþvíaðdraga ákvörðunarvald í efnahagsmálum úr höndum Alþingis til þessara stofnana. Um leið hefur forsætisráðherra látið hafa sig í það að kasta mörgum þeim skrautblómum sem Framsóknarflokkurinn hefur haft i hnappagatinu um árabil út í ystu myrkur. Hvað segja bændur um það til að mynda að framlög í sjóði landbúnaðarins skuli vera háð geðþóttaákvörðunum ár hvert? Eru þeir tilbúnir að kasta fyrir róða því sem þeir hafa áunnið sér með áratuga baráttu? Og hvað segir verkafólk um að sömu örlög eigi að bíða samningsbund- inna framlaga til Atvinnuleysistryggingarsjóðs og Byggingarsjóðs ríkisins? • I þeim samningalotum sem staðið hafa yfir milli ríkisstjórnarflokkanna á siðustu mánuðum hefur margur glatað hinum stóru línum í islenskri pólitik og þær horfiö í skuggann fyrir öllu smáþrefinu. Það frum- varp sem ólafur Jóhannesson hefur nú kastað fram sem hnefahöggi i andlit verkalýðshreyfingarinnar minnir rækilega á það um hvað er tekist í íslenskri pólitík. Það hefur verið skoðun margra að með stéttarlegri samstöðu verkafólks og þorra bænda hefði núverandi ríkisstjórn nægilega sterkan bakhjarl til þess að knýja fram efna- hagsmálastefnu og árangur í verðbólgubaráttunni sem ekki bitnaði á launafólki, hvað sem liði andófi íhaldsaf la og auðstéttarinnar í landinu. • Svo virðist sem efnahagssérfræðingum ólafs Jóhannessonar, forsráðherra sjálfum og þorra þing- kratanna hafi ekki enn skilist í hvers konar ríkisstjórn þeir hafa hafnað. Meðtillögum sínum f vísitölumálunum hefur forsætisráðherra f raun slitið starfi vísitölu- nefndar. Kröfum verkalýðshreyfingarinnar um beina aðild aö stefnumótun í efnahagsmálum svarar hann með tillögu um að endurvekja „Hagráð" viðreisnarstjórnar- innar. Þar fyrir utan tekur forsætisráðherra undir allar samdráttarhugmyndir og prósentubindingar Alþýöu- flokksmanna og býður atvinnuleysinu óhræddur heim. Að sjálfsögöu er ekki minnst orði á ýmsar tillögur Alþýöubandalagsins um sparnað f milliliðakerfinu og yfirbygginguna f þjóðfélaginu, eða um breytingar á framleiðsluskipuiagi atvinnuveganna og og framleiðni- áætlun f sjávarútvegi og iönaði. • Frumvarp forsætisráðherra er ekki lagt f ram til þess aðná samstöðu meðal stjórnarf lokkanna. Hafi hann ætl- að að láta reyna á hversu langt væri hægt að komast með Alþýðubandalagið þá er það nú fullreynt. • Ráðherrar og þingflokkur Alþýðubandalagsins hafa hafnað frumvarpinu eins og það liggur fyrir og lýst yfir því skorinort að hefja þurfi nýja samningalotu í ríkis- stjórninni ef menn vilja á annað borð komast að sam- komulagi. Forsætisráðherra og Framsóknarf lokkurinn í heild hafa fengið það svar sem þeir kölluðu á. • Það er og rétt sem einn þingmanna Sjálfstæðisflokks- ins sagði í þingsölum í gær að „þegar Alþýðubandalagið er með múðui; þá er þaö múðui; en þegar kratarnir eru með múður þá er það ekkert múður". Fleiri þurfa að átta sig á að á þessu tvennu er örlagaríkur munur. —ekh Hver drepur hvern? Þegar hermdarverk vorusem mest á dagskrá i fyrra i sam- bandi við morðið á Aldo Moro, fyrrum forsætisráðherra ítalfu, bá var hér i blaöinu bent á bað nokkrum sinnum, aö undarlega sterkir þræðirlægju milli sumra þeirrasem kenna sig við Rauö- ar herdeildir og byltingu annarsvegar og háttsettra manna i lögreglunni, sem og leyniþjónusta erlendra hinsveg- ar. Þetta þótti ýmsum dálka- höfundum spaugileg kenning og fráleit. Eins og menn vita er viða reynt aö nota „hermdarverk” neðanjarðarhópa sem tilefni til að ráðast gegn róttækum og frjálslyndum öflum og flokkum t.d. á ítaliu og Vestur-Þýska- landi, gera þau einsog með- ábyrg þessum „öfgahópum til vinstri”. 1 fróðlegri samantekt sem birtist i Dagblaðinu á dögunum eru hinsvegar rifjuð upp mörg undarleg dæmi, sem benda til þess að „stjórn- leysingjar” og „hryðjuverka- menn” hafi i reynd notið fyrir- greiðslu lögreglunnar og staðið i sambandi við leyniþjónustur vestrænna rikja. 1 greininni segir m.a.: CIA í byltingargetfi Ránið og morðið á Aldo Moro, sem félagar Ur „rauðu her- deildunum” stóðu að, hefur knúið marga ttali til þessaðlita á hryöjuverkavandamálið frá nýju sjónarhorni. Sú spurning hefur vaknaö: Hafa ekki vold- ugri öfl, og þá einkum bandariska leyniþjónustan, ver- iö viöriöin þennan vandlega undirbúna glæp? Það er stað- reynd, að litið var á þennan fyrrverandi forsætisráðherra Italiu sem óæskilega persónu af vissum öflum, og það ekki að- eins vissum öflum handan Atlantshafsins. Þetta er ekkert leyndarmál. Nýlega voru birt sérstök leynileg fyrirmæli til erindreka bandarisku leyni- þjónustunnar erlendis, skjal FM 30—31, sem staðfesta þennan grun. Höfundar fyrirmælanna leggja til, að unnin veröi ýmiss konar skemmdar verk, m.a. aö komast inn i raðir róttækra „vinstri” hópa, svo sem „rauðu herdeildanna”, i þvi skyni aö skapa ringulreið, óróa, og að ræna pólitiskum leiðtogum sem eru i andstööu. Þessar leiðbein- ingar voru samdar sérstaklega fyrir „vinveitt” lönd, þ.e. bandamenn Bandarikjanna I Nato. Sagt er i einum af leynilegum fyrirmælum CIA, að þessar að- geröir skuli fremja I þvi skyni að láta almenning halda, að byitingarsinnar standi að þeim. Slikar aðgerðir á ekki aðeins að vinna meö tilstilli ógrunsam- legra stjónleysingja, heldur og nýfasista og jafnvel glæpa- manna. Kristindóms- frœösla í skólum 1 Reykjavikurbréfi á sunnu- dag var mikið rætt um það is- lenska eilifðarmál sem heitir kristindómsfræösla i skólum. Tilefnið eru áhyggjur sem tveir prestar hafa lýst út af þvi, að i fyrra gerðust þau tiðindi að I fyrra skilaði yfirgnæfandi meirihluta kennaraefna auöu á lokaprófi i kristnum fræðum. Höfundur Reykjavikurbréfs fæst siðan einkum við það, aö veita kennaraefnum föðurlega leiðsögn um það aö kristni sé góö og nauösynleg. Hann vitnar sér til trausts og halds i Bessi Jóhannsdóttur varaborgarfull- trúa sem hefur sagt: „Kristin- fræði er ein mikilvægasta námsgrein grunnskólans. Þar lærir nemandinn ekki samsafn þurra staöreynda, heldur þann kærleika og þá mannúö sem sist má vikja á þeim timum þegar öfl mannfyrirlitningar og nei- kvæðni hafa náö tökum á alltof mörgum”. Biblían er sem bögglað roö Oft er sagt sem svo: meiri- hluti landsmanna er i þjóðkirkj- unni og vill hafa kristinfræði i skólum og þvi eru þau þar. Við skulum I bili sleppa minnihluta- sjónarmiöum ýmislegum og taka þessa röksemd góða og gilda. En þá er strax upp vakin önnur spurning: hvers konar kristinfræði, hvers konar fræðslu um trúarbrögð? Allir geta verið sammála um það, að sá er illa staddur á okk- Sktoingur ekki afkristnu^^ I HMK ÞaS. V^r. S| iaihír»»***"*'u*»u klrh>un**»» Sérþörf— sinní kristninnar t huRvekju sr. Jóns Auðuns sunnudapinn 2. J*U U™ “ hann um kristna tru og þa ábyríSó, sem fylgir kristinnl kenningu. | Hugvekjan cr ekki sízt athyglw- | verh fvrir þá sök, að i henni kemur ■ fr.m,»ð.nál*gt50af 60kennara. : efnum, sem eru að ljuka prðfi frá Kennaraháskólanum neita aðskila úrlausnum um kristindóm. begir l Skólinn ’triin Þaö er einnig rétt, sem Bessí Jóhannsdóttir, segir í kjallara- h.unuB»urDgi gre;n j vísi, að kennarinn megi ‘ aldrei líta á sig sem trúboða þ ákveðinna kenninga, svo og sú .llvrðinir aðskó * Astæða uppgangs hryðjuverkahópa á Vesturlöndum — Sovétmenn eru oftsinnis sakaðir um að veita þessum hópum bæði f járhagslegan og siðf erðilegan stuðning ar mennigarsvæði sem þekkir ekki sæmilega til Bibliunnar: sá maður skilur alls ekki margt i bókmenntum, tónlist, hann átt- ar sig ekki á heilum öldum i myndlist, forsendur hans til aö skilja eigin tungu og aðra eru lakari. Og börn lesa um Eden, syndaflóð, Davið og Goliat, jólasöguna, um kraftaverk Jesú, pislarsöguna. Kennarar í vanda En nú ætlast margir til þess að börnin hafa annaö gagn af kristnifræðitimum en aö vita skil á þessum biblíusögum. Þau eiga I leiðinni að læra „kærleika og mannúð”. Og þar með er komið að vanda margra kenn- ara, sem hefur brotist fram i prófasögunni i fyrra. Hvernig eiga þeir að kenna börnum „kærleika og mannúð” af sög- unni um syndaflóðið eða af sög- um um Daviö kóng? Eru þeir skyldugir til að svara játandi þegar börnin leggja fyrir þá samviskuspurningar um það hvort þeir trúi á kraftaverka- sögur Nýja tstamentisins? Trúi ( á þær sem sögulegar staðreynd- ir við hlið annarra sögulegra staðreynda? Enginn vandi kem- ur upp meðan enn voru til ágæt- ar kennslukonur gamlar, eins og sú sem kenndi klippara þessa þáttar:Nói gamli, Móses, Goliat og postulasagan voru henni nákvæmlega jafn áþreifanlegur veruleiki og Gunnar á Hliðar- enda og hástökksafrek hans, Grettir Asmundarson og svo Jón forseti Sigurðsson. Með slikri konu gátum við lifað um stund I heilsteyptum heimi. En svo kom næsti bekkur og viö fengum nýutskrifaðan kennara . sem var efasemdamaöur eins og vonlegt var. Þegar við krakkarnir spurðum hann út úr fór hann heldur undan i flæm- ingi, manngreyið. Hann vildi . hvorki tala um hug sér né held- ur móðga foreldrana sem höföu fyrir löngu tekið sér „rétt for- ráöamanna nemenda til að tryggja það að menntun og fræðsla gangi ekki gegn trúar- og lifskoðunum þeirra”, en þann rétt vill frú Ragnhildur Helgadóttir nú lögfesta af kappi meira en forsjá. Út í hött Ot úr þessum vandræöum kemur það eitt, að I kristin- fræöitimum (sem að sjálfsögöu eru mjög misjafnir eftir kennurum) fer litið fyrir „kær- leika og mannúð” þeirri sem Bessi gumar af, en þeim mun meira fyrir „samsafni þurra staöreynda”. Hver kannastekki við þaö?: Nefndu sex af postul- unum. Hvert erfyrsta boöoröiö? Af hverju drap Kain Abel? I Hvernig réð Jósef draum * Faraós? Hver var þriðja freist- ing 1 eyöimörkinni? Þaðermikið lýöskrum aö láta siðan sem vandinn sé að kenna J vinstrigaurum guðlausum sem > endilega vilji sýna „foreldrum j kirkju og kristni” fyrirlitningu, j eins og Reykjavikurbréfið seg- J ir. Fyrirkomulagið sjálft er út i ■ hött og býöur upp á þverstæður j og ruglanda — og má reyndar j undarlegt heita ef kirkjan sjálf , telur sér þaö ekki beinllnis i skaðlegt. —áb. I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.