Þjóðviljinn - 24.02.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.02.1979, Blaðsíða 6
« StDA - ÞJÓÐVILJINN L*«g«r4»g.r 24. feferéar 1VT» Innrás Klnverja ( Vletnam hefur veriö mótmælt úti um allan heim. Þessi mynd er frá einum slikum fundi sem haldinn var I Kaupmannahöfn. Aft honum stóóu mörg verkalýösféiög, Sóslalfski Þjóðarflokkurinn, Kommúnistafiokkurinn og Vinstri Sósiaiistarnir. Slagoröin voru: Klna úr Vletnam. — Samstaða með vletnömsku þjóðinni. Margir þeirra sem þarna voru stóðu þarna og mótmæltu öðru stórveldi I Vletnam fyrir tiu árum, Bandaríkjamönnum. KÍNVERJAR GERA LOFTÁRÁS Á VIETNAM • • Fundur hatinn í Oryggisrádmu PEKING, BANGKOK, Washing- ton, 23/2 (Reuter) — i dag gerðu Kinverjar loftárás á borgina Hæ- Ródesiumenn: fong í Norður-Vietnam. A þessum tima voru sovésk skip I höfninni en þau voru að afferma vörur Gerðu loftárásir á á flóttamannabúðir LUSAKA, 23/2 (Reuter) — Þotur frá Ródesiu gerðu i dagioftárás á fióttamannabúöir I nágrenni Nampundwenámunnar vestan við Lusaka. Ekki er enn hægt að segja til um mannsföll eða skemmdir. Þetta er önnur árás Ródesiumanna á Zambiu á einni viku. Umferö tafðist á meðan fjöldi sjúkrabifreiða þeystist frá Lusaka til flóttamannabúðanna. Aöeins var þeim hleypt inn I sjúkrahús sem gefið gátu blóð. Fjöldi manna hefur særst og hefur Rauði Krossinn verið beö- inn um lyf. Fyrir sex dögum var loftárás gerð nokkrum kilómetrum fyrir norðan Livingstone en þá munu sprengjurnar ekki hafa hitt á markið, svo mannföll uröu engin. 100.000 manns á fundi marxista þrátt fyrir aðvaranir Khomeinis þar. Kinverjar virðast færa sig æ innar i Vietnam og munu nú hafa fjórar mikilvægar borgir á valdi slnu. Deng Xiaoping sagöi við frétta- menn i að Kinverjar hefðu hugsaö ráð sitt vel og vandlega áður en ráöist var inn 1 Vietnam. Væru þeir sér vel meövitaðir hvaða áhættu þeir tækju. Sovétmenn eru nú byrjaöir á vopnaflutningum til Vietnam og fara þeir fram flugleiöis. Tvær stórar flutningavélar munu nú vera á leiöinni, en búist er við að fjórar til viöbótar veröi látnar fara þangað. Fundur Oryggisráö SÞ um ástandið i SA-Asiu verður haldinn Framhald á 18. siöu Tánzaní uher s ækir fast inn í Uganda NAIROBI, 23/2 (Reuter) — Herir Tanzaniu færast nú æ meir inn i Uganda. Diplómatar I Kenya segja herina náigast bæ- ina Masaka og Mbarara. Stjórn- völd I Kampala virðast vera á sama máii, en þau segja Tanzaniuher vera I 8 km. fjar- lægð frá Masaka á leiö til höfuö- borgarinnar. íbúar Masaka munu nú vera á flótta frá heimilum sínum. Loftárásir hafa veriö tiöar af halfu Tanzaniumanna. Fréttir berast á þá leið að Ugandamenn sýni litla sem enga mótstöðu. Þeir séu illa vopnum búnir og baráttuhugur- inn af skornum skammti. Landamæraerjur rikjanna hafa nú staðið i fjóra mánuði. Sérstök nefnd frá Einingarsam- tökum Afrikurtkja þinga nú i Nairobi og ræða hvernig megi leysa þessar deilur Uganda og Tansaníumanna. TEHERAN, 23/2 (Reuter) — Tugir þúsunda vinstri manna söfnuðust saman fyrir framan háskólann I Teheran i dag. Þetta er fyrsti mótmælafundurinn sem haldinn er siðan keisaradæminu var velt. Giskað var á aö 100.000 manns stæðu á háskólalóöinni og hlýddu á fundinn sem stóð I tvo og hálfan klukkutima. Að honum stóð hreyfing marxista Fedayeed-e-Khalq og hafði Khomeini klerkur hvatt stuön- ingsmenn sina til aö mæta ekki á fundinn. Honum lauk meö að gerö var stefnuskrá i niu liöum. Meðal þess sem Fedayee-eKalq krefet er: Stofnun hers fólksins. Ráö fóiksins I stjórn verk- smiöja, verslunarfyrirtækja og i bæjarstjórnum. Viröing fyrir menningu og rétt- indum minnihlutahópa og jafn- rétti karla og kvenna á opin- berum vettvangi. Enginn sást bera vopn á fund- inum. A meðan á fundinum stóö, var hópur um 500 stuönings- manna Khomeinis skammt frá og hrópuðu að eini flokkurinn væri flokkur Allah. Ekki kom til neinna átaka. Monir Taheri skipstjóri var dæmdur til dauða ásakaður um að hafá boriö ábyrgö á eldinum I Rex-kvikmyndahúsinu I Abadan i ágúst I fyrra, en þá létu 377 menn Hfið. Þáverandi stjórnvöld ásök- uðu vinstri menn um aö hafa valdiö brunanum, en Karim Sanjabi formaöur Þjóðarfylk- ingarinnar (helsta stjórnarand- stöðuflokknum þá) sagði SAVAK leyniþjónustuna hafa komið þar nærri. Yfirvöld I Iran segjast nú hafa þjóðnýtt allar eigur keisarans. Hafa þau fariö fram á að allar eigur hans I Sviss veröi „frystar”. Utanrikisráðuneytiö i Sviss hefur neitað að segja nokkuö um málið viö fréttamenn. Nýlistasafnið og SÁÁ: Vilja fá inni á Korpúlfsstöðum Nýlistasafnið ogSAA hafa sent borgarráöi beiðni um afnot af Korpúlfsstöðum fyrir starfsemi sina. Erindinu var visaö til umsagnar Þóröar Þorbjarnar- sonar, borgarverkfræðings sem að sögn mun kanna húsnæðið með tilliti til þessara óska og núver- andi nýtingar hússins, og skila borgarráði umsögn sinni innan tiðar. Núverandi notkun á Korpúlf- stöðum er ansi fjölþætt, að sögn borgarverkfræðings. I fjósinu gamla, þarsemrúmast 160gripir er nú til húsa skjalasafn borg- arinnar og sagði Þórður að þó skjalasafniö heföi nú aöeins helming fjóssins til umráða þyrfti hinn helmingurinn bráðlega aö fara undir þaö lfka. A sömu hæö er Ibúöhúsvaröar,ognokkurher- bergi, sem áður þjónuðu osta- og smjörgerð auk mjólkurvinnu annarrar. Þar hafa ýmsir aðilar, auk stofnana borgarinnar haft aöstööu fyrir geymslu muna, og eins er háttaö á efri hæð hússins. I kjallara hússins, I gamla haughúsinuhafa ýmsir listamenn og listiðnaðarmenn haft aðstöðu og á hlöðuloftinu er Mynd- höggvarafélag Reykjavikur. Myndhöggvarar ætla sér að inn- rétta þar tvær Ibúöir, sem lista- menn geta dvaliö I um tima og unnið, en langt er i land meö þaö verk. Félagið fékk 1 miljón króna til þessara lagfæringa frá borg- inni nú eftir áramótin. Aö sögn Þórðar telur SAA aö þaö geti með góðu móti útbúið á Korpúlfsstöðum sjúkrarými fyrir 25 manns. Samtökin hafa rekið heimili i Reykjadal I leigu hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatl- aöra, en munu missa það húsnæöi innan tiöar. Telja forráðamenn samtakanna staðsetningu Korpúlfsstaöa góða fyrir þessa starfsemi, þar sem þeir kjósa til hennar vissa einangrun, en þó nálægð viö byggö. Nýlistasafnið hefur óskað eftir geymslu- og sýningaraöstöðu i húsinu, en geymsla safnsins i Mjölnisholti er nú þegar orðin of litil undir hin 450 verk af ýmsum stæröum og gerðum sem nú eru i safninu. —AI V extir og peningar 26. febr. — 2. mars verður haldið nám- skeið um vexti og pen- ingamál í aðal- byggingu háskólans kl. 17.15—19. Námskeiðið er einkum ætlað við- skiptafræðingum til endurmenntunar en einnig öðrum áhuga- mönnum til fróðleiks og umræðna um vaxta- mál/ sem eru ofarlega á baugi. Dagskrá er sem hér segir: 1. Mánud. 26. febr. og þriöj- ud. 27. febr. I stofu B (efstu hæð) Vaxtakenningar: Guð- mundur Magnússon, pró- fessor. 2. Miðvikud. 28. febr. I stofu A (efstu hæð). Starfsemi inn- iánsstofnana og vaxtakjör: Tryggvi Pálsson, hagfræö- ingur. 4. Föstud. 2. mars i stofu A (efstu hæð). Umræður um vexti og peningamál: Stjórn- andi: Þráinn Eggertsson, dósent. Þátttaka tilkynnist til Há- skóla Islands I sima 25088. Kæran á Sæ- dýrasafnið Þjóðviljanum hefur borist tilkynning frá stjórn Sambands dýra- verndunarfélaga ls- landS/ en hún hljómar þannig: Að gefnu tilefni skal það upplýst að kæra stjórnar Sambands dýraverndunar- félaga íslands á hendur ábyrgöarmönnum Sædýra- safnsins viö Hafnarfjörð er byggð á eftirfarandi gögn- um: — bréfi frá yfirdýralækni dags. 13. júll, 1976, — skýrslu Heilbrigðiseftirlits ríkisins dags. 1. nóv. 1976, — umsögn héraðsdýralæknis, fulltrúa sýslumanns og yfirdýra- læknis dags. 1. des. 1976, — bréfi dýraverndarnefndar dags. 23. feb. 1977, — bréfi dýraverndarnefndar dags. 3. feb. 1978 og bréfi dýravernd- arnefndar dags. 11. mai 1978. Samkvæmt öllum þessum gögnum kemur fram að reglugerð um dýragarða og sýningar á dýrum frá 1971 er ekki virt. Einnig skal það tekið fram af gefnu tilefni að þriðja at- riði 2. greinar laga S.D.l. um tilgang sambandsins hljóðar svo: Tilgangur sambandsins er: — að hafa afskipti af mál- um sem varða dýr og velferö þeirra. Stjórn Sambands dýra- verndunarféiaga tslands. Merk útgáfustarfsemi hjá Bjöllunni I tilefni barnaárs Sameinuöu þjóðanna vill bókaútgáfan Bjallan vekja athygli á málefnum fjöl- fatlaöra barna með útgáfu bókanna DAGUR og ÉG SÉ ÞIG EKKI. DAGUR er frásögn móður af lifi þroskahefts sonar síns. Bókin er einlæg, en jafnframt gagn- rýnin lýsing á þeim kjörum, er þjóðfélagiö býöur þeim, er minna mega sfn. Höfundurinn, Tordis örjasæter, er lektor viö norskan kennaraháskóla. Hún er kunn fyrir störf sin á þágu þroska- heftra. Bryndis Viglundsdóttir, skóla- stjóri Þroskaþjálfaskólans, hefur þýtt bókina um Dag. Norræni þýðingarsjóðurinn veitti styrk til útgáfunnar. ÉG SÉ ÞIG EKKI segir frá bhndri stúlku og daglegu lili hennar I heimi, sem fýrst og fremst miöaður við heilbrigöa. Höfundurinn, Palle Petersen, hefur samið fjölda fræöibóka fýrir börn og unglinga, þar sem lögðer áhersla á samspil mynda og texta. Arið 1974 fékk Palle Petersen barnabókaverölaun danska menntamálaráðuneytis- ins og árið 1976 tilnefndi Félag danskra sögukennara hann höf- und ársins. Andrea Þórðardóttir og Gisli Helgason þýddu bókina. Jafnframt má geta þess, að fyrir nokkrukom út hjá Bjöllunni bókin ÆTTUM VIÐ AÐ VERA SAMAN? eftir danska rithöfund- inn Hanne Larsen. Bókin segir frá daglegu lifi litils drengs, sem er heilaskaðaður. Bryndís Víglunds- dóttir þýddi bókina. Norræni þýðingarsjóðurinn veitti styrk til útgáfunnar. Nánar verður sagt frá þessum bókum siðar. —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.