Þjóðviljinn - 10.03.1979, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. mars 1979.
DIOBVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: lUgáfufélag Þjóöviljans
Kramkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Kitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Kréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
Kekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýslngastjóri: Kúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefónsson, Guöjón
Friðriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Magnús
H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttlr: Halldór Guö-
mundsson Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaö-
ur: Siguröur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson.
Handrlta- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. JOnasson, Kristln Pét-
ursdóttir
Slmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bllstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónadóttir.
útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgrelösla og auglýslngar: Slöumúla 6, Reykjavlk. slml 8 1313.
Prentun: Blaöaprent hf.
Stjórnardeilan í
hnotskurn
• Þegar jafnvel þingmenn eru orðnir svo áttavilltir í
langvinnu efnahagsmálaþrasi að þeir telja erfiðleika
núverandi stjórnarsamstarfs snúast um hegðunarvanda-
mál innan Alþýðuf lokksins er kominn tími til þess að
staldra við og reyna að komast að kjarna þeirra deilna
sem uppi hafa verið. Gengisfelling orðsins í umræðunum
um verðbólgumálin er ekki síður hrikaleg en gengisfall
krónunnar á síðustu árum. Engu að síður er það skylda
okkar að reyna að grilla í veruleikann í öllum orðavaðl-
inum.
• I hnotskurn má segja að togstreitan um skiptingu
þjóðarteknanna hafi færst af vettvangi verkfalisátaka
og kröf ugangna inn í ríkisstjórn. i stað opins stríðs milli
verkalýðshreyfingar og ríkisvalds er komið innra stríð
stjórnarflokkanna þar sem Alþýðubandalagið er annars
vegar og berst fyrir hagsmunum verkalýðshreyfingar-
innar og millif lokkarnir tveir hins vegar sem tvístíga
milli samstarfs og stríðs við verkalýðssamtökin.
• Kaupmátturinn og atvinnan eru meginásarnir sem
átökin standa um. Stjórnarflokkarnir eru sammála um
að höfuðviðfangsefnið sé að koma verðbólgunni,sem til
lengdar ógnar baeði lifskjörum og efnahagslegu sjálf-
stæði,verulega niður. Stjórnarf lokkarnir eru hinsvegar
ósammála um hvernig verðbólgubaráttuna eigi að heyja
og hvernig hún eigi að snerta atvinnustigið og kaupmátt-
inn.
• Sósíalistar hafna alfarið þeirri leið sem Alþýðu-
f lokkurinn hefur lagt of urkapp á að farin verði í barátt-
unni gegn verðbólgunni, að þrýsta niður almennu kaup-
gjaldi um leið og kreista á saman hagkerfið með stór-
felldum samdráttaraðgerðum í óvissu atvinnuástandi. I
þessu sambandi heldur Alþýðubandalagið því fram að
orsaka verðbólgunnar sé hvorki að leita í vísitölukerf inu
nénúverandi kaupmætti almennra launa. Staðreyndin er
sú að kaupmáttur tímakaups hef ur ekki vaxið hér á landi
í 30 ár. Nú á síðustu mánuðum hef ur hann verið svipaður
og kaupmáttur tímakaups hefur komist hæst áður, 1973
og 1947, þegar sósíalistar hafa setið i ríkisstjórn. Á milli
hefur hann svo sigið niður fyrir öll velsæmistakmörk.
• Skýringin á því hversvegna Islendingar búa við
nokkur efnalag gæði er ekki fólgin í háu kaupi heldur í
yfirgengilegum þrældómi og löngum vinnutíma. (s-
lenska auðvaldskerf ið hefur ekki brugðist við kröfum
um bætt lífskjör með þeirri hægræðingu og breytingu á
atvinnuháttum sem eðlilegt hefði mátt teljast. Það er
meginskýringin á verðbólguvandanum. (slenskir at-
vinnuvegir eru illa tækjum búnir, illa stjórnað og fram-
leiðni alltof lítil. Þar fyrir utan hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn afrekað það á löngum stjórnarferli sínum að hlúa
að skjólstæðingum sínum í yfirbyggingu þjóðfélagsins
með þeim hætti að hún er nú of vaxin og útblásin út fyrir
öll skynsamleg mörk.
• Alþýðubandalagið leggur því ríka áherslu á að brugð-
ist i sé við verðbólguvandanum með jákvæðum hætti,
uppbyggingu islenskra atvinnuvega, aukinni fram-
leiðslu og framleiðni, en ekki með neikvæðum niður-
skurðar- kauplækkunar-og samdráttaraðgerðum. Sam-
tímis hefur Alþýðubandalagið skorað á samstarfsf lokka
sina að leggja nú til atlögu við yfirbygginguna í þjóðfé-
laginu og knýja þar fram stórfelldan þjóðhagslegan
sparnað. Því reynir nú á hvort Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarf lokkurinn þora að hrófla við bankakerfinu,
tryggingafélögunum, þreföldu olíudreifingarkerfi, smá-
heildsalakerfinu, óráðsiunni í innf lutningsversluninni og
bruðlinu i rikisrekstrinum.
• Slíkur þjóðfélagsuppskurður gæti skilað varanlegum
árangri í baráttunni gegn verðbólgunni. Hinsvegar er
tómt mál um það að tala að breyta vísitölukerf inu þann-
ig að það verji ekki launafólk og lífskjör þess f yrir verð-
hækkunum. Verkalýðshreyf ingin er reiðubúin til þess að
semja um það með skynsamlegum hætti hvernig skipta
eigi kostnaðinum af ytri áföllum þjóðarbúsins. En
hvorki hún né Alþýðubandalagið munu nokkurntímann
styðja stjórnarstefnu sem hefur kjaraskerðingu og
skipulagt atvinnuleysi að megininntaki. Heimatilbúin
rekstrarvandamál atvinnuveganna og verðbólguna sem
af þeim staf ar verða stjórnvöld að glíma við með því að
stuðla að breytingum á þjóðfélagsgerðinni og atvinnu-
háttum í landinu. Það er þessi stefna sem sósíalistar
munu freista til hins ýtrasta að gera að stjórnarstefnu.
Vegur Framsóknarf lokks og Alþýðuflokks yrði meiri en
nú ef þeir f éllust á að f ramfylgja henni. — ekh
! Barlómurinn
| og blindan
, „Umræöan um efnahagsmál
Ihér á landi siðustu misseri er
engu að siður verðbólgin en
efnahagslifið sjálft. Stjórn-
■ málamenn eins og leggja sig i
Iframkróka um aö vekja á sér
athygli meö ómerkilegri aug-
lýsingamennsku og raunveru-
■ legt starf kemst ekki á dagskrá
IAlþingis fyrir látlausum mál-
fundum. Gengisfelling krónunn-
ar hefur verið mikil, gengisfall
■ orðsins engu minna. Af umræö-
Ium mætti ætla stundum aðþjóð-
in byggi við önnur móöuharð-
indi, annar hver maöur kominn
Iá vonarvöl og byggi við sult og
seyru. Umræðan um verðbólg-
una er orðin eins og verðbólgan
sjálf; hún bregður sér i allra
kvikinda liki, afmyndar um-
hverfi sitt og villir mönnum
sýn.”
Þannig hóf Svavar Gestsson
Iviðskiptaráðherra mál sitt í út-
varpsumræðunum frá Alþingi i
vikunni. Svo steinblindir eru
• menn orðnir á þvi aö rýna i
Iverðbólgutölurnar aö þeir sjá
ekki lengur skóginn fyrir trján-
ísland langbest
sett
Þaö er því hressandi og eykur
mönnum yfirsýn þegar ástandið
á Islandi er borið saman við það
sem uppi er á teningnum i öör-
um löndum. Þannig var í vik-
unni útvarpsviðtal við Björn
Matthiasson sem starfað hefur
sem hagfræðingur hjá Friversl-
unarbandalaginu i Genf. Sá
samanburður sem hann gerði i
viðtalinu gæti rifið einhverja
upp úr hugarvili veröbólgu-
þrassins.
Björn Matthiasson var i við-
talinu fyrst spurður að þvi
hvernigefnahagsástandiö væri i
EFTA-rikjunum. — „Það má
eiginlega segja að flest
EFTA-rikin hafi komist tiltölu-
lega vel út úr efnahagskrepp-
unni sem hefur gengið yfir allt
frá þvi að oliuverð hækkaði 1974.
Þar undan má skilja Finnland
og Portúgal.
1 Portúgal stafar þetta að
sumu leyti af þeim stjórnmála-
erfiðleikum sem þar hafa geng-
ið yfir. Þar hefur halli á
greiðslujöfnuöi verið mjög mik-
ill, en aö þvi er okkur virðist eru
þeir komnir yfir það versta, þó
þeir eigi langt i land með að
jafna sig.
Finnar hafa orðið að búa við J
mikið atvinnuleysi og þaö mál I
er engan veginn leyst. En i hin- I
um löndunum hefur verið hægt J
að komast út úr þessu án telj- j
andi aukning atvinnuleysis.
island hefur náttúrlega veriö I
þarna langbest sett, ekkert at- ,
vinnuleysi orðið aðþola og hefur ■
getaö haft nokkuð góðan hag- I
vöxt, og er núna komið yfir |
verstu greiðslujöfnunarerfið- ■
leikana.”
Eins og stjarna \
sem skin
Þegar hér var komið sögu var I
ekki nema eðlilegt að útsendari ■
Rikisútvarpsins I Genf, Kári I
Jónasson spyrði.
— „Er ástandið þá kannski I
ekki eins slæmt hjá okkur og viö J
höldum sjálf?”
— „Nei, það er þaö greiniiega j
ekki, þvi ef tsland er borið '
saman viðönnur
Vestur-Evrópulönd þá litur það |
alveg út eins og skinandi |
stjarna”.
— „Þrátt fyrir þessa miklu j
verðbólgu?”
,,Ja, það verður nátturlega að |
teija verðbólguna frá, en það t
verður lika að lita á hitt að þjóð- ■
arframleiðslan hefur vaxið, við- |
skiptakjörin hafa batnað, |
greiðslujöfnuðurinn er I góöu ,
lagi, sérstakiega á siðastliðnu ■
ári, og atvinnuleysi er ekkert. |
J Vestur-Evrópu, i stóriön- |
aðarlöndunum eins og Þýska- ,
landi, Frakklandi, ítaliu og ■
Bretlandi hefur atvinnuleysi |
veriðmilli 5og6%, Þóttþauhafi |
haft miklu minni verðbólgu ■
heldur en Island þá er það óllku I
saman að jafna hvað það hefur
verið erfiðara hjá þeim meö |
þetta mikla atvinnuleysi en hjá •
Islendingum”
Við þessa mynd mætti svo |
bæta aö hjá alþjóöastofhunum |
og erlendum bönkum eru Is- ■
lendingar taldir með skilvisustu I
þjóðum og þrátt fyrir allt taliö
um erlendu skuldirnar njóta I
þeir góðs lánstrausts. Þegar á ■
heildinaerlitiðogsamanburður |
geröur við það sem gerist og
gengur i Vestur-Evrópu mega I
tslendingar sæmilega við una. ■
-ekh
Isafjarðarkaupstaöur:
IBjörn Matthiasson, EFTA-hagfræöingur: Sé tsland borið saman við
önnur Vestur-Evrópulönd litur það út eins og skinandi stjarna.
4-500 manna byegð
risín Inni í Firði
4-500 manns eru nú fluttir inn i
svokallað Holtahverfi á tsafiröi
en það er fyrir botni Skutulsf jarö-
ar undir Kubbanum. Byrjað var á
hverfinu fyrir 4 árum og sagði
Magnús Reynir Guðmundsson
bæjarritari i samtaii við Þjóðvilj-
ann að hverfið heiði byggst hraö-
ar en búist var við I upphafi.
Alls eru um 110-120 ibúðir i
hverfinu og er auk einbýlishúsa
búiö að ljúka við 15 raðhús og 2
fjölbýlishús með 14 ibúðum. Þá er
verið að byrja á þriðja fjölbýlis-
húsinu.
Með þessu nýja hverfi má segja
aö Isafjarðarkaupstaður sé kom-
inn í þrjá aðskilda hluta og skap-
ar það aö sjálfsögöu ýmsa erfið-
leika. Magnús sagöi að verið væri
aö leggja hraöbraut meö sjónum
inn eftir og væri vonast eftir að
Vegageröin lyki við sinn hluta
vegarins á þessu ári og þá mundi
kaupstaöurinn standa viö sinn.
Magnús taldi vist að áöur en
langt um liði yröi að taka upp
strætisvagnaferðir á Isafirði til
Hér sér yfir Hoitahverfið fyrir botni Skutulsfjarðar en þar er nii risin
upp byggð álfka fjölmenn og Hnifsdalur sem lika tilheyrir kaupstaðn-
um (Ljósm.: Leifur)
að tengja bæjarhlutana saman. markað i Holtahverfinu og er það
Þess skal getið aö Verslunin stærsta verslun bæjarins.
Ljónið heftir nú sett upp stór- — GFr
- -