Þjóðviljinn - 21.04.1979, Blaðsíða 5
Laugardagur 21. aprll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Hópurinn sem vann að stillingu kynditækja I Stykkishóimi.
Góður árangur nemendaferðanna
Skipuleggja þarf
kynditækjaþjónustu
Iðnaðarráðuneytið leggur til að samtök
sveitarfélaga stjórni verkefninu
Reglubundió vióhald og stilling
oliukynditækja gæti dregiö veru-
lega úr kostnaöi viö húshitun
einsog feröir nemendahópa á
vegum iönaöarráöuneytisins á
nokkra staöi úti á landi f vetur
hafa sýnt fram á. Nauösynlegt er
þvi aö finna siikri þjónustu fast-
mótað skipulagog i þvi skyni hef-
ur ráðuneytiö ritaö samtökum
sveitarfélaga i öllum landshlutum
og lagt til, aö landshiutasamtökin
og sveitarfélögin taki stjórnun
þessara verkefna i sinar hendur.
Einsog sagt var frá i Þjóövilj-
anum beitti iðnaðarráðuneytið
sérfyrir ferðum hópanemenda til
að stilla oliukynditæki á nokkrum
stöðum á Austurlandifyrr i vetur.
I sl. mánuði barst ráðuneytinu
siöan bréf frá þrem sveitarstjórn-
um á Vesturlandi, Búöardal,
Grundarfirði og Stykkishólmi
meðbón um að það beitti sér fyrir
athuguná kynditækjum á þessum
stöðum.
Fyrir milligöngu ráðuneytisins
fór 22ja manna hópur, þar af 13
nemendur ÍVélskóla lslands og 6
nemendur frá Iðnskólanum i
Reykjavik, til þessara staöa og
unnu þar að hreinsun og stillingu
á kynditækjum dagana 7. til 11.
þessa mánaðar. Heita má að svo
til öll oliukynt ibúöarhús, fyrir-
tæki ogopinberar byggingar hafi
verið heimsótt. Voru samtals
yfirfarin og stillt um 200 kyndi-
tæki I þessum leiðangri. Starfs-
mennsveitarfélaganna aðstoðuðu
hópinn við skipulagningu verks-
ins á hverjum stað.
Éinu sinni á ári
Frumkvæöi þessara sveitarfé-
laga hefur skilað miklum árangri
tilhagsbóta fyrir þá ibúa sem enn
búa viö oliukyndingu, segir I
fréttatilkynningu frá ráðuneyt-
inu, og blandast nú engum lengur
hugur um, aö meö reglulegu við-
haldi og stillingu á kynditækjum
má draga verulega úr kostnaöin-
um. En skipuleggja þyfti þjónust-
una þannig, að það verði ekki
undantekning heldur sjálfsagður
hlutur, aö hvert einasta oliu-
kynditæki sé yfirfariö og stillt
amk. einu sinni á ári.
Þau verkefni sem ráöuneytiö
mun nú á næstunnibeita sér fyrir
á þessu sviöi er fræðsla fyrir þá
sem að eigin frumkvæði eða að
tilhlutan sveitarstjóran taka að
sér að annast viðhald og stillingu
á oliukynditækjum. Einnig mun
ráðuneytið leggja áherslu á að
koma til almennings upplýsing-
um orkusparnað i húshitun og á
fleiri sviðum. Þanniger núunnið
aö gerð sjónvarpsþátta um orku-
mál, og hafinn er undirbúningur
að útgáfu ieiðbeiningabæklings
um kynditæki og hagkvæmni
varðandi húshitun. Verður bæk-
lingur þessi sendur inn á hvert
heimili sem býr við oliukyndingu.
Dagana 14. til 18. mai næstkom-
andi efnir ráöuneytið til nám-
skeiös i Reykjavik i stillingu og
viðhaldi kynditækja, og er þess
vænst að þaö sæki menn úr öflum
byggöarlögum, þar sem hús eru
kynt með oUu.
Nýr Stálvíkurtogari til BÚR
Efling atvinnulífs og
innlendra skípasmíða
Eins og skýrt var frá i Þjóövilj-
anum s.l. fimmtudag hefur stjórn
Bæjarútgeröarinnar undirritaö
samning viö Stálvlk um smiöi á
nýjum togara fyrir BCR.
1 frétt frá samningsaðilum seg-
ir, að kaupin séu liður i aögerðum
Reykjavikurborgar til eflingar
atvinnulifsi Reykjavik, enhöfuð-
borgin hefur á undanförnum ár-
um dregist aftur úr öðrum
byggöarlögum hvað togaraútgerð
ogfiskvinnslu varöar.frá þvisem
áöur var.
Stálvlkurtogarinn verður fyrsti
togari BÚR, sem smiðaður er
innanlands, en Bæjarútgerðin
hefur látið smiða 12 togara fyrir
sig erlendis ogsá 13. ernúi smið-
um I Portúgal. Markar þessi
smiðasamningur þvi tímamót i
stefnu BÚR i togarasmlöi og hef-
ur einnig mikla þýöingu fyrir at-
vinnumál borgarinnar þar sem
um 70 Reykvikingar munu taka
beinan þátt I smiði skipsins, en
Stálvik hf. er i Garðabæ, sem
kunnugt er.
Starfsemnn og stjórnendur
Stálvikur fagna mjög þessum
samningi segir ennfremur I
fréttatilkynningunni, enda trygg-
ir hann vinnu lengra fram i tim-
ann. Smiöin hefst væntanlega
næsta haust og áætlað er aðhenni
ljúki i ársbyrjun 1981.
Stálvikurtogarinn hefur alfarið
verið hannaður af islenskum
tæknifræðingum hjá Stálvik hf
undir stjórn og handleiðslu Sig-
urðar Ingvasonar, skipatækni-
fræðings. Togarinn er 57 m lang-
ur, 10,3m breiður og hefur um 660
rúmmetra fiskilest.
Við hönnum skipsins voru þrjú
aöalmarkmið höfð I huga.
1. Vandað skip, er henti til fisk-
veiða, við isl. aöstæöur.
2. Betra skipslag, er leiði til oliu-
sparnaöar.
Framhald á blaösiöu 14
Hœkkun jöfnunargjaldsins
Kynnt í Sviss og Austurríki
Ilugmvndir rikisstjórnarinnar svo og rikisstjórnum Noröur-
um hækicun jöfnunargjaids á inn- landa einsog sagt hefur veriö frá i
fluttar iönaöarvörur úr 3 i 6% Þjóöviijanum.
veröa i næstu viku kynntar rikis- Gerter ráð fyrir að rikisstjórn-
stjórnum Austurrikis og Sviss, en in taki endanlegaafstöðu i málinu
áöur hafa þær veriö kynntar um mánaðamótin nk.
Efnahagsbandalaginu og Efta,
Vídtæk fundahöld
á vegum BSRB
Allsherjaratkvœðagreiðsla um samkomulagið
við rikisstjórnina 3. og 4. mai
Samkomulag það< sem
f jármálaráðherra og
BSRB gerðu með sér 23.
mars, var undirritað af
báðum aðilum með þeim
fyrirvara, að það yrði
samþykkt í allsherjarat-
kvæðagreiðslu félags-
manna BSRB.
í framhaldi af þessu
samþykkti sameiginlegur
fundur stjórnar og samn-
inganefndar BSRB að
samkomulagið verði í alls-
herjaratkvæðagreiðslu
lagt sameiginlega fyrir
alla ríkisstarfsmenn og
aðra félagsmenn BSRB,
sem ekki eru innan banda-
lagsfélags. Á sama hátt
fari fram atkvæðagreiðsla
í hverju bæjarstarfs-
mannafélagi fyrir sig.
Atkvæöagreiðslan fer fram
dagana 3. og 4. mal. Kjörfundur
mun almennt standa frá kl. 14 —
19 báða dagana. Utankjörstaða-
atkvæðagreiðsla verður á skrif-
stofu BSRB frá og með 27. april.
Kjörstaðir verða 47 á landinu
öllu. í Reykjavlk, Kópavogi og á
Seltjarnarnesi munu aðildarfélög
BSRB sjá um kosninguna. T.d.
mun Hjúkrunarfélag Islands hafa
kjörstað á skrifstofu sinni, Þing-
holtsstræti 30, og Starfsmanna-
félag rikisstofnana á skrifstofu
sinni, Grettisgötu 89.
Dagana 21. aprfl — 2. mai efna
BSRB og aöildarfélög þess til fjöl-
margra funda til kynningar á
samkomulaginu við rikisstjórn-
ina. Þegar hafa veriö haldnir
fundir á Austurlandi, Vestfjörö-
um og Vesturlandi, en siöan var
gert hlé um páskana. (
1 dag kl. 13 veröur fundur i |
Alþýöuhúsinu I Vestmannaeyj- !
um. Þar hafa framsögu Sigurveig I
Sigurðardóttir og Haraldur Stein- I
þórsson. Kl. 14 i dag verður fund- j
ur I Gagnfræöaskólanum i Kefla- I
vik og verða Haukur Helgason og
Kristján Thorlacius framsögu-
menn.
Næstu fundir verða á mánudag-
inn: A Kópavogshæli kl. 15.30, i
skólanum á Dalvik kl. 16, Hótei
KEA Akureyri kl. 21 og i Glæsibæ
veröur fundur kl. 20.30 á vegum
Hjúkrunarfélagsins.
,,Við leggjum mikla áherslu á
það, að ákvæöin um afnám
tveggja ára samningstlmabilsins
eru geysilegt hagsmunamál fyrir
opinbera starfsmenn,” sagði
Kristján Thorlacius formaður
BSRB á fundi með fréttamönnum
i gær. Aðspurður um „Andóf 79”
sagði Kristján, að hann teldi ekki
óeölilegt að skoðanir væru skiptar
um jafnstórt mál og þetta. Hon-
um væri ekki kunnugt um það hve
stór hópur væri hér á ferðinni, en
þaö væri á misskilningi byggt að
samtökin hafi ætlaö að einangra
þetta samkomulag við rikis-
stjórnina innan samninganefndar
og stjórnar BSRB. Þvert á móti
hefði strax veriö ákveðiö aö við-
tækar umræður skyldu fara fram
um málið.
Um 10.500 rikisstarfsmenn eru
á kjörskrá i allsherjaratkvæða-
greiöslunni og um 4000 bæjar-
starfsmenn. Kjörstaður ræðst af
vinnustaö manna, en auk þess
geta menn kosiö utankjörstaöar.
Stefnt er aö þvi, að úrslit liggi
fyrir eigi sföar en þriðjudaginn 8.
mai.
—eös
Lést af
slysförum
j í Bangkok
Jón Viggósson, 28 ára gamall
Isfirðingur, lést af slysförum I
Bangkok 4. april. Féll hann fram
af svölum gistihúss sem hann bjó
i. Jón haföi ferðast um Evrópu,
Afriku og Asiu um margra mán-
aða skeið.
Magnús A. Arnason afhendir Sigriði styrkinn — Ljósm. Leifur.
Sigríður Bjömsdóttir
Fékk styrk úr
Barbörusjóði
Úthlutun úr Minningarsjóði
Barböru Arnason til styrktar
Islenskum myndlistarmönnum
fór fram á afmæli hennar 19.
april á heimili Magnúsar A.
Arnasonar I Kópavogi. Nitján
iistamenn sóttu um styrkinn, en
nafn Sigriöar Björnsdóttur var
dregið út að þessu sinni.
Upphæðin er kr. 350.000. I
sjöðsstjórninni eru Magnús A.
Arnason, Vifill Magnússon og
formaður Félags islenskra
myndlistarmanna, Sigrún
Guðjónsdóttir.
Ætlunin með styrknum er að
hann sé notaður til utanferðar,
en styrkþegum er algjörlega
frjálst aö nota hann eins og
þeim best hentar. Þesser vænst
aö styrkþegi gefi liataverk til
eflingar sjóðnum, en þetta er þó
engin kvöð.