Þjóðviljinn - 05.05.1979, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 05.05.1979, Blaðsíða 13
Laugardagur 5. mai 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Arstíðirnar í Háskólabíói Um helgina Um síöustu helgi flutti Passiu- kórinn á Akureyri, ólöf K. Harö- ardóttir, sópran, Jón Þorsteins- son, tenór, Halldór Vilhelmsson, bassi, ásamt kammersveit, Óra- tóriuna Arstiðirnar eftir J. Haydn, undir stjórn Roars Kwam á tónlistardögum á Akureyri, við mjög góðar undirtektir áheyr- enda. Þetta var I fyrsta sinn, sem þetta stórkostlega tónverk er flutt hérlendis. Fyrirhugað var að flytja Ars- tiðirnar I Háteigskirkju þann 1. mai sl. en vegna óveðurs og ann- arra samgönguerfiðleika gat ekki orðið af þvi. Nú hefur verið ákveðið að Passiukórinn flytji Árstiðirnar i Háskólabiói sunnudaginn 6. mai kl. 14, og verður það I fyrsta sinni, sem Arstiðirnar veröa fluttar i heilu lagi sunnan fjalla. Passiukórinn á Akureyri hefur ílutt ýmis tónverk á undanförnum árum, m.a. Requiem, eftir Mozart, Kantötu nr. 21 efir Bach, Gloria eftir Vivaldi og Messias eftir Hándel. Þetta er i fyrsta sinn sem Passiukórinn flytur stórverk i Reykjavik en árið 1976 tók hann þátt I norrænum tónlistardög- um þar og flutti nútimaverkið Nu eftir Milveden. Aðeins verða þessir einu tón- leikar að þessu sinni. Aðgöngu- miðasala er hjá Eymundsen og við innganginn. -mhg Tónleikar Tónmenntaskólans Tónmenntaskóli Reykjavikur heldur tónleika i Austurbæjarbiói n.k. laugardag kl. 2. e.h. A þess- um tónleikum koma einkum fram yngri nemendur skólans og á efn- isskrá er einleikur, samleikur og ýmis hópatriði. Aðgangur er dkeypis og öllum heimill. Kammertónlist á tónleikum Sjöundu Háskólatónleikar 1978—1979 verða I Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut laugar- daginn 5. mai 1979 kl. 17. Þetta eru siðustu Háskólatónleikar starfsársins. A tónleikunum flytja Mark Reedman, Sigurður I. Snorrason og Gisli Magnússon verk fyrir fiðlu, klarinettu og pianó. Frumflutt verður nýtt tónverk sem Leifur Þórarinsson hefur samið fyrir þá félaga. Ber það heitiö Afangar. Á efnisskrá eru auk þess Svita úr Sögu hermanns- ins eftir Stravinsky og Kontraste eftir Bartók. Tónleikar í Bústaöakirkju t kvöld halda þær Manuela Wi- esler flautuleikari og Helga Ingólfsdóttir semballeikari tónleika i Bústaðakirkju og hefj- ast þeir kl. 21.00. Nú gefst Reykvikingum kostur á að hlýða á samleik þessa ágæta tónlistafólks i fyrsta sinn um langa hrlð, en siðast komu þær stöllur fram hér i borg á vegum Kammermúsik- klúbbsins vetur- inn 1975 — 76, en þær fluttu allar Sónötur Johanns Sebastians Bachs fyrir flautu og sembal. Efnisskrá tónleikanna nú i kvöld er sú sama og þær fluttu á tónlistardögum á Akureyri um siðustu helgi: Sónötur eftir Quantz, Bach og Hándel, Cantus 1 eftir norska tónskáldið Egil Hov- land, Asceses (Meinlæti) eftir Manuela Wiesler flautuleikari. André Jolivet, sembalverkið „Frumskógar” eftir Atla Heimi Sveinsson og tónverkið „Sumar- mál” eftir Leif Þórarinsson, sem Manuela og Helga frumfluttu I Skálholti siðastliðið sumar. Aðgöngumiöar fást við inn- ganginn. Leikklúbbur Kjósverja sýnir Hreppstjórann á Hraunhamri Nýstofnaður Leikklúbbur Kjós- verja sýnir Hreppsstjórann á Hraunhamri eftir Loft Guð- mundsson í kvöld kl. 21. Leikstjóri er Sverrir Guð- mundsson. Þetta er fyrsta leikrit- iö sem klúbburinn sýnir en með þessari sýningu vilja klúbbfélag- ar heiðra minningu Lofts Guð- mundssonar, sem fæddur var og uppalinn I Kjósinni. Kynning á verkum Oddnýjar Guð- mundsdóttur Bókmenntakynning á verkum Oddnýjar Guð- mundsdóttur rithöfundar veröur sunnudagskvöldið 6. mai kl. 20.30 að Hótel Esju sal I. á annarri hæö. Oddný er fædd 1908 og varð þvi sjötug á siðastliönu ári. Hún hefur verið farkennari siöan 1940. Oddný hefur sam- ið 5 skáldsögur auk ljóðav smásagna og útvarpsleik- rita. Silja Aöalsteinsdóttir mun fjalla um verk Oddnýj- ar og lesið verður upp úr þeim. Allir sem áhuga hafa eru velkomnir. (FráMFÍK) Kvikmynda- sýning í MlR-salnum í dag ! dag laugardaginn 5. mai kl. 3 siðdegis gengst MIR fyrir kvikmyndasýningu I MÍR- salnum, Laugavegi 178. Sýndar verða tvær sovéskar heimildarkvikmyndir um at- burði sem gerðust i siðari heimsstyrjöidinni. önnur myndin nefnist Berlin og segir þar m.a. frá lokasókn sovéksa hersins að höfuðvigi þýsku nasistanna vorið 1945. Enskar skýringar eru með myndinni. Hin kvikmyndin nefnist Siðustu bréfin, og eru skýringar á dönsku. Þegar sýnt var að Þjóðverjum myndi ekki takast að leysa inni- króaðar hersveitir sinar úr herkvinni við Stalingrad veturinn 1942/43, ákvað þýska herstjórnin að safna saman siðustu bréfunum, sem þýsku hermennirnir sendu heim, og gefa úrval þeirra út i bókar- formi. En sú bók kom aldrei út, þvi að efni bréfanna reyndist, þegar til kom, ekki uppörv- andi, heldur má þvert á móti greina i flestum þeirra óbeit hermannanna á striöinu og þjóðfélaginu er átti sök á þvi hvernig fyrir þeim var komið. I myndinni eru sýndar gamlar fréttamyndir af styrj- aldarátökum og ógnum stríðsins. Kvikmyndin er ekki við hæfi barna, en fullorðnum er heim- ill ókeypis aögangur. Félag áhuga manna um heimspeki Félag áhugamanna um heimspeki mun halda aðal- fund og fyrirlestur sunnu- daginn 6. mai i Lögbergi. Aöalfundur hefst kl. 13.30, en fyrirlesturinn kl. 14.30. Frummælandi verður Ingi Sigurösson og nefnir hann erindi sitt ,,Um söguspeki Vicos.” A myndinni sem tekin er af æfingu fyrir stuttu sést þar sem þernur koma með handfylli sina af koddum til drottningar (Margrétar Guðmundsdóttur) fyrir hina örlagariku nótt og lengst til vinstri má sjá Flosa Ólafsson sem leikur annan trúbadorinn en Flosi þýddi söngleik- inn á islensku. Prinssessan á bauninni frumsýnd í Bandariski söngleikurinn Prinsessan á bauninni verður frumsýndur i Þjóðleikhúsinu i kvöld. Leikurinn er byggður á hinu þekkta ævintýri H.C. Andersen en höfundarnir sem eru fjórir fara þó nokkuð frjálslega með efnið. Leikstjóri verksins er Danja Krupska bandarikjamaður af pólskum ættum og aðstoðar- leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son. Þýðandi söngleiksins er Flosi Ólafsson, en útfærslu á tónlist sá Sigurður Rúnar Jónsson um. Með helstu hlutverk i leikritinu fara þau Margrét Guðmundsdótt- kvöld ir sem leikur drottninguna Róbert Arnfinnsson sem leikur mállausa kónginn, Sigriður Þorvaldsdóttir sem leikur prinsessuna , Bessi Bjarnason sem leikur prinsinn og Gisli Alfreðsson sem leikur lodd- arann. Leikritið byggist að mestu upp á söng og dansi og taka þvi margir af okkar bestu söngmönnum þátt i sýningunni, en alls munu um 40 leikarar og söngvarar koma fram. Að sögn Sveins Einarssonar hjá Þjóðleikhússtjóra er þessi sýning með þeim viðameiri sem leikhús- ið hefur sett upp, og kostnaður þá sjálfsagt I samræmi viö það. Karlakórinn Fóstbræður. Karlakórinn Fóst- bræður með tónleika Karlakórinn Fóstbræður heldur samsöngva fyrir styrktarfélaga sina 9. 11. og 12. mal n.k. i Háskólabiói. A efnisskrá Fóstbræðra að þessu sinni verður m.a. frum- flutningur á nýju verki, sem Fóst- bræður fengu prófessor Erik Bergmann frá Finnlandi til að semja sérstaklega fyrir kórinn með tilstyrk frá NOMUS. Þá frumflytur kórinn einnig tvö lög eftir söngstjórann. Auk þess er á efnisskránni nokkur lög eftir Jón Asgeirsson, 2. þáttur verksins Carmina Burana eftir Carl Orff og fjöldi annarra erlendra laga. Samsöngvarnir hefjast kl. 19.00 á miðvikudag og föstudag, en kl. 15.0Ó á laugardag. Þeir styrktarfélagar, sem af einhverj- um ástæðum hafa ekki fengið senda heim miða eru vinsam- legast beðnir að vitja miða sinna hjá Friðrik Eyfjörð i Leður- verslun Jóns Brynjólfssonar, Austurstræti 3, Reykjavik. Einsöngvarar með kórnum veröa Halldór Vilhelmsson og Hákon Oddgeirsson. Undirleik annast Lára Rafns- dóttir. Stjórnandi Fóstbræðra er Jónas Ingimundarson. Tónleikar til styrktar AMNESTY INTERNATIONAL nnuaaginn 6. mal veröa haldnir kammertónleikar i Nor- ræna húsinu og hef jast þeir kl. 20. Þeir sem standa fyrir þessum tónleikum eru 15 hljóðfæraleikar- ar i Sinfóniuhljómsveit Islands. Tónleikarnir eru til styrktar Árni Garðar með 1 dag, laugardag opnar Arni Garðar málverkasýningu að Hótel Borg ( Gyllta salnum). A sýningunni eru alls 50 verk, flest náttúru- og landslagsmyndir Amnesty International. Aðgangur veröur seldur við inn- ganginn. Meöal efnis á tónleikunum verða verk eftir Mozart, Svend- son, Debussy, Rust, Rossini og Ibert. málverkasýningu unnar i oliu vatnsliti og oliukrit og pastel. Sýningin verur opin daglega fram til sunnudagsins 13. mai.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.