Þjóðviljinn - 21.04.1979, Page 2
2 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 21. aprll 1979.
AF GUÐLEYSI
Ekki veitég nein náin deili á mjög umræddri
persónu um þessar mundir, en sá er nefndur
séra Guðmundur 01 i Ólason og kvað vera
þjónandi prestur austur í Tungum, nánar til-
tekið í Skálholti. Hins vegar veit ég að hann er
ritstjóri Kirkjuritsins og það veit ég vegna
þess að ég er fastur áskrifandi að Kirkjurit-
inu, eins við allir, sem eitthvað komum nálægt
Þjóðviljanum. Og þegar við erum ekki að
fletta Krikjuritinu, þá gluggum við gjarnan i
Heilaga Ritningu svona til að halda sálarheill-
inni í sæmilegu standi eftir allt of mikla yf ir-
legu á Marx, Lenin og hvað þeir nú allir heita.
Af þessum sökum á það ekki að koma nein-
um á óvart, þó að kirkju og kristninni í landinu
séu gerð betri skil í Þjóðviljanum en í öðrum
dagblöðum landsmanna. Sannleikurinn er
nefnilega sá að ritstjórar Þjóðviljans hafa
löngum verið (að þvi er sumum finnst) trú-
hneigðir úr hófi fram — nema kannske
Kjartan Olafsson — og nægir að benda á það
að Magnús Kjartansson setti varla svo saman
greinarkorn að ekki væri vitnað í Biblíuna og
meira að segja oftast í Gamla testamentið,
sem er náttúrlega ennþá flottara en hitt.
Og það er ekki að ástæðulausu að Kirkjuritið
tilgreinir núverandi ritstjóra Þjóðviljans sér-
staklega sem viðræðuhæfan um kirkjuleg
málef ni. Það er sláandi dæmi um áhuga Arna
Bergmanns á kristninni í landinu, að á sumar-
daginn fyrsta s.l. fimmtudag var lunginn af
Þjóðviljanum helgaður þeim stórviðburði að
gyðingar átu páskamáltíð ásamt lúterskum
kennimönnum og konum þeirra inná Bústaða-
vegi. i þessari páskaveislu var rabbí Rosen-
blatt bæði potturinn og pannan, en honum til
vinstri og hægri sátu valinkunnir kennimenn
íslenskir. Það að ekki kom til átaka í þessari
veislu, sýnir og sannar enn einu sinni það sem
stendur í bókinni góðu, að fólk hvaðanæfa að
getur elskað hvert annað næstum eins heitt og
sjálft sig.
Þjóðviljinn var eina blaðið sem gerði þess-
um trúarlega viðburði einhver skil á sumar-
daginn fyrsta. Hin blöðin voru öll uppfull af
því, að feður ættu að tala við börnin sín, jafn-
vel skipta á bleyjum á þeim og skeina þau.
Nú skeði það i nýútkomnu tölublaði Kirkju-
ritsins að framangreindur séra Guðmundur
Oli í Skálholti vakti athygli á þeirri alkunnu
staðreynd að Þjóðviljinn gerir kristni og
kirkju í landinu betri skil en hin dagblöðin.
Þessari staðreynd gat Morgunblaðið ekki
kyngt og urðu viðbrögðin þau að fenginn var
ónafngreindur hulduhöfundur til að skrifa
leiðara í forn-kaþólskum bannfæringarstíl og
var áhrínsorðunum beint gegn margnefndum
Guðmundi presti. Svo mergjaður er þessi
dæmalausi Morgunblaðsleiðari að bannfæring
kaþólsku kirkjunnar fyrr á öldum, skrásett í
kirkjusögu Finns biskups, er eins og Litla gula
hænan hjá þessum ósköpum.
Nú eru menn að reyna að geta sér til um
hver sé höfundur leiðarans í Morgunblaðinu.
Margir hallast að þvi að hann gæti verið úr
K.F.U.M. og er þá helst getið uppá Jóni bisk-
upi Vídalín, enda orðum hans óspart flíkað í
ritsmíðinni. Sé Jón Vídalín leiðarahöfundur-
inn má segja að hann falli á eigin bragði, því
orðrétt segir hann:
„Hvernig fékk Jóab metorðum sinum
haldið, nema með reiðinni, og var það honum
þóekki nema stundarfriður... en sá sem reiður
er hann er vitlaus... en varist það, að menn
búa lengi að heiftinni, enda er hún eitt and-
skotans reiðarslag". (Tilvitnun lýkur)
Það má með sanni segja að Morgunblaðið
hafi tekið trúarlegt heljarstökk 10. apríl sl.
með leiðaranum „Kirkjuritið og Khomeini".
Málefni kristni og kirkju i landinu voru þar
tekin fyrir meðþeim hætti að til sóma er fyrir
þetta ærukæra blað, og vonum við velunnarar
Morgunblaðsins að haldið verði áf ram á sömu
braut. Þó að auðvitað verði það áfram Þjóð-
viljinn, sem er viðræðuhæfastur um kirkju og
kristni í landinu, þá heldur Morgunblaðið á-
reiðanlega áf ram að birta pistla dagsins eftir
postulann Billy Graham. Og ekki yrði ég hissa
þó næsti leiðari Moggans um næsta þjón krist-
innar kirkju i landinu, sem leyfði sér að láta
Þjóðviljann njóta sannmælis, yrði með svip-
uðu orðalagi og bannfæringin góða til forna:
„ f naf ni föður sonar og anda heilags og heil-
agrar Maríu meyjar bannsyngjum vér (Jón
Jónsson sóknarprest). Bölvaðar skulu vera
allar hans athafnir, bölvað sé höfuð hans,
augu hans og nasir, sjáaldur, tennur og tunga,
kverkar hans og brjóst, hjarta og kviður, lifur
hans og líf, milti, nafli og öll innýfli, fætur og
lær, hendur og handleggir, herðar og lendar og
allt hans hold og hörund frá hvirfli til ilja og
allt sem er þar á milli. Bölvuð séu öll vit hans,
sjón,heyrn, ilman, smekkur og tilfinning. Ég
særi þig, djöfull og alla þína ára, í nafni föður
sonar og anda heilags, að þú haf ir aldrei frið,
nótt né nýtan dag, fyrr en þú hef ur steypt hon-
um í skömm þá, sem varir um aldir og að
eilíf u og hann annað hvort drukknar í ám eða
hangir á hæsta gálga eða helf rýs í hríðum eða
verður sundurrif inn af hræfuglum eða brenn-
ur í logum eða verður drepinn af óvinum sín-
um og verði óþokkaður af öllum lifandi mönn-
um. Börn hans verði föðurlaus og kona hans
ekkja. Enginn veiti honum aðstoð eða sýni
honum líkn eða liðveislu. Svo sem andskotan-
um var steypt niðuraf himni skal hann útrek-
inn og útskúfaður og með slagbrandi lokaður
inni hjá svínum einum og deyi þar Ijós augna
hans nema hann taki vit sitt aftur og hverf i á
VORA náð.
Verði nú sem vér höf um talaðeða enn verra.
— Amen —."
Það skyldi þó aldrei vera sannleikskorn í
vísunni sem birtist sennilega í næsta tölublaði
Kirkjuritsins:
A Mogganum er mesta puð,
menn þar trúa ekki á guð.
En eitt er víst, og það er það
að Þjóðviljinn er kristið blað.
Flosi.
Glsli Magnússon, Ólöf K. Harðardóttir og Gunnar Egilsson flytja verk
Schuberts um hjarömanninn á tónleikum Kammersveitarinnar.
Kammersveitin minnist
150 ártíöar Fr. Schuberts
Þriðju áskriftartón le ika r
Kammersveitar Reykjavikur á
þessu starfsári verða i samkomu-
sal lia mrahiiðar skóla n.k.
sunnudag kl. 17. Á tónieikunum
verða einungis flutt verk eftir
Kranz Schubert, en um þessar
mundir er 150. ártiðar tónskálds-
ins minnst um alian heim.
Leikið verður Scherzo og Trió
.fyrir átta blásturhljóðfæri, ,,Der
Hirt auf dem Felsen” fyrir sópr-
an, klarinett og pianó og munu
Ólöf K. Harðardóttir, Gunnar
Egilson og Gisli Magnússon flytja
það. Að siðustu verður leikinn
Kvintett i C-dúr, D-956 fyrir tvær
fiðlur, lágfiðlu og tvö celló, en
kvintett þessi er siðasta meiri-
háttar tónverk sem Schubert
samdi.
Flytjendur kvintettsins eru Rut
Ingólfsdóttir, Kolbrún Hjaltadótt-
ir, Helga Þórarinsdóttir, Pétur
Þorvaldsson og Auður Ingvadótt-
ir.
Samkór Dalvikur:
Heldur voríónleika
Samkór Dalvikur, sem nú er aö
ijúka öðru starfsári sinu, hélt vor-
tónleika I Dalvikurkirkju i gær-
kvöld og endurtekur þá I Akur-
eyrarkirkju iaugardaginn 21.
april, kl. 21. Stjórnandi kórsins er
Kári Gestsson.
Kórinn hefur i vetur æft
Teleum, eftir franska tónskáldið
A. Carpentier, en það er verk
fyrir blandaðan kór, fimm ein-
söngvara og hljómsveit og tekur
um það bil hálftima i flutningi.
Einsöngvarar veröa: Sigrún
Gestsdóttir, Halla Jónasdóttir,
Þurfður Baldursdóttir, Gestur
Skólasýning Vogaskóla
FjÖldi nemenda 1/4 þess sem var
t Vogaskóla erú nú um 400 nem-
endur í 10 aldursfiokkum, en
þegar skóliiin var fjölmennastur
voru þar 11 aldursflokkar með
samtals rösþlega 1600 nemend-
um. Meðaltal I árgangi var þá
yfir 145 nemendur, en nú er þaö
um 40.
Þetta kemur fram i fréttatil-
kynningu skólans i tilefni skóla-
sýningar, sem þar verður haldin
nö um helginaogsést ma af þessu
hve geysilegar breytingar hafa
orðið á skólanum og raunar allri
byggðaþróun i Reykjavik á þeim
tveim áratugum sem Vogaskóli
hefur starfað.
20. starfsári hans er nú að ljúka
og verður á sýningunni reynt að
gefa sem gleggsta yfirlitsmynd af
ýmsum viðfangsefnum nemenda
á starfcárinu i verklegu námi
ásamt ýmsum viðfangsefnum
sem tegnjast bóklega náminu.
Sýningin nær yfir vetrarvinnu
nemenda úr öllum aldursflokk-
um.
Jafnhliöa munasýningu verða
nemendur aö störfum á nokkrum
stöðum við gerð ýmissa verkefna
Guömundsson og Siguröur
Demetz Franzson. Undirleik ann-
ast kammersveit úr Tónlistar-
skólanum á Akureyri.
A efnisskrá eru einnig lög af
styttra taginu, eftir ýmsa höf-
unda, innlenda og erlenda.
Planóundirleikari kórsins verður
Thomas Jackmann, sem einnig
mun leika undir einsöng Gests
Guðmundssonar, sérstaklega.
óg/mhg
svo sem f heimilisfræði.sjóvinnu- að foreldrar fjölsæki, svo og eldri
brögðum, myndmennt o.fl. ogyngri nemendur og velunnarar
Allir eru velkomnir á sýning- skólans. Sýningin er opin laugar-
una. En þess er sérstaklega vænst dag og sunnudag kl. 14 — 18.
Tveir saman
í FÍM-sal
Gunnar örn Gunnarsson og Sigurgeir Sigurjónsson opna sýningu
á verkum sinum I FIM salnum að Laugarnesvegi 112 kl. 14.00 i dag.
Gunnar örn sýnir 20 málverk og teikningar en Sigurgeir 40 ljós-
myndir og eru þær teknar I Paris og á Grænlandi og auk þess munu
andlit nokkurra þekktra Islendinga ljóma á veggjum sýningar-
salarins.
Sýningin verður opin kl. 2 — io daglega til sjötta mal.