Þjóðviljinn - 28.04.1979, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 28.04.1979, Qupperneq 2
Af uppáferðum humarsins Á sama hátt og því hef ur löngum verið hald- ið fram að augun væru spegill sálarinnar, er ekki f jarri lagi að ætla að blöðin séu spegill samtíðarinnar. ( blöðunum er að minnsta kosti öðru fremur fjallað um það, sem efst er á baugi hverju sinni. Það sem hefur sett mestan svip á menning- arlega umræðu í blöðunum að undanförnu er annars vegar þjónusta þeirra við kirkju og þá himnafeðga, föður, son og heilagan anda, og hins vegar klám. Á laugardaginn var skrifaði ég mjög athyglisverða, snjalla, já raunar frá- bæra grein um hið f yrrnef nda, þar sem kjarni málsins var settur fram í þessum lokaorðum: „Á Mogganum er mikið puð, menn þar trúa ekki á guð. En eitt er víst og það er það, að Þjóðviljinn er kristið blað". Það eru sem sagt Morgunblaðið og Þjóðvilj- inn, sem eru helstu málsvarar Helvítis og Himnaríkis hér á landi. En sálarheill er í fleiru fólgin en eilífðar- málum. Sigurður vinur minn Greipsson í Haukadal trúði mér einu sinni fyrir því, að það væri sín skoðun að sálarheill og líkamsheill færu jafnan saman, enda segir málsháttur- inn: „Mens sana in corpore sano". Nú er það vitað að líkamsheill er ekki hægt að öðlast nema ástunduð sé „heimaleikf imi", en sú íþróttagrein hefur stundum verið flokk- uð undir það sem sumir kalla feimnismál, en aðrir klám. Um þennan þátt mannlegs lífs hefur að undanförnu farið fram fjörug um- ræða á síðum Dagblaðsins. Það er upphaf þessa máls að 31. mars s.l. bar þaðtil tíðinda að sjónvarpið sýndi á skján- um karlhumar og kvenhumar í hörku samför- um. Þessari óhæfu var mótmælt í Dagblaðinu þann 18. apríl og þá einkum með þeim rökum, að börn og unglingar væru gersamlega varn- arlaus gegn slíku klámi á öldum Ijósvakans, og er raunar hér komin hin upphaf lega merk- ing orðsins „klámhögg". Segja má að frá listrænu sjónarmiði geti verið þörf á því að sýna naktar lífverur og jafnvel samfarir, en ég verð að taka undir með Dagblaðinu, að hér var farið langt yfir mörk gildandi velsæmis. Það hefði á engan hátt rýrt listrænt gildi þessarar klámmyndar þótt grófustu samfaraatriðin hefðu verið klippt úr, og þá voru sumar nærmyndirnar af þessum dæmalausu ástarleikjum humarhjú- anna svosmekklausar, að okkur sem fullorðin erum þótti nóg um, og má þá nærri geta hver áhrif slíkt getur haft á ómálga börn, að ekki sé nú talað um þau þeirra sem eru farin að hug- leiða feimnismálin. Auðvitað á að leggja blátt bann við samför- um í sjónvarpinu, eða að minnsta kosti að þeim sé sjónvarpað, og má þá einu gilda hver á í hlut, hvort það eru humrar, krabbar, köngulær, karlar eða konur. Það verður að telja þá rödd hjáróma, sem kveður sér hljóðs í Dagblaðinu um sama mál s.l. mánudag og telur það gamaldags hugs- unarhátt að vilja ekki sýna samfarir humra i sjónvarpinu. Sá hinn sami heldur því raunar f ram að slík mynd eigi rétt á sér vegna þess að á þennan hátt fjölgi humrar sér og raunar mannfólkið líka. Þá er í sömu grein kvartað yfir því, að kynfræðsla sé ekki nægjanleg fyrir unglinga. Þetta kann rétt að vera, en þó hljótum við, sem erum á móti klámi í sjón- varpinu, að segja sem svo að sjónvarpið geti varla annað því hlutverki að sýna allar þær fjölmörgu aðferðir og tilbrigði sem viðhöfð eru, þegar mannkynið er að leggja drög að fjölgun sinni. Slík fræðsla yrði allt of yfir- gripsmikil og að okkar dómi f ull djörf, einkum fyrir yngri kynslóðina. Þegar ég var barn og unglingur að alast upp hérna vestur í bæ var öll kynferðisf ræðsla verkleg. Sjónvarpið var þá enn ekki komið, og ekkert klám var viðhaft í biómynd- um, útvarpi, blöðum eða bókum. Stóru strák- arnir og stelpurnar fóru bara með okkur þau minni, og einhversstaðar að húsabaki skýrðu hinir fróðari fyrir okkur hið fjölbreytilega notagildi tippisins. Síðan var það sannreynt eftir því sem tímar liðu. Því legg ég til að tekin verði upp í íslenska menntakerf inu verkleg kynferðisf ræðsla, þannig að við þeir eldri og reyndari miðlum hinum yngri af dýrmætri reynslu okkar og síð- an verði sú fræðsla látin ganga áfram, og sannið til, þá mun óhæfa eins og uppáferðir humarsins eiga harla lítið erindi á skjá sjón- varpsins. Hvað sagði raunar ekki menntamálaráð- herra þegar frumvarpið um aukna kyn- fræðslu í skólum var lagt fyrir Alþingi: Kyn um lífið læra má litið eitt í skólunum, en kynlífið það kenna á með kynfræðslu í bólunum. Flosi. Meginkröfur L maí í Reykjavik Hörð mótmæli gegn áformum um kaupmáttarskerðingu # Kröfur um aukiö jafnrétti bætt uppeldisskylyrði áberandi • Skoraö á opinbera starfsmenn aö fylkja liði til þess aö stórbæta samningsrétt sinn I 1. ma ávarpi Fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB og INSi, er lögð áhersla á varð- veislu þess kaupmáttar sem um var samið 1977 og mótmælt harðlega áform- um stjórnvalda um að ganga á gerða samninga um vísitölukerf ið og skerða almenn vinnulaun á sama tima og tekjuhæstu einstaklingar þjóðfélags- ins fá meira en mánaðar- laun verkamanns í kaup- hækkun. Lýst er yfir því í ávarpinu að gegn þessum áformum muni alþýða manna berjast af fullum þunga um leiðog launafólk sé reiðubúið til þess að styðja stjórnina á braut til bættra lifskjara og félags- legrar framfarasóknar. 1. mai ávarpið skiptist í fjóra kafla og er þar m.a. skorað á opinbera starfs- menn aö fylkja liði til þess að stórbæta samningsréft sinn, og hvatt til afnáms hernaðarbandalaga og herstöðva hér á landi. I kröfum dagsins eru jafnréttismál og bætt skil- yrði til barnauppeldis ofarlega á baugi. Hér fara á eftir nokkrar þær kröfur sem lögð er þung áhersla á: Fulla atvinnu fyrir allar vinnu- færar hendur. Mannsæmandi lifskjör fyrir átta stunda vinnudag. Jafnrétti I lffeyrismálum, verðtryggðan lifeyri fyrir alla. Grétar Þorsteinsson Næg og góð dagvistarheimili fyrir öll börn. • Fæðingarorlof inn I tryggingar. Aukinn félagslegan atvinnu- rekstur og lýðræöi I atvinnulifinu. Auknar félagslegar ibúðabygg- ingar og lánakjör i samræmi við fjárhag launafóiks. JónHelgason Stóraukna fullorðinsfræðslu og verkmenntun. Jafnrétti til náms. Menningar- og fræðslustarf- semi fyrir vinnandi alþýðu á veg- um verkalýöshreyfingarinnar. Tekjujöfnun I þjóðfélaginu, samræmda og réttláta launa- stefnu. Heimild tii vinnustöövun- ar, skorti á öryggi og aðbúnað á vinnustað. Samnings-og verkfallsrétt til félaga i INSl. Dagskráin 1. maí Að göngu og útifundi 1. mai standa Fulltrúaráö verkalýðsfélaganna I Reykjavik, stjórn BSRB og Iönnemasam- band íslands. Fullt samkomulag náðist um 1. mai ávarpið og ræðumenn á útifundinum. Framhald á 18. siðu Hafsteinn Eggertsson Haraldur Steinþórsson Aðalheiður Bjarnfeðsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.