Þjóðviljinn - 05.05.1979, Page 10

Þjóðviljinn - 05.05.1979, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. mal 1979. eftiraðheyrastoft um ókomin ár. Þegar hér var komið sögu var uppljómun komin á kreik meðal áheyrenda og athyglin beindist aö flytjendum, fyrst i ágætum ein- ræðum flautunnar I Flauto del Sole og að lokum i þriðja e-moll verki tónleikanna, sónötu Handels sem var fögur og fjöl- skrúðug barokktónsmiö og mjög vel leikin. Manúela fór á kostum og baldýrði endurtekningarnar með galöntum slaufum frum- sömdum á staönum eins og vera ber; flestar i ágætu samræmi viö stll og anda timans. Helga hefði aö skaölausu mátt breiða meira úr sembalnum i forte-niðurlög- um, m.þ.a. i'treka eða arpeggiiera hljómana. Stöllurnar hlutu að endingu vel útilátið og veröskuldað lof i lófa. Það truflaði dálitið, hve illa hafði tekizt að kefla klukkuspil kirkjunnar sem „skarst i leikinn” á korters fresti, auk þess sem heyrðistóviökomandi skrjáf I ein- hverjum pólturgeisti aftan við ræðustól sem þó tókst að þagga niður i. Verra var að stöðva suðið i loftljósum iþróttaskemmunnar sem á lágværum stöðum mynduðu óhagganlegan orgelpunkt einhvers staðar ná- lægt tóninum G. A sunnudaginn var aö auki svo mikið rok aö skrölti i loftræstingunni. Þó voru þetta smámunir miðaö við þá ágætu stemmningu sem rikti á tónleikunum i heild. A SUNNUDAGINN 29.4. söng Passiukórinn nefnilega I gegnum, fram hjá og út fyrir allan stund- legan klið manna og muna. En ekki með háklerklegu vandlæti um synd og eymd og táradali, heldur panþefekri lofgjörð til llfs og moldar og mannlegs breysk- leiká,óður til gleðinnar með frum- legri tónhugsun sjötugs snillings sem var alltaf sami rjóði sveita- piltur innst inni. Arstfðir Haydns eru meistara- verk, einkum hvað hvaröar beit- ingu kórs og hljómsveitar og benda að sumu leyti fram að tón- skáldum eins og Mendelssohn og Berlioz. Það er mælt, að hið slðasta meiriháttar verk Haydns sé jafnframt unglegast alira i anda. Hversu satt það er, má glöggt heyra, ef maður gerir samanburð tii dæmis á flutningi Passiukórsins og „fullorðnari” kór á einhverri hljómplötu' ég hafði kór Berlinaróperunnar til viðmiðunar og var sá söngur hvorki honum né verkinu i hag. Það beinlinis nýtur sin aðeins flutt af eldmóði og ferskleika ungs kórfólks sem getur „gefið I” á fallegan hátt eins og passiukór- inn. Roar Kvam, stjórnandi hans ogstofnandi getur veriðstoltur af afrakstri sex ára kórstarfs. Flutningur Arstiðanna var og verður væntanlega aftur á tón- leikum kórsins I Háskólabiói i Reykjavik sunnudaginn 6. mai n.k. kl. 14 (ef veöurguöir leyfa) „kórviðburður vertiðarinnar”. En kórinn þarf að brosa meira. Þaö gengur ekki að syngja ,,es lebe der Wein!” eins og um væri að ræöa „passus et sepultus est”. Einsöngvararnir Ólöf K. Harðardóttir, Jón Þorsteinsson og Halldór Vilhelmsson skiluðu arium sinum, dúettum ogterzett- um yfirleitt afbragðsvel miðað við nauman samæfingartima ut- an eins terzetts, sem bókstaflega ætlaöi að leysast upp i frumeindir eins og kjarnakljúfurinn i Harris- burg,áðuren Halldórgat bjargað málunum og komið einsöngstrió- inu aftur I fasa við hljómsveitina við aöenda rétt i hendingarlok en kösin stafaði af vantöldum þögn- um fyrsta innkomanda. Jón hefur fengið dekkri og kringdari rödd siðan maður heyröi siðast I honum og fór hon- um mjög vel. „Diksjón” og fram- burður hans var til fyrirmyndar. Þaö sama átti reyndar einnig við kórinn samanboriö viö flesta þekktustu islenzku kóra. Norö- lenzka harðmælið! Resitatif og einstaka ariur eru veikustu hlekkir I verkinu og lengja það óþarflega mikið i heildarflutningi á einum tónleik- um. Ef óhægt hefur veriðum vik aö flytja t.a.m. helming þess i senn á tvennum tónleikum i röð (vegna kostnaðar?) heföi vel mátt athuga að sleppa nokkrum resitatifum og arium. Annars var stjórn Roars Kvam ferskleg og tempó fjörug i meira lagi. Þótt Framhald á 18. slöu. Passiukórinn á æfingu meö S.í. I íþróttaskemmunni. NORÐLENDINGAR hafa ein- hvern veginn aldrei viljaö sætta sig viö aö sitja við sama hlut og 'aðrir landsmenn. Strax á 10. öld heimtuðu þeir fjögur vorþing i stað þriggja eins og voru i hinum fjórðungunum. Og komust upp með þaö. Auðvitað. Eftir tilkomu þéttbýlis hefur Akureyri jafnan verið önnur höfuöborg landsins. Auövitað. Hrá stærð skiptir ekki öllu. Kópa- vogur og Hafnarfjörður eru hálf- gerðir menningarlegir svefnbæir út af nálægðinni við Reykjavik. A Noröurlandi skagar Akureyri hátt og sannfærandi yfir önnur byggðarlög innan 200 km radiuss eins og drottning I riki sinu. Hér hafa innfæddir lengst af ekki leg- iö á liði sinu við aö sýna fram á sjáifstæði sitt i sem flestum greinum. Nýlegt dæmi eru Tón- listardagarnir sem stóöu yfir i þriðja sinn nú um síðustu helgi. Andstætt Múhameð sem lét sig hafa að ganga til fjallsins vilja menn hér ekki una við það eitt að ganga suöur á listahátið á tveggja ára fresti. Hér hafa afkomendur landnámsmannsins spengilega hlaðið sitt eigið fjall — minna en stóri bróöir i Reykjavik aö visu, en þar 1 móti óskorin eign Akur- eyringa. Og þar hefur veriö eldur uppi, sem sagt, nú þriðja árið i röð. Hvaö sem siðar kann að verða. Þó að óskabarn æðri tónlistar á Islandi, Sinftaiuhljómsveitin hafi tekiö þátt I þessum tónlistardög- um nyröra er ekki þar með sagt að höfuöborgarblöðin hafi skrifað mikiö um hátiðina, sizt með gagnrýnum augum, fram aö þessu. Kannski ekki nema von, þegar haft er i huga hversu ný af nálinni hún er og hve ein megin- uppistaða hennar, Passiukórinn er ungur að árum. Hvaö undir- ritaðan snertir, þá haföi honum borizt orö af framförum kórsins og þvi með, að hann væri að leggja slöustu hönd á flutning eins lengsta kórverks sem islenzkir kórar yfirleitt hafa færzt í fang. Arstiöir (ekki „Arshátiðir” eins og veizluglatt siðdegisblað upp- nefndi þaö nýlega) Josephs Haydn. Svo vill til aö núverandi músikskribent Þjóðviljans er fæddur undir fogli Eyjafjarðar og þótti honum renna blóöið til skyrtunnar er hann réöst fljúga norður að „dekka” viðburðina. Heldur var kuldalegt um að lit- ast iVöölaþinghá. Heiöin var ötuð snjóskellum langleiðina niður i byggö og gustaöi grimmum af gamalkunnum andstæðingi lýð- veldisins sem var greinilega skammt undan. Það var eins og pólviörið væri að búa sig undir að taka fjörðinn með áhlaupi — eins og raunar varð, þegar verst gegndi. KONSERTHOLL Akureyrar og Roar Kvam: fjörug tempó. „Jauchzet Gott in allen Landen” sem samiö er 42 árum áður. Gott efiii og góö skólun hrekkur langt og náði viöast hvar aö breiða yfir þá óumflýjanlega staðreynd að röddin er komin af léttasta skeiði. Hversu vel frúnni fellur að syng ja Mahler var ekki eins ljóst. Sá er þetta ritar er -mginn sér- stakur Mahleráhangandi og þótti honum einhvern veginn ekki nóg til söngsins I lokaþættinum koma. LAUGARDAGINN 28.4. léku Manúela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir samleik á flautu og sembal i Akureyrarkirkju sem hófst kl. 17. Prógrammiö var það sama og verið hafði i Dan- merkurreisu dúósins á siðastliðn- um vetri og aflað ágætra undir- tekta þar. Einhverra hluta vegna reyndist hlust og athygli undirritaös hálf-þorrin fyrir hlé af syfju og gekk verst að meðtaka 18. aldar verkin tvö, e-moll sónötur Quantz’s og J.S. Bachs. Hvelfing- ar kirkjunnar tóku freka tiund af tóni flautu og sembals; það eina sem að mér barst var eitthvert schnurrandi og knurrandi barbítúratj vigt#en vélrænt. Þarvoru einnig tvö nútlmaverk, Cantus Ieftir Egil Hovland, sem var alveg skinandi eyrnasperra fyrir gæða sakir svo og sembals- einleiksstykki eftir Atla Heimi Sveinsson, Frumskógar sem náði sömu áhrifum fyrir hið gagn- stæða, hastarlegur brandari um brotna spiladós. Eftir hlé komu SumarmálLeifs Þórarinssonar manni til aö vakna til lifsins, virkilega skirt og vel samiö verk fyrir flautu og sem- bal, sem var spilað af alúð og eld- móði. Þaö notfærði sér möguleika sembals betur en nokkurt hinna núti'maverkanna og geislaði af sannfærandi innra jafnvægi i uppbyggingu. Það er erfitt að spá, einkum um framtiöina, en ef réttlæti er til ætti verkið aö eiga nærsveita er kölluö Iþrótta- skemman. Hún er sögð vera ein mest notaða opinbera bygging I landinu. Auk þess að eltast þar viö knetti og veltast um gólf eins og nafiiið bendir til efna Akureyr- ingar til fundarhalda og 117 ann- arra hluta i húsinu sem stendur skammt fyrir innan Glérá við samnefnda götu. Sumpart vegna leikfimiprófa skólanemenda sem fram eiga að fara i húsinu var tónlistardögunum flýtt I ár og viö- bótinni „I mai” sleppt að sinni. Allir tónleikarnir voru óvenju illa sóttir. Föstudagskvöldiö lutu 200 manns svo lágt aö koma og hlýða á sinfóniuhljómsveitina en eftir HSndel, Exuitate, Jubilate, mótettu fyrir hljsv. og einsöngs- sópran eftir Mozart og Sinfóniu nr. 4eftir Mahler þar sem ergert ráð fyrir einsöngvara I 4. þætti sem fer með texta úr Des Kanbens Wunderhorn. Einsöngv- ari var Sieglinde Kahmann og stjórnandi Hubert Soudant. Upprunalegt hlutverk Iþrótta- skemmunnar á Akureyri var að vera áhaldageymsla fyrir bæjar- félagið. tþróttirnar komu ekki fyrr en seinna inn i myndina. Tónleikahald enn seinna. Þaö er þvi dálítið óviðkunnanlegt fyrir reykvíking að uppgötva, að hljómburður birgðahúss þessa er skemman tekur rúmlega fjórfalt meiri fjölda. Næsta dag var hlutfallslega skárri mæting. Þetta var á tón- leikum Manúelu Wiesler og Helgu Ingólfsdóttur. A lokatónleikadegi með Passiukórnum sl. sunnudag sýndi Vetur konungur vigtenn- urnar með þeim afleiðingum aö aðeins rúm þrjú aukin hundruð tónleikagesta brutust gegnum éliö til Iþróttaskemmunnar og óratóriu Haydns. A eftir voru ýmsar getgátur uppi meðal kór- félaga um aðrar orsakir að þess- um litlu heimtum eins og t.d. peningaleysi lysthafenda I lok mánaðarins. Undir öllum kring- umstæöum kemur þetta nei- kvæða aðsóknarmet liklega til með aö setja ljótt strik i viö- kvæma kostnaöaráætlun norðan- manna. FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 27. april flutti Sinfóniuhljómsveit Is- lands simu dagskrá og á tónleik- unum i Háskólabiói daginn áður. 1. concerto grosso Op. 6 i G-dúr mun betra en 1 Háskólabiói syöra sem á þó a.m.k. öðrum þræði að vera hannaö sem tónleikasalur! Hinn lágvaxni og snaggaralegi Soudant fékk mikiö út úr sinfóniu- hljómsveitinni, einkum og sér i lagi i Mahler, sem undirrituöum þótti með afbrigöum vel leikinn. Strengjaverk Hh’ndels hefði hins vegar mátt leika með meiri dramatik og styrkleikamun; það var eins og menn væru ekki al- mennilega sáttir við þessa nýju og safameiri akústik. En burtséö frá heldur loönum innkomum i fyrstu þáttunum rikti ögun og fágun i þessu verki sem og næstu tveimur. Tök Soudants á hljóm- sveitinni voru ótviræð. Hann benti mikið — ogfékk mikið. Trú- lega verður ekki farið betur meö Mahler á þessu landi I bráö. Sieglinde Kahmann sýndi mikla leikni I mótettu Mozarts, Exultate, Jubilate K 165. Ein- söngshlutverkið er bravúrunúm- er fyrir kólóratúrsópran ekki ósvipað og i kantötu Bachs Tónlistar- dagar 1979 þrennir tónleikar á Akureyri 27.-29. apríl

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.