Þjóðviljinn - 23.05.1979, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 23.05.1979, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN 'Miövikudagur 23. mal 1979 Nítján þroska- þjálfar útskrifast Þroskaþjálfaskóla tslands verður sagt upp 25. mai kl. 17:00 i Norræna húsinu. Skólinn er til húsa I gamla Kópavogshælinu. 1 vetur stunduðu 58 nemendur nám i skólanum, piltar og stúlkur og verða 19 nemendur brautskráðir að þessu sinni. Þroskaþjálfaskólinn starfar á vegum Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins. Skólinn hefur sérstaka skólastjórn og er Ingi- mar Sigurðsson, deildarstjóri i Heilbrigðismálaráðuneytinu for- maður hennar. Bryndis Viglunds- dóttir er skólastjóri og starfa um 20 kennarar auk hennar við skól- ann, þar af einn I fullu starfi. Frestur til að skila umsóknum um skólavist næsta vetur rennur út 1. júni n.k. Allir velunnarar skólans eru vel- komnir að uppsögninni. Bensín Framhald af 5. siðu. framleiöslu að hluta, sem gerir þær óháðari, skyndilegum verð- sveiflum á heimsmarkaönum. 3. Gera má ráð fyrir að flestar ofangreindra þjóða eigi að jafnaði mun meiri birgðir oliu saman- borið við íslendinga, þannig að verðbreytingar koma siöar fram þar en hér. Að öllum þessum liöum at- huguðum segir að lokum er ljóst að vegna þeirra miklu verð- hækkana sem orðið hafa að undanförnu, má gera ráð fyrir að þess gæti fyrst á Islandi, saman- borið við þau lönd sem upp eru talin. Þegar frá liður og verðlag kenist i jafnvægi, dregur úr þeim verðmun sem til staðar er i dag. Segist viðskiptaráðuneytið hafi talið skylt að koma þessum at- hugasemdum á framfæri til skýringar en ekki til þess aö draga úr þeim ábendingum i gagnrýnisátt sem fram hafa komið á verðviðmiðuninni sem Rotterdamsmarkaðinn. 1 þvi sambandi er bent á að orkumála- ráðherrar Efnahagsbandalags- rikjanna hafa talið sérstaka ástæðu til að rasnnsaka markað þennan. Neðanskráö tafla gefur raun- hæfan samanburð á bensinverði viðkomandi landa, eins og það var um sl. áramót, miðað við gengisskráningu á sama tima. Verð á bensini i 10 V-Evrópu- löndum 1/1 1979: Stúdentahópuripn sem lauk námi frá Fjölbrautaskólanum i Breiðholti . Meðal þeirra eru 19 sem stund- uðu nám I Laugalækjarskóla. Myndin er tekin I Bústaðakirkju þar sem útskrift fór fram. — Ljósm. Gerður Skólauppsögn Fjölbrautaskólans í Breiðholti - Fyrsta konan á Iskndi lýkur námi í húsasmíði Enn eru konur að nema ný lönd á svæðum sem hingað til hafa tilheyrt karlmönnum eingöngu. Við skólauppsögn Fjölbrauta- skólans í Breiðholti í gær lauk fyrsta konan á Islandi sveinsprófi í húsasmíði. Skóiaslit hjá MH: Með pomp og og prakt Menntaskólanum viö Hamra- hlíð var slitið laugardaginn 19. maf með hátíðlegri athöfn að við- stöddu fjölmenni. Brautskráðir voru 136 stúdentar, 98 úr dagskól- anum en 38 úr öldungadeild. 132 námseiningar þarf hið minnsta til að ljúka stúdentsprófi, en ýmsir nemendur taka meira námsefni og ljúka þá stundum prófi á meira en einu náms- sviði.Skólinn býður kennslu á sex sviðum: fornmálasviði, nýmála- sviði, félagssviði, náttúrusviði, eðlissviði og tónlistarsviði. Hæstum einingafjölda náði Elisabet Waage að þessu sinni, hún hlaut 175 einingar alls og Aðalfundur Verkakvennafélagsins Framsóknar verður haldinn sunnudaginn 27. mai kl. 14 i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sýnið skirteini við innganginn. Stjórnin. alþýöubandalagiö Halda sameiginlegan fund um IÐNÞRÓUN OG SUÐURNESJAAÆTL- UN I Tjarnariundi Keflavik mánudaginn 28. mai n.k. kl. 20.30. Frummælandi verður Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- og orkumála- ráðherra. Gils Guðmundsson alþingismaður mætir á fundinn. Félagar , fjölmennum á fundinn. Samstarfsnefnd Aiþýðubandalagsfélaganna á Suðurnesjum. Alþýðubandalagið í Reykjavík FLOKKSFÉLAGAR Nú líður að aðalfundi og enn eru nokkrir, sem ekki hafa greitt félags- gjöld fyrir árið 1978. Hafið samband viö skrifstofuna Grettisgötu 3 hið fyrsta. Opið milli kl. 9—17 slmi 17500. — G jaidkeri og starfsmaöur. hefur enginn lokið fleiri einingum á stúdentsprófi siöan áfanga- kerfiökom til sögunnar. Elisabet lauk prófi á tónlistar- og nýmála- sviði, en seildist einnig inn á f orn- málasvið og hlaut alls staöar ágætar einkunnir. Næstur henni kom Björn Blöndal með 167 ein- ingar. Hann lauk prófi á eðlis- og náttúrusviði og hlaut einnig mjög góðar einkunnir. Tveir stúdentar aðrir luku tveimur sviöum, þeir Björn Ragnar Marteinsson og Börkur Arnviðarson. Fimmtán nemendur hlutu viöurkenningu skólans eða stofn- ana utan hans fyrir frábæran árangur i námi. Þegar rektor hafði afhent nýstúdentum skirteini sin söng skólakórinn, hyllti hina ungu stúdenta meö stúdentasöngvum og frumfluttí nýtt lag er Jón Nordal hafði samið fyrir þetta tækifæri og tileinkað stjórnanda kórsins Þorgerði Ingölfsdóttur. - Lagiö er samið við kvæði eftir Hannes Pétursson: Umhverfi. Viö þessi skólaslit var minnst þrefalds fimm ára afmælis: Þjóðhátiðarárið 1974 braut- skráðust siðustu stúdentarnir úr bekkjakerfi, 185 alls, og hinir fyrstu úr áfangakerfi, 13 alls, og þá brautskráðust einnig fyrstu stúdentar öldungadeildar, 5 talsins, en öldungadeildin tók til starfa i janúar 1972. Avörp fluttu: Gunnlaugur Snædal yngri, fráfarandi forseti nemendaráðs, af hálfu nýstúd- enta úr dagskólanum, Sólveig Edda Magnúsdóttir af hálfu nýstúdenta úr öldungadeild, Bolli Héðinsson af hálfu fimm ára stúdenta úr bekkjakerfi og af- henti skólanum mynd að gjöf frá ' árgangnum, Guðný Sigurgisla- dóttír af hálfu fyrstu stúdéntanna úr öldungadeild og afhenti rektor gjöf frá hópnum. Að lokum ávarpaöi rektor nýstúdenta, þakkaði kveðjur og gjafir og sagði skóla slitið, en at- höfninni lauk á þvi aö allir viðstaddir risu úr sætum og sungu „Hver á sér fegra föðurland”. Hún var í hópi sex væntan- legra húsasmiða sem nú halda út í atvinnulífið. Nafn hennar er Svandis Sverr- isdóttir en þvi miður var hún ekki viðstödd uppsögnina. Þá gerðist það einnig að fyrsti og eini stúdentahópur Laugalækj- arskóla útskrifaðist við sama tækifæri, alls 19 nemendur. Fleir greinar áttu þarna sina fyrstu fulltrúa. Fjórir stúdentar útskrifuðust af listasviði og fyrsti hópur vélsmiða sem numið hafa eftir nýrri reglugerð iðnfræðslu- ráðs. _ ká fÞJÓÐLEIKHÚSIfl PRINSESSAN A BAUNINNI 8. sýning i kvöld kl. 20 Grá aögangskort gilda. Laugardag kl. 20. A SAMA TÍMA AÐ ARI fimmtudag (uppstigningar r dag) kl. 20. Fáar sýningar eftir. STUNDARFRIÐUR föstudag ki. 20 sunnudag kl. 20. Miðasala 13.15—20. Simi 1- 1200. VIÐ BORGUM EKKI Miðnætursýning i kvöld kl. 23.30 Fáar sýningar eftir NORNIN BABA-JAGA Aukasýning vegna mikillar aðsóknar sunnudag kl. 15. Miðasala i Lindarbæ alla daga kl. 17-19. Sunnudaga frá kl. 13. Slmi 21971. LFIKFEIAG; . RnYKIAVlKtjR1 ER ÞETTA EKKI MITT LtF 2. sýn. I kvöld, uppselt, grá kort gilda. 3. sýn. fimmtudag, uppselt, rauð kort gilda. 4. sýn. laugardag, uppselt, blá kort gilda. STELDU BARA MILLJARÐI Föstudag kl. 20,30 Sunnudag kl. 20,30 Fáar sýningar eftir. Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30. Simi 16620. Borgarbókasafn Reykjavikur Starfsmaður óskast i Bústaðasafn. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Launakjör fara eftir samningum við Starfsmannafélag Reykjavikurborgar. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Borgar- bókasafni fyrir 13. júni n.k. Borgarbókavörður Blaðberar óskast AUSTURBORG: Austurborg: Bergstaðastræti (1. júni) Laufásvegur (1. júni) öldugata (1. júni) Melhagi (1. júni) Vesturborg: Njörvasund (1. júni) Breiðagerði (sem fyrst) MOÐVIUINN Síðumúla 6, simi 8 13 3J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.