Þjóðviljinn - 07.04.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.04.1979, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. aprll 1979. 20 þúsund Danir mótmæla kjarnorku Frá Gesti Guömundssyni, frétta- ritara Þjóöviljans i Danaveidi: „Hvad skal væk? — Barseback. Hvad skal ind — sol og vind!" hrópuðu rúmlega 20 þúsund Danir i sól og vindi á torginu við Kristjánsborg í gær. Atburðirnir í Harrisburg um síðustu helgi voru kveikja þessara mótmæla- aðgerða# en krafa þeirra Uppljóstrun Information var tafarlaus lokun Barse- báck versins í Svíþjóð. OIl Stór- Kaupmannahöfn, auk Máimeyjar og fleiri sænskra og danskra bæja, gæti oröiö fyrir geislavirkni, ef leki kæmi I Barse- back. Sudur-Afríka: Mahlengu tek- inn af lífi Svarti frelsissinni Solomon Mahlengu, sem sagt var frá i blaöinu i gær, var hengdur i Suöur-Afriku i gær þrátt fyrir viö- tæk mótmæli alls staöar aö ár heiminum. Meöal þeirra mótmæla sem bæst höföu viö voru andmæli öryggisráös Sameinuðu þjóð- anna, Carters Bandarikjaforseta og Alþjóðasambands sósialdemó- krata sem fordæmdi harölega aö Mahlengu væri tekinn af lifi fyrir glæp sem hann framdi ekki. Mál Mahlengus þótti prófsteinn áhvernig hvita minnihlutastjórn- in hygöist i framtiöinni koma fram viö svarta andstæöinga sina. Stjórnin hefur staðiö fyrir fleiri aftökum aö undanförnu. í fyrra voru 132 menn hengdir, af þeim var einn hvitur. Mikil mótmæli uröu i S-Afriku i gær. Fréttaskýring Miklar líkur eru á aö slysiö i Harrisburg veröi til þess aö Danir hætti amk. I bili, viö áform um aö reisa kjarnorkuver. Jafnframt vex þeirri kröfu mjög fylgi, aö danska rikisstjórnin láti loka Barseback verinu. Ekstrabladet hefur á þremur dögum safnað tuttugu þúsund undirskriftum til stuönings þeirri kröfu, og kjarn- orkuandstæðingar hafa heitiö þvi aö safna hundruöum þúsunda slikra undirskrifta fyrir miöjan maí. A fundinum viö Kristjáns- borg var þvi lýst yfir, aö efnt veröi til fjöldaaögeröa gegn dönskum kjarnorkuverum og fyrir lokun Barsebáck viöa um landiö á næstu vikum. 1 dag kom nýtt og ógnvekjandi atriöi inn I danska umræöu um kjarnorkuver. Dagblaöiö Information birti þá frétt, aö fyrir nokkrum árum hafi maöur látiö llfiö vegna geisla virkni i dönsku kjarnorkutilraunastööinni i Hisö. Maöurinn starfaöi viö stööina, og sumariö 1975 varö slys meö þeim afleiöingum, aö hann varö fyrir mikilli geislavirkni. Hann var sendur á sjúkrahús og siðan heim til sin, en 8 mánuðum seinna lést hann af krabbameini. Yfirmenn Riso báöu fjölskyldu mannsins aö þegja yfir þessu til að foröast illt umtal um stofnunina I fjöl- miölum. Yfirmenn Risö báru fréttina til baka en Information viröist hafa traustar heimildir og er auk þess ekki þekkt fyrir aö fara meö fleipur. Myndin <úr Spiegel) er tekin i einni af bækistöðvum Rauöu Khmeranna Barist í Kambodíu Er Pol Pot í sókn? Haröir bardagar eru enn i Kambódiu einkum I grennd viö landamæri Thailands. t gær skýröi Reuter frá þvi aö hermenn Rauöu Khmeranna heföu tekiö landamæraborgina Poipet i fyrri- nótt. Samkvæmt óstaðfestum fréttum var barist áfram um borgina i gær og naut her nú- verandi stjórnar landsins lið- sinnis Víetnama. Þetta er i fyrsta skipti í Italskir kommúnistar þinga Stefnubreyting gerö Á þriðjudag lauk 15. flokksþingi ítalskra kommúnista (PCI). Fréttaritari Information á staðnum sagði að það hefði á stundum minnt á iþróttahátið enda tvennar kosningar framundan. Kosningar til Evrópu- þings og þingkosningar fara fram í júnf. Glott út f vinstra Það kvaö viö nýjan tón á flokksþingi italskra kommúnista. Eftir aö flokkurinn hætti stuöningi sinum við minnihlutastjórn kristilegra demókrata þann 26. janúar s.l. hefur hann I vaxandi mæli horfiö frá þeirri stefnu aö leggja allt kapp á aö komast i stjórn meö Italska ihaldinu. Þess i stað er nú hvatt til vinstra bandalags, og þá er fyrst og fremst átt viö Italska sósial- istaflokkinn PSI. Þó mikiö sé um heldur þokukenndar yfir- lýsingar hjá Belinguer flokks- leiötoga á þinginu er ljóst hvert hugurinn stefnir: Skoraö er á sósialista aö taka þátt i „skýrt markaöri og ákveöinni baráttu til að ná atkvæöum frá kristi- legum demókrötum ... undir merkjum vinstri einingar.” En einhvern veginn er þaö svo aö þeir sem Italskir kommún- istar sækjast mest eftir til sam- starfs hverju sinni vilja helst ekkert meö þá hafa. PSI undir forystu Bennito Craxis hefur tekið haröa and-kommúnlska afstöðu núna og leggur mikla áherslu á aö Kommúnista- flokkum sé ekki treystandi, honum sé eftir sem áöur stjórnaö frá Moskvu. Ástæöan er talin sú aö sóslal- istar vilja marka sér skýra stööu á vinstri kantinum svo þeir veröi ekki gleyptir I banda- lagi viö kommúnista og leggja t.a.m. mikla áherslu á aukiö EBE-samstarf og samleiö sina með Alþjóðasambandi sósíal- demókrata. Italskir kommúnistar hafa hins vegar lika veriö þess fýsandi aö undanförnu aö efla samstööu evrópskra auövalds- rikja (stundum sagt til mót- vægis mætti „risaveldanna”) og meö ábyrgri afstööu sinni hafa þeir heillað marga i her- búöum evrópskra krata. Þannig höföu ýmsir sósialista- og sósialdemókrataflokkar hug á að senda fulltrúa á þing PCI, t.d. ætiaöi Mitterrand hinn franski að koma, en uröu aö hætta við fyrir þrábeiöni Sósial- istaflokksins. PSI taldi slikar heimsóknir og tilheyrandi faömlög myndu styrkja kommúnista alltof mikiö i kosn- ingunum til Evrópuþingsins. Minni kærleikar með Evrópukommum I þessu sambandi kom I ljós að ágreiningur meöal Evrópu- kommúnista svonefndra, þar sem eru italski og spænski flokkurinn annars vegar og sá franski hins vegar. Italirnir eru fylgjandi þvi sem þeir kalla sameiginlegt kommúniskt og sósialfskt framlag til einingar Vestur-Evrópu, meöal annars i gegnum stofnanir Efnahags- bandalagsins. Franski kommúnista- flokkurinn berst aö visu gegn EBE en fyrst og fremst á for- sendum þjóörembu — hags- munir frönsku þjóöarinnar, þ.á.m. hluta borgarastéttar- innar, séu bornir fyrir borö i samstarfi þar sem Þjóöverjar ráöa mestu. Franska sendi- nefndin á italska flokksþinginu haföi þvi margt við þaö sem þar hljómaði aö athuga. Spænski kommúnistaflokkurinn er hins vegar fylgjandi baráttunni fyrir aöild Spánar aö EBE og tekur heils hugar undir sjónarmiö PCI. Frá sjónarmiöi byltingar- sinna er vandséö hvor leiðin liggur fjær sósialismanum þó e.k. endurbótahyggja liggi þeim báöum til grundvallar. Og gerast nú sambönd á evrópskum vinstri kanti æ flóknari. Franskir sósialistar hafa svipaöa afstööu tii EBE og italskir kommúnistar og vilja þvi gjarnan auka samskipti sin Er Berlinguer likur Liiövik? og 'samvinnu viö þá. Þvi eru hins vegar franski kommúnista- flokkurinn, bróöurflokkur PCI, og PSI, bróöurfiokkur franskra sósialista, mjög andvigir. Enda hafa franskir sósialistar og kommar háö látlaust áróöurs- striö i meira en heilt ár. Forsendur stefnubreytingarinnar Nú er þaö ekki svo aö italski Kommúnistaflokkurinn sé oröinn eitthvaö róttækari vegna þess að hann reynir fremur viö PSI en kristilega demókrata. Flokksþingiö samþykkti til dæmis ályktun um Nato sem I var velviljaðri tilvist banda- B lagsins en nokkrar fyrri yfir- lýsingar og mun sjálfsagt valda islenskum aödáeindum Evrópu- kommúnismans nokkrum heila- brotum. Hins vegar er stefnu- breytingin afieiöing innri kreppu og fylgistaps. Berling- er sagöi sjálfur aö talsvert væri til i þeirri gagnrýni sem segir „aö viö höfum náö litlum árangri sem afl á hinu pólitiska og félagslega sviði meö þeirri pólitik sem viö höfum rekiö frá þingkosningunum 1976.” 1 þeim kosningum fékk flokkurinn 34,4% atkvæða og siöan vann Hann markvisst aö þvi að komast i stjórn meö kristi- legum. I þvi skyni geröi flokkurinn oft sitt til að halda aftur af verka- Iýösbaráttu og styöja svonefnda sparnaöarstefnu stjórnarinnar. Ihaldiö þáöi aðstoö þessa en veitti kommúnistum ekkert i staöinn, ekki einu sinni einn ráöherrastól. I bæjar- og sveita- stjórnarkosningum i mai I fyrra tapaði flokkurinn miklu fylgi, og Spiegel (5. feb.) vitnar i skoöanakönnun sem sýnir aukna andstöðu almennra flokkslima viö stéttasamvinnu forystunnar (úr 20% 1976 i 30% 1978). Félögum flokksins tók aö fækka, honum gekk erfiöar aö hafa stjórn á kjarabaráttunni og hann varö óvinsæll meö at- vinnulausri æsku (rúm miljón fólks undir þritugu er atvinnu- laus). Þaö var þvi ekki seinna vænna aö snúa viö blaöinu og hætta stuðningi viö stjórnina. Stefnubreytingin sýnir lika aö þó Italski Kommúnista- flokkurinn njóti stuönings alls þorra róttæks verkalýðs er ekki þar meö sagt aö hann geti teymt það fólk hvert sem er. í baráttu sinni getur það sagt skiliö viö forystu flokksins. Af þeirri staö- reynd veröur PCI aö taka miö. (Iieim. Information, Spiegel). hg nokkurn tima sem fréttir berast um umtalsveröan sigur her- manna Pol Pots, en þann 3. april var sagt aö hermenn stjórnar- innar nýju heföu tekiö seinustu borgina (Pailin) sem fyrrverandi stjórnvöld réöu. Litlar lilcur viröast á aö samn- ingar milli Vietnama og Kinverja hefjist f bráö, og kenna stjórn- irnar hvor annarri um. Svo virö- ist sem kinverski herinn haldi enn nokkrum mikilvægum stööum innan landamæra Vietnams Leiðtogi nýju stjórnarinnar I Grænlandi, Jonathan Motzfeldt Endanleg úrslit á Grænlandi Vinstri flokkurinn Siumut vann mikinn sigur I kosningunum á Grænlandiogfékk 13þingmenn af 21. Hægri flokkurinn Atassut fékk 8 menn á þinginu. Endanieg úrslit uröu: Siumut ... 46.2% Atassut ... 41.8% Sulissartiut Partiat ... 5.5% Inutit Ataqitigiit... 4.4% Sulissartiut kallar sig verka- mannaflokk, en Inuit litur á sig sem marx-leníninsk samtök. Óháðir fengu 2.1%. Kosningaþátt- taka var tæp 70% sem þykir gott. Séra Jonathan Motzfeldt leiö- togiSiumut veröur i forsvari fyrir nýju grænlensku stjórninni. Siumut stefnir aö sambandslit- um viö EBE, fullum yfirráðum Grænlendinga yfir auðlindum sinum og algeru áfengisbanni I landinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.