Þjóðviljinn - 27.05.1979, Síða 3
Sunnudagur 27. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ljóstraö upp
um skuggalega
hegðun vestrænna
álhringa —
þar á meðal
norskra —
í Brasilíu
Sjö daga vinnuvika
allt að 15 tímum
og
á dag
verkfræöingur segir aö þetta sé
haft þannig vegna þess, aö menn
verði stressaöir svona langt inni i
frumskóginum og ybbist hver viö
annan ef þeir fái eitthvert fri svo
heitiö geti.
Gaddavír kringum hvern
bragga
En fleiri ástæður en frum-
skógarumhverfiö gætu verið til
þess að verkamennirnir væru i
vondu skapi. Af frásögnum nokk-
urra þeirra sem blaöamenn náöu
tali af, mátti marka aö sumir
þeirra heföu veriö tældir til aö
ráöa sig meö loforðum um allt aö
helmingi hærri laun en þeir
fengu, þegar til kom. ófaglæröir
verkamenn mega þakka fyrir ef
þeir fá s^m svarar um 20.000 Isl.
kr. á mánuði. Launamismunur er
gifurlegur, þannig aö faglæröir
geta fengið allt aö áttfalt meira
en aö visu meö miklu striti.
Verkamennirnir, nú um 5000 aö
tölu, búa I braggahverfi, sem litur
út eins og fangabúöir. Gaddavirs-
giröing ekki bara i kring um
braggasvæðið allt, heldur og
hvern einstakan bragga. Og viö
hliðina standa öryggisveröir. Lay
verkfræöingur segir sem fyrr aö
þessi varöhöld séu nauösynleg til
þess aö verkamenn fari ekki I hár
saman innbyröis. Höfundar
bókarinnar eru fyrir sitt leyti I
engum vafa um, að gaddavirinn
og veröirnir séu fyrstog fremst til
aö tryggja öryggi yfirmannanna
á staönum. En gerist verka-
mennirnir baldnir, geta álhring-
arnir gert sér hægt um hönd og
sagt þeim upp —alltaf má fá fyrir
litiö nýja verkamenn I noröur-.
héruöum Brasiliu, þar sem þaö er
regla aö menn séu atvinnulausir.
Engin miskunn viö frum-
byggja og umhverfi
Framkvæmdirnar viö Trom-
betas eru á margan hátt svipaöar
fleirum slikum, sem ráöist hefur
veriö i á frumskógasvæöum
landsins frá þvi aö hershöfðingj-
arnir rændu völdum 1964. Frum-
byggjunum á slikum fram-
kvæmdasvæöum hefur undan-
tekningarfaust veriö miskunnar-
laust rutt á braut. Yfirleitt eru
þeir frumbyggjar indiánar, en viö
Trombetas voru fyrir svokallaöir
Caboclos, afkomendur svartra
strokuþræla á fyrri tlö. Sumt af
þessu fólki hefur flúiö eitthvaö út i
skóg, en annaö lifir snlkjulifi
kringum athafnasvæöiö.
Eitt af þvi, sem gerir að verk-
um aö stjórn brasilisku herfor-
ingjaklikunnar er eftirlæti
álhringanna og annarra slíkra
stórfyrirtækja er aö hjá henni
komast umhverfisverndarmenn
ekki upp meö neitt múöur, frekar
en aörir andófsmenn. Og verkin
sýna merkin viða i frumskógum
Brasiliu, þar á meðal viö Trom-
betas. Þar er byrjaö á þvl að
höggva niöur skóginn. Siöan er 5-6
metra þykkt jarðlag fjarlægt, og
er þá komiö niöur á báxitiö.
Nefndir bókarhöfundar telja lik-
legt, aö þannig muni veröa farið
meö allt það 870 ferkilómetra
svæöi sem norsku álhringarnir
ásamt fleirum hafa þarna til um-
ráða. Alhringarnir segjast ætla
aö græöa það upp aö nýju, en þaö
telja bókarhöfundar áróður. Þeir
segja aö kostnaðurinn viö sllka
endurgræöslu yröi svo stórkost-
legur, að hann myndi gera aö
engu samkeppnisaöstööu báxits-
ins frá Trombetas á heims-
markaönum.
Hneyksli í Noregi
Bókarhöfundar telja, aö Trom-
betas-framkvæmdirnar og fleiri
slikar stefni i hættu Amazonas-
skógunum, stærsta súrefnisgjafa
jaröar, meö hugsanlegum alvar-
legum afleiöingum fyrir lofts-
lagið á þeim slóöum og á jöröinni
allri.
Bók þessi og sjónvarpskvik-
mynd um sama efni, sem sýnd
var fáum dögum eftir útkomu
bókarinnar, hafa þegar haft mikil
áhrif i Noregi. Auk þess, sem aö
framan er rakiö, þykir ekki gott
til afspurnar aö norski áliönaöur-
inn skuli vera i bandalagi viö jafn
viöurstyggilega haröstjórn og sú
brasiliska er gegn báxitfram-
leiöslurikjunum, sem leitast viö
að fá einhvern botn I efnahagsmál
sin. A þaö er bent aö þetta gangi
þvert á yfirlýsta stefnu Noregs
um stuöning viö þá viöleitni
þriöja heims rikja aö draga úr
bilinu milli rlkra þjóöa og fá-
tækra, auk þess sem það standi
norsku Verkamannaflokksstjórn-
inni ólíkt nær aö kaupa sitt ál frá
vinstristjórninni á Jamalku en
hægrisinnuðum einræöisherrum
Brasiliu.
Verka manna f lokkurinn
þjarmar að Norsk Hydro
Aö þvi er Dagbladet i Osló
skrifar eru allar likur á þvi aö
Verkamannaflokkurinn og
norska utanrikisráöuneytiö knýi
Hydro og Ardal og Sunndal Verk
til þess aö hætta þátttöku i fram-
kvæmdunum viö Trombetas. í
staðinn er trúlegt aö Norðmenn
snúi sér aftur i auknum mæli til
Jamaiku, sem leggur kapp á sem
mest viðskipti viö Noreg. Bæöi
bjóöa Jamaikumenn Norömönn-
um til sölu mikiö magn báxits á
komandi árum og gefa þeim kost
á aö taka þátt i byggingu og
rekstri álvers á Jamaiku. Ofan á
þetta segja Jamaikumenn aö
norski kaupskipaflotinn geti
fengiöaö flytja mestan hluta þess
báxits og áls sem Jamaikumenn
flytja út til Sovétrikjanna og Ung-
verjalands á næstu árum. Þar er
um aö ræða mikiö magn, og þaö
er mikilvægt atriöi i þjóöarbú-
skap Norömanna aö hinn stóra
kaupskipaflota þeirra skorti ekki
verkefni. dþ.
Nýi Hjúknmarskólinn
Framhaldsnám i hjúkrunarfræði hefst 17.
september 1979 i eftirtöldum greinum:
Hjúkrun á handlækninga- og lyflækninga-
deildum, svæfinga- og skurðhjúkrun og
gjörgæslu. Umsóknir þurfa að hafa borist
skólanum fyrir 1. júli n.k.
Skólastjóri
Trombetas heitir eitt af
fjölmörgum fljótum sem
falla i þá miklu móðu
Amazonas, og á upptök sin
norður undir landamærum
Brasilíu og Gvæönu. I
frumskógunum nálægt
fljóti þessu er í jörðu eitt-
hvert mesta magn af
báxít, sem fundist hefur,
en úr báxíti er framleitt ál
sem kunnugter. Enda hafa
nú mörg risafyrirtæki á
þessu sviði hafið stórfellt
báxítnám við Trombetas.
Þar eru drjúgir þátttak-
endur tvö aðalfyrirtæki
Norðmanna í álfram-
leiðslu, Norsk Hydro og
Árdal og Sunndal Verk,
sem norska ríkið á stóran
hlut í.
Fyrirtækjasamsteypa, sem
norsku álfyrirtækin eru I, hefur
fengiö til umráöa hjá brasiliskum
stjórnarvöldum 870 ferkilómetra
landsvæði i frumskóginum. 1
áætlun samsteypunnar er gert
ráö fyrir aö næstu árin veröi
brotnar þarna úr jörðu rúmar
þrjár miljónir smálesta af báxiti
árlega og aö smámsaman veröi
framleiöslan aukin upp I 8-10
miljónir smálesta á ári, allt eftir
hvaö þurfa þykir.
Reipdráttur álhringa og
báxítlanda
Bein orsök til þessara miklu
umsvifa álhringanna djúpt inni i
Amazonas-skógum er haröur
reipdráttur milli risafyrirtækja
þessara og báxltframleiöslulanda
þriöja heimsins. Báxltlöndin eiga
þaö sammerkt meö öörum
þróunarlöndum aö þau hanga
mjög i lausu lofti efnahagslega
vegna grlöarlegra sveiflna á hrá-
efnaverði. Úr þessum vitahring
hafa báxitframleiöslurikin reynt
aö komast meö þvi aö stofna meö
sér bandalag (þekkt undir
skammstöfuninni IBA), og er
markmiö þess aö koma þvi til
leiöar, aö báxitlöndin likt og oliu-
löndin, fái ráöiö verðlaginu á sinu
hráefni. Eins og sakir standa eru
þaö álhringarnir, norðuramerisk-
ir og vesturevrópskir, sem ráöa
mestu um verölagningu báxits-
ins. Og það verö, sem báxitlöndin
fá fyrir sitt báxlt, er nánast
hlægilega lágt miöaö viö veröiö á
fullunnu áli.
Hagnaöurinn lendir sem sagt
mestanpart hjá þeim, sem vinna
ál úr báxltinu. Óg sá iðnaöur er
fyrstog fremst i höndum fjölþjóö-
legra risafyrirtækja eins og AL-
CAN, ALCOA, Keyser, Alusuisse
o.fl.
Bandalag álhringa og
Brasilíustjórnar
I viöureign báxitlandanna við
þessi tröll og fleiri hefur Jamaika
veriö fremst i flokki. Til skamms
tima keypti norski áliönaöurinn
sitt báxit þaðan mikiö til, en úr
þeim kaupum hefur mjög dregið
siöan Astralia fór aö flytja út
báxit og ekki síður eftir aö fariö
var að vinna þaö viö Trombetas.
Meö báxitvinnslunni viö Trom-
betas sjá vesturevrópsku og sér-
staklega noröuramerisku
auöhringarnir sér leik á boröi aö
kippa fótunum undan viöleitni
Jamaiku og annarra IBA-rikja til
þess aö ráöa aö einhverju leyti
verölagningu báxits á heims-
markaönum. Viö þaö njóta
álhringarnir aö sjálfsögöu ein-
dregins stuönings brasilisku her-
foringjastjórnarinnar. Brasilia
neitar aö ganga i IBA og veitir
Michael Manley, forsætisráö-
herra Jamaiku. — Norsk Hydro
er þátttakandi i bandalagi viö
brasilisku einræöisstjórnina gegn
landi hans og fleiri báxftfram-
leiöslurikjum.
álhringunum öll hugsanleg friö-
indi til báxltnáms á brasiliskri
grund. Og með þvi aö afla sér
mikils magns af báxiti utan IBA-
rikjanna komast álhringarnir hjá
þvi aö veröa háöir báxiti frá
þeim.
Þessu og mörgu fleira er haldiö
fram I bók, sem nýkomin er út I
Noregi og er eftir fjóra þarlenda
blaðamenn og könnuöi sem tóku
sér fyrir hendur aö rannsaka
framkvæmdir álhringanna viö
Trombetas og þá sérstaklega þátt
norskra fyrirtækja I þeim. Þeir
óskuöu fyrst eftir samstarfi viö
norsku fyrirtækin, bæöi I Noregi
og Brasiliu en forstjórarnir uröu
hundslegir viö, neituöu fyrst aö
greiöa götu þeirra og bönnuöu
þeim siöan aögang aö athafna
svæöinu viö Trombetas.
Léku á yfirverkfræðing
Ekki létu fjórmenningarnir sér
segjast fyrir þaö, heldur
ferðuöust til athafnasvæöisins og
þóttust vera túristar á veiöum.
Þeir hittu aö máli yfirverk-
fræöinginn viö framkvæmdirnar,
sem tók þeim vel, feginn til-
breytingu frá fásinninu i frum-
skóginum, og gaf þeim upp mik-
inn fróðleik um starfsemi
álhringanna þarna. Og þá fengu
blaðamennirnir fljótt skýringar á
því, hversvegna ráöamenn
norska áliðnaöarins höföu talið
hyggilegt aö halda þeim frá
Trombetas-svæöinu.
Aö sögn yfirverkfræöingsins,
Þjóöverja að nafni Gunther Lay,
vinna verkamennirnir á svæöinu
sjö daga vikunnar (eins og i
Kampútseu hjá Pol Pot) — hafa
engan fridag. Og vinnutiminn er
þetta 10-15 tlmar á dag. Lay yfir-
Edda Jónsdóttir
Forsiöumynd Sunnudags-
blaösins er aö þessu sinni
eftir Eddu Jónsdóttur, og ber
myndin nafniö „Ég vil fara
frá þér til aö geta komið til
þín aftur” II.
Edda er fædd I Reykjavik
28. febrúar 1942 og stundaöi
nám viö Myndlistarskólann i
Reykjavik og Myndlista- og
handiöaskóla ísiands. Þá
nam hún erlendis viö Rikjs-
akademie van Beeldene
Kunsten i Amsterdam.
Edda Jónsdóttir hefur
tekiö þátt i grafiksýningum
á tslandi, 1 Danmörku
Sviþjóö, Noregi og Póllandi.
Edda opnaöi sýningu á
föstudaginn var I Galleri
Suöurgötu 7 og veröur
sýningin opin daglega frá kl.
16-22 en 14-22 um helgina.
Sýningin stendur til 1. júni.
—im
Verkamenn viö Trombetas
— sviknir um kaup og lokaöir inni i gaddavirsgiröingu.
Forsíðu-
myndin