Þjóðviljinn - 19.04.1979, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 19. aprll 1979
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
l lgelandi: Útgáfufélag Þjófiviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Hitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Kréttastjóri: Vilborg Harðardóttir
Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóbsson
Auglýsingastjóri: Kúnar Skarphéðinsson
Afgreiðslustjóri: Filip W. Franksson
Blaðamenn: Alfheiöur Ingadóttir. Einar Orn Stefánsson, Guðjón
Friðriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Magmis
H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson Erlendar fréttir: Halldðr Guð-
mundsson. Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamað-
ur: Sigurður G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson
Útllt og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvörður: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guðrón Guðvaröardóttir, Jón Asgeir Sigurðsson.
Afgreiðsla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson. Kristfn Pét-
ursdóttir.
Sfmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóðir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónadóttir.
Útkeyrsia: Sölvi Magnússon, Rafn Guðmundsson.
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: Siðumúla 6, Reykjavfk, sfmi S 1333.
Prentun: Blaðaprent hf.
Börn, börn, börn...
• Sumardagurinn fyrsti er á islandi barnadagur
kallaður. Og víst er það svo, að í minningu okkar f lestra
er dagurinn tengdur því, að við förum annaðhvort sem
börn eða foreldrar að taka þátt í uppákomum eða sam-
komum sem einu naf ni heita barnaskemmtanir. Og voru
því miður mjög misjafnlega vel heppnaðar. í leiðinni
vorum við minnt á nauðsyn á samfélagslegri vinsemd
við börn, örlæti við þau, skilning á þörf um þeirra.
•á undanförnum árum er þess oft getið, að þjóð-
félagsþróun haf i verið börnum heldur óhagstæð. Að vísu
hafi stór hluti þeirra losnað undan þeirri vinnuþrælkun
sem landlæg var bæði til sjávar og sveita, þau haf i betra
viðurværi, fleira sér til skemmtunar og þar fram eftir
götum. En í leiðinni hafi þau misst ýmislegt án þess að
fá neitt í staðinn. Þau haf i ekki lengur neinu jákvæðu
hlutverki að gegna í samfélagi hinna f ullorðnu, nema ef
telja ætti þá staðreynd að eigendur búða vita, hér sem í
nálægum löndum, að börn eru kaupendur sem vert er að
leggja snörur f yrir. Þau haf i auk þessa losnað úr þroska-
vænlegum tengslum við eldra fólk, fyrst kynslóð afa og
ömmu þegar stórf jölskyldunni fórað hnigna og síðan við
foreldra sína eftir að hlutur kjarnaf jölskyldunnar fór að
rýrna. Þau hafi verið skilin eftir eins og í lausu lofti sem
skattafrádráttarliður (of lítill) og útgjaldaliður (of
stór). Auk þess eru þau fyrir í umferðinni og trufla
áfengisvenjurnar. Með öðrum orðum: börn haf i í reynd
orðið utangátta, þau verði fyrir vaxandi f jandskap, dul-
búnum og opinskáum. Enda vilji fólk ekki lengur eiga
börn, þau hafi svo truflandi áhrif á lífsgæðakapphlaup-
ið. Og fer þjóðinni ekki bráðum að fækka?
• Eitthvað á þessa leið tala menn, hver með sínum
áherslum og útskýringum. Það er fimbulfambað út og
suður um að vandkvæðin séu að kenna eigingirni kvenna
eða þá ónógri kristindómsf ræðslu eða áhrifum róttækra
kennara í skóium. Róttækt fólk með ýmsum litbrigðum
mun hinsvegar halda til streitu þeirri ákæru að það sé
öðru fremur gildismat kapítalísks markaðskerfis sem
haf i þrengt kosti barna með ýmislegum hætti. Og vissu-
lega er sú gagnrýni á gildum rökum reist — þótt börn
kunni að vera gotterískaupendur eða jafnvel fatakaup-
endur í einhverjum mæli, þá eru þau ekki arðbær aðili í
þjóðfélagi sem spyr í hverri grein um markaðslögmál,
um sölumöguieika, um arðsemi. Þau standa höllum fæti
í samfélagi, þar sem hægrivakning fer yf ir með kröf um
um það, að einnig menntun og heilsugæsla sé sett undir
lögmál markaðskerfisins, eins og segir í nýlegri stefnu-
skrá Verslunarráðs (slands. Samkvæmt þessum sömu
markaðslögmálum hafa börn áratugum saman verið
alin fyrst og fremst á hratinu af kvikmyndaiðnaði
heimsinsog gervilífi barnareyfara úr alþjóðlegri f jölda-
f ramleiðslu — en þar með þykir ekki nóg að gert.
• Það þarf ekki sérlega gott pólitískt minni til að vita,
að kröfur um betra líf börnum til handa hafa yfirleitt
risið á vinstri armi stjórnmála, kröfur um betri skóla,
um dagvistun, um betri barnamenningu. Og barnamálin
halda áfram að vera mikill prófsteinn á allt það sem
félagshyggja vill heita. Börnin eru í átökunum miðjum í
þeirri hægrisveiflu sem nú fer um okkar hluta heims.
Það hef ur um alllangan tíma ekki verið jaf nbrýnt og nú
að vinstrisinnar haldi vöku sinni, ýtni, frumkvæði og
hugmyndasmíði í þágu barna. Ekki aðeins að þeir vilji
bera fram almennar kröf ur, heldur séu í raun reiðubúnir
til að fylgja þeim eftir, einnig ef það kostar þá sjálfa út-
gjöld í sameiginlegan sjóð sem svo er nefndur. Ef menn
telja sig í alvöru hafa áhyggjur af landflótta, af fækkun
fólks, af því að börn séu óvelkomin, þá verða þeir um
leið að viðurkenna í verki, að við þá hluti verður ekki
ráðið, nema að þeir sýni börnum örlæti. örlæti á fé sem
skattþegnar, örlæti á tíma sinn og fyrirhöfn sem ein-
staklingar. Gleðilegt sumar.
Hvaö óttaöist
Mondale?
Reglulega huggulegt par gisti
Island i siöustu viku. Þau
Walter og Joan Mondale fengu
aö visuekki sérstaklega hlýleg-
ar viötökur hjá veöravættum
islenskum en mættu þeim mun
hlýrra viömóti islenskra ráöa-
manna. Margt kemur þó land-
anum spánskt fyrir sjónir þegar
varaforseti lands, þar sem for-
setar og aörir framámenn eru
gjarnan skotnir, heimsækir
eyþjóö sem hefur fyrir löngu af-
lagt slika siöi.
Mondale haföi hér fram-
varöarsveit öryggisvaröa sem
tóku völdin af islenskum lög-
regluyfirvöldum til þess aö
tryggja öryggi varaforsetans i
Islandsdvölinni. 1 föruneyti
hans var auk þess her uppi-
vööslumanna sem vöröu hann
dag og nótt meö alvæpni fyrir
hugsanlegum árásum hryöju-
verkamanna eöa Islenskra her-
stöövaandstæöinga.
Hœttulegir
bílstjórar?
Hótel Saga var rudd og þar
bægöu öryggisveröir íslenskum
nátthröfnum frá þvi aö komast i
kallfæri viö varaforsetann. A
Borgarsjúkrahúsinu voru allir
sérfræöingar á bakvakt meöan
á heimsókninni stóö ef varafor-
setanum skyldi veröa ómótt.
Leigubílstjórar sem fengnir
voru til þess aö aka föruneyti
Mondales voru teknir á nám-
skeiö hjá bandarisku öryggis-
vöröunum en fengu þegar til
kastanna kom ekki aö aka bilum
slnum meöan á heimsókninni
stóö. Ekki var öörum treyst en
sérhæföum bandariskum
öryggisvöröum til þess aö aka i
bilalest á eftir stórmenninu,
enda eins vist aö I svo blönduöu
samfélagi og hér er leynist
kommi I hverri ætt og engum
fullkomlega treystandi.
Dúfubanar
í bílalest
Ekki einu sinni bilstjóri for-
seta íslands fékk aö koma
nálægt heimsókn Mondales,
enda viöbúiöaöenneimi eftir aö
róttækum æskuskoöunum
doktors Kristjáns, en slikar
skoöanir eru skoöaöar sem
smitsjúkdómar eins og þeir
hafa fengiö aö kynnast sem sótt
hafa um vegabréfsáritanir til
Bandarikjanna.
Þaö voru þvi bandarlskir
öryggisveröir sem trylltu eftir
Keflavikurveginum á báöum
akgreinum og á 120 kilómetra
hraöa til þess aö enginn fengi
tækifæri til aöskjóta á varafor-
set.ann og föruneyti hans.
Fuglar á Suöurnesjum eru ekki
vanir sllkum hraöaktri fyrir ut-
an og ofan islensk lög og hefur
þaö oftar en en einu sinni komiö
fyrir aö bilalestir i fyrirmanna-
heimsóknum hafa grandaö
mávum og dúfnahópum.
Bestu þakkir
Bandarikjamenneru semsagt
varir um sig, en hiö sama er
varthægt aö segja um islenska
ráöamenn, sem nánast eru
grandalausir. Þeir skála blá-
eygir viö bandariska varafor-
setann og þakka honum
hjartanlega fyrir aö þeir og all-
ir tslendingar skuli fá aö leika
hlutverk hins nytsama sakleys-
ingja i samskiptum viö Banda-
rikjamenn.
Og ekki veröur annaö sagt en
aö bandari’ski varaforsetinn
kunni aö þakka fyrir sig :
,, Aöspuröur sagöi Mondale aö
Islenska rikisstjórnin heföi ver-
iö einkar hliöholl veru banda-
riska varnarliösins á Kefla-
vikurflugvelli. „Og ég færöi for-
sætisráöherra persónulegt
þakkarbréf frá Jimmy Carter
forseta, þar sem þakkaöur er
stuðningur forsætisráöherra,
utanrikisráðherra og islensku
rikisstjórnarinnar viö Kefla-
vikurstööina.
Varnarstööin á Keflavikur-
flugveili er sérlega mikUvæg, og
má þaö m.a. ráöa af þvi aö þar
er aö f inna útbánaö og flugvéiar
af fullkomnustu gerö. Viökunn-
um vei aö meta stuöning
islensku rikisstjórnarinnar og
tslendinga viö þessa stöö, en
hún gegnir mikilvægu eftirlits-
starfi i Noröurhöfum.” „segir
Morgunblaöiö I fréttum af
biaöamannafundi meö varafor-
setanum.
Fáfróðir
hollvinir
Benedikt Gröndal hefur
a.m.k. I tvigang stært sig af þvi
aö hann láti kommúnista I rikis-
stjórninni ekkert vita um þau
leyndarmál sem I gangi eru i
hans ráöuneyti varöandi sam-
skiptin viö Bandarikjaher,
NATÓ og Bandarikjastjórn.
Alþýöubandalagsmenn hafa
látiö sér þaö i léttu rúmi liggja,
þvi þeir vita sem er aö kallar
eins og Bensi og Einsi fá lltiö aö
vita um þaö sem raunverulega
er aö gerast I vigbúnaöar- og
herfræöimálum. Þar eru þeir I
góöum félagsskap annarra
stjórnmálaleiötoga i NATÓ-
rikjunum sem veröa aö láta sér
þaö lynda aö herstjórnin I
Pentagon og hagsmunir
bandariska vopnaiönaöarins
ráöi i einu og öllu stefnu NATÓ
og skammti þeim upplýsingar
úr hnefa.
Þakkir þeim sem
þakkir ber
Þaö er ekki aö undra þótt
utanrikisráöherra og forsætis-
ráöherra sé þakkaö persónulega
af Bandarlkjaforeeta fyrir þaö
aö halda þeirri blekkingu i
slfellu aö þjóöinni aö herstööin I
Keflavik sé einhver varnarstöö.
Þeim ber llka bandarisk þökk
fyrir aö sannfæra alþýöu manna
á Islandi um aö hér á landi séu
ekki kjarnorkuvopn. Slikir
blekkingameistarar eiga hrós
skiliö fyrir bandariska hags-
munavörslu á tslandi.
Engir nema heilaþvegnir
NATÓ-sinnar upp á tslandi
halda þvi fram aö hér séu ekki
kjarnorkuvopn. Hinar nýju og
fullkomnu flugvélar sem
Mondale geröi aö umtalsefni er
byggöar til þess aö bera kjarn-
orkuvopn og gera þaö allsstaöar
annarsstaöar i heiminum. A
herfræöikortum er Keflavikur-
stööin merkt I hópi US nuclear
and mayor bases. Htutlausir
sérfræöingar I herfræöilegum
efnum svo og virtustu friöar-
rannsóknarstofnanir heims
halda þvi fram sem staöreynd
aö hér á landi séu kjarnorku-
vopn. En Islenskir ráöamenn
þráast viö þaö aö trúa nokkru
sliku upp á Bandarikjamenn.
En skyldi þaö aldrei hvarfla aö
þeim áöur en þeir fara aö sofa á
kvöldin aö allan sólarhringin er
kjamorkuknúnum eldflaugum
velbúnumaf kjarnoddum beint
á Keflavík frá Kola-skaga.
Þetta staöfesti einn af herstjór-
um Sovétmanna i sænska sjón-
varpsþættinum „Varldens
vapen”. Varla þætti ástæöa til
þess ef hér væri ekki ööru til aö
dreifa en „leikföngum” úr
slöasta striö.
r
Arásarstöðin
í Keflavík
Nú sem fyrr er Keflavikur-
stööin „skammbyssa” sem
beint er i austur. Allt tal um
varnarstöð er hrein bábilja þvi
stöðin er íslendingum bein lifs-
hætta en engin vörn, enda eng-
inn viðbúnaður til varnar lifi og
limum okkar. t bókinni „Tact-
ical Strategic Antisubmarien
Warfare” sem gefin er út af
SIPRI — sænsku friðarrann-
sóknarstofnuninni 1974 er hlut-
verki stöðvarinnar vel lýst.
Fyrir utan eftirlit meö hern-
aðarumsvifum er hún liöur I þvi
svæðiskerfi sem loka á öllum
leiðum fyrir sovéska kafbáta út
á Atlantshaf ef drægi til ófriöar
eöa stigmögnunar I viösjám
stórveldanna. Hér er hvorki
staöur né stund til þess aö rekja
uppbyggingu þessa kerfis en
niöurstööur visindamanna
sænsku friöarstofnunarinnar
eru ótviræöar: ,,This is an
offensive operation” — „Þetta
eru árásarumsvif”, segja þeir
og eiga þá við svokallaöa
„s væöis-vörn” - „area defence”
- sem miöar aö þvi aö útiloka
kafbáta óvinarins frá stóru haf-
svæöi og ráöa niöurlögum allra
kafbáta sem hyggjast nálgast
þaö svæöi.
Hlekkur
í árásarstríði
Starfsræksla bandarisku her-
stöðvarinnar hér og eftirlits-
flugs frá henni hefur mikið upp-
lýsingagildi fyrir Norömenn
auk þess sem þeir sleppa fyrir
tilvist hennar viö erlendar her-
stöövar á eigin landi. Keflavik-
urstööin er frá sjónarhóli
Bandarisku herstöövarinnar
hugsanlegur hlekkur I árásar-
striöi á hendur Sovétrlkjunum
sem miðaöi aö þvi aö eyöileggja
möguleika þeirra til þess aö
svara kjarnorkuárás á Sovét-
rikin meö kafbátahernaöi.
Aö bíta eða
sleikja
Tvö hundruö þúsund tslend-
ingar og riflega þaö skipta
Bandaríkjamenn engu máli i
þeirra herfræöilega mati. En aö
sjálfsögöu er þaö skylt aö vikja
aöþeim nokkrum þakkaroröum
fyrir aö taka aö sér hlutverk
fórnarlambsins meö sælubros á
vör.
Þaö sem nöturlegt er I þessu
sjónarspili erþaöaö flest bendir
til þess að samskipti okkar viö
Bandarikjamenn myndu ekki
skaöastþó aöviö kappkostuöum
aö ganga uppréttir I samstarfi
viö þá. Þaö hlutskipti aö vera
lús á milli stórveldanna er nógu
erfitt.þóttekki sé reynt aö gylla
þaö meö falsrökum. Endanlega
munum viö I stórveldaátökum
kremjast á milli, án þess aö
örlög okkar veröi talin nokkru
skipta. Enmeöan ekki dregur tíl
slikra átaka er vert aö minnast
þess að sá sem bitur frá sér er
aö jafnaöi meira virtur en sá
sem sleikir tær húsbónda sins
og dillar rófunni hinn ánægöasti
er honum er att á foraöiö.
—ekh
—áb.