Þjóðviljinn - 07.04.1979, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. aprll 1979.
REKTORSKJÖR í HÁSKÓLANUM
Á þriöjudaginn var Guðmundur K. Magnússon prófessor í Viðskiptafræði kjör-
inn rektor við Háskóla islands í stað Guölaugs Þorvaldssonar, sem tekur nú við
starfi sáttasemjara ríkisins. I fyrsta sinni í sögu skólans höfðu stúdentar þriðjung
atkvæða og skv. upplýsingum skrifstofu Háskólans var kjörsókn með ágætum
miðað við þátttöku þeirra í öðrum kosningum eða tæp 45%. Af stúdentaatkvæðun-
um hlaut Sigurjón Björnsson langflest eða 717. Guðmundur fékk hins vegar 470
stúdentaatkvæði. Af föstum starfsmönnum skólans kusu 243 og af þeim hlaut Guð-
mundur 140 atkvæði en Sigurjón 89. Guðmundur hlaut því flest atkvæði og fékk
hreinan meirihluta i fyrstu umferð. Þjóðviljinn náði tali af Guðmundi ásamt for-
ystumönnum stúdenta og stundakennara og spurði þá álits á kosningunum.
Mikill meirihluti
stúdenta studdi
Sigurj ón
— segir formaður Stúdentaráðs
Bolli Héöinsson formaöur
Síúdentaráðs taldi einsýnt að
vilji meirihlutans hefði ekki náð
fram að ganga i rektorskjöri.
Afgerandi meirihluti
stúdenta, fjölmennasta hópsins
við Háskólann, hefði goldiö öör-
um en nýkjörnum rektor at-
kvæði sitt. Hefðu stúdentar haft
aðild að kjörinu i samræmi við
fjölda sinn, tam. helmingsaðiid i
stað núverandi þriðjungsaðild-
ar, þá hefði Sigurjón B jörnss. að
öllum likindum náð kjöri til em-
bættisins. Sigurjón hefði raunar
lýstyfiraðhannteldi eðlilegt að
stúdentar fengju aukin ítök i
stjórnun Háskólans og sá af-
dráttarlausi stuðningur við
þetta baráttumál stúdenta hefði
fælt marga kennara frá
stuðningi viö hann. Aðspuröur
kvað Bolli brýnt að nýkjörinn
rektor stæði sig ekki stður en
Guðlaugur Þorvaldsson í bar-
áttunni gegn hinum forna
fjanda námsmanna, fjöldatak-
mörkunum. Fráfarandi rektor
hefði verið stúdentum haukur i
horni i þeirribaráttuogaf þeirri
braut mætti ekki vikja. Þá benti
Bolli á að Guðmundur Magntls-
son hefði fyrir kosningarnar
haft góð orð um aö styðja við
bök stúdenta i orrahriðinni um
málefni Félagsstofnunar.
Stúdentar myndu knýja á um
efndir þeirra. Bolli vék enn-
fremur að hinu mikla vinnuá-
lagi sem lagt væri á stúdenta i
sumum deildum og væri að riða
geðheilsu margra á slig. Kvaðst
hann vænta þess að nýr rektor
tæki þátt í að lina ,, vort járn og
arbeið”. Hann taldi jafnframt
nauðsynlegt að ný yfirstjórn
Háskólans gætti þess aö sjálf-
Bolli Héðinsson
stæði skólans yrði í engu skert,
og þvi leiða kjöroröi sumra
stofnana sem HáSkólanum lúta,
„menntun i þágu atvinnuveg-
anna” yrði visaði ystu myrkur.
Að lokum sagði Bolli að þó
meirihluti stúdenta hefði ekki
stutt Guðmund til rektors,
myndu stúdentar siður en svo
leggja stein i götu hans.
,,Við munum styðja hann til
góðra verka en standa fast á
okkar baráttumálum”.
ÖS.
Hlakka til samstarfs
vid stúdenta og aðra
starfcmenn Haskólams
— segir nýkjörinn rektor
,,Mér er efst i huga þakklæti til
allra þeirra sem studdu mig til
þessa embættis” sagði Guömund-
ur K. Magnússon nýkjörinn rekt-
or Háskólans.
„Þaö verður ekki létt verk að
setjast i sæti Guðlaugs Þorvalds-
sonar, sem hefur unniö skólanum
afar vel undanfarin ár og vissu-
lega er sjónarsviptir að honum.”
Guömundur tók fram, að
kosningabaráttan hefði verið vel
og drengilega háð af hálfu Sigur-
jóns Björnssonar og á vináttu
þeirra hefði enginn skuggi fallið.
Hann kvaðst ekki hafa mótaö
starfsskrá að sinni.en taldi brýnt
að standa vörð um sjálfstæði Há-
skólans og taldi mjög nauðsynlegt
að stjórnvöld gæfu skólanum
lausari taum i sumum mikilvæg-
um málaflokkum. Til dæmis tók
hann byggingarmál skólans sem
hafa verið i deiglunni undanfariö
og benti á aö Innkaupastofnunin
sæi um allar framkvæmdir skól-
ans og án hennar leyfis væri ekki
unnt að ráðast i framkvæmdir.
Þaö væri bagalegt, einkum þegar
Háskólinn hefði i sjóði nægilegt fé
til að hefja framkvæmdir, eins og
komiðhefði fyrir. „Hérerumsvo
mikilvægt mái að tefla aö ég tel
sjálfsagt og eðlilegt að Háskólinn
hafi mun meira sjálfræði i þeim
enraunin er”, sagöi Guömundur.
Hann taldi ennfremur brýnt að
hið opinbera sinnti vi'sindastarf-
semi skólans mun meir en nú er
með rausnarlegri fjárframlög-
um. Einungis þannig væri hægt
aö standa myndarlega að þeim
rannsóknum sem Háskólanum
væriskylt aðrækja. Að lokum tók
Guðmundur fram, að hann hlakk-
aði til samstarfsins við stúdenta
og kennara skólans. öS
Guðmundur K. Magnússon
Áttrœður á mánudag:
Magnús Blöndal jrá
Magnús guöir megi signa.
Mennilegan dreng ég kenni.
Vinna kaus að velferð sannri.
Vandaður til munns og handa.
Blöndals ættar innsti þáttur
enn er sterkur, heldur merki.
Blöndal hann var bændaprýði.
Best fann iausn f málum flestum.
Kjósalingar kusu þenna
karl, sem vann jafnt fyrir alla.
Þegnar stundum fjötrum fagna.
Frjálsar ástir voru á Hálsi.
Happ lét ekki úr hendi sleppa
i hverju máli, er þurfti að verja.
Slfkir menn þeir slaka sjaldan,
stjórna vel og kröftum fórna.
Stundakennar
svíptir öllum
réttindum
— segir
Guðmundur
Einarsson
„Viðteljum það óforsvaranlegt
að stundakennarar skuli sviptir
öllum réttindum við kjör rektors”
sagði Guðmundur Einarsson einn
helstur liðsspjóta stundakennara
I Háskólanum.
„Við erum um 2 — 300 talsins og
höldum úti um það bil helmingi
allrar kennslu I skólanum. Þrátt
fyrir það erum við algerlega á-
hrifalausir um stjórnun skólans
og stefnumótun á hans vegum.
Viögetum illa skilið hvi viðfáum
ekki aö tjá okkur um jafnmikil-
vægt mál og nýjan rektor þegar
stúdentarnir, sem við kennum, fá
það aftur á móti. Með þessu erum
viö ekki að hnýta i stúdentana og
sjálfsögð réttindi þeirra, heldur
einungis að benda á misræmið
sem rflúr. Félag okkar hefur rætt
þessi mál og viö ihugum aö setja
fram mótaðar kröfur er lúta að
auknum itökum okkar i tengslum
viö reglugerðarbreytingar sem
Guömundur Einarsson
standa fyrir dyrum i Háskólan-
um. Ég á von á þvi aö sú umleit-
an hljóti einhvern byr hjá stjórn-
völdum og nýkjörinn rektor taki
henni vel. Annað væri megnasta
óréttlæti”, sagði Guðmundur að
'okum.
OS
Flugleiðá:
Innanlandsflug
um páskana
Fyrir páskahátfðina verða
margar aukaferðir á vegum
Flugleiða innanlands og er búist
við miklum flutningum frá og
með 6.aprll fram yfir páska.
Margar viðbótarferðjr hafa verið
áætlaðar og eru ’til flestra
á æ t lu n a r s t a ða Flugleiöa.
Aætlunarferðir og viðbótarferðir
til og frá Reykjavík fyrir og um
páska eru áætlaðar sem hér seg-
ir:
Föstudaginn 6. april verða 19
ferðir, laugardaginn 7. aprfl 12
ferðir, mánudaginn 9. april 17
ferðir, þriðjudaginn lO.april 15
ferðir, miðvikudaginn 11. april 22
ferðir, fimmtudaginn 12. april
20 ferðir. Föstudaginn 13. april,
föstudaginn langa, verðurekkert
flug innanlands. Laugardaginn
14. april verður flogið samkvæmt
áætlun og eru þá sjö ferðir frá
Reykjavik. Sunnudaginn 15.
april, páskadag, veröur ekkert
innanlandsflug. Mánudaginn 16.
april, 2. páskadagur, er hins veg-
ar mesti ferðadagur helgarinnar.
Þann dag áætla Flugleiðir 23
ferðir til og frá Reykjavik. Fram-
boðinsæti þann dag á innanlands-
leiðum verða 2208. Þriðjudaginn
17. april verða 18 ferðir til og frá
Reykjavik og er það siðasti dagur
sem aukaferðir eru settar upp
vegna páskahátiðarinnar. Frá og
með 6. apríl til 17. april eru sam-
tals 153 feröir frá Reykjavik. Þar
af eru 55 aukaferðir. Þessa daga
bjóða Flugleiðir þvi 7344 sæti á
innan landsleiðum
Nýjung í fullorðinsfrœðslunni:
Öldungadeild
í yerklegum greinum
Allt útlit er fyrir að fullorðins- ágætlega búinn að verkstæðum.
fræðsla í verklegum greinum geti
hafist I ársbyrjun 1980 I Fjöl-
brautaskólanum f Breiðholti.
Unnið er nú að undirbúningi
þess, en fræðsluráð samþykkti
s.l. sumar aö tekin yrði þar upp
öldungadeild með svipuðu sniði
og I Hamrahliðarskól^ þó þannig
að kennsla væri aðallega I verk-
legum greinum, enda er skóiinn
Grjóteyri
Von er sú, að völdum syni
vorið gefi blóm f sporin.
Langa ævi f góðu gengi.
Gaman var aö tefla saman.
Þó ellin sigri alia f lokin,
aldnar hærur best oft falda.
Hvað sem öllu öðru liöur,
anda vorum má ei granda.
Aðalsteinn Gislason.
Kristján Gunnarsson, fræðslu-
stjóri borgarinnar, sagöi I sam-
tali við Þjóðviljann i gær aö
menntamálaráðuneytið hefði
fallist á tillögur fræðsluráðs i
þessum efnum, nema hvað
rekstrarkostnaður myndi skipt-
ast eftir almennum reglum milli
rikis og borgar og aö rikið,
Reykjavikurborg og nemandinn
sjálfur greiddu hver sinn þriðj-
ung kennslukostnaðar. Eru þess-
ar tillögur ráðuneytisins f sam-
ræmi við lagafrumvarp um fram-
haldsskóla, að sögn Kristjáns.
Fræösluráð hefur einnig á
prjónunum frekari samræmingu
fullorðinsfræðslunnar I borginni
og hefur fræöslustjóra verið falið
aö hefja viðræður viö mennta-
málaráðuneytið um hvort hægt
verði að samræma Námsflokka
Reykjavikur þessu kerfi fram-
haldsskólanna. Sagði Kristján að
þær viðræður væru enn ekki hafn-
ar, en fræðsluráð gert samþykkt
um þetta efiii á fundi sinum i sið-
ustu viku. —AI