Þjóðviljinn - 19.04.1979, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 19.04.1979, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 19. april 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Eins og kom f ram í við- tali við ísleif Sumarliða- son, skógarvörð að Vöglum í Þingeyjarsýslu sem birtist hér í blaðinu fyrir skömmu hefur skógræktin að Vöglum um nokkurt skeið selt Ármanni Þorgrímssyni, húsgagnasmiðá Akureyri valið birki til húsganga- gerðar. Nú nýlega barst okkur í hendur skemmtileg my ndasy r pa, sem (sleifur Sumarliðason tók og sýnirhún þróuninafrá því að birkibútarnir eru í stafla að Vöglum og þar til þeir eru orðnir fagur- renndir stólfætur eða stólarmar. —S.dór Húsgögn gerð úr íslensku DltvlVl Jóhannes Gíslason starfsmaóur skógræktarinn- ar aö Vöglum meö birkibútastaflann. Og hér eru birkibútarnir komnir á verkstæöi Armanns á Akureyri Bútarnir sagaöir til i Armann viö rennibekkinn. Hér er búiö aösaga bútana tilog búnta þá. Og hér má svo sjá árangurinn, fagurrennt islenskt birki. Kröfur SFR: Rétt til atvinnu- leysistrygginga og aöild að félagslegum byggingum Á framhaldsaðalfundi Starfsmannafélags ríkis- stofnana, sem haldinn var 9. apríl sl. voru m.a. sam- þykktar kröfur um, að ríkisstarf smenn njóti sömu réttinda til atvinnu- leysistrygginga og al- menntgerist í þjóðfélaginu og fyllstu réttinda til aðild- ar að félagslegum bygg- ingarframkvæmdum ríkisins. Ennfremur, að f ullorðinsf ræðslu verði þegar komið á og markmið hennar verði að starfs- möguleikar fólks aukist stórlega. Itrekaöar voru fyrri kröfur SFR um endurskoöun laga um Lifeyrissjóö ríkisstarfsmanna, og aö þau veröi samræmd nútlma- legrihugmyndum um hlutverk og markmiö slikrar stofnunar. Var i þessusambandi sérstaklega bent á eftirfarandi atriöi: Allir starfsmenn rikisins er taka laun samkvæmt launakjör- um BSRB fái aöild aö sjóönum. Lánakerfi lffeyrissjóösins veröi tekiö til endurskoöunar og láns- upphæö og kjör hækkuö til sam- ræmis viö þaö er þau voru best. Eftirlaunareglum veröi breytt þannig, aö lifeyrisþegar fái eftir- laun i samræmi viö rauntekjur manna er myndast vegna samn- inga um ýmiskonar launaviö- auka. Má m.a. benda á ortofs- auka og desemberuppbót rikis- starfsmanna. Lifeyrisþegar fái aöild aö stjórn Lifeyrissjóösins. Þá ályktaöi fundurinn, aö allt starfsfólk rikisins ætti skilyröis- laust aö njóta sambærilegra réttinda og mótmælti þvi, aö ákvöröun um laun I ráöningar- samningum sé tekin án vitundar eöa samráös viö félagiö, sem tvi- mælalaust sé annar samnings- aöili slikrar geröar samkvæmt lögum. Samþykkt var aö fela stjórn SFR aö vinna aö endurskoöun á sjóöakerfi félagsins m.a. meö tilliti til stofnunar verkfallssjóös SFR. SFR: Mótmælt ein- hliða ákvörðun um startsaldur Starfsmannafélag rlkisstofn- ana mótmælti harölega á fram- haldsaöalfundi sfnum 9. apríl ein- hliöa túikun launadeiidar fjár- málaráöuneytisins á ákvæöi aöal- kjarasamnings um ákvöröun tii starfsaldurs, en samninganefnd rikisins ákvaö á slnum tima aö nýta ekki heimild um aö taka til greina starfsaldur hjá öörum vinnuveitendum en þvi opinbera. Taldi fundurinn slfka einhliöa ákvöröun stjórnvalds brot á samningi og fól fulltrúum SFR l samninganefnd aö gæta þess, aö slik heimildarákvæöi veröi ekki I kjarasamningum SFR/BSRB. Aöalfundurinn itrekaöi fyrri skoöun SFR, aö viö Utreikning vfeitölubóta riki jafnlaunasjónar- miö, þannig aö visitölubætur veröigreiddar aö sömu krónutölu á öll laun og teljist ekki til skatt- skyldra tekna. Flugleidafyrirtæki 1 ársskýrslu Flugleiöa h.f. kem- ur fram, að Flugleiðir h.f. á 16 dóttur- eöa hlutdeildarfyrirtæki. Dótturfyrirtæki Flugleiöa h.f. eru: International Air Bahama, Hekla Holding, Hótel Esja, Arnarflug h.f., Ferðaskrifstofan Grval, og Mikrómiðill s.f. Hlutdeildarfélög eru: Cargo- lux, Flugfélag Noröurlands, Flugfél. Austurlands, Kynnis- ferbir feröaskrifstofanna s.f. Hótei Aerogolf Sheraton, Hótel Húsavik, Hótel Isafjörður og þrjú fyrirtæki erlendis, i New York, Paris og Lúxembúrg. —S.dór * leigttmiíilun Ókeypis ráðgjöf fyrir alla leigjendur. Meðlimir fá fyrirgreiðslu leigumiðlunar Leigjendasamtakanna, sem opin er alla virka daga kl. 1—5 e.h. Árgjald kr. 5000.- Leigjendasamtökin Bókhlöðustíg 7, Rvk sími 27609 ráögjöf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.