Þjóðviljinn - 16.05.1979, Blaðsíða 10
10 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. mai 1979
ÓpAS>b
■ li"
w
Utboð
F orval
óskað er upplýsinga vegna Þjóðminja-
safns íslands, Arnagarðs og bygginga
Háskóla íslands i Háskólahverfi um eftir-
farandi:
1. Eld-viðvörunarkerfi.
2. Innbrots-viðvörunarkerfi.
Ýtarlegar tæknilegar upplýsingar um
gerð kerfanna, ásamt myndlistum og
verðhugmyndum, skulu hafa borist skrif-
stofu vorri eigi siðar en 31. mai n.k.
merkt: „tJtboð nr. 2497/79”.
Að fengnum upplýsingum mun fara fram
forval og i framhaldi af þvi endanlegt út-
boð.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Áskorun
Bílainnflutningur fyrstu 3 mánuði ársins:
1814 bílar á götuna
Þar af 428 af
Lada-gerð frá
Sovétrikjunum
Ekkert lát er á bílainn-
flutningi til landsins þrátt
fyrir ört hækkandi
rekstrarkostnað. Þannig
voru fyrstu 3 niánuði
þessa árs fluttir inn 1814
bílar og miðað við áætlað
meðalverð 4 miljónir króna
á bíl kosta þessir bílar milli
7og 8 miljarða króna á göt-
una.
Af þessum 1814' bilum voru
nýjar fólksbifreiöar 1610, notaöar
fólksbifreiöar 61, sendibifreiöar
51, vörubilar 85 og aörar bifreiöar
7.
Þaö vekur athygli aö nær f jóröi
hver bfll eða 428 samtals er af
Lada-gerö frá Sovétrikjunum.
Fyrstu þrjá mánuöi ársins i
fyrra voru fluttir' inn 2265 bilar.
—GFr
um greiöslu fasteignagjalds til
fasteignagreiðenda í Reykjanesumdæmi
frá Samtökum sveitarfélaga
í Reykjanesumdæmi
Hér með er skorað á alla þá sem eigi hafa
lokið greiðslu fyrri hluta fasteignagjalds
fyrir árið 1979 að ljúka greiðslu alls fast-
eignagjalds innan 30 daga frá birtingu á-
skorunar þessarar. En óskað verður nauð-
ungaruppboðs hjá þeim sem enn hafa eigi
lokið greiðslu gjaldsins 15. júni n.k.
Samtök eftirtalinna sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi:
Bessastaöahrepps, Garóabæjar, Kópavogs, Seltjarnarness,
Mosfellshrepps og Kjalarneshrepps
Stjórn Krabbameinsfélags tslands 1978-79 ásamt framkvæmdastjóra
félagsins. Standandi eru taliö frá vinstri: Matthias Johannessen, dr.
Gunnlaugur Snædal, Vigdfs Magnúsdóttir, dr. Friörik Ginarsson, Er-
lendur Einarsson, og ólafur örn Arnarson. Sitjandi eru: Jónas Hall-
grlmsson, dr. ólafur Bjarnason, Halldóra Thoroddsen og Hjörtur
Hjartarson.
L
IANDSVIRKJUN
Útboð
vegna virkjunar Tungnaár
við Hrauneyjafoss
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum i fram-
leiðslu á steypuefni, hörpun og mölun, fyr-
ir Hrauneyjarfossvirkjun skv útboðsgögn-
um 306-41.
Útboðsgögn verða fáanleg hjá skrifstofu
Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,
Reykavik,frá og með 17. mai 1979 gegn ó-
afturkræfri greiðslu að fjárhæð kr. 75.000,
- fyrir tvö söfn af útboðsgögnum Verð á
viðbótarsafni er kr. 45.000,-. Einstök hefti
úr útboðsgagnasafni kosta kr. 15.000,-
hvert.
Landsvirkjun mun kynna væntanlegum
bjóðendum aðstæður á virkjunarsvæðinu
verði þess óskað.
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar
eigi siðan en kl. 11.00 að islenskum tima
hinn 1. júni 1979 og tilboðin verða opnuð á
sama stað kl. 13.00.
Reykjavik, 15. mai 1979
LANDSVIRKJUN.
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins:
Tómas Jónasson
kjörinn formaður
Aðalfundur Krabba
meinsfélags íslands var
haldinn 27. apríl s.l. í húsa-
kynnum félagsins að Suð-
urgötu 22 í Reykjavík.
AAættur var 21 fulltrúi frá
13 krabbameinsfélögum,
auk stjórnar og starfs-
manna, en aðildarfélögin
eru nú 24 og félagsmenn
þeirra á tíunda þúsund.
1 skýrslu formanns félagsins,
dr. ólafs Bjarnasonar prófessors,
kom fram aö starfsemin á siöasta
ári var aö miklu leyti Hk því sem
veriö hefur undanfarin ár.
I Leitarstöð B er leitaö aö
krabbameini f legi og brjóstum en
frumurannsóknarstofan rannsak-
ar sýni frá leitarstöðinni og
öörum aðilum og hefur sú starf-
semi aukist nokkuö. A vegum
krabbameinsskrárinnar er unniö
aö skráningu krabbameina og aö
faraldsfræöilegum rannsóknum.
Krabbameinsfélag íslands gef-
ur út tlmaritiö „Fréttabréf um
heilbrigöismál”,sem nýtur sifellt
aukinna vinsælda, en aö ööru leyti
er fræöslustarf um krabbamein i
höndum Krabbameinsfélags
Reykjavikur. Þaö félag sér einnig
um rekstur „Happdrættis
Krabbameinsfélagsins”.
A aöalfundi Krabbameinsfé-
lags Islands geröi Hjörtur Hjart-
arson grein fyrir reikningúm fé-
lagsins. Rekstrartap var 5,4
miljónir króna. Stærstu tekjuliö-
irnir voru árstillög frá krabba-
meinsfélögum 23,2 milj. kr. (þar
af ágóðahlutur af happdrætti 20,8
milj.kr.) og framlag frá rikissjóöi
22,4 milj. kr. Ríkisstyrkurinn
nam þó aðeins 27% af heildartekj-
unum sem á siðasta ári voru 83,3
milj. kr.
I stjórnina var kosinn Tómas
Arni Jónasson læknir og endur-
kjörin þau Vigdís Magnúsdóttir
hjúkrunarforstjóri og Hjörtur
Hjartarson forstjóri, öll til fjög-
urra ára. Fyrir i stjórninni eru
Jónas Hallgrimsson prófessor,
Erlendur Einarsson forstjóri,
Ólafur Orn Arnarson læknir,
Matthias Johannessen ritstjóri og
dr. Friðrik Einarsson fyrrverandi
yfirlæknir. 1 varastjórn voru kos-
in Baldvin Tryggvason spari-
sjóösstjóri, Jón Þorgeir Hall-
grimsson læknir, Jónas S. Jónas-
son kaupmaöur og Marla Péturs-
dóttir hjúkrunarfræöingur.
í stuttu
máli:
Ferðamál
komin út
Ferðamál, fréttablað
Feröamálaráðs Islands eru
komin út og er þaö 1. tbl. 2.
árgangs. Þau eru gefin út i
2000 eintökum og send öllum
þeim er að feröaþjónustu
starfa og fleirum. Einnig er
hægt að fá það afhent I skrif-
stofu Feröamálaráðs tslands
aö Laugavegi 3. Aætlaö er að
blaöiö komi út ársfjóröungs-
lega.
—GFr
Timaritiö
„Skák”
komiö út
Timaritiö „Skák” 3. tbl.
1979 er komið út efnismikiö
og fjölbreytt að vanda.
Meöal efnis i blaöinu má
nefna Skákþing Reykjavikur
1979 eftir Helga Ólafsson.
Þætti eftir Guömund
Arnlaugsson, Forskák eftir
Pal Benkö og Mönchen 1979
eftir Guðmund Sigurjónsson.
Auk þessa eru svo frá-
sagnir af skákmótum innan-
lands og utan, svo sem
alþjóöamótinu á Hamar 1979
og Skákþingi Húsavikur.
Strokkkvartett
eftir Snorra
Sigfús Birgisson
á sœnskri
hljómplötu
Nýlega kom út hjá sænska
hljómplötufyrirtækinu Cap-
rice plata meö verkum sex
norrænna tónskálda.
Eitt verkið er strok-
kvartett eftir Snorra Sigfús
Birgisson, fluttur af
nemendum tónlista rskóla
sænska rikisútvarpsins.
öll verkin voru flutt á
norrænum tónlistardögum i
Stokkhólmi 1978, en verk
Snorra var samið 1977 og
frumflutt I Amsterdam.
Snorri nam tónsmiöar hjá
Þorkeli Sigurbjörnssyni og
Olav Anton Thommesen I
Oslo, en stundar nú fram-
haldsnám i Paris.