Þjóðviljinn - 23.05.1979, Qupperneq 3
MiBvikudagur 23. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Bótagreiöslur Aflatryggingasjóðs:
Laun og fædi
sjómanna
hafi forgang
Sj á va r útvegsráðuney tiö
gaf i gær út reglugerð sem
á að tryggja/ að sjómenn
fái laun sin greidd þegar
bætur eru greiddar úr
Aflatryggingasjóði/ og að
laun þeirra og fæði/ vá-
tryggingargjöld og önnur
hliðstæð hafi forgang.
Um er að ræða breytingu á
reglugerð nr. 94/1963 um hina al-
mennu deild bátaflotans við Afla-
tryggingasjóð sjávarútvegsins og
er reglugerðin nú svohljóðandi:
„Nú fær útgerðarmaður bætur
úr sjóðnum, og getur þá sjóðs-
stjórn krafist þeirrar tryggingar
af bótaþega, sem henni þykir þörf
á, fyrir þvi að bótaupphæð veröi
varið til greiðslu á eftirfarandi
gjaldaliðum, sem hafi forgang, i
þeirri töð sem hér er talið: Kaup
og fæði sjómanna, og vátrygg-
ingagjöld og önnur hliðstæð gjöld.
Sjóðsstjórn skal sjá til þess að
bótaþegar fullnægi fyrirmælum
þessarar gr., varðandi kaup og
fæðiskostnað sjómanna þannig að
þessir liðir verði greiddir. Veröi
misbrestur á þvi að sjómenn fái
kaup sitt eða fæði greitt, skal
sjóðsstjórn greiða það fyrir hönd
útgerðarmanns, enda má skulda-
jafna greiðslunni við bætur, sem
viðkomandi útgerðarmaður kann
að fá siðar”.
Samkvæmt gildandi lögum er
stjórn Aflatryggingasjóðs heimilt
að krefjast tryggingar af bóta-
þega þ.e.a.s. , útgeröaraðila, til
þess að þvi verði fullnægt að sjó-
menn fái kaup sitt greitt. Reglu-
gerðin felur það i sér að þessari
heimild verði beitt.
Reglur um aðild að ÍSÍ
Karate inn,
hestar úti
A sambandsstjórnarfundi
tþróttasambands islands var
samþykkt samhljóða að karate-
félög skyldu fá aðild að sam-
bandinu, en fellt á jöfnum at-
Heimboð
Þorgrfmur Starri Björgvins-
son
Til þeirra tveggja þing-
manna Alþýðubandaiagsins
sem felldu með bjásetu sinni
tillögu landbúnaðarráðherra
um fyrirgreiöslu til bænda
svo þeir mættu fullu kaupi
halda:
Hér með býð ég ykkur i
heimsókn hingað noröur og
skora á ykkur að þiggja það
heimboð þegar i stað. Þá
gætuð þið með eigin augum
séö við hvað bændur hafa að
striða i dag, og hvort senni-
legt sé að þeir séu slikur há-
launahópar að nauðsyn sé að
setja þak á laun þeirra um-
fram það sem algjört vetrar-
riki og óslitið fram til þess
dags kann að setja.
Vona að ég geti slegið vixil
tilað greiöa fargjaldið ykkar
svo það þurfi ekki að standa i
vegi fyrir ykkar hingaö-
komu.
StarriiGarði.
kvæðum, 9 gegn 9, aö taka inn
iþróttadeildir hestamanna.
Iþróttaþing 1978 kaus nefnd til
að endurskoða reglurnar um inn-
göngu nýrra félaga I ISI ásamt
reglum um fulltrúakjör á ársþing
og á iþróttaþing og gerði Sveinn
Ragnarsson grein fyrir áliti
nefndarinnar á fundinum. Hún
lagðist gegn þvi, að iþróttafélög
fyrirtækja yrðu beinir aðilar að
iþróttahreyfingunni, en frekari
athugun og umræðu þyrfti um
stofnun sérsambanda slikra fé-
laga og skólaiþrótta. Nefndin
vildi ekki breytingar á fulltrúa-
kjöri á þing hreyfingarinnar.
Nefndin mælti með að bæði
iþróttadeildir hestamánnafélaga
og karatefélög fengju aðild að
ÍSI.
—vh
Prófessorsstada i
einkamálarétti:
Fjórir
umsækjendur
Runninn er út umsóknarfrestur
um prófessorsstöðu I einkamála-
rétti i lagadeild Háskóla tslands.
Fjórir sóttu um en þeir eru Björn
Þ. Guðmundsson, Guðrún
Erlendsdóttir, Páli Sigurðsson og
Stefán Már Stefánsson.
Ekki hefur enn verið veitt i
tvær aörar prófessorsstöður i
lagadeild. Um prófessorsstöðu i
rikisrétti sóttu Björn Þ. Guð-
mundsson og Gunnar Schram og
hefur dómnefnd úrskurðað þá
báða hæfa tjl starfsins en deildar-
ráð lagadéijdar mælt með
Gunnari með öllum greiddum at-
kvæðum.
Lést í bílslysi
Pilturinn sem lést I bilslysinu á
móts við Fitjanes á Reykjanes-
braut, sem sagt var frá I blaðinu i
gær hét Stefán Jen.s Sigurðsson,
til heimilis I Miögaröi 18, Kefla-
vik. Hann var aöeins 15 ára
gamall.
„1 fyrradag fór hitinn I fyrsta sinn yfir frostmark á þessu sumri i Grimsey. Hér er jörð snæviþakin og
allt fé i húsum. Ef ekki væri blessuð birtan gæti eins verið febrúar eöa mars,” sagði Vilborg Siguröar-
dóttir simstöðvarstjóri I Grlmsey, I samtali viö Þjóðviljann.
(Myndina tók cik. yfir Grimsey I vctur).
Leiöindavedur
um allt land í gær
Reykvíkingar vöknuðu
upp við vondan draum í
gærmorgun. Komið var
hávaðarok og sand-
stormur eftir blíðviðrið á
mánudag. Utan af landi
bárust þó enn verri frétt-
ir/ þar geisaði stórhríð
um norðan- og austanvert
landið.
Þjóðviljinn hringdi I veður-
stofuna og spuröist fyrir um
veðrið á landinu.
Knútur Knudsen veður-
fræðingur sagði að um hádegið i
gær hefði norðaustan- og norð-
anátt rikt um allt land, viðast 6-
8 vindstig. Snjókoma var um
norðanverða Vestfirði og á
Norður- og Norðausturlandi. É1
um Breiöarfjörð og allt suöur i
I Borgarfjörö. Þurrt á Suður-
' landi. A austurlandi var farið að
jhlýna og hitinn kominn upp I 8
|stig á Vatnsskarðshólum.
Um spána fyrir næstu daga
vildi hann ekkert segja, hún
1 væri sibreytileg, og það sem við
fengjum núna yrði breytt á
; morgun.
1 —ká
HUSAVIK:
Mikill snjór og lélegar gæftir
A Húsavlk var nýhætt að
snjóa, veörið gengið niður og
hitinn um frostmark þegar
Þjóöviljinn náði tali af Benedikt
Sigurðarsyni fréttaritara blaðs-
ins þar á staðnum. Sólarhring-
inn á undan var leiðindaveður,
og hefur sjaldan snjóað eins
mikið, að sögn Benedikts.
Hann sagði að nýhætt væri að
snjóa, veðrið væri gengið niður
og hitinn um frostmark. Sólar-
hringinn á undan var leiðinda-
veður og hefur sjaldan snjóað
eins mikið á árinu að sögn Bene-
dikts.
Öfært var um Tjörnes og upp I
Mývatnssveit, en fært til Akur-
eyrar.
Undanfarið hafa þungatak-
markanir verið I gildi og þvi
hafa landflutningar gengiö
erfiölega. Benedikt taldi aö ekki
gætti vöruskorts enn þá, en
hann væri yfirvofandi. Benedikt
bætti þvi við að gæftir hefðu
verið lélegar um langt skeið.
—ká
ÞÓRSHÖFN:
Stórhríd í gær og fyrrinótt
Þórshöfn hefur verið talsvert I
fréttum undanfarið vegna haf-
iss og lélegs atvinnuástands.
Þeir Þórshafnarbúar eru lausir
við isinn og komast á sjó, en þar
hefur veðrið gert strik I
reikninginn undanfarið.
I samtali við Arnþór Karlsson'
fréttaritara Þjóðviljans á Þórs-
höfn kom fram, að þungfært
var um bæinn eftir stórhriö sem
þar geisaði i gær og fyrrinótt.
Vegir I nágrenninu voru ófærir
en verið var að ýta siðdegis i
gær.
Arnþór sagöi að nú væri næg
vinna, grásleppukarlar væru
byrjaðir veiðar og sæmilega
veiddist þegar gæfi á sjó.
—ká
MYVATNSSVEIT:
Hríðarslydda undanfarna daga
1 Mývatnssveit náðum við tali
af Stefaniu Þorgrimsdóttur i
Garöshorni og leituöum fregna
af óveðrinu sem geisaði þar um
slóðir.
Stefania sagði að þar I sveit-
inni hefði verið hriöarslydda i
tvo daga og frost. Þungfært er
um sveitina, jörð er alhvit og fé
er i húsum þansem annars staö-
ar um landið:
„Það varð ekkert úr þessari
rigningu sem hann Páll Berg-
þórsson var að lofa okkur um
helgina”, sagði Stefania. „Það
bara snjóar og snjóar”.