Þjóðviljinn - 08.04.1979, Page 5

Þjóðviljinn - 08.04.1979, Page 5
Sunnudagur 8. aprfl 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Tónskáldiö Alban Berg og kona hans Helena Frá uppsetningunni i Parisaróperunni. Ekkjan erfið í taumi Alban Berg hafði alveg lokið við tvo fyrstu þættina en ýmislegt virtist vanta i þann þriðja. Tveir fyrstu þættirnir voru fyrst upp- færðir i Ziirich árið 1937 og siðan hefur óperan oft verið flutt og ýmsar lausnir reyndar með þriðja þáttinn. Helena Berg reyndist erfið i samvinnu og fengu ekki alltof margir að sjá þær skissur sem Alban Berg hafði gert af þriðja þættinum. Að lokum tókst þó tónskáldinu Friedrich Chera (hann kom hingað til Islands árið 1973) að fá aðgang að þeim plöggum og tókst að ljúka við óperuna eftir þeim. eftir 12 ára vinnu. Helena Berg bannaði flutning verksins og hót- aði málssókn. En hún lést fyrir tveim árum 91 árs að aldri. Strið- inu um uppfærsluréttinn er ekki lokið en óperan hefur verið sýnd. Pierre Boulez sagði um vinnu Friedrich Cerha að hún væri meistaraleg, nákvæm og i anda Albans Bergs. Sannleikurinn mun vera sá að Alban Berg mun hafa lokið við óperuna að mestu og skilið eftir fullkomnar skissur sem tillötulega auðvelt var að ráða fram\ir fyrir jafn frábæran fagmann og Chera. Og nú virðast allir sammála um að Lúlú sé, Hkt og Wozzeck, eitt mesta meistaraverk músikleik- hússins sem samið hefur verið. Tökum að okkur viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig vift- gerðir á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla. Verslið við ábyrga aðila TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ Bergstaðastræti 33,simar 41070 og 24613 Núna um þessar mundir er verið að sýna óperuna Lúlú eftir Alban Berg í Parísaróperunni. Óperu- unnendur úr öllum heimin- um flykkjast til Parísar, gagnrýnendur tala um ,,óper uviðburð aldar- innar" og ,,merkilegustu óperusýningu síðan heim- styrjöldinni lauk" og hástemmd lýsingarorð fjúka i allar áttir. Óperan Lúlú er núna flutt i fyrsta sinn i heild, en tónskáldið lést frá verkinu ófullgerðu. Það er hljómsveitarstjórinn og tónskáld- ið mikla Pierre Boulez sem stjórnar, leikstjóri er Patrice Chérau, frábær snillingur sem m.a. setti Nilflungahringinn á svið i Bayreuth á 100 ára afmæli Richards Wagners. Og þetta skeð- ur i Parisaróperunni, sem nú seinustu ár hefur vaknað af margra ára þyrnirósusvefni und- ir forustu tónskáldsins ' Rolfs Liebermanns. Liebermann segir um þessa uppfærslu, að hún sé hápunktur á ferli hans. Beinar sjónvarpsútsendingar hafa átt sér stað um alla Evrópu. Vínarskólinn síðari Tónskáldið Alban Berg var austurriskur og lést árið 1935. Hann bjó i Vin alla æfi og var nemandi og vinur Arnolds Schön- bergs sem var upphafsmaður tólftónaaðferðarinnar i tónlist. Alban Berg var ásamt Anton Webern, sem einnig var nemandi Schönberg, einna fyrstur til að til- einka sér tólftónaaðferði meistar- ans, en „tólftónninn” gjörbreytti allri múskihugsun á þessari öld. Þessi þrjú tónskáld, Schönberg og nemendur hans Berg og Webern eru gjarnan nefndir i sömu andrá og mynda þeir Vinarskólann siðari, eins og oft er sagt. Vinar- skólinn fyrri er þá Haydn, Mozart og Beethoven. Þessir þrir snillingar áttu margt sameiginlegt og voru nánir vinir en að öðru leyti eru þeir gjörólikir. Alban Berg var jafnan LÚLÚ aðgengilegastur þeirra fyrir áheyrendur. Þó hann væri harður framúrstefnumaður gætir alltaf siðrómantiskra áhrifa i verkum hans. Alban Berg sarridi ekki mikið. Verk hans eru u.þ,b. 20 að tölu þegar allt er meðtalið. Hann var hægvirkur og vandvirkur. Einnig kann heilsuleysi sem hann átti við að striða alla æfi að eiga þátt i þvi hversu afkastalitill hann var. Hann samdi tvær stórar óperur um dagana: Wozzeck eftir leikriti Georgs Buchners, sem frumsýnd var i Berlin árið 1927, að undan- gengnum 135 æfingum og vakti sú ópera geysimikla hrifningu. Wozzeck er sálrænt drama, fjallar um hermann sem þjáist I ómanneskjulegu umhverfi her- búðalifsins, er varnarlaus og háður duttlungum yfir- boðara sinna fremur morð i af- brýðisemi og drepur sjálfan sig i lokin. Þessi ópera býr yfir óvana- legum dramatiskum krafti og hefur jafnan fyllt óperuhús þegar hún hefur verið sýnd. Þvi má skjóta hér inn að þrir islenskir söngvarar hafa sungið i Wozzeck erlendis: Einar Kristjánsson, Þorsteinn Hannesson og Sigurður Björnsson. Slðan tók Alban Berg við að semja Lúlú. Efnið er sótt i tvö leikrit um aðalpersónuna Lúlú eftir Franz Wedekind, sem var austurriskur rithöfundur og leik- húsmaður. Alban Berg var prýðilega ritfær og smekkmaður á bókmenntir og bræddi hann leikritin Lúlú og Askja Pandóru saman i einn óperutexta. steypir þeim i glötun og lendir I miklum mannraunum og lætur lifið fyrir hendi morðingja að lok- Alban Berg vann að þvi aö semja Lúlú fram að sumrinu 1935, og var kominn langt með verkið. Þá ollu atvikin þvi að hann hætti og byrjaði á öðru verki. Alban Berg og kona hans Helena voru miklir vinir ekkju Gústafs Mahlers, sem siðar giftist arki- tektinum Walter Gropius og að lokum rithöfundinum Franz Wer- fel. Ung dóttir ölmu og Gropiusar, Manon að nafni lést og hafði það mikil áhrif á Alban Berg. Samdi hann fiðlukonsert um hana sem hann kallaði „1 minningu engils”. Skömmu siðar dó Alban Berg sjálfur i Vinar- borg. Lúlú var ófullgerð og reyndi Helena Berg að fá Anton Webern til að fullgera verkið en hann treysti sér ekki til þess. Sama var að segja um Schönberg sem þá hafði hrökklast til Bandarikjanna undan ofsóknum nasista. Lúlú , Óperan fjallar um Lúlú, fagra Aog samviskulausa konu, sem vef- ur karlmönnum um fingur sér, iVlalnmgarvorur 0\ Nordsjö og Harpa deila með sér plássi í nýju byggingavörudeildinni. Nordsjö málningin blönduð á staðnum í þúsundum lita, örugg og einstaklega áferðarfalleg málning. Oll áhöld til málningar- vinnu og allrar almennrar byggingarvinnu. Byggingavörudeild ■■■ Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10600 Friedrich Chera, sem lauk við Lúlú Aiban Berg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.