Þjóðviljinn - 28.04.1979, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 28.04.1979, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. april 1979 ÞJOÐVILJINN — StÐA 13 Um helgina Mánudagsmyndin næsta: Scorsese lýsir „Litlu Ítalíu” Næsta mánudagsmynd Háskólabiós verður bandariska kvikmyndin MEAN STREET sem Martin Scorsese gerði 1973. Myndin gerist I „litlu ttaliu” sem er hverfi 1 New York og fjallar um líf nokkurra ólánspilta sem búa þar. Martín Scorsese, sem bjó ekki langt frá þessum stað, tekur þarna fyrir sérstætt samfélag þar sem ættar- og vináttubönd byggjast á gamalii hefð itölsku mafiunnar. Reynir Scorsese að draga upp mynd af litriku mannlifi hverfisins. Þetta er þriöja mynd Scorsese og sú sem vakti athygli kvik- myndaunnenda á hæfileikum hans.Hún var valin til sýningar bæöi á kvikmyndahátiöina 1 New York og Cannes. Martin Scorsese er einn af hinum nýju fulltrúum kvikmyndaborgarinnar Holly- wood og hefur veriö settur i flokk meö John Cassavetes, Francis FordCappola, Paul Mazursky og Steven Spielberg. Hann hefur á undanförnum árum gert fjölda þekktra mynda og er THE TAXI- DRIVER liklega þekktust hér á landi. Af öörum myndum hans má nefna ALICE BÝR HÉR EKKI LENGUR sem nýlega var sýnd I Austurbæjarbió, NEW YORK, NEW YORK og THE LAST WALTZ, sem fjallar um lokatónleika hljómsveitarinnar The Band. Þótt Martin Scorsese sé aöeins 36 ára aö aldri, hefur hann skipaö sér i röö fremstu leikstjóra Bandarlkjanna, og hlaut m.a.' þann heiöur aö vera kosinn einn af leikstjórum ársins 1979 af The International Film Guide. Sjálfur segist hann hafa eytt öllum fritima sinum i æsku i kvik- myndahúsum, en siöar nam hann kvikmyndagerö viö University of New York. Myndir Scorsese eru yfirleitt mjög þjoöfélaglegar og tengjast oft trúmálum, enda er hann kaþólskur og ætlaði i fyrstu að læra til prests. Fyrir þá sem hafa áhuga á aö kynnast þvi hvaö yngri kynslóö kvikmyndagerðar- manna i Bandarikjunum er aö gera, þá er MEAN STREET til- valiö tækifæri. Gauks- klukkan í síðasta sinn Leikbrúöuland hefur aö undan- förnu sýnt rússneska brúöuleik- inn „Gauksklukkuna” eftir Prokofjevu. Leikstjóri er Briet Héðinsdóttir, tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson og leiktjöld eftir Snorra Svein Friöriksson. Siðasta sýning veröur í dag, laugardag, kl. 3 e.h. að Frikirkjuvegi 11. Miöasalan er opin frá kl. 1 til 3. Olof Ruín gestur Norræna hússins: Stjórnmál — og menntamál í Svíaríki Olof Ruin prófessor frá Stokkhólmi er um þessar mundir gestur Norræna hússins. Hann er prófessor I stjórnmálafræði viö háskólann i Stokkhóimi og auk þess yfirmaöur áætlanagerðar háskólans. Hann heldur tvo fyrir- lestra i Norræna húsinu, þar sem hann ræðir máiefni sem nú eru ofarlega á baugi. Mánudaginn 30. april kl. 20.30 talar hann um: „Sverige, frán r e g e r i n g ss t a b i 1 i t e t till instabilitet”, og ætlar þar aö kryfja hin stjórnmálalegu valda- skipti i Sviþjóö, hvernig það gat orðiö, að jafnaðarmannastjórn, sem setiö haföi aö völdum i 40 ár, missti völdin i hendur borgara- legri stjórn, og viö hvaöa vanda- mál sú stjórn hefur átt að glima. Lýsir hann ástandinu eins og þaö er nú, hálfu ári fyrir þingkosn- ingar i' Sviþjóð. Sem kunnugt er hefur samstarfið milli hinna þriggja borgaralegu stjórnar- flokka gengiö nokkuö erfiölega, m.a. vegna ósamkomulags um kjarnorkumál. Umræöur um þau mál hafa aukist aö miklum mun i Sviþjóö og Danmörku eftir slysiö i kjarnorkuveri i Bandarikjunum Framhald á 18. siöu Ráðstefna um verkalýðsmá! haldin í Egilsbúð Neskaupsstað dagana 5. til 6. maí 1979 Verkalýösmálaráö Alþýðubandalagsins og kjördæmisráö flokksins hafa ákveöið aö efna til ráöstefnu um verkalýösmál i Egilsbúö I Neskaupstaö dagana 5. til 6. mai nk. A ráöstefnunni veröur fjallaö um kjara- samninga og kröfugerð, llfeyrismál, félags- lega umbótalöggjöf og Alþýöubandalagiö og verkalýöshreyfinguna. Dagskrá: Laugardagur 5. maí kl. 10 Kjaras.amningar og kröfugerð Framsögumenn: Sigfinnur Karlsson, Guö- mundur J. Guðmumlsson, Umræður Lífeyrismál Framsögumenn: Árni Þormóösson, Hrafn Magnússon. Umræöur Félagsleg umbótalöggjöf Framsögumaöur: Arnmundur Backman. Umræður Sunnudagur 6. maí kl. 10 Alþýðubandalagið og verkalýðs- hreyfingin Framsögumenn: Benedikt Daviösson, Hjör- leifur Guttormsson, Helgi Seljan Umræöur og hópstarf. Ráðstefnunni lýkur kl. 18 á sunnudag. Ráðstefnustjóri: Baldur Óskarsson. Ráðstefnan er opin ölium iiösmönnum Al- þýðubandalagsins. Allar nánari upplýsingar gefa Sigfinnur Karlsson og Arni Þormóösson, Neskaupstaö og Baldur óskarsson á skrifstofu Alþýöu- bandalagsins I Reykjavik. Sigfinnur Guðmundur Arni Hrafn Arnmundur í Stúdentakjallaranum Baldur Hjörleifur Benedikt Jóhanna Bogadóttir með grahk' myndir Jóhanna Bogadóttir hefur opnað sýningu á 18 grafikmyndum i Stúdentakjallaranum, Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Jóhanna hefur verið undanfarin 3 ár við nám i Konsthögskolan i Stokkhólmi, en áöur hefur hún numið myndlist i Frakklandi og Danmörku. Jóhanna Bogadóttir hefur oftsinnis haldið einkasýningar og tekiö þátt i samsýningum bæöi hérlendis og erlendis. Sýning Jóhönnu er opin frá kl. 10—23.30 daglega frá 26. april— 6. mai. Lesendum skal þó bent á að i kvöld, laugardag, veröur Stúdentakjallarinn lokaöur vegna einkasamkvæmis. Jóhanna Bogadóttir með nokkur verk sin. V erkalýðsmála- ráð Alþýðubanda- lagsins Kjördæmisráð Alþýðubandalags- ins á Austurlandi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.