Þjóðviljinn - 08.04.1979, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 08.04.1979, Blaðsíða 21
Sunnudagur 8. aprll 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 21 Adolf J. Petersen: VÍSNAMÁL Hart er lífsins hnútu kast begar Visnamál voru hér á ferö þann 4. febrúar s.l., þá var skammdeginu ekki aö fullu lok- iö, en nú þegar Visnamál kveöja dyra á ný, eru dagar orönir lengri en nætur. Samt er vetur- inn aö gnauöa á þekjum, is fyrir Noröurlandi, kuldi i lofti. Samt er sól ofar skýjum og vorþrá i sálum. Magnús J. Jóhannsson i Reykjavik veit hvaö timanum liöur og kveöur: Vetri hallar, hækkar sól, hljóöna gjallir vindar. Bráöum mjallar hvita kjól kasta fjaila tindar. Sólin fjallahnjúk og hjalla hárið falla lætur á. Jökul skalla yljar alla, eyöist mjallarbreiöan þá. Vorþrá og æskuþrá eiga sinn skyldleika, og Magnús kveöur: Heiilar gljáa, logntær láin, laugar bláa aldan sker. Enn er þráin ekki dáin æsku frá i brjósti mér. Táknmál andans mætti oft kalla þau ljóð og lausavisur sem likja lifshlaupinu viö tilþrif náttúrunnar, hvort sem vegur þá meira kaldinn og dimman eða blómskrúö og birta; það kemur fram i fjórum visum Hjartar Gislasonar á Akureyri: Hart er llfsins hnútukast, harma beittur ljárinn, innst i hjarta eitthvað brast, augun vættu tárin. Mig þótt hrelli fjúk og frost, farin bestu árin, i von um birtu og betri kost brosi ég gegnum tárin. Eftir vetrar veörin hörö vakna blóm úr dvala. Máríuerlur messugjörö mér i eyra hjala. Gleöi veldur vorsins þrá, vetrar hjaönar drómi. Æskan björt og ellin grá einum syngja rómi. Á likan hátt kveöur Hjálmar Þorsteinsson á Hofi: Varö mér á aö vefa lin þó væri þráöur brunninn, oft var besta ullin min illa kembd og spunnin. Guðmundur Gunnarsson frá Tindum var ekki i neinum vafa um að meö hækkandi sól og vor- komu fengju menn þrótt til aö takast á við vandamálin; þaö væri náttúran sjálf sem efldi alla dáö meö vorinu. Vorhvöt mættu þessar visur hans heita: Hertu máttinn, heit þin efn, hörpuna láttu duna. Vorið brátt af vetrarsvefn vekur náttúruna. Færist jörð úr fanna kjól, fákur greikkar sporiö. AUt, sem lifir undir sól, endurlifgar voriö. Voriö brýnir viljans stál, vorið blessun færir. Voriö þlna vekur sál, vermir, hressir, nærir. Ekki verður meö sanni sagt, aö á þessum vetri hafi tiöarfariö veriö mjög umhleypingasamt hér á suðurhluta landsins aö ööru en þvi,aö skipst hafa á sól- bjartir og kaldir dagar, en hriöarveöur aöra daga, ekki einsog Pétur Sigurösson lýsir i þessari visu: Margan þreytir þessi tiö. Þó aö bloti, versnar haginn. Þaö er bæöi hláka og hriö, og hörkufrost — allt sama daginn. og honum fannst betra að íáta ekki kulna i glóöunum: Hver einn sinna geröa geldur. Glæddu vel þinn heita blæ. Þegar kulnar arineldur, ólift er I hverjum bæ. Þaö lifir oft i gömlum glæö- um, sem Kristján Ólason kveö- ur um: Þegar vlkur vetrar nótt og vorsins fuglar klifa, gömlum manni getur þótt gaman enn aö lifa. Margt þótt sé I heimi hart hopar vonin eigi. Bak viö myrkur blátt og svart bjarmar af nýjum degi. Um þessar mundir eru ráöa- menn vorir i nokkurskonar sjálfskreppu. Ólafur búinn aö segja af sér formennsku. Hann gæti vel tekiö undir meö Páli S. Pálssyni þegar hann kvaö: Hér eru I vigiö hrunin skörö, — hjálpi þeir sem geta, — þessi árans úlfahjörö ætlar mig aö éta. Aldrei slikan aögang sá áöur nokkru sinni: „Finnst þeim leika efi á útvalningu minni?” Nú hafa alþingismenn eytt talsverðum tima i skattamál og haga störfum þannig aö fella niöur skatta, samboriö sölu- skatt af matvörum, en lagt svo á annan skatt eftir nokkra daga, jafnvel tvo eða fleiri og öllu þyngri. Þingvisa Jakobs Ó. Pét- urssonar á þar vel viö og viröist sigild: Þingmenn góöir þegnum frá þyngsta skattinn draga, en leggja bara annan á eftir nokkra daga. Jakob segir þessa visu heldur vel botnaða hjá sér: Okkar þjóð um auölegö beiöir, allir gróöa heimtum vér. Þungum sjóöi þingið eyöir — (þetta er góöur botn hjá mér). Hún er dálitið táknræn fyrir afraksturinn af framleiöslunni þessi visa hjá Kolbeini Högna- syni i Kollafiröi: Þjóðartafli er brögöótt beitt brauös um nafla rjóöan. Þeir sem afla, eiga ei neitt, aörir krafla gróöann. Ekki er vist aö stjórnarherrar nútimans vilji taka til sin þessa visu Kolbeins, en hana orti hann fyrir mörgum árum: Þessi stjórn er þjóöarmein, þjóöarsmán og lýgi. Hundar meö sin hneykslisbein hennar urra I vigi. Nú er Ólafur farinn úr for- mannssæti flokks sins. Þá varö þessi visa til: (Jr formennskunni fallinn, þvi finnst ei neitt til ráöa. Nú er Framsókn opin I - endana sina báöa. AJP. Heyrðu gamli félagi... ÞINGLYNDI Oj barasta! o°

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.