Þjóðviljinn - 19.04.1979, Síða 1

Þjóðviljinn - 19.04.1979, Síða 1
UOmiUINN Fimmtudagur 19. april 1979 —88. tbl. —44. árg. Tillaga Guðrúnar var felld TiUaga Guörilnar Helgadóttur um aö starfsréttar öryrkja veröi getiö I star fsauglýsingum Reykjavfkurborgar hlaut ekki nema 1 atkvæöi i borgarráöi, en eins og skýrt var fró i Þjóöviljan- um fyrir páska samþykkti bæjar- stjórn Hafnarfjaröar sllka tiUögu á siöasta fundi sinum. Sigurjón Pétursson greiddi til- lögunni atkvæöi, aörir sátu hjá og hlaut tillagan þvi ekki stuöning. Kaupgjald og verðbólga grein eftir Lúðvík Jósepsson SIÁ SÍÐU 8 Páskamál Gyðinga haldin Reykjavík SIÁ SÍÐU 10 SIÁ OPNU Húsgögn úr íslensku birki SIÁ SÍÐU Sagt frá undir- búningi að Listahátíð Þrátt fyrir harðan vetur og hafis er nú brátt von blóma i haga og gróðurinn mun sigra jafnvel örfoka land. Myndin er tekin við Þorlákshöfn. sumar BANASLYSIÐ í TUNGUFOSSl: Vitað var um bilun þegar vinnan hófst Eins og Þjv. greindi frá i gær lést verkamaður i vinnuslysi i fyrradag um borð i Tungufossi þar sem skipið lá við Ægisgarð. I samtali við Þjv. staðfesti Viggó Maack hjá Eimskip staö- hæfingu trúnaðarmanns Dags- brúnar sem birtist i blaöinu i gær, um aö tæknideild félagsins hefði fyrir hádegi slysdagsins borist bón um viðgerð á bómuvindunni, sem bilaði siöar um daginn meö þeim afleiðingum að hafnar- verkamaðurinn slasaðist til ólifis. Viggó sagði að i bilanatilkynn- ingunni sem þeim barst hefði ein- ungis verið farið fram á „viðgerð á vindu” án þess að tilkynnt væri um hversu alvarleg bilunin væri. Þegar hann var spurður hvort það væri verjanlegt að láta hefja störf með bilaðri bómunni sagði Viggó aö þaö væri ekki i verka- hring tæknideildarinnar að meta hvort bilanir væru það alvarlegar að vinnu bæri að stöðva uns viö- gerð hefði farið fram. Slikt yrðu yfirmenn skipsins að meta hverju sinni. ÖS Nafn híns látna Hafnarverkamaöurinn sem lést I vinnuslysi þegar uppskipun hófst úr Tungufossi i fyrradag hét Guömundur Stefánsson til heimilis aö Hverfisgötu 28 i Reykjavik. Hann var 52 ára aö aldri. ÖS. j Halldór Björnsson starfsmaður Dagsbrúnar | Brotalöm hjá Eimskip j Mikill hraði á þátt í tíðum vinnuslysum Halldór Björnsson hjá Dags- brún sagöi I tilefni banaslyssins í Tungufossi aö þaö yröi varla komist hjá þvf aö athuga örygg- ismál hjá Eimskip rækilega eft- ir þetta slys. A tiltölulega skömmum tima heföu hvorki meira né minna en þrlr hafnar- verkamenn látiö lifiö viö störf sln hjá félaginu. Hann sagðist ekki vera ger- kunnugur tildrögum banaslyss- ins en sagöi aö þaö væri ljóst að vitaö heföi veriö um bilun I bómunni sem féll á verkamann- inn. Þaö heföi þvi veriö teflt á tæpt vaö meö þvf að nota hana samt. Ef endilega þyrfti að nota tæki sem væri ekki i fullkomnu lagi, þá væri algert frumskilyröi aö menn væru aövaraöir I ti'ma, þannig aö enginn væri i hættu staddur. Það heföi ekki verið gert og þvi væri slysið enn hörmulegra en ella. Halldór sagði að atvinna hafnarverkamanna væri mjög hættuleg. Þar hjálpaðist aö mikill hraöi í vinnunni ásamt þvi aö þegar menn ynnu lengi við slik skilyröi hætti þeim til aö gleyma hættunni sem leyndist við hvert fótmál. Þegar hann var spurður hvort öryggismálum væri áfátt hjá Eimskip vildi hann ekki segja neitt um það að svo stöddu en sagöi aö lokum: „Ég er ansi hræddur um að þessi mikli hraöi sem er hjá Eimskip eigi ein- hvernþátti þessum mörguslys- um þar. Þarna er einhver brota- löm sem þarf aö athuga betur.” ÖS I ■ I ■ I ■ ! i ■ I ■ I ■ I ■ J

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.