Þjóðviljinn - 05.05.1979, Side 3

Þjóðviljinn - 05.05.1979, Side 3
Laugardagur 5. mal 1979. Í>JÓDVILJINN — SÍÐA 3 20 hljóta styrk úr Járnblendið i gang eftir helgina kominnilæknisskoöun.Von væri á fullkomnum mælingartækjum til landsins sem verksmiðjan mun borga en þau ver&a notuð við athuganir á heilsufari starfs- manna eftir að verksmiöjan hefur tekið til starfa að fullu. Guð- mundur mun hafa aðstöðu fyrir starf sitt bæði á verksmiðjusvæð- inu og á sjúkrahúsinu á Akranesi. Að siðustu vildi Guðmundur láta þess getið að hann teldi sigarettu- reyk þann hættulegasta sem menn önduðu að sér. —lg Járnblendið á Grundartanga er strax fariö að spúa. I nótt var það tjara og annað góðgæti sem komu upp I kjölfar upphitunar bræðsluofnsins, en fyrirhugaöer aö hefja bræðslu eftir helgina. Mikill reykjarmökkur yfir Grundartanga sl. nótt i nótt og i morgun tóku margir Heykvíkingar eftir þvi að mikill reykmökkur lá yfir Grundar- tangaverksmiðjunni. Að sögn Hafliða Jónssonar á Veðurstof- unni iá mikili svartur mökkur yfir verksmiðjusvæðinu um 2 ieytið i nótt. Þjóðviljinn hafði samband við John Fenger rekstrarstjóra á Grundartanganum og sagði hann að þessa siöustu daga væri verið að kynda upp ofninn eða „baka hann” eins og sagt er á fagmáli. Við bökunina er hleypt miklum straum á ofninn og er hitinn i ofn- inum um 2000 gráður á celsius. Þar sem ekkert hráefni er haft I ofnunum þá myndast lofttegund við brunann sem er mjög mettuð tjöru. Að sögn Johns Fengers þá óskuðu forráðamenn verksmiðj- unnar á Grundartanga eftir þvi við heilbrigöiseftirlit rikisins aö fá að hleypa þessum tjörumassa beint út um skorstein verksmiðj- unnar framhjá hreinsitækjunum, þvi mikil hætta væri á aö þau (eyðilegðust ef tjörunni yrði hleypt *þar i gegn. Heilbrigðiseftirlitið Allir starfsmenn í viðamikilli læknisskoðun veitti leyfið og hafa þessi fram- hjáhlaup staðiö yfir i nokkurn tima en von er til að ofninn verði orðinn fullbakaður nú um helgina og framleiðsla i verksmiðjunni geti hafist bráðlega. Þá kom einnig fram i viötalinu við John að verksmiðjan hefur nú hrá- efnisbirgðir til eins mánaðar og ætti þvi farmannaverkfallið ekki að setja strik i reikninginn fyrst um sinn. Þjóðviljinn hafði þvi næst sam- band viö Hrafn Friðriksson hjá Heilbrigðiseftirliti rikisins og spurði hann nánar út I mengunar- varnir og hollustuhætti viö Grundartangaverksmiðjuna. Hrafn sagði að þeim i Heilbrigðis- eftirlitinu væri kunnugt um þetta vandamál I sambandi við tjöruna á Grundartanga og hefðu þeir látiö það óátalið. Hann sagði aö þessi tjörulofttegund væri gifur- lega heit þegar hún kæmi út úr ofninum og þvi stigi hún hátt I loft upp og dreifðist út. Hins vegar væru mörg efni i þessari loft- tegund hættuleg en með tilliti til framansagðs og einnig að norö- angarri hefur verið siðustu vikur þá ætti þetta ekki að koma að sök. Aftur á móti sagði Hrafn að þeir i heilbrigðiseftirlitinu hefðu mun meiri áhuga á að fylgjast með þeim reyk sem kemur til með að stiga upp frá verksmiðjunni á Grundartanga þegar framleiðsl- an fer þar i gang eftir helgina. Þeirra starf yrði i þvi fólgiö að sjá til þess að fylgt væri þeim ákvæðum sem er aö finna um mengunarvarnir og hollustu- hætti I starfsleyfi verksmiðj- unnar, auk þess sem þeir myndu fylgjast með hæfni hreinsitækj- anna. Einnig þyrfti að fylgjast náiö með mengunarvörnum innanhúss I verksmiðjunni, en starfsfólki gæti stafað hætta af koks- og kvarsryki og ýmisskonar reyk frá bræðslunni auk þess sem gifurlegur hiti væri samfara bræðslunni sem gæti verið varhugaverður starfsmönnum. Að endingu sagði Hrafn að gott eftirlit væri með heilsufari starfs- manna á Grundartanga og væri Guðmundur Arnason yfirlæknir Sjúkrahússins á Akranesi heilsu- gæslulæknir fyrirtækisins. Þjóðviljinn haföi að lokum samband við Guðmund og vildi hann sem minnst segja um þessi mál. Búið væri aö skoða alla starfsmennina i nokkuð full- Rit- höfunda- • / x • SJOOl 20 rithöfundar hafa hiotið i viðurkenningarskyni 500 þúsund krónur úr Rithöfundasjóði, og ákvað stjórn Rithöfundasjóðs ts- lands þessa úthlutun á fundi sin- um 2. máf s.l. Rithöfundarnir eru: Birgir Svan Simonarson, Böðvar Guðmundsson, Dagur Sigurðar- son, Erlingur E. Halldórsson, Gréta Sigfúsdóttir, Guðmundur L. Friðfinnsson, Guðrún Helga- dóttir, Hafliði Vilhelmsson, Her- dis Egilsdóttir, Jenna Jensdóttir, Jón Dan, Kári Tryggvason, Kristján Karlsson, Óskar Aöal- steinn Guðjónsson, Ragnar Þor- steinsson, Sigurður Róbertsson, Torfey Steinsdóttir, Þóroddur Guðmundsson, Þorsteinn Marels- son, örnólfur Arnason. Stjórn Rithöfundasjóðs Islands skipa nú þessir menn: Ingimar Erlendur Sigurðsson, rithöfund- ur, Kristinn Reyr, rithöfundur, og Runólfur Þórarinsson stjórnar- ráðsfulltrúi Vonum að fleiri verði okkar megin segir PéturPétursson þulur, sem fór víða á vegum „Andófs ’79 i gœr Ásmundur ráðinn fram- kvœmda- stjóri ASÍ A fundi miðstjórnar Aiþýðusambands islands 3. mal s.i. var samþykkt sam- hljóða að ráða Asmund Stefánsson, hagfræðing, sem framkvæmdastjóra ASl. Asmundur mun taka við þvi starfi 1. ágúst n.k. — Ég hef veriö að ganga á milli vinnustaða i dag, sagði Pétur Pétursson útvarpsþulur og einn forustumanna I „Andófi 79”, er við spjölluöum við hann I gær. Pétur sagöist hafa farið til lög- reglunnar, strætisvagnabilstjóra og á Landspitaiann, þar sem hann talaði i matsalnum. Einnig talaði hann við leikara og starfsfólk á Kópavogshæli. — Við leggjum aðaláherslu á kjörsóknina, sagði Pétur. Að sjálfsögðu hvetjum við fólk til að segja nei, en okkur finnst að mestu máli skipti að þátttakan sé almenn I atkvæða- greiðslunni. Við vonum eindregið að fleiri verði okkar megin og bjóðum blaði sósialisma, verka- lýöshreyfingar og þjóðfrelsis þátttöku I að knýja fram verk- fallsréttinn án þess að hann sé keyptur. Við vonum að það verði hlutskipti okkar núna að fylkja okkur að baki forystumanna BSRB, þegar þeir lulla með sitt „nei” upp i stjórnarráð. —eös Hafa hlotið rækilegri undirbúning en aðrar línur ■ Fyrir skömmu geröu starfs- Imenn Rafmagnsveitna rfkisins á Austurlandi samþykkt þar sem þvi er haldiö fram að ’ Byggðalfnur hafi verið byggðar Iá ókönnuðum llnustæðum. i greinargerð sem Jakob Björns- son orkumálastjóri hefur gert 1 fyrir hönd linunefndar segir að Iþessi staðhæfing sé beinlinis röng þar sem norður- og norð- austuriinur hafi hiotið rækilegri Iundirbúning en flestallar aðrar linur sem iagðar hafa verið hér á landi. • Rafiinunefnd, sem skipuð er af Iðnaðarráðuneytinu, var á segir Jakob Björns- son orkumálastjóri árunum 1972-73 falið aö undir- búa lagningu flutningslina frá Suövesturlandi til Norðurlands, Vestfjaröa, Snæfellsness og frá Norðurlandi um Kröflu til Austurlands og suöur til Horna- fjaröar. 1 greinargerð orkumálastjóra segir aö nefndin hafi safnað upplýsingum viöa að, svo sem frá athugúnum á veðurstöövum, frá skýrslum um bilanir á slma og raflinum, frá fólki sem búsett er i grennd við væntanlega linu- leið, I samráði við linudeild RARIK, og kanna jarðveg, mæla langsnið, ræða við náttúruverndaraðila, Póst og sima, Vegagerðina og vinna aðra slika undirbúningsvinnu. Segir að nefndin hafi tekið upp þann hátt, sem sé nýjung hér á landi, aö miða kröfur sinar við staðhætti á hverjum einstökum kafla linunnar, i stað þess að reiða sig á erlenda staðla, svo sem lengst af hafi veriö gert i linulögnum hér á landi til þessa —GFr I Fr I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.