Þjóðviljinn - 10.03.1979, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 10. marg 1979.
Þessa bók vil ég... (LJósm. -eik-)
Ætli ég taki ekki þessa og... (Ljósm. -eik-)
Bókamarkaðurinn fastur liður í bæjarlífinu:
Blásið í
Þar er hœgt að fá bók
fyrir 25 krónur
„Hér leggja margir grunninn
ad heimilisbókasafni”
sagöi Jónas Eggertsson bóksali
Bók fyrir 25 kr.
Þiö augiysiö enn aö gamla
krónan sé i fullu gildi hjá ykkur?
„Já, viö gerum þaö og stöndum
viö þá auglýsingu. Sjáöu til,
ódýrasta bókin á markaönum,
þegar viö opnuöum kostaöi 25 kr.
Þú færö ekki einu sinni karamellu
fyrir þaö í dag. Og.sannleikurinn
ersá.aöhér erhægtaö gera mjög
góö bókakaup. Fólk fær skáld-
sögur,. feröasögur og ævisögur
fyrir um og innan viö eitt þúsund
krónur og þaö allt innbundnar
bækur. Ef þettaeru ekki góökaup
þá hvaö?”
Og mikiö er keypt?
,,Já, eins og ég sagöi áöan, hafa
aldrei jafn margir gestir komiö á
markaöinn tilokkar ognú. Ég hef
tekiö eftir þvi á liönum árum aö
margt ungt fólk kemur á bóka-
markaðinn og kaupir mikiö magn
af bókum og leggur þannig
grunninn að góðu heimilisbóka-
safni. Og þetta fólk kemur svo ár
eftir ár og bætir við. I ár hefur
komið til okkar óvenju mikiö af
ungu fólki sem kaupir heilu kass-
ana af bókum.”
Bækur siðan
fyrir aldamót
Hvað voru elstu bækurnar
gamlar, sem þiö voruö meö þegar
þiö opnuðuö nú?
„Hér voru bækur siöan fyrir
aldamót. Þær eru allar búnar
núna, enda lokum við á morgun.
En það er enn mikiö úrval af
gömlum bókum á gjafveröi.
Þegar viö opnuöum markaðinn á
dögunum vorum við með um 6
þúsund bókatitla. Þeim hefur
eitthvað fækkaö, en ekki veru-
lega.”
Og hvaö ætlar þú aö hafa opiö
lengi um helgina?
„ídag, föstudag, veröuropiðtil
kl. 22.00, á morgun til kl. 18.00 og
á sunnudag milli kl. 14.00 og
18.00”.
—S.dór
Jónas Eggertsson bóksali
Um aillangt árabii hefur Bóka-
markaöur bóksalafélagsins veriö
árviss viöburöur og eins og dálftil
upplyfting f skammdeginu. Bóka-
markaöurinn hefur nú staöiö yfir
i rúma viku, en honum lýkur á
morgun, sunnudag.
Jónas Eggertsson bóksali, einn
af forráöamönnum markaðsins,
sagöi I gær i viötali viö Þjóð-
viljann, að bókamarkaöurinn
hefði aldrei gengiö eins vel og nú.
Fleiri gestir hefðu komið en
nokkru sinni fyrr og meira selt af
bókum en áöur. Og hver ætli
ástæðan sé?
„Mjög sennilega að
markaðurinn er nú til húsa I
sýningahúsnæðinu á Artúnshöföa
og þar i kring er meira en nóg af
bflastæöum. Viðhöfum veriömeö
Bókamarkaöinn á mörgum
stöðum i borginni I gegnum árin,
og þar sem mest er um bila-
stæði, þar gengur best”, sagöi
Jónas.
Já, þeir eru margir bókatitlarnir og kannski erfitt aö velja á stundum (Ljósm. -eik-)
Akureyr-
islenski Biásarakvintettinn
Ieikur I Akureyrarkirkju n.k.
iaugardag 10. mars kl. 17.
Blásarakvintettinn er skip-
aöur kunnum hljóöfæraleik-
urum, þeim: Manóelu
Wiesler á fiautu, Kristjáni
Stephensen á óbó, Siguröi I.
Snorrasyni á kiarinett,
Stefáni Stephensen á horn og
Hafsteini Guömundssyni á
fagott.
Blásarakvintettinn var
stofnaður sumarið 1976, og
hefur haldiö tónleika I
Reykjavik og víöar. Hann
hefur flutt alla kvintetta sem
til eru eftir fslensk tónskáld.
Blásarakvintettinn tekur
þátt I þekktri alþjóðlegri tón-
iistarkeppni i Coimar I
Frakklandi eftir mánuð,
einnig er fyrirhuguö hljóm-
plötuútgáfa á næstunni.
Efnisskráin er mjög fjöl-
breytt, og á henni eru verk
eftir Ibert, Carl Nielsen,
Rossini, Leif Þórarinsson og
Villa Lobos. Kvintettinn leik-
ur á föstudagskvöldið fyrir
Tónlistarfélag og Tónlistar-.
skólann á Sauðárkróki, en
tónleikarnir á Akureyri eru
4. tónleikar Tónlistarfélags
Akureyrar á þessum vetri.
Norræn
bóka-
sýning
I dag kl. 16.00 fer fram I
Norræna húsinu siöari hluti
bókakynningar bókasafns
. hússins f samvinnu viö nor-
rænu sendikennarana við
Háskóla lslands, og verða nú
kynntar bækur úr útgáfu
ársins 1978 frá Finnlandi og
Sviþjóð. Mun Ros Mari'Ros-
enberg kynna bækur frá
Finnlandi og l.ennart Aberg
frá Sviþjóð.- — ‘ .
í bókasafninu vérða til
sýnis og útlána úrval hinna
nýju bóka, og ennfremur
munu bókalistar liggja
frammi. Ailir eru velkomnir
á þeSsa bókakynningu.