Þjóðviljinn - 28.04.1979, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 28.04.1979, Qupperneq 5
Laugardagur 28. aprll 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 L maí: Kröfugöngur og fundir víða um land 1. mai, baráttudagur verka- lýösins, er á þriöjudag. Aö venju veröa farnar kröfugöngur og haldnir fundir viöa um land. Þjóöviljinn hringdi á nokkra staöi I gær og spuröist fyrir um hátiöarhöldin. Fjölbreytt dagskrá í Vestmannaeyjum 1 Vestmannaeyjum veröur Alþýöuhúsiö opnaö kl. 2 meö kaffiveitingum og Lúörasveit Vestmannaeyja leikur. Þá flytur Jóhanna Friöriksdóttir formaöur Verkakvennafélagsins Snótar ávarp fulltrúaráös verkalýös- félaganna. Jón Kjartansson for- maöur Verkalýösfélags Vest- mannaeyja flytur aöalræöuna en Sveinn Tómasson forseti bæjar- stjórnar les upp og Þorlákur Kristinsson syngur. Einng mun Snótarkórinn halda uppi fjölda- söng. Meöan á þessari samkomu stendur veröur kvikmyndasýning fyrir börn i litla salnum. A mánu- dagskvöld er dansleikur ef undanþága fæst frá skemmtana- skatti eins og venjulega en Jón Kjartansson sagöi aö þaö stæöi i stappi meö þaö. Aö kvöldi 1. mai er einnig ætlunin aö hafa diskó- dans fyrir unglinga en þó aöeins ef skemmtanaskattur fæst undanþeginn. Guðmundur J. Guðmundsson á Húsavík A Húsavik veröur samkoma i Félagsheimilinu kl. 2. Aöalræöu dagsins flytur Guömundur J. Guömundsson formaöur Verka- Sett reglugerð um þorskveiðibannið ( samræmi við þá ákvörðun ráðuneytisins, Útilegufé A laugardaginn fyrir páska fundust 6 kindur á Fjallaskaga i Dýrafiröi. Voru þaö 2 ær og 4 lömb, þar af 2 hrútar. Allar voru kindurnar frá Hrauni á Ingjaldssandi. Voru þær allar vel á sig kom- nar enda snjólétt þarna og fjörubeit og landbeit meö ágætum. A annan i páskum bar önn- ur ærin tveimur lömbum og önnur gimbrin litlu siöar. Hinar eru komnar fast aö buröi. -mhg Kokkteil- keppni Kokkteilkeppnin 1979, hin árlega haröa viöureign barþjóna landsins, veröur háö i Súlnasal Hótel Sögu nk. miövikudag, 2. mai.kl. 19-02. Svo eftirsótt eru áhorfendasæti i þessari keppni, aö sföast var uppselt fyrirfram, en auk keppninn- ar fer fram vinkynning og tiskusýning. Kvöldveröur er framreiddur og dansaö framá nótt, en boröpantanir og miöasala er i anddyri hússins sunnudag og mánu- dag, 29. og 30. april kl. 5-7. sem getið hefur verið í fréttum, að stöðva yfir- standandi netavertfð 1. maí n.k., hefur í dag verið gefin út reglugerð um stöðvun veiða þann dag í þorskfisknet fyrir Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt reglugerðinni eru frá og með 1. maí n.k. afturkölluð öll þroskrisknetaveiðileyf i báta sem á vertíðinni hafa stundað vetaveiðar á svæði, sem að austan tak- markastaf linu réttvísandi austur frá Eystrahorni og að norðan af línu réttvís- andi norður frá Horni. Bátar sem netaveiöar hafa stundaö fyrir Noröur- og Austur- landi á þessum vertiöartima geta haldiö veiöum áfram á þessu svæöi til 13. mai, en frá og meö þeim degi eru allar þorskfisk- netaveiöar umhverfis landiö bannaöar til og meö 20.mai. n.k. Veiöibann þetta gildir þó ekki fyrir báta sem geröir eru út á NA- landi á svæöinu frá Raufarhöfn aö Gerpi, enda hafa bátar á þessu svæöi ekki getaö stundaö veiöar I lengri tima vegna hafiss. Þá er ákveöiö I reglugeröinni aö yfirbyggöum loönuskipum, sem loönuveiöar hafa stundaö á þessu ári,séu bannaöar allar veiöar i þorskfisknet frá 1. mai til 15. júli n.k.,Eins og kunnugt er hefur áöur veriö ákveöiö aö banna allar netaveiöar á tim^ilinu frá 15. júli til 15. ágúst n.k. (Fréttatilk. frá sjávarútvegs- ráöuneytinu) mannasambandsins. Þá munu þeir Hilmir Jóhannesson og Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli flytja mál sitt meö gamansömu ivafi og einnig veröur söngur og spileri. Aö samkomunni standa verkalýösfélögin fjögur en Snær Karlsson formaöur Bygginga- mannafélagsins Arvakurs setur hana. Dansleikur veröur á vegum verkalýösfélaganna laugar- daginn 28. april og diskótek fyrir börn meöan á 1. mai-samkom- stendur en fyrir fulloröna um kvöldiö. Karl Steinar og Svavar Gestsson á Akureyri Á Akureyri veröur safnast saman viö Verkalýöshúsiö kl. 13.30 og siöan veröur útifundur á Ráöhústorgi aö aflokinni kröfu- göngu. 1. mal-ávarp verkalýös- félaganna flytur Jökull Guömundsson vélvirki en ræöu- menn veröa Karl Steinar Guöna- son formaöur Sjómanna- og verkalýösfélags Keflavikur og Svavar Gestsson viöskipta- ráöherra. Ljóö verkalýösins flytur Viöar Eggertsson. Lúöra- sveit Akureyrar leikur fyrir göngu og fundinum en Jökull Guömundsson formaöur 1. mai- nefndar er fundarstjóri. Þá veröur barnasamkoma i Sjálf- stæöishúsinu kl. 15 meö skemmti- atriöum og dansi og hátiöar- sýning á Sjálfstæöu fólki hjá LA Framhald á 18. slöu Árni Jónasson vélstjóri á Litlafelli: Þetta er 6 tíma skip ” Þurfum að fá leiðréttingu á yinnutímanum — vinnum 70 klst. vaktavinnu á viku Verkfallsveröir FFSl fóru um borö l Litlafell i fyrradag vegna oröróms um aÖ skipiö ætlaöi aö láta úr höfn kl. átta um kvöldiö. Þegar Þjóöviljamenn komu um borö i Litlafell, voru verkfalls- veröir nýfarnir þaöan. Viö hittum aö máli 1. vélstjóra, Arna Jónas- son. Hann sagöi aö verkfallsverö- irnir heföu aöallega komiö I þeim tilgangi aö láta skipverja hafa reglur um framkvæmd verk- falisins. „Annars var veriö aö reyna aö fá undanþágu fyrir skipiö,” sagöi hann. „Þeir eru farnir aö kvarta á Akureyri og Sauöárkróki aö eiga ekki svart- ollu á togarana.” Arni sagöi aö þeir heföu leyfi til aö keyra ljósavélarnar á daginn, enda þyrfti aö dytta aö ýmsu og rafalar færu illa á þvi aö slökkt væri á þeim. Litlafelliö kom frá Húsavik á miövikudagsmorgun. „Þetta er 6 tima skip”, sagöi Arni og átti þá viö, aö þaö tæki aöeins 6-8 klst. aö lesta skipiö, þannig aö stoppiö er aldrei langt i landi. „Ég held aö þetta hljóti að veröa langt verkfall, fyrst þaö er skolliö á,” sagöi vélstjórinn. „Viö þurfum ekki sist aö fá leiöréttingu á vinnutimanum. Á þessu skipi vinna menn t.d. meira og minna 70 klst. vaktavinnu á viku, 10 tima á dag.” Arni dró fram kauptaxta vél- stjóra og sýndi blaöamanni. Eftir 5ára starf fær 1. vélstjóri 353 þús. kr. á mánuöi og 2. vélstjóri 291 kr. Deilitala dagkaupsins er 1/30 en i landier deilitalan 1/21,75. „Þegar viö höfum 10 þúsund á dag, þýöir þaö rúmlega 14 þúsund i landi,” sagöi Arni. Ofan á þetta bætist svo vaktaálag, 66 þús. á mánuöi fyrir 2. vélstjóraog 60þús. fyrir 3. vélstjóra. 1. vélstjóri vinnur helmingi meira og fær 145 þúsund kr. i vaktaálag. Árni Jónasson kemur tii skips: „Býst viö löngu verkfaili.” (Ljósm.: eik) Borgin beitti verk- banni 1977 Gunnar H. Gunnarsson deildarverkfræöingur hjá Reykjavikurborg hringdi i Þjóöviljann i gær vegna fréttar um aö 11 ár væru frá siöasta verkbanni. Þaö er ekki rétt, þvi áriö 1977 stóö Stéttarféiag verkfræöinga i launadeilu og setti ihaids- meirihlutinn i borgarstjórn Reykjavikur þá verkbann á félagiö, sem stóö I um háifan mánuö. Þetta er i fyrsta og eina sinn, sem Reykjavíkurborg hefur beitt verkbanni. Hinsvegar hafa atvinnu- rekendur innan Vinnu- veitendasambandsins ekki beitt verkbanni siðan 1968. -eös Járniönaöarmenn á Akureyri ■1 Yfirvinnuþak næstu tfu mánuði Járniðnaðarsveinar á Akureyri hafa samþykkt að vinna ekki nema tak- markaða yfirvinnu næstu tíu mánuðina. Samkvæmt upplýsingum nyrðra er yf irvinnuþakið sett vegna óhóflegs vinnuálags fé- laganna. Hákon sagöi aö menn teldu gjarnan aö laun ýmissa málm- iönaöarmanna væru gifurlega há. Staöreyndin væri hins vegar sú, aö háar tekjur I málmiðnaö- inum væri ekki vegna hárra timalauna heldur vegna mjög mikils vinnuálags sem menn geröust nú þreyttir á. Mál sem snertir Jleiri hendur en okkar9 segir Hákon Hákonarson Hann sagöi aö ekki væri óalgengt aö járniönaöarmenn ynnu 1000-1500 yfirvinnutfma á ári og þvi heföi veriö ákveöiö aö setja á 700 yfirvinnutima þak næstu tlu mánuöina. Aö þvi loknu myndi aöalfundur sveina- félags þeirra á Akureyri meta gildi þessarar tilraunar og taka ákvöröun um framhaldiö. Aöspuröur sagöi Hákon aö fé- lagiö myndi ekki beita höröum aögeröum ef félagar fram- fylgdu ekki þessum nýsettu reglum. „Þetta er ekki mál stjórnarinnar i félaginu heldur meölimanna sjálfra. Vilji þeir vernda sig gegn óhóflegu vinnu- álagi þá er kjöriö aö beita félag- inu i þvi einsog viö erum aö gera tilraun meö núna”, sagöi Hákon. „Þaö má segja aö meö þessari aögerö séum viö aö reyna aö vekja athygli á hinni óhóflegu vinnu sem flestallir launþegar búa viö. Þetta er þvi mál sem snertir fleiri hendur en okkar.” —ÖS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.