Þjóðviljinn - 17.05.1979, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. mal 1979.
Ráðstefna
Jafnréttisráðs
með aðilum
vinnumarkaðarins:
Jafnrétti
kvenna og
karla
Jafnréttisráö boöar til ráö-
stefnu meö aöilum vinnumark-
aöarins um jafnrétti karla og
kvenna. Ráöstefnan veröur
haldin á morgun föstudaginn 18.
mai kl. 9:15 — 17:00 aö Hótel
Loftleiöum.
Samkvæmt lögum nr. 78/1976
um jafnrétti karla og kvenna, er
kveöiösvo á i 10. gr. 4. tl.: „Stuöla
aö góöri samvinnu viö samtök at-
vinnurekenda og launafólks svo
og aöra þá aöila sem jafnréttis-
mál karla og kvenna varöa, svo
aö stefnu og markmiöi laga þess-
ara veröi náö meö sem eölileg-
ustum hætti.”
Ráöstefnan mun f jalla um jafn-
rétti karla og kvenna á vinnu-
markaönum og er viöleitni Jafn-
réttisráös i þá átt aö jafnrétti
komist á i reynd.
Jafnréttisráö vonast til þess aö
sem flest félög sjái sér fært aö
senda fulltrúa. Ráöstefnugjald
er 6000 kr. og I þvi er innifaliö
matur, kaffi og annar ráöstefnu-
kostnaöur.
Auglýsið í
Þjóðviljaniim
Sími 81333
'* 'uM'* " ■■
Samvinnuskólinn aö Bifröst
Samvinnuskólinn hefur fœrt út kvíarnar
Rúmlega 1000 manns
námu á vegum skólans
Samvinnuskólanum aö Bifröst
var slitiö 1. mai i 60. sinn. Skóla-
stjóri Haukur Ingibergsson geröi
í skólaslitaræöu nokkra grein
fyrir starfi skóians.
Sú grundvallarbreyting varö á
starfi skólans á árinu aö skólinn
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i aö byggja dagheimili
arbakka og Iðufell, Reykjavik.
• leikskóla viö Arn-
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3
gegn 20 þús. kr. skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuö á
sama stað miövikudaginn 13. júni n.k. kl. 11 f .h.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 2S800
Skálholtsskóla
Innritun nemenda er hafin. Nánari upp-
lýsingar eru veittar alla virka daga frá kl.
10-12 á skrifstofu skólans simi 99-6870.
Skálholtsskóli.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið-
um eldhúsinnréttingar; einnig viðgerðir á
eldri innréttingum. Gerum við leka vegna
steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila,
TRÉSMIÐ AVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33, simar 41070 og 24613.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíöi.
Gerum föst verötiiboö
SIMI53468
stóð fyrir námskeiöum fyrir
starfsfólk og félagsmenn kaup-
félaganna auk hins heföbundna
náms aö Bifröst og i framhaids-
deildum skólans i Reykjavik.
Alls voru námskeiö á vegum
skólans 42, flest i verlsunarstörf-
um ætluö fyrir starfsfólk I sölu-
búöum kaupfélaganna en einnig
voru haldin námskeiö I stjórnun
verslania.stjórnun framleiöslu-
fyrirtækja, skiltagerö, félagsmál-
um og samvinnumálum. Tóku
alls 970 manns þátt i námskeiðum
skólans eöa 23 til jafnaöar á nám-
skeiöi. Nemendur aö Bifröst voru
72 og i framhaldsdeildum 35. Alls
stunduöu þvi 1.077 manns nám á
vegum skólans á skólaárinu.
A 60 ára afmæli skólans»sem
haldiö var hátiölegt á siöastliðnu
hausti, fékk skólinn sjónvarps-
stúdló aö gjöf frá kaupfélögunum
og samstarfsfyrirtækjum. Er hér
um að ræöa tvær myndavélar
ásamt tilheyrandi myndblönd-
unarbúnaöi og myndsegulbandi.
Hefur tilkoma þesara sjónvarps-
tækja skapað nýja möguleika I
félagsmálafræöslu og fjöl-
miölunarkennslu.
A skólaárinu fékk skólinn tölvu
aö gjöf frá nemendum og kenn-
urum og hefur tilkoma hennar
bætt aöstööu til tölvukennslu, en
skólinn átti eina tölvu fyrir.
Á skólaárinu efndi skólinn til
verökönnunar. Fór hún fram I 71
verslun viös vegar um land. Kom
fram aö verölag I kaupfélags-
verslunum er um 2% lægra en I
einkaverslunum og einnig aö
verömunur er meiri, kaupfélög-
unum I hag, á vörum án sölu-
skatts heldur en á vörum meö
söluskatti.
Nemendur 2. bekkjar geröu I
hópvinnu skyggnumyndaseriur
meö lesnum texta af segulbandi
um sex kaupfélög þar sem rakin
var saga þeirra, þróun og nú-
verandi starf.
Bestum námsárangri i 1. bekk
náöu:
Erna Bjarnadóttir Snæfells- og
Hnappadalssýslu 8,79, Anna
Siguröardóttir. Höfn Hornafiröi
8,75,Guölaug Sandra Guölaugs-
dóttir Ólafsvik 8,68.
Bestum námsárangri i 2. bekk
náöu:
Þröstur Sigurösson Húsavik
8,52, Þórey Jónasdóttir Boröeyri
8,34,Helgi Hermannsson Hvols-
velli 8,32.
Sérstök verölaun fyrir kunnáttu
i bókfærslu og samvinnufræöum
hlaut Arnar Bjarnason úr V-
Skaftafellssýslu og verölaun fyrir
vélritun hlaut Þórunn ósk Guö-
mundsdóttir, Þingeyri.
Fjölmenni var viö skólaslitin og
tóku margir tii máls. Maria
Einarsdóttir flutti kveöjur
Nemendasambands Samvinnu-
skólans og Landssambands Isl.
samvinnustarfsmanna. Hall-
grimur Gislason flutti kveðjur
þeirra *er brautskráöust fyrir 10
árum og færöi skólanum aö gjöf
veggspjöld meö merki skóla-
félags Samvinnuskólans. Af hálfu
brautskráöra flutti ólafur Arn-
fjörö Guömundsson ávarp, Pálmi
Guömundsson af hálfu 1. bekkjár
og Niels Arni Lund af hálfu
starfsfólks. Einnig söng skólakór
Samvinnuskólans undir stjórn
Kristjáns óskarssonar,
nemanda.
Aö lokum árnaöi Haukur Ingi-
bergsson, skólastjóri, braut-
skráöum heilla og sagöi Sam-
vinnuskólanum slitiö i 60. sinn.
Skólaslit I Framhaldsdeildum i
Reykjavík fóru fram 12. mai. 15
nemendur luku stúdentsprófi.
Svavar Lárusson yfirkennari
geröi grein fyrir starfsemi deild-
anna á skólaárinu. Kom fram aö
margir gestir heföu komiö i
heimsókn og flutt erindi um ýmis
mál. Einnig heföu nemendur
fariö á vinnustaöi til aö kynna sér
ýmsa þætti I atvinnulifinu.
Aö loknu yfirliti yfirkennara
tók Haukur Ingibergsson skóla-
stjóri til máls og afhenti ný-
stúdentum prófskirteini sin.
Ræddi hann nokkuð um gildi
stúdentsprófs I dag og einnig um
þróun skólastarfs I Samvinnu-
skólanum. Aö þvi loknu óskaöi
skólastjóri nýstúdentum vel-
farnaöar og sagöi Framhalds-
deildum Samvinnuskólans slitið I
6,sinn.
Bestum árangri á stúdentsprófi
náöu Sigrún Inga Siguröardóttir
9,05, Kristin BryndTs Guömunds-
dóttir 8,83 og Sólveig Ebba Ólafs-
dóttir 8,90.
Markverðirnir
Framhald af bls. 11
Guöjón Guöjónsson var mjög
sprækur á kantinum og kom vörn
Skagamanna oft i vandræöi. Bak-
vöröurinn Oskar Færset var fast-
ur fyrir aö vanda og gaf hvergi
eftir. Þá virðist Ólafur Júliusson
vera aö ná sér á strik og lék sinn
besta leik i vor.
IngH
ífíÞJÓÐLEIKHÚSIfl
PRINSESSAN A BAUNINNI
6. sýning I kvöld kl. 20
Hvlt aðgangskort gilda
7. sýning sunnudag kl. 20
A SAMA TIMA AÐ ARI
föstudag kl. 20
Fáar sýningar eftir
STUNDARFRIÐUR
laugardag ki. 20 Uppselt
þriðjudag kl. 20
NEMENDASÝNING
LISTDANSSKÓLANS
1. sýning laugardag kl. 15
sunnudag kl. 15
Síðasta sinn.
Miöasala 13.15—20. Simi 1-
1200.
LKIKFF.IAG
RF'I'KIAVIKUR "
STELDU BARA MILLJARÐI
laugardag kl. 20.30
Fáar sýningar eftir
ER ÞETTA EKKI
MITT LIF?
Frumsýning sunnudag
Uppselt
2. sýning miövikudag kl. 20.30
Grá kort gilda.
Miöasala I Iönó kl. 14-19 simi
16620.
BLESSAÐ BARNALAN
Miönætursýning i Austurbæj-
arbiói
laugardag kl. 23.30
örfáar sýningar eftir
Miðasala i Austurbæjarbldi kl.
16-21 simi 11384.
NORNIN BABA-JAGA
Aukasýning "
sunnudag kl. 15
Alla siöasta sinn.
Miöasala i Lindarbæ alla daga
kl. 17-19.
Sunnudaga frá kl. 13, simi
21971.
Sameiginlegur
Framhald af 1
það vissulega stórtiöindi á stjórn-
arheimilinu.
„Vilmundur er greinilega aö
gera sitt besta til þess að láta viö-
reisnardraumana rætast og nú
hefur þaö gerst I fyrsta sinn I vet-
ur, aö meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Alþýöuflokks hefur
myndast i nefnd þingsins. Þegar
sá meirihluti er tengdur grund-
vallaratriöi i efnahagsstjórn sem
skattamál eru á sama tima og Al-
þýöuflokkurinn neitar að taka
þátt i viöræöum rikisstjórnar-
flokkanna um efnahags- og kjara-
mál þá fer maður ef til vill að
skilja betur hversvegna rikis-
stjórnarsamstarfiö hefur gengiö
svona erfiölega”, sagöi ólafur
Ragnar aö lokum.
Þrátt fyrir eindregin mótmæli
þingmanna Alþýöubandalagsins
og Framsóknarflokksins I nefnd-
inni mun Vilmundur Gylfason
ekki hafa tekiö I mál aö fresta af-
greiöslunni eöa afgreiöa máliö á
annan hátt. Flest bendir til þess
aö hann hafi stefnt aö þvi aö þessi
nýi meirihluti Sjálfstæöisflokksin
og Alþýöuflokksins fengi aö birt-
ast þjóðinni tafarlaust, enda er
hann aðalfréttin á forsiöu Alþýöu-
blaösins I gær og birtur þar sem
sérstaklega stóru fagnaöarletri.
— ekh
alþýðubandalagiö
Alþýðubandalagið i Reykjavik
FLOKKSFÉLAGAR
Nú liöur aö aöalfundi og enn eru nokkrir, sem ekki hafa greitt félags-
gjöld fyrir áriö 1978. Hafiö samband viö skrifstofuna Grettisgötu 3 hiö
fyrsta. Opiö milli kl. 9—17simi 17500. — Gjaldkeri og starfsmaður.
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði
Fundur veröur aö Standgötu 41, fimmtudaginn
17. mai kl. 20.30
1. Verkalýösmálanefnd Hafjarfjaröardeildar-
innar.
2. ólafur Ragnar Grimsson ræöir stjórnmála
horfurnar. Hver er þáttur Alþýöubandalagsins?
Látum ekki áhugavert efni fram hjá okkur fara,
auk þess sem flokkurinn hefur eignast kaffivél.
Ólafur Ragnar