Þjóðviljinn - 27.05.1979, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 27.05.1979, Qupperneq 19
Sunnudagur 27. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 MYNDARTEXTI ÓSKAST Geturðu fundið smellinn myndartexta við þessa mynd? Sendu þá svarið til Sunnudagsblaðsins merkt: „Myndar- texti óskast" — Sunnudagsblaðið, Þjóðviljinn, Síðumúla ViiJ þökkum öll svörin. Að mati dómnefndar (sem var alls ekki sammála framan af) hlaut eftir- farandi texti bestu dóma: — Er ég ekki vel rakaður elskan? Svarið var merkt Erlendur Magnússon Giljasel 10, Rvik, og kunnum við honum góðar þakkir fyrir. Aðrar lausnir: — Ertu búin að taka pilluna? - (ómerkt) — Hefurðu verið lengi i Sædýrasafninu? (Sigga Pé) — Nei, ég borga ekki heldur þungaskattinn! (Þórhildur F.) Umboðsmaður óskast i Garðabæ til afleysinga i sumar i 1 til 2 mánuði. Upplýsingar á afgreiðslu Þjóðviljans i sima 81333. UODVIUINN Ólafsvík - Ólafsvik Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu til áskrifenda og innheimtu i Ólafsvik frá 1. júni n.k. Upplýsingar gefur Kristján Helgason, Brúarholti 5 simi 6198 og afgr. blaðsins i Reykjavik, simi 91-81333. garðinum Litlu verður Vöggur feginn Enn var þó eftir að máta hjálm- inn og súrefnisgrimuna. Var þá komið með rennimál og mæld munnbreiddin og höfuöstærðin. Þegar súrefnisgriman var siöan reynd kom i ljós nokkuö sem mig haföi grunað. Súrefni lak meö skegginu! Kveö ég þvi nokkuð að þrufa að raka það af, en hafði hins vegar ákveöiö aö fórna þvi ef nauösyn krefði. Hvaö er eitt skegg á móti Pahntom-flugi? Morgunblaðið Oj, barasta! Þó tekur steininn úr þegar sum- ar af þessum „flnu frúm” strunsa út úr böðunum þurrar á kropp og arka beinustu leiö ofan i næsta pott með vessafullar klyftir og svitastorkna handarkrika. Ja, þvilik veiruveisla i pottunum þeim! Dagblaðið Láttu blómin tala t langþráð fri fyrir mæðrablómin. Dagblaðið Á elleftu stundu Alþýðuflokkurinn kynnir stjórnmálaástandiö I flokksfélög- unum. Fyrirsögn I Alþýðublaðinu Undur náttúrunnar Lúðan lék sér aö ýsu eins og köttur að mús. Fyrirsögn I Morgunblaðinu Ný bókmenntasaga? Litum frá tónsnillingnum og til hins fræga franska skálds, Ana- tole France. t auölegð og alls- nægtum, likamlega hraustur og heimsfrægur maður, sem þjóð hans var hreykin af, var han van- sæll, auðugur að flestu öðru en lifshamingju. Guð hafði ekki byggt hús hans, Dorttinn ekki verndað borgina. Trúlaus lifði hann öll sin efri ár, snauöur þrátt fyrir auðlegöina, fagnaðarlaus þrátt fyrir heimsfrægðina. Jón Auðuns i Morgunblaðinu Kemur engum á óvart — Sá atburður varð á fundi Neðri deildar Alþingis i gær, aö Halldór E. Sigurösson féll i öng- vit, er hann var að flytja ræðu um rikisreikninginn 1977. Tlminn I leit að sjálfum sér Mary Beth og margar aðrar kvenréttindakonur grúska I sög- unni til að öölast skilning á sjálf- um sér. Hún rifjar upp hvernig 9 miljónir kvenna voru brenndar á báli sem galdranornir fyrr á öld- um. Dagblaðiö Mannfræði Munurinn á Grikkjum og Tyrkjum er svipaöur og á hund- um og köttum. Tlminn Tilbrigði um stef Aörir stjórnendur sem snill- ingar teljast, fara gjarnan aðrar leiöir. Leita þeir þá gjarnan út- fyrir þennan ramma, en halda þó öllum hraðabreytingum i full- komnu jafnvægi, þannig aö ef eitthvert „stærðfræðiidjótiö” tæki sig til og reiknaöi út sam- nefnara hraöabreytinganna, væri útkoman „rauöi þráðurinn” þetta er ekki ólikt þvi að hjóla. Það er hægt að hjóla eftir striki og beint I mark, en þaö er lika hægt að hjóla sikk sakk og komast samt i mark. Tónlistargagnrýni iNorðurlandi Orkustofnun óskar að ráða rannsóknarmann til starfa timabilið júni til desember 1979. og er rannsóknarmanninum ætlað að vinna við efnagreiningar á Rannsóknar- stofu Orkustofnunar i Keldnaholti. Umsóknir með kipplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar starfsmannastjóra OrkustofnunaiA fyrir 5. júni n.k. Orkustofnun Frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur Staða forstöðumanns Staða forstöðumanns sálfræðideildar skóla i Réttarholtsskóla er laus til um- sóknar. Stöður sálfræðinga, félagsráðgjafa og sér- kennara eru lausar við sálfræðideildir skóla i Reykjavik. Ennfremur staða ritara við sálfræðideildina i Réttarholtsskóla. Umsóknir skulu hafa borist til Fræðslu- skrifstofu Reykjavikur fyrir 24. júni n.k. Kennari óskar að taka á leigu 3ja herbergja íbúð Helst frá 1. júli og helst miðsvæðis i Kópa- vogi eða Reykjavik. Góð umgengni og reglusemi. Fyrirfram- greiðsla ef óskað er. Upplýsingar i sima 43819. Atvinnurekendur Á atvinnumiðlun námsmanna eru skrá- settir fjölmargir menntaskólanemar, fjöl- brautaskólanemar og háskólanemar. Fjölhæfur starfskraftur á öllum aldri (15- 40 ára) Atvinnumiðlun námsmanna Stúdentaheimilinu v/Hringbraut simi 15959 opið kl. 9-5. íbúð óskast Háskólanemi óskar eftir 2ja-3 ja herbergja ibúð i mið- eða vesturbænum. Upplýsingar i sima 10526. Alþýðubandalagsfélögin á Suðurnesjum Sameiginlegur fundur um Iðnþróun og Suðurnesjaáætlun verður i Tjarnarlundi i Keflavik mánudaginn 28. mai nk. kl. 20.30. Frummælandi verður Hjörleifur Guttorms- son iðnaðar- og orku- málaráðherra. Gils Guðmundsson alþingismaður mætir á fundinn. Félagar, fjölmennum. Samstarfsnefnd Alþýðubandalags- félaganna á Suðurnesjum. Hjörleifur Guttormsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.