Þjóðviljinn - 05.05.1979, Page 7
Laugardagur 5. mal 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
JOpiö bréf til alþingismanna um einokunarfrumvarp
fjármálaráðuneytisins um innflutning og framleiöslu á
efnum til framleiðslu öls og léttvins í heimahúsum.
Guttormur
Einarsson
Ósvffin vid alþingi
Háttvirtu alþingismenn
Eins og fram hefur komiö I
fréttum hefur f jármálaráöherra
lagt fram á alþingi frumvarp til
laga um breytingar á lögum um
verslun ríkisins meö áfengi, tó-
bak og lyf (277. mál i efri deild,
0570: Frumvarp til laga um
breytingar á lögum nr. 63 28.
maT 1%9 — og samanber lög nr.
59/1971) og er þess krafist aö
rikinu veröi einu heimilt aö
flytja inn, framleiöa og dreifa
hverskonar efnum til fram-
leiöslu öls og léttvins i heima-
hiisum. Hiö sama gildir um
hverskonar lifandi gerla.
Meö frumvarpi þessu veröur
aö raunveruleika sá ötti fjölda
landsmanna, aö fjármálaráöu-
neytiö hagnýti sér þrýsting frá
háværum smáhópum bindindis-
manna, sem um langa hriö hafa
sett fram kröfur um inn-
flutnings- og sölubann á öl- og
léttvinsefni. Fjármálaráöu-
neytiö réttlætir frumvarp þetta
meö þvi aö sýna fram á minnk-
andi sölu i áfengisverslunum
rlkisins og skellir skuldinni á öl-
og léttvlnsgerö i heimahúsum.
Viö fyrstu umræðu um frum-
varpiö i efri deild lagði fjár-
málaráöherra rika áherslu á
þau félagslegu vandamál, er
hann taldi fylgja öl- og léttvíns-
gerö I heimahúsum, og fór þess
i leit aö frumvarpiö yröi tafar-
laust samþykkt. ___ ,
Mergur málsins'er nefnilega
sá, aö þegar sérfróöir menn lesa
frumvarpiö og einnig það, sem
þar stendur á milli llnanna,
kemur i ljós hversvegna fjár-
málaráðherra vill hafa þessa
fljótaskrift á málunum.
Þaö upplýsist semsagt aö
frumvarpiö byggist á:
1. Blekkjandi tilgangi.
2. Fölsuöum aödraganda.
3. Fræöilegri misnotkun á opin-
beru fé.
4. Misnotuöum útreikningum.
5. Uppspunnum félagslegum
vandamálum.
6. Ismeygilegum lagabreyting-
um gegn innlendum ölverk-
smiðjum og drykkjarvöru-
framleiðendum.
7. Fáfræöi fjármálaráöuneytis-
ins um almenna þekkingu á
gerlum.
8. Óskhyggju um 3 miljarða kr.
kjaraskeröingu landsmanna
og jafnháa viöbótar-útgjalda-
aukningu.
Sem afleiðing af þessum
dæmalausu undirstöðum veröur
frumvarpið skefjalaust ein-
ræðisbrölt, ósamboöiö alþingi
íslendingá.
Veröur rtíi leitast viö aö út-
skýra þessa áfellisdóma liö
fýrir liö.
1. Blekkjandi tilgangur
Eins og áöur er vikið aö hafa
landsmenn taliö llklegt aö hiö
opinbera heföi fyrr eöa síöar af-
skipti af innflutningi, fram-
leiðslu og sölu á efnum til öl- og
léttvlnsgeröar I heimahúsum.
Hafa menn reynt aö geta sér til,
með hvaöa hætti sllk afskipti
yrðu, og má þar nefna hug-
myndir eins og sérstaka skatt-
lagningu, lög um einkasölu eöa
algjört bann. Þaö liggur i
augum uppi aö siöasti kosturinn
er jafnframt sá versti. NU hefúr
fjármálaráðherra valiö þann
kostinn aö blekkja þingmenn og
almenning með þvi aö leggja
fram frumvarp til einkasölu-
laga, sem er I rauninni ekkert
annaö en dulbúin bannlög, þar
sem ráðuneytisstjóri fjármála-
ráöuneytisins hefurlýstþví yfir,
aö áfengisverslunin muni
hvorki flytja inn, né veita heim-
ild til framleiðslu á efnum til öl-
og léttvinsgeröar i heima-
húsum, verði frumvarpiö aö
lögum.
2. Falsaður aðdragandi
Eftir að gengiö haföi veriö Ur
skugga um lagaleg formsatriöi,
hófst innflutningur ölgerðar-
efna siöla ársins 1973, en ekki
áriö 1970 eins og sagt er I frum-
varpi f jármálaráöherra. Strax I
þingbyrjun áriö 1974 geröi hátt-
virtur alþingismaður austfirð-
inga hr. Helgi Seljan haröa hrlö
aö innflutningi þessum I fyrir-
spurnartima sameinaðs alþing-
is, þar sem þáverandi dóms-
málaráöherra hæstvirtur hr.
Ólafur Jóhannesson varö fyrir
svörum. Var krafist rannsóknar
á innflutningi þessum, en hún
leiddi ekkert það I ljós, er rétt-
lættgæti banná honum. Þaö var
þvf I góðri trú, sem innflytjend-
ur juku umsvif sin á komandi
árum, og er nú svo komið aö
stærsti innflytjandinn hefur lát-
ið smlöa erlendis og flutt til
landsins sér-hannaöar vélar til
framleiöslu og pökkunar á efn-
um til öl- og léttvinsgeröar I
heimahúsum. Stofnkostnaður
fyrirtækisins af þessum sökum
er nú orðinn umtalsverður.
Þaö var hins vegar ljóst að
ákveðinn hópur bindindis-
manna með sterk Itök I fjár-‘
málaráöuneytinu sat löngum á
rökstólum til þess aö finna leið
til aö stööva þessi viöskipti.
Fyrrihluta ársins 1978 byrjaöi
aö berast Ut sá kvittur aö for-
ráöamenn I fjármálaráöuneyt-
inu teldu sig vera bUna að finna
út aðferö til þess aö stöðva inn-
flutning, framleiðslu og sölu á
þessum vörum. Viö nánari
eftirgrenslan fékkst þetta aö
nokkru leyti staðfest.
Hinn raunverulegi aödrag-
andi og undirbúningur aö frum-
varpi fjármálaráöherra fór
smátt og smátt að taka á sig
formfasta mynd, er fjármála-
ráðuneytiö dembdi yfir lands-
menn tveim stórvægilegum
verðhækkunum á áfengi áriö
1978. Með þessum verðhækkun-
um voru búnar til allsendis ó-
raunhæfar upphæöir i fjárlaga-
frumvarp þaö áriö, sem fyrir-
fram var alveg augljóst að gætu
engan veginn skilað sér. Nú
hefur fjármálaráöherra hins-
vegar lagt fram frumvarp, sem
virðist eiga að þvinga lands-
menn til aukinna viöskipta viö
áfengisverslun rikisins.
Næsta skref I undirbúningi
þessa frumvarps fólst i því, að
þann 4. október 1978 voru sett á
svið tilmæli frá fjármála-
ráöuneytinu til viðskiptaráöu-
neytisins þess efnis, að við-
skiptaráðherra tæki öl- og vin-
gerla útaffrllista. Þetta varö til
þess að feikilegt kaupæði á
hverskonaröl- og léttvinsefnum
greipum sig meðal iandsmanna
og hamstraði fólk á nokkrum
dögum birgöir af hráefnum,
sem viðeðlilegar aðstæöur áttu
aö nægja I allt að 6 til 8
mánuöi. Þetta leiddi til stór-
aukinnar veltu innflytjenda á
hráefnum og samkvæmt ráö-
leggingum hagfræöinga varhún
strax notuð til innkaupa á nýj-
um birgðum hráefna og var þvi
lokiðfyrir áramótin 1978— 1979.
Hér var um að ræöa verulegt
umframmagn af hráefnum sem
nægja til loka ársins 1979.
Þegar tilmælin um gerlana
voru sett á sviö, voru lands-
menn itrekaö varaöir viö I fjöl-
miölum og þeir beönir að sýna
stillingu og hófsemi, en þrátt
fyrir það hafði þetta herbragö
fjármálaráöuneytisins tilætlaö-
an árangur. Salan margfaldaö-
ist, birgöir af ölgeröarefnum i
höndum neytenda uröu langt
umfram þaö, sem eölilegur
tómstundaáhugi afmarkar, meö
þeim væntanlegu afleiöingum
aö sala I ATVR myndi dragast
enn frekar saman til viöbótar
við þann samdrátt, sem fram
haföi komiö viö áöurnefndar
tvær veröhækkanir’á áfengi. Nú
var komiö aö lokaþætti þessa
máls, sem var fólgin í aö semja
dulbúiö bannfrumvarp er stóð á
hinum heimatilbUna grundvelli
og var rökstutt hinum falsaða
aödraganda.
3. Fræðileg misnotkun
á opinberu fé.
Þar sem sterk rök benda til
þess, aö allsendis óskynsam-
legar verðhækkanir á áfengi
1978 hafi átt aö þjóna öörum til-
gangi en þeim einum aö afla
rikissjóöi tekna, væri ekki úr
vegi að fara þess á leit, að skip-
uö yröi sérstök þingnefnd til
þess aö rannsaka allar forsend-
ur fyrir þessum hækkunum, þvi
ef þaö sannaöist aö annarleg
sjónarmið hafi ráöið geröum
embættismanna fjármálaráðu-
neytisins er augljóst, aö þær
hafa valdið rlkissjóöi stórtjóni I
minnkandi áfengissölu, eöa sem
svarar 1 1/2 miljaröi króna árið
1978 og meö ófyrirsjáanlegum.
afleiöingum áriö 1979.
4. Misnotaðir út-
reikningar.
I greinargerð frumvarpsins
kemur fram, aö ölgeröarverk-
fræöingur hafi reiknað út þaö
hugsanlega áfengismagn, sem
framleiða ætti Ur hráefnisinn-
flutningi á öl- og léttvinsefnum
stærsta innflytjandans áriö
1978. Taldist honum svo til, aö
framleiöa mætti Ur þeim hrá-
efiium alltaö 250 þúsund brenni-
vlnsflöskur. Þaö kemur hins-
vegar hvergi fram i frumvarp-
inu að hráefnisinnflutningur
1978 væri jafnframt að mestu
hráefnisinnflutningur fyrir áriö
1979: Þvert á móti er á lævls-
legan hátt látiö ltta svo út, aö
hráefnisinnflutningurinn 1978 sé
jafnframt heildarneysla þess
árs. Nánari athugun viröist
einnig leiöa i ljós, aö ölgerðar-
verkfræöingnum hafi oröiö stór-
Íega á I messunni viö út-
reikninga sina, þar sem sýnt
þykir aö hann hafi reiknaö
framleiöslumagniö Ut frá
itrustu nýtni hráefnanna á
tæknilega fullkomnum verk-
smiðjugrundvelli, sem er á eng-
an hátt sambærilegt viö öl- og
léttvinsgerð i heimahúsum.
5. Uppspunnin félags-
leg vandamál
Er fjármálaráöherra mælti
fyrir frumvarpinu viö fyrstu
umræöu I efri deild þann 30.
apríl,lagöi hann rika áherslu á
nauðsyn þess, aö það yröi
samþykkt hiö bráöasta, ekki
sist vegna hinna félagslegu
vandamála, er skapast heföu
vegna öl- og léttvinsgeröar i
heimahúsum og á vinnustöö-
um(??). Hvaö ráöherra hefúr
fyrir sér I þessum efnum er hul-
in ráðgáta og bersýnilega get-
sakir einar.
Svo furöulegt sem þaö kann
aö viröast þá er þaö staðreynd,
aö öl- og léttvinsgerö I heima-
húsum býr yfir þeim sjálfvirka
varnagla gegn félagslegum
vandamálum, aö framleiöslan
veröur undantekningarlaust aö
fara fram 'öngu áöur en neysla
hefst. Ef sýnt þykir aö heimilis-
iðnaðurinn muni leiöa af sér
félagsleg vandamál, er nægur
fyrirvari til viöeigandi ráöstaf-
ana.
*Frá þvi aö innflutningur og
sala á öl- og léttvinsefnum hófst
hér á landi, hafa af og til veriö
geröar fyrirspurnir til lögreglu-
yfirvalda um þaö, aö hve miklu
leyti lögreglumál tengd ölvun
stöfuöu af neyslu heimagerös
öls eöa léttvlns. í ljós hefur
komið að hlutfall slikra mála i
heildartölunni er hverfandi lltið
og breytist nánast ekkert.
6. ísmeygileg laga-
breyting gegn inn-
lendum ölverksmiðjum
og drykkjarvörufram-
leiðendum
I frumvarpi þessu er gerð
grein fyrir þvi i athugasemdum
viö 2. grein þess, aö fella skuli
niöur setningarhlutann „ann-
arra en öls” úr 2. málsgrein 2.
greinar núgildandilaga er fjalla
um réttindi ÁTVR. Þetta hefúr
það í för með sér, aö ATVR
hefur þar meö öölast réttindi til
samkeppnisiðnaöar gegn þeim
tveim ölgerðum, er nú starfa i
landinu. Ollu alvarlegri er sú
staöreynd aö frumvarpiö gerir
ráö fyrir ótakmarkaöri heimild
til þess aö starfsmenn toll-
stjóraembættisins og áfengis-
verslunarinnar geti kallað allt
þaö bruggefni, sem þeim þókn-
ast, jafnvel venjulegan strásyk-
ur ef svo ber undir, og geta þeir
þannig gert greinarmun á inn-
flutnings- og iönaöarfyrirtækj-
um aöeigin geöþótta. Hér virö-
ist fjármálaráöherra ætla aö
leiða alþingi tslendinga I þá
fornfrægu fallgryfju aö setja
lög, er auka mjög hættu á hvers-
konar spillingu meðal starfs-
manna rikisins.
Semdæmi um botnleysifrum-
varpsins má benda á, aö þaö
dregur undir einkasölu rikisins
hverskonar appelslnusafa,
grape- og eplasafa (tollftokkar:
20.07.11 til 20.07.70.) sem Sól h.f.
og Mjólkurbú Flóamanna dreifa
á innlendan markaö undir vöru-
merkjunum Floridana ogTropi-
cana, og hiö sama gildir um all-
an fullunninn drjlckjarsafa úr
ávöxtum, sem fluttur er til
landsins. Ef til vill er hér fundin
lausn á offramleiösluvanda
mjólkurframleiöenda, þar sem
auövelt yröi aö skrúfa fyrir
þessar samkeppnisvörur, veröi
frumvarpiö aö lögum, og um
leiö skapa sölumöguleika fyrir
mjólkurmysu, sem er nothæf til
bruggunar i hallæri. A sama
hátt falla hráefni þeirra öl-
geröarverksmiöja, sem starfa I
landinu undir þessi einkasöluá-
kvæöimeö þeim afleiðingum aö
ATVR getur skrúfaö fyrir þau,
sé þaö ætlunin aö koma á fót öl-
gerö I eigu rfkisins, með hinni
alþekktu tilhneigingu til einok-
unar.
7. Fáfræði fjármála-
ráðuneytisins um al-
menna þekkingu á öl-
og víngerlum.
Viö lestur frumarpsins kem-
ur í ljós, aö höfundar þess eru
sorglega ófróöir um þá almennu
þekkingu, sem landsmenn hafa
aflað sér á undanförnum árum,
meö hvaöa hætti er auövelt aö
rækta hverskonar öl- og vin-
gerla, sem fást af innfluttum á-
vöxtum, bæöi þurrkuöum og
nýjum, og getur almenningur
vakiö upp kröftuga gerla meö
lltilli fyrirhöfn. Má benda á I
þessu sambandi að yfir ' 40
bókatitlar sérhæfðra kennslu-
bóka hafa verið seldir I bóka-
verslunum viösvegar um landiö
undanfarin ár, en i flestum
þeirra er kennt hvernig rækta
skuli ger. Það er þvi tómt mál
að tala um fyrirbyggjandi að-
geröir með þvi að hefta inn-
flutning á geri, þvi þaö mundi
einungis leiða til átroönings á
bökurum af þeim, sem skortir
gerla og ekki gefa sér tima til
þess aö rækta þá.
8. Óskhyggja um 3 mil-
jarða kr. kjaraskerð-
ingu
Niðurlag á röksemdum þeim,
sem færöar eru fyrir frumvarp-
inu, er spásögn um 3 miljarða
kr. sölusamdrátt I ATVR áriö
1979 og viröist tilgangur frum-
varpsins sá aö fyrirbyggja aö
hún rætist, eöa með öörum orö-
um, frumvarpið er sett fram
sem óskhyggja um 3 miljarða
króna aukningu á áfengiskaup-
um landsmanna i ATVR.
A frumvarpinu sést, að fjár-
málaráöuneytiö telur samdrátt
i sölu áfengis I ATVR eingöngu
stafa af öl- og léttvlnsfram-
leiðslu i heimahúsum. Er þar
ekkert tillit tekiö til þess aö
verölag á áfengi er nú alsendis
óraunhæftoghefur svo veriðfrá
þvl aö verö þess var hækkaö
1978.
Þá viröast menn ekki gera sér
grein fyrir þvl, aö hinn mikli og
ört vaxandi feröamanna-
straumur til og frá landinu
hefur I för með sér stóraukinn
innflutning á löglega tollfrjálsu
feröamannavini, og er nú svo
komiö, aö jafnvel bindindis-
menn láta ekki hjá líða aö taka
meö sér fullan skammt inn i
landiö, er þeir koma erlendis
frá, þar sem fullvissa um hag-
kvæm innkaup fyrir ættingja
eða vini ræöur gjörðum.
Rétt er aö það komi fram, að
um langt árabil hefur þrifist i
landinu sú iöja aö brenna vln
(eima), sem er hér sem annars
staöar talinn hinn alvarlegasti
glæpur gegn áfengislöggjöf
hvers lands. Leikur nú grunur á
þvl, aö þessi iðja hafi aukist
verulega á siöustu árum i kjöl-
far hækkandi verðlags á áfengi,
oger súiöjaí eöli sinuafar fljót-
virk aö spilla sölu ATVR.
Það er viötekin siöaregla
þeirra, er I tómstundum sinum
nostra viö aö búa til ljúffengt
öl og léttvin I heimahúsum,
aö koma hvergi nærri landa-
bruggi, sem á ekkert skilt viö
þau listrænu visindi, sem eru
forsenda fyrir vel heppnuöu öli
og léttvlni. Þvi miöur viröist lit-
iU vilji til þess hjá f jármálaráð-
herra aö gera greinarmun á
þessum tveim óliku hópum i
þjóöfélaginu og er svo aö sjá,
sem ölgeröarmenn eigi aö liöa
fyrir gerðir landabruggara.
Háttvirtu alþingismenn.
Samkvæmt ofansögðu tel ég
frumvarp fjármálaráöherra
bæði óþinglegt og ólýöræðislegt
frumhlaup, sem þjónar þeim til-
gangi einum aö skeröa lýöræöi
og viöskiptafrelsi landsmanna,
um leiö og þaö felur I sér ódc-
hyggju um 3 miljarða króna
kjaraskeröingu á skattfrjáisri
verömætasköpun I heimilisiðn-
aöi og jafnhárri útgjaldaaukn-
ingu landsmanna til ÁTVR, eöa
samtals 6 miljaröa króna versn-
andi afkomu fólksins I landinu.
Með þessum rökum og öörum
þeim er fram koma I greinar-
gerö þessari vil ég hvetja yður
til þess aö greiöa atkvæöi gegn
frumvarpi þessu.
Viröingarfyllst
Guttormur Einarsson.
(Utiö eitt stytt.)