Þjóðviljinn - 09.03.1979, Blaðsíða 3
Föstudagur 9. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Aöalfundur Einingar:
Þorsteinn Jónatans-
son gekk úr félaginu
Sáttatillagan:
Flugmenn samþykktu
Flugleidir sögðu nei
Nýjar aðgerðir boðaðar 16. mars
Þorsteinn Jónatansson, sem
árum saman hefur veriö meöal
forvigismanna verkalýösféiags-
ins Einingar á Akureyri sagöi sig
ár félaginu á aöalfundi þess s.l.
sunnudag. Ástæöan fyrir úr-
sögninni var sú aö á fundinum var
samþykkt tiliaga frá stjórn og
trúnaöarmannaráöi um aö
Sævari Frimannssyni, starfs-
manni Einingar skyldi veitt inn-
ganga i félagiö aö nýju og varö
Þorsteinn undir i þeirri atkvæöa-
greiðslu.
Samkvæmt þeim heimildum
sem Þjóöviljinn hefur aflaö sér,
mun liggja að baki djúpur póli-
tískur ágreiningur milli Þor-
steins og Jóns Helgasonar, for-
manns félagsins, sem áöur fyrr
voru samflokksmenn i Samtökum
frjálslyndra og vinstri manna, en
siðar gekk Jón sem kunnugt er til
liös viö Alþýöuflokkinn meö Birni
Jónssyni. Sævar Frlmannsson er
einn af forvigismönnum krata á
Akureyri og skráöur ritstjóri
Alþýöumannsins, sem reyndar
hefur ekki komiö út siöan fyrir
kosningar.
Jón Helgason, formaöur Ein-
ingar segir m.a. 1 viötali viö
Norðurlandsem út kom i gær, aö
siðan hann tók til starfa fyrir
félagiö hafi allir starfsmenn þess
veriöfélagsmenn. Þá segir Jón aö
margir hafi setiö hjá á fundinum
s.l. haust þar sem Sævari var
vikiðúr félaginu meö 8 atkvæöum
gegn 6, þar sem menn hafi ekki
viljaö blanda sér i málið. „Miöaö
við þá hefö sem hefur skapast,”
segir Jón, ,,þá var þaö augljóst
mál, aö þarna var spjótunum
beint aö þessum ákveöna manni,
án þess aö taka máliö fyrir á
breiöari grundvelli.
Þorsteinn Jónatansson vildi
ekki tjá sig um þessa atburöi viö
Noröurland en Sævar Frtmanns-
son segir i viðtali viö blaöiö aö
hann fagni þvi aö vera kominn i
félagiö aö nýju um leiö og hann
harmi aö sinn annars ágæti sam-
starfcmaöur Þorsteinn skuli hafa
tekið máliö svo illum tökum aö
segja sig úr félaginu. „Þaö þykir
mér afskaplega leiöinlegt, segir
Sævar.
I stjórn Einingar voru kjörnir:
Jón Helgason, Akureyri, for-
maöur, Eirikur Ágústsson,
Dalvik, varaformaöur, Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir, Akureyri,
ritari, Gunnar J. Gunnarsson,
Akureyri, gjaldkeri, Unnur
Björnsdóttir, Akureyri, Þórarinn
Þorbjarnarson, Akureyri, ólöf V.
Jónasdóttir, Akureyri.
Varamenn: Aöalheiöur
Þorleifsdóttír, Akureyri, Matt-
hildur Sigurjónsdóttir, Hrisey,
Baldvin S. Baldvinsson,
Akureyri, Guölaug Jóhanns-
dóttir, Akureyri, og Karl Asgeirs-
son, Akureyri.
—AI
Mokaði
fjórum
sinnum úr
innkeyrslunni
Maöur nokkur I Skerjafiröi
hringdi til Þjóöviljans i gær og
var heldur óhress. Sagöist hann
vera búinn aö moka sig og bílinn
þrisvar útá götuna þann daginn,
en veghefill hefði jafnóöum skafiö
þykku lagi fyrir innkeyrsluna aft-
ur. Vildi hann beina þvl til gatna-
máladeildar borgarinnar aö sýna
örlitla tillitssemi og áleit heflana
geta sncitt aöeins frá einnkeyrsl-
unum.
Rétt á meöan maöurinn var aö
tala viö okkur kom hefillinn i
fjóröa sinn — eöa fjóröi hefillinn,
— og fyllti enn uppi skaröiö. Fór
maöurinn þá út og náöi tali af
stjórnandanum, en fékk þau svör,
aö þeir gætu ekki veriö aö hugsa
um smærri bilana, en yröu aö
halda opnu fyrir þá stóru.
Okkar maöur mokaöi enn, enda
á góöum keöjum, en...
Dýra-
læknirinn
tepptíst
í 12 tíma
1 óveörinu I gærdag og gær-
kvöld voru menn farnir aö óttast
um dýralækninn '• Hvanneyri,
Gunnar Orn Guöm. ion, en hann
fór i gærmorgun á jeppa aö Geita-
bergi í Svinadal. Ekki haföi frést
til hans frá þvf um ellefu-leytiö i
gærmorgun, þegar hann kom
fram i Leirársveitinni uppúr tiu i
gærkvöldi, og haföi ófæröin gert
honum erfitt fyrir.
Engin óhöpp höföu oröiö I allri
ófæröinni þegar Þjóöviljinn hafi
samband viö lögregluna i
Reykjavik og úti um land. Vegir
á Suöur- og Vesturlandi tepptust
fljótt i gærdag og hætt var viö
ruöning vegna byls og skafrenn-
ings. Um ellefu-leytiö I gærkvöldi
komu til Selfoss bilar sem lagt
höföu af staö kl. 5 úr Reykjavík og
höföu þeir fariö Þrengslin og ver-
iö 6 tima á leiöinni.
-AI
Sáttaumleitanir i Flugleiöa-
deilunni hafa nú siglt I strand, en
stjórn Flugleiöa hafnaöi I gærdag
þriöju miölunartillögu sátta-
nefndarinnar og tilkynnti um leiö
aö ekki yröi fallist á neinar launa-
hækkanir til flugmanna. Flug-
menn samþykktu hins vegar til-
löguna meö nær öllum greiddum
atkvæöum á félagsfundi I gær-
kvöldi.
Aö sögn Björns Guömundsson-
ar.formanns FÍA var tillagan aö-
gengileg þó ekki hafi hún þýtt
fullan sigur fyrir Flugfélags-
menn. 5 greiddu atkvæöi gegn til-
lögunni en 32 samþykktu hana.
Tillagan fól aö sögn B jörns i sér
6% launahækkun á ársgrundvelli
fyrir þá hæst launuöu, en 14% til
þeirra lægst launuöu. Hækkunin
átti aö veröa i tveimur áföngum.
„Meö synjun stjórnar Flugleiöa
er ljóst aö þeir hafna jafnframt
hugmyndum um jafnlauna-
stefnu” sagöi Björn, sem ekki
taldi aö afstaöa stjórnarinnar
heföi haft áhrif á afstöu flug-
manna.
Flugfélagsmenn ákváöu á
fundinum i gærkvöldi aö fella niö-
ur boöabar aögeröir sinar i dag,
sem standa áttu fram yfir helgi.
Boöuöu þeir jafnframt nýjar aö-
geröir sem hefjast skulu 16. mars,
og sagöi Björn aö þann tima ætti
stjórn Flugleiöa og rikisvaldiö aö
geta notaö til aö leysa dieluna ef
vilji væri fyrir hendi.
í stuttu máli
Má búast við fóðurskorti
Tvö skip Sambandsins, Helgafell og Disarfell, sem áttu aö losa
um 3000 lestir af fóöri nú um miðjan febrúar eru ekki enn komin
til landsins. Töfinni valda miklar frosthörkur sem geisaö hafa I
Noröur-Evrópu þaö sem af er þessu ári.
Fréttabréf SIS hefur þaö eftir Siguröi Á. Sigurössyni deildar-
stjóra Fóöurvörudeildar, aö ekki ætti aö vera nein hætta á fóöur-
skorti af þessum sökum. SÓ.
Veður hamlar loðnuveiðum
Sáralltil loönuveiöi var 1 gærdag, aöeins 12 bátar tilkynntu um
afla, samtals 2.200 tonn. Veöur var mjög slæmt á miöunum og -
ekki útlit fyrir aö þaö lagist i dag. Aöal veiöisvæöiö er nú djúpt út
af Faxaflóanum.
Sólarhringinn á undan veiddust samtals 12.700 tonn af loönu og
er þá heildaraflinn kominn uppi um 430 lestir og ef fariö veröur
aö tillögum fiskifræöinga um aö veiöa aöeins 450 þús. lestir, þá
tekur þaö ekki nema einn eöa tvo sólarhringa i góöu veöri aö
fylla þann kvóta.
—S.dór
Þrennir nemendatónleikar
Þrennir nemendatónleikar veröa haldnir nú um hclgina á veg-
um Tónlistarskólans I Reykjavik. Þeir fyrstu eru kammertón-
leikar i Norræna húsinu i kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30. Þar
veröa leikin trlo eftir Correlli og Beethoven og klarinettkvintett
eftir Mozart.
A laugardag kl. 14.30 veröa tónleikar yngri deildar I Austur-
bæjarbiói. Þar veröur mjög fjölbreytt efnisskrá, einleikur og
samleikur á pianó, fiölu, flautu og klarinett og einnig kemur
hljómsveit yngri deildar fram á tónleikunum. A sunnudag kl.
14.30 veröa svo haldnir burtfararprófstónleikar Kolbeins
Bjarnasonar flautuleikara í .sal Tónlistarskólans Skipholti 33.
Aögangur aö öllum þessum tónleikum er ókeypis og eru velunn-
arar skólans velkomnir.
Flug lá að mestu niðri
Flug lá aö mestu niöri I gær. Aöeins ein millilandaflugvél lenti
á Keflavlkurflugvelli snemma morguns, en tvær vélar á Noröur-
Atlantshafsleiöinni flugu yfir seinna um daginn. Flugi til
Lundúna var aflýst, en þangaö átti svo aö fljúga i dag.
Innanlandsflug lá niörihjá Flugleiöum, en enn var veöur fyrir
flugvélar Flugfélags Austurlands til aö athafna sig I gær.
Skrúfudagur Vélskólans á morgun
Skrúfudagur Vélskóla tslands, þe. árlegur kynningar og nem-
endamótsdagur skólans, veröur haidinn á morgun, laugardaginn
. 10. mars kl. 13.30-17.00.
Þennan dag gefst væntanlegum nemendum og foreldrum
þeirra — svo og forráöamönnum hinna yngri nemenda og öörum
sem áhuga hafa — kostur á þvi aö kynnast nokkrum þáttum
skólastarfsins. Nemendur veröa viö störf I öllum verklegum
deildum skólans, I vélasölum, raftækjasal, smlöastofum, raf-
eindatæknistofu, stýritæknistofu, kælitæknistofu og efnarann-
sóknastofu. Nemendur munu veita upplýsingar um tækin og
skýra gang þeirra. Þá veröa kaffiveitingar á vegum Kvenfélags-
ins Keöjunnar I veitingasal Sjómannaskólans frá kl. 14.
Nemendur Vélskólans búa sig undir hagnýt störf i þágu fram-
leiösluatvinnuveganna og má þvi búast viö aö marga fýsi aö
kynnast þvi meö hvaöa hætti þessi undirbúningur fer fram, en á
siöariárum hefur ör þróun veriö i kennsluháttum skólans.
Skólinn telur ekki siöur mikilvægt aö halda tengslum viö fyrr-
verandi nemendur og álitur þaö vera til gagns og ánægju fyrir
báöa aöila.
Fundur AB Selfossi frestað
Blaöiö hefur veriö beöiö aö vekja athygli á, aö almennum og
opnum fundi Alþýöubandalagsins á Selfossi, sem auglýstur haföi
veriö 11. mars, hefur veriö frestaö til 18. mars.
-AI
Ráðunautur
Búnaðarfélag íslands óskar að ráða ráðu-
naut i alifugla- og svinarækt á þessu ári.
Hluti úr starfi kemur til greina.
Umsóknarfrestur er til 1. júni 1979.
Búnaðarmálastjóri.
Námskeið
Verslunarmannafélag Reykjavikur hefur
ákveðið að auglýsa eftir þátttakendum i
fyrirhuguðu námskeiði Félagsmálaskóla
alþýðu i ölfusborgum 25. mars næstkom-
andi.
Meðal námsgreina má nefna:
Hópefli (leiðbeining i hópstarfi)
Skráning minnisatriða.
Fundarstörf félagsstörf og ræðugerð.
Trúnaðarmaðurinn á vinnustað.
Vinnulöggjöf, vinnuverndarmál og
fræðslumál.
Saga verkalýðshreyfingarinnar.
Skipulag og starfshættir samtakanna
o.fl.
Námskeiðið fer fram i fyrirlestrum,
hópstarfi, umræðum og æfingum. Verður
unnið flesta daga frá kl. 9.00-19.00 með
hléum. Leitast verður við að koma á list-
kynningum og umræðum um menningar-
mál.
Kostnaður félagsmanna sem þátt taka i
námskeiðinu mun verða greiddur sam-
kvæmt reglum þar að lútandi. Þar sem
þátttaka er takmörkuð þurfa þeir félags-
menn V.R., sem vilja nota þetta tækifæri
að hafa samband við skrifstofu V.R.
Hagamel 4, simi 26344 eigi siðar en þriðju-
daginn 13. mars næstkomandi.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
\