Þjóðviljinn - 27.05.1979, Page 5
Sunnudagur 27. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SM>A 5
VERÐBÓLGAN
er í eldhúsinu
Það þýðir ekki að flýja í kústaskápinn.
En verðbólgan lætur sér ekki aðeins nægja eldhúsið og að hækka verðlag á öllum okkar mat-
vörum. Hún er líka inni í stofu, í bílnum, í vinnunni.hún er allsstaðar.
Verðbólgan verður til þess að:
• við erum rugluð í öllu vöruverði.
• að við höfum oft of litla peninga til þess að ráðstafa þeim á hagkvæman hátt.
• við þorum ekki að spara, því að verðbólgan smýgur inn í traustustu banka-
geymslur.
• við eigum erfitt með að gera áætlanir, hvort sem er fyrir heimilið eða í vinnunni.
• við finnum óróleika vaxa í þjóðfélaginu.
• við sjáum fyrirtækin, sem við vinnum í,verða veikari og útflutningsstarfsemi
þjóðarinnar erfiðari.
• við verðum fyrr en síðar að snúast til sóknar gegn henni í stað þess að velta á milli
okkar fleiri og fleiri verðlitlum krónum.
Veizt þú að:
þú hefðir 25% betri lífskjör núna, ef verð-
bólgan hefði ekki dregið hagvöxtinn niður
síðustu 25 árin?
tekjur verkamanns hafa hækkað um
900% frá 1972, en kjör hans hafa aðeins
batnað um 9%. Hitt er verðbólgan.
verðbólgan verður 107% í maí á næsta ári,
ef gengið er að einum þriðja af kröfum
yfirmanna á farskipum og aðrir launþegar
fá sömu hækkun?
Kaffipakki árið 1979 kr. 620
40% verðbólga
Kaffipakki árið 1985 kr. 4.668
- 1990 kr. 25.107
- 2000 kr. 726.240
KOSTAÐI 1969 36 KR.
Snorri Jónsson:
„Það hefur sýnt sig, að hin hraða verðbólga gerir það
að verkum aö kaupmátturinn rýrnar." (4.10 '75)
Eysteinn Jónsson:
„Það er stutt í stórslys, ef mistekst að draga úr dans-
hraðanum." (19.5 '79)
Jónas H. Haralz:
„Verðbólgan knýr hvern einstakan til að breyta gegn
hagsmunum þjóðarheildarinnar og þar með, þegar
allt kemur til alls, gegn sínum eigin hagsmunum."
(21/2 '76)