Þjóðviljinn - 05.05.1979, Síða 9
Laugardagur 5. mal 1979. ÞJOÐVILJINN — SIDA 9
Minning:
Eysteinn Halldór Einarsson
F. 19. ág. 1925 — d. 16. apríl 1979
Þaö var eins og eitthvaö brysti
innra meömér, þegar fréttin um
brunann i Hafnarfiröi barst mér á
skírdag. Halldór frændi minn
haföi brennst og fengiö reykeitr-
un og lá meövitundarlaus á
Borgarspítalanum. Sföan hófst
þrúgandi biö, sem lauk á annan
páskadag, 16. april s.l., en'þá lést
Halldór án þess aö hafa komiö til
meövitundar. Þar meö slokknaöi
siöasti vonarneistinn, sem liföi i
svo mörgum þessa erfiöu daga.
Mörgum okkar hefur liklega ver-
iö álika innanbrjósts og Grlmi
Thomsen foröum, eins og fram
kemur I þessunl ljóöllnum:
Eftir ein á strönd viö stöndum,
störum eftir svörtum nökkva,
sem aö burtu lifs frá löndum
lætur út á hafiö dökkva.
Farmurinn er enn fagri laukur
felldur snöggt af noröanvindi,
farmurinn er enn fallni haukur,
farmurinn er lifsins yndi.
Eysteinn Halldór Einarsson
fæddist i Ólafsfiröi þann 19. ágúst
1925, sonur hjónanna Dagbjartar
Sigvaldadóttur ogEinars Einars-
sonar. Þar ólst hann upp i stórum
systkinahópi, ogaö lokinni skóla-
göngu vann hann ýmis störf sem
buöust á þeim tima. Þetta var á
kreppu- og styrjaldarárunum, og
hefur þessi timi áreiöanlega sett
mark sitt á hann eins og svo mörg
ungmenni, sem voru aö alast upp
á þessum árum.
Til Siglufjaröar fluttist Halldór
slöan áriö 1948 og hóf þar búskap
meö unnustu sinni Guörúnu
Bæringsdóttur. Þau Halldór og
Guörún keyptu efri hæö hússins
Eyrargötu 14 meö foreldrum
minum og þar fæddust börn
þeirra 3, María, Einar og Ólafur.
Áriö eftir aö þau Halldór og
Guörún fluttust til Siglufjaröar
eöa þann 16. april 1949 gengu þau
svo I hjónaband. Þaö var þvi 30
ára brúökaupsafmæli þeirra dag-
inn sem Halldór lést.
A Siglufiröi lauk Halldór
sveinsprófi i netagerö og starfaöi
nær óslitiö i þeirri grein, fyrst á
Siglufiröi og siöar hér syöra eftir
aö þau hjónin fluttust tfi Hafnar-
fjaröar áriö 1963. Halldór var
ágætur netageröarmaöur og
samviskusamur I starfi. Hann lét
sérannt um kjör stéttar sinnar og
hefur unniö óeigingjarnt starf i
þágu stéttarfélags sins. 1 mörg ár
hefur hann veriö formaöur
sveinafélags netageröarmanna,
Nótarinnar, og nú siöustu árin
einnig formaöur lifeyrissjóös fé-
lagsins. Halldór var félagslyndur
maöur, glaölyndur og snaggara-
legur i hreyfingum. Viömót hans
og ljúfmennska I garö náungans
aflaöi honum margra vina og
trausts þeirra sem kynntust hon-
um.
Eitt áhugamál átti Halldór öör-
um fremur, enþaö var söngurinn.
Hann haföi góöa söngrödd og
haföi yndi af þvi aö syngja og
gleöjast á góöum stundum. Meö-
an hann bjó á Siglufiröi söng hann
lengst af meö karlakórnum Visi
og spilaöi þá einnig i Lúörasveit
Siglufjaröar. Og eftir aö hann
fluttist til Hafnarfjaröar söng
hann meö karlakórnum Þröstum
og var formaöur kórsins s.l. tvö
ár. Þvi er nú skarö fyrir skildi,
þegar hljómmikil rödd hans er
þögnuö. Og veit ég aö nú þykir
mörgum sárt, þegar forystu hans
nýtur ekki lengur viö.
A æsku- og unglingsárum min-
um kynntist ég vel heimili Dóra
og Gunnu, einsogþau voru oftast
kölluö. Þangaö var gott aö koma
og þar mætti maöur alltaf hlýhug
og vingjarnlegu viömóti. Þau
hjónin voru mjög samrýnd og
gætin i oröum og athofnum.
Eyöslusemi og óregla var þeim
ekki aö skapi og þau voru sam-
taka i þvi aö skulda öörum helst
aldrei neitt, aö eyöa aldrei meiru
en aflaö var. Þetta lífsviöhorf má
eflaust rekja til uppeldis þeirra i
foreldrahúsum og þeirra tlma
sem þau ólust upp á. En alltaf
voru þau boðin og búin aö rétta
þeim hjálparhönd, sem meö
þurftu. Þaráttuþvimargirhauka
I horni.
Nafn Halldórs veröur kannski
ekki skráö á spjöld mannkyns-
sögunnar, en þaö veröur skráö
skýrum stöfum i hugi þeirra fjöl-
mörgu samferöamanna sem
kynntust honum. Þaö er þvi ekk-
ert undarlegt þótt erfitt sé aö
kyngja þvi, þegar hraustur maö-
ur á besta aldri er hrifinn svo
skyndilega burtu. Lái mér hver
sem vill, þótt ég neiti að skilja til-
ganginn meö þessum ósköpum.
Meö þessum fátæklegu oröum
kveö ég þig, frændi, og þakka þér
fyrir tryggöina og vinarþeliö i
garö minn og fjölskyldu minnar
bæöi fyrr og siöar. Megi allar
helgar vættir fylgja þér yfir móð-
una miklu. Þú haföir gott hjarta,
og um þig verður aldrei sagt aö
þú hafir niöst á þvi sem þér hefur
veriö trúaö fyrir. Betra væri aö
fleiri heföu veriö eins og þú, þá
væi heimurinn eflaust betri.
Guörún, Maria, Einar og Ólaf-
ur, ykkur samhryggist ég af ölíu
hjarta, þvi þiö hafiö misst mikið
svo aöorö fá þar engu um breytt.
Dagbjörtu, móöur hans, biö ég
huggunar i sárum harmi yfir
sonarmissinum. Systkinum hans
öllum og venslafólki votta ég
samúö mina og hryggö.
Björn Þorsteinsson
Minning:
Sigurður Magnússon
F. 26.10 1918 — D. 25.4 1979
Um 1950 voru Ibúar Breiödals-
vikur aðeins um 40 manns. Flest
eldra fólkiö búið aö búa þar lengi
en yngri kynslóöin beinir
afkomendur þess eldra. Fædd og
uppalin þarna.
Það vakti þvi ekki litla eftirtekt
þegar I þorpið fluttist ný fjöl-
skylda ættuö aö noröan og vestan.
A þessum árum var aö lifna yfir
þessu litla byggöarlagi; Útgerö
aö eflast, hafnarskilyröi bætt,
vélvæöing aö margfaldast á öll-
um sviöum og nýtt frystihús risiö.
En það var einmitt aö þessu
frystihúsi sem Sigurður Magnús-
son réöist sem vélgæslumaöur.
Siguröur fluttist til Breiödals-
vikur i blóma lifsins. Enda þótt
aöalstarf hans lengst af upp frá
þvi yröi innan veggja hraöfrysti-
hússins fer þvi fjarri aö hann hafi
ekki komið viöar viö.
Breiðdælingar uppgötvuöu
fljótlega að hér var kominn maö-
ur sem kunni ýmislegt fyrir sér
fleira en að láta vélar frystihúss-
ins snúast. Þarna var kominn
þúsund-þjala-smiður sem margir
áttu erindi viö. Ef þaö var ekki aö
gera viö einhverja maskinu eða
búa um svöðusár. Þá var þaö
kannske aö fá sig klipptan ellegar
bara að skeggræða um gang
himintungla.
Ég átti þvi láni aö fagna aö vera
samverkamaöur „Sigga Magg”
æöi oft á meðan ég bjó i Breiðdal.
SAMSTAÐA
var að koma út
í 7. hefti er löng grein um íran, þrjár greinar
um Kampútséu frá mismunandi sjónarmiðum,
auk greina um Víetnam, Tæland og
maóismann.
SAMSTAÐA hefur einkum birt greinar á
ástandi mála i 3. heiminum. 1 fyrri heftum hef-
ur verið fjallað um mörg lönd Afriku og
rómönsku Ameriku.
Nú hefur grundvöllur timaritsins verið vikk-
aður, það á einnig að taka fyrir islensk málefni
og sósialisk fræði.
SAMSTAÐA er óháð timarit, opinn umræðu-
vettvangur islenskra sósiaiista, þar geta þeir
viðrað mismunandi hugmyndir sinar.
Áskriftargjald er 2000 kr. fyrir tvö tölublöð —
36 þéttprentaðar siður.
Gerist áskrifendur með þvi að greiða 2000 kr. á
póstgiró 21604-6 eða með þvi að hringja i sima
21604.
Þeirsem gerast áskrifendur fyrir 15. mai, fá 7.
tbl. heimsent.
Þannig unnum viö t.d. saman eitt
sinn, part úr sumri, viö aö byggja
ibúðarhús á Breiðdalsvik. Hann
var „meistarinn” en ég „lærling-
urinn” En ég læröi fleira þetta
sumar heldur en ýmislegt þaö
sem viðkemur húsbyggingu. í
minum augum var „Siggi Magg”
okkar Sókrates þarna á Breiö-
dalsvik. Hann var aö mér fannst
heima I öllum hlutum. Og hitt þó
sinu merkilegra aö hann var svo
lifsreyndur á margan hátt aö
hann gat oft og iðulega dæmt um
málin af eigin reynslu.
Eitt sinn kom ég á leiksýningu I
frystihúsinu á Breiödalsvik. Þar
voru nemendur Sigurjóns i Snæ-
hvammi aö færa upp leikrit meö
góöri aöstoö „Sigga Magg” Siöar
nutum viö ungmennafélagarnir
góös af þessum hæfileikum hans
eins og t.d. þegar „Hreppstjórinn
á Hraunhamri” var sýndur i
Staöarborg undir stjórn hans.
Einn góöviörisdag 1961 kvaddi
ég dyra hjá Siguröi snemma
dags. Ætlunin var aö viö lykjum
sérstökum áfanga i verki sem viö
vorum með I félagi, áöur en rign-
ing truflaöi okkur. Eftir aö hafa
litið á bát sem Sigurður var meö i
smiöum I bilskúrnum sinum, fór-
um viö skemmstu leið á vinnu-
staö. Yfir holt og hæöir. A leiöinni
reyndum viö meö okkur, hvor
þekkti fleiri plöntur úr Islands-
flórunni sem alstaöar blöstu viö á
leiöinni. Hér fór sem endranær.
Siguröur sannaöi mér staögóöa
þekkingu sina I þessum náttúru-
visindum.
Þaö er af vinnudeginum aö
segja aö hann varð okkur báöum
ódrjúgur. Nokkru fyrir hádegi
kemur sendimaður meö miklum
asa og biöur Sigurö aö koma hiö
snarasta niöur I fiskverkunarhús.
Þar haföi ungur piltur slasast á
andliti i vinnunni. Siguröur fór
auövitaö samstundis og veitti þá
hjálp sem nauösynleg var. En það
er einmitt þessi þáttur i æfistarfi
Siguröar Magnússonar sem
Breiödælingar munu lengst muna
honum. Sjálfsagt væri hægt aö
nefna hundruö tilfella þar sem
hann greip málið læknistökum og
skipti sköpum um framvinduna.
En þaö er af sjálfum mér aö
segja þennan áöurnefnda
sólskinsdag aö ég hvarflaði fljótt
frá vinnunni þegar „meistarinn”
haföi veriö kvaddur burtu. Ég
slóst i för meö enskum jaröfræö-
ingi sem var aö láta ditta aö bil
sinum og gekk meö honum spöl
um kletta og hliðar.
Næsta vinnudag okkar Siguröar
rifjaöi ég svo upp þá speki sem ég
hafði numiö hjá jarðfræöingnum.
En þetta nefni ég hér vegna þess
að liklega hefur þetta veriö i eina
skiptiö sem ég var veitandi en
Siguröur þiggjandi.
Ég hef verið tiöur gestur á
Breiödalsvik 2 siðustu áratugina
þótt ég hafi búið mislangt I burtu
þaöan. 1 siöasta skipti sem ég
hitti „Sigga Magg” var sunnu-
daginn 24. mars sl. Viö gengum
hvor fram á annan skammt frá
hans gamla vinnustaö, Hraö-
frystihúsi Breiödælinga. Eftir aö
hafa spurst stuttlega frétta af
hvors annars fjölskyldu og ég
frætt hann um færöina frá Horna-
firöi afgreiddum viö nokkur þjóö-
félagsvandamál á staðnum, ell-
egar spáöum um gang mála á
stjórnarheimilinu. Svo þegar aö-
steöjandi bill kraföi okkur um aö
vikja svo hann kæmist leiöar
sinnar, kvöddumst viö, vissir um
endurfund fljótlega. Likt og nú
verður mér söknuður i huga næst
þegar ég heimsæki mina ættar-
byggð Breiödalsvik og engan
„Sigga Magg” er lengur aö hitta
utan dyra eöa innan.
En sárastur er söknuöurinn
fjölskyldu hans sem nú á á baki
að sjá traustum heimilisfööur.
Birnu Þorsteinsdóttur og börn-
um sendi ég hugheilar samúöar-
kveöjur.
Heimir Þór Gislasor
Laugardag 5. maí
kl 16:00
Sunnudag 6. maí
kl 15:00
kl 16:00
>> »
OLGF RUIN prófessor frá Stokkhólmi:
„Svensk universitets- och högskolepoli-
tik”. Fyrirlestur.
ERIK LARSEN, forstöðumaður Listiðn-
aðarsafnsins i Kaupmannahöfn leiðbeinir
um listiðnaðarsýninguna i sýningarsölum
Norræna hússins.
Danski rithöfundurinn OLE SARVIG:
„Moderne malerkunst”. Fyrirlestur.
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
v