Þjóðviljinn - 17.05.1979, Síða 3
Ný starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar:
Fimmtudagur 17. mai 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Herdis Þorvaidsdóttir og
Rúrik Haraldsson i hlutverk-
um sinum i Gamaldags
komediu.
Nýtt verk hjá
Þjóöleikhúsinu:
Gamal-
dags
kómedía
Frumsýning
í Neskaupstað
Á sunnudaginn frumsýnir
Þjóðleikhúsió Gamaldags
komediu eftir sovéska rithöf-
undinn Alesej Arbuzov sem
nú er búsettur I Paris. Leik-
stjóri er Benedikt Árnason
en leikendur eru aðeins
tveir, þau Herdis Þorvalds-
dóttir og Rúrik Haraldsson.
Frumsýningin verður i Nes-
kaupstað.
Sveinn Einarsson þjóðleik-
hússtjóri sagði á blaða-
mannafundi i gær að frum-
sýning þessa verks i Nes-
kaupstað væri liður i að
reyna að koma upp þeirri
hefð að frumsýna a.m.k. eitt
verk á ári utan Reykjavikur.
Neskaupstaður væri valinn
að þessu sinni vegna 50 ára
afmælis hans. Onnur sýning
á verkinu verður i Neskaup-
stað á mánudag og siðan
verður sýning á Höfn i
Hornafiröi og Egilsstöðum
og viðar en sýningar i Þjóð-
leikhúsinu veröa ekki fyrr en
á næsta leikári.
Gamaldags komedia er
samin árið 1975 I hefðbundn-
um stil og gerist við sjávar-
siöuna hjá Rigu, i ágúst 1968.
Hún hefur verið sýnd viða
um lönd.
Höfuðpersónurnar eru
læknir og dvalargestur á
heilsuhæli og sagöi Benedikt
Arnason að verkið fjallaði
um þaö hvernig mannleg
samskipti geta þroskast og
dafnaö alveg fram i rauðan
dauðann og þó að minningin
væri ágæt fyrir eldra fólk
væri hún þó ekki nóg. Herdis
Þorvaldsdóttir, annar leik-
enda, sagði viö sama tæki-
færi að leikritið væri ákaf-
lega finlegt með gamansömu
ivafi.
Þýöandi Gamaldags
komediu er Eyvindur Er-
lendsson, Jón Benediktsson
gerði leikmyndina sem er
ákaflega einföld og táknræn,
dans æfði Ingibjörg Björns-
dóttir en Guðrún Svava
Svavarsdóttir aöstoöaði viö
val búninga.
— GFr
Hópur visindamanna á sviði
lyfjarannsókna við Edinborgar-
háskóla I Skotlandi hefur nú á
þessum vetri gert merka upp-
finningu, þegar rannsóknir hans
leiddu i ljós að hægt er að vinna
lyf úr fiski gegn þrálátum sjúk-
dómi, sem ekki hefur verið hægt
að ráða við til þessa.
Sjúkdómur þessi nefnist „Alz-
heimers” og veldur minnisleysi
hjá fólki oft við 50 og 60 ára ald-
ur. Mótefhið sem visindamenn-
irnir fundu gegn s júkdómi þess-
um er aö finna i fiski sem nefn-
ist „Choline”, og er það talið
áhrifarikt gegn fyrmefndum
sjúkdómi.
Vistun fyrir þroska-
Félagsmálaráð kynnti vistheimilið viö Dalbraut fyrir gestum og blaðamönnum f gær. (Ljósm. Geröur.)
heft
böm
I gær efndi Féiagsmála-
ráð Reykjavíkurborgar til
kynningar á vistheimilinu
við Dalbraut. Þar er að
hefjast ný starfsemi, búið
er að sameina tvö upptöku-
heimili borgarinnar og nú
er boðið upp á skamm-
tímadvöl fyrir sex þroska-
Ráðherrunum
til skammar,
segja
skipstjórar
Þjóðviljanum barst i gær eftir-
farandi ályktun fundar i Skip-
stjórafélagi tslands:
A fundi Skipstjórafélagsins, þar
sem viðstaddir voru 25 starfandi
skipstjórar á farskipum, I gær-
kvöld var eftirfarandi ályktun
samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum:
„Fundur haldinn i Skipstjórafé-
lagi tslands þriöjudaginn 15. mai
1979 mótmælir afskiftum rikis-
stjórnar af yfirstandandi kjara-
deilu. Fundurinn átelur harðlega
ummæli og afskifti einstakra ráð-
herra og telur að þeir ráöherrarn-
ir hafi ekki kynnt sér málavexti á
hlutlausan hátt. Þessi afskifti
ráðherranna, séu þeim einum til
skammar.
Verði sett lög, sem tilraun til aö
hindra framhald þessarar vinnu-
deilu, skorar fundurinn á alla far-
menn að standa saman.”
heft börn á aldrinum 0 —12
ára.
Félagsmálaráð Reykjavikur
ásamt starfsmönnum hússins
buðu gestum og blaðamönnum aö
skoöa húsið sem er nýinnréttað.
Gerður Steinþórsdóttir for-
maður Félagsmálaráðs bauð
gesti velkomna og gerði grein
fyrir þeim breytingum sem
gerðar hafa verið. 1 húsinu er
pláss fyrir 26 börn, þar af sex
þroskaheft.
Markmiðið er aö létta á heimil-
um þessara barna og gefa aö-
standendum þeirra möguleika á
frii og hvild. Við undirbúning var
haft samráö viö Landsamtökin
Þroskahjálp og er ætlunin að hafa
sem best samstarf við þau félög
sem sinna málefnum þroska-
heftra.
Aödragandi þessara breytinga
var sá, að viö undirbúning fjár-
hagsáætlunar Reykjavikur kom i
ljós að mikill kostnaður var við
rekstur heimilanna við Dalbraut
og upptökuheimilisins við
Dyngjuveg, en nýting hins vegar
slæm. Þaö var ákveöið að sam-
eina heimilinogspöruðustvið það
12 miljónir króna.
Heimilið skiptist I tvær deildir,
yngri og eldri deild. Auk svefn-
herbergja er þarna setustofa og
leikherbergi, sérstök leikherbergi
I sal og smíða- og föndurherbergi
I kjaliara hússins.
Gestir gengu um húsið i fylgd
forstöðumannsins Róberts
Sigurössonar og fleira starfs-
fólks.
Húsið er mjög vistlegt enda
sagði forstöðumaðurinn að allt
væri gert til að börnin mættu una
sér sem best og vera i heimilis-
legu umhverfi.
Meðan gestir gæddu sér á kaffi
og meðlæti léku börnin sér úti i
Þjóðviljinn hefur fregnað að
Fjárhags- og viöskiptanefnd efri
deildar hafi að tillögu Geirs
Gunnarssonar alþingism anns
óskað eftir við Hagsýslustofnun
að hún kanni hver sé heildar-
kostnaöur rikissjóðs vegna bila-
kostnaðar ráðherranna.
Er óskaö eftir að reiknað sé út
hver sé kostnaðurinn ef: 1) BIl-
arnir eru eign ráðherra en rekstr-
arkostnaður borgaður af rikinu
garöi i veðurbliðunni.
Undir borðum þakkaði Margrét
Margeirsdóttir formaöur Land-
samtakanna Þroskahjálpar
veittan stuöning við þroskahefta
og sagöi að verið væri aö bæta úr
brýnni þörf, þetta væri ánægjuleg
þróun.
Geröur Steinþórsdóttir þakkaöi
aö lokum fyrir veitingarnar og
árnaði heimilinu og starfsfólki
heilla i framtiðinni.
—ká
eins og er nú. 2) Bilarnir veröi I
eigu rikisins. 3) Leigubilar verði
notaðir þegar ráðherrar þurfa að
sinna embættiserindum.
Hugmyndin um leigubílana
hefur ekki áöur komiö opinber-
lega fram, en við fyrstu sýn virð-
ist sá möguleiki getað orðið
kostnaöarminnstur fyrir rikis-
sjóð. Já, hvers vegna ekki bara
leigubila, það hafa allavegana
blaðamenn látiö nægja sér hingað
til blöðunum til stórsparnaöar.
Hyí ekki leigubíla
fyrir rádherra?
: Rætt vid ÁSGERÐI BÚADÓTTUR um „Norræna Textiltriennalinn 1979-80”
8 tslensk verk á
vejjalistarsýningu
Atta listaverk islenskra vef-
ara verða á norrænni listvefn-
aðarsýningu sem hefst á
Röhsska listiönaöarsafninu i
Gautaborg 20. júll I sumar.
Þetta er önnur sýning Norræna
Textiltriennalsins 1979-1980, en
sú fyrri var á Kjarvalsstöðum
fyrir þremur árum.
Asgeröur Búadóttir á sæti i
vinnunefnd Textilfélagsins sem
undirbýr sýningar sem þessa.
Við náöum tali af henni og báö-
um hana að segja okkur undan
og ofan af undirbúningi:
— Eins og nafnið bendir til á
þessi sýning aö vera þriöja
hvert ár sem farandsýning.
Þetta er önnur sýningin. Hún
hefst i Gautaborg 20. júni I sum-
ar, en þaðan fer hún til Kaup-
L_____________-________________
mannahafnar, Helsinki, Oslóar
og Þórshafnar, en endar svo á
Kjarvalsstöðum i april á næsta
ári.
Á fundi sem haldinn var i
Gautaborg siðast liðið haust var
ákveöið aö þriggja manna dóm-
nefnd yrði kosin f hverju landi
fyrir sig, en ekki samnorræn
dómnefnd eins og siöast, og að
dómnefndarstörfin færu fram i
öllum löndum á sama tima, sem
var nú í byrjun mal. Þaö var
lika ákveðið á þessum fundi að
reyna að hafa sýninguna ekki
eins stóra og siöast, þá voru
verkin 116, en takmarka hana
núna við 95 verk, og aö hver
mætti senda inn tvö verk.
Dómnefnd hefur nú lokið
störfum og voru send inn 27 verk
eftir 19 höfunda. Atta islensk
verk voru valin, og eru höfund-
arnir: Ragna Róbertsdóttir,
Þorbjörg Þórðardóttir, Hildur
Hákonardóttir, Guðrún Auðuns-
dóttir, Guörún Þorkelsdóttir,
Geröa Geirsdóttir og Asgerður
Búadóttir.
Flest verkin eru myndvefn-
aöur, eitt er tauþrykk og eitt
„vefskúlptúr”.
I dómnefndinni sátu Hörður
Agústsson listmálari, Hrafn-
hildur Schram listfræðingur og
Magnús Pálsson myndlistar-
maöur.
Undirbúningsnefndunum var
falið að sækja um styrki hver i
sinu landi i sameiginlegan
triennalsjóð sem er að uppi-
Asgerður Búadóttir.
stöðu frá Norræna menningar-
sjóðnum.
Þeim hinum hefur gengiö vel
að fá styrki frá slnum menning-
arstofnunum, en okkur ekki.
Hvorki menntamálaráðu-
neytiö né menntamálaráö gátu
lofaö okkur neinu, að minnsta
kosti ekki á þessu ári.
Við stóðum þvi uppi eina þjóð-
in með engan styrk. Þá varð þaö
okkar lán aö góöur maður benti
okkur á iðnþróunarsjóö og sótt-
um við þangað. Þeir veittu okk-
ur góðan styrk sem mun duga
okkur vel til að byrja með .