Þjóðviljinn - 30.05.1979, Qupperneq 3
MiÐvikudagur 30. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Qfbeldi gegn
konum
Nauðganir
og líkams-
árásir
Ofbeldisverk gegn konum eru
tiö um þessar mundir. Um helg-
ina kæröu tvær stúlkur nauögun
og aöfaranótt þriöjudags var ung
kona stungin meö hnif og slas-
aöist illa. Sambýlismaöur stúlk-
unnr játaöi að vera valdur aö
verknaöinum.
Erfiðlega gekk að ná sambandi
við Rannsóknarlögreglu rikisins i
gær, þar sem yfirheyrslur stóðu
yfir. t gær kom fram i fjölmiðlum
aðtveir mennhafa játaðnauðgun
I öskjuhllðinni aðfaranótt sunnu-
dags. Þá hefur maður verið hand-
tekinn vegna nauðgunarkæru
sem stúlka i Kópavogi lagði fram.
1 skýrslu Þórðar Björnssonar
yfirsaksóknara i vetur kom fram
að nauðgunum hefur fjölgað
nokkuð, þ.e.a.s. kærur eru fleiri.
Lengi hefur leikið grunur á að
nauðganir séu ekki kærðar vegna
eftirmálanna.
Blaðamaður fékk fregnir af
nauðgunarmáli sem komið var i
rannsókn, en stúlkan sem i hlut
átti gafst upp vegna stöðugra
yfirheyrslna og rannsókna. Það
er ekki nóg með að verða fyrir
nauðgun, heldur fylgja slficar
andlegar pinslir i kjöllfarið að
margar gefast upp.
Erlendis hafa nauöganir verið
mjög i sviðsljósinu. Ofbeldi gegn
konum hefur aukist, einkum i
Bandarikjunum. Þar eru nokkur
morðmál fyrir dómi, þar sem
konur orðið nauðgurum að bana.
Þær fá stranga dóma og viöa er
barist hart til að fá þær sýknaðar.
Konur hafa reynt að finna upp
einhver ráð gegn likamsárásum,
ýmist hafa þær lært sjálfsvörn
eða gripið til einhverra vopna.
Það nýjasta sem fregnir fara af
er hylki með illa þefjandi vökva
sem fest er i jakkaboðunginn. Ef
menn gerast of nærgöngurlir er
um að gera að sprauta framan i
þá vökvanum og segir i fréttinni
að við það dofni kynhvötin og
árásarhneigðin nógu lengi til að
tækifæri gefist að koma sér á
brott.
Banka-
Hluti fundargesta á borgarafundinum í Kópavogi s.I. mánudagskvöld. — Ljósm.: eik.
Borgarafundur í Kópavogi:
Snörp gagnrýni á
miöb æj arski pulagið
Mjög skörp gagnrýni kom fram
á tillögur aö miöbæjarskipulagi i
Kópavogi á borgarafundi, sem
haldinn var þar s.I. mánudags-
kvöld.
Bæjarráð Kópavogs boðaði til
borgarafundar um skipulagstil-
lögur nýja miðbæjarins i
tengslum við sýningu, sem nú
stendur yfir á tillögunum, i
Hamraborg 1. Á borgarafundin-
um voru mættir um 50 manns og
urðu all fjörugar umræður um
tillögurnar. Umræðurnar ein-
kenndust af skarpri gagnrýni á
miðbæjarskipulagið. Flestir þeir
fundarmenn, sem tóku til máls
fundu skipulaginu flest til foráttu,
einkum fyrir það að tillögurnar
væru draumórakenndar og að
yfirleitt myndi miðbær Kópavogs
ekki vaxa þarna upp þar sem
mikið verslunar- og þjónustu-
hverfi væri að myndast austar á
hálsinum. Þá var einnig veist að
staðsetningu fyrirhugaðs
menntaskóla og tillaga um húsið
sjálft gagnrýnd fyrir að vera of
dýr og viðamikil fyrir fjárhag
Kópavogsbæjar. Embættismenn
og nokkrir bæjarfulltrúar vörðu
tillögurnar á þeim forsendum að
of snemmt væri að dæma um
framtiðarútlit miðbæjarins á þvi
hvernig hann lýtur út i dag, þar
sem miðbærinn væri ekki nema
hálfbyggður.
A borgarafundinum var lögð
fram tillaga frá þremur bæjar-
búum þess efnis, að fyrirliggjandi
tillögum um lokagerð miðbæjar-
skipulagsins verði visað til endur-
skoðunar, þarsem til grundvallar
verði lögð sjónarmið um útivist
og almannanytjar. Tillagan var
hins vegar ekki borin upp, þar
sem tillaga kom fram um að
fresta fundinum, en þá var klukk-
an langt gengin i tvö aðfaranótt
þriöjudags. Tillaga þessi var
samþykkt, en enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær framhalds-
fundurinn veröur haldinn.
Nánar verður sagt frá
umræðum á fundinum i blaðinu á
morgun. —Þig
Ég gæti best haldið að
þessi 3% hækkun sem við
bankamenn fengum þýði
það að þessi hækkun eigi að
ganga jafnt yfir aila laun-
þega, sagði Böðvar
Magnússon, varaform.
Sambands íslenskra
bankamanna, þegar Þjóð-
viljinn hafði samband við
hann í gær.
Við sömdum við bankana um að
þau 3%, sem gert var ráð fyrir i
samningum að ættu að koma til
framkvæmda i mars sl. gengju
strax i gildi, þannig að grunn-
kaupið frá 1. mars sl. hækki um
3% og það verði siðan fast grunn-
kaup.
Við héldum alltaf fast i þessar
kröfur okkar um 3%, enda sömd-
um við aldrei um neitt annað við
bankana.
Bankarnir aftur á móti drógu
það á langinn að ræða þessi mál
við okkur, þar sem þeir vildu sjá
hvernig þessum málum lyktaði
almennt hjá launþegum.
Fyrir okkur bankamenn er það
ágætt að vera búnir að koma
þessu atriði heilu i höfn rétt fyrir
mánaðamótin sem þýðir að upp-
reikningshalinn á kauptöxtum
verður minni en ella, sagði
Böðvar að lokum.
íslenskir skákmenn
gera víðreist í sumar
Skáksamband tslands hefur
milligöngu um þátttöku
fslendinga i fjölda skákmóta
erlendis i sumar og haust.
Nú i júni verður efnt til skák-
búða i Sviþjóð og verður Halldór
Skjalavarsla
sveitarfélaga
Samband islenskra sveitar-
félaga efiiir tii umræöu- og kynn-
ingarfundar um skjalavörslu
sveitarfélaga i dag á Hótel Esju i
Reykjavik.
A fundinum verður lagður fram
ogkynntur samræmdur bréfalyk-
ill fyrir sveitarfélög, sem sniðinn
er eftir norrænum fyrirmyndum
og lagaður að þörfum sveitar-
félaga hér á landi. Ennfremur
verður rætt almennt um meðferð
og vörslu skjala á vettvangi
sveitarfélaga og stofnana þeirra
ogkröfur Þjóðskjalasafns tslands
varðandi geymslu gagna, miðað
við nútima geymslutækni.
t tengslum við fundinn veröur
efiit til sýningar á ýmsum búnaði,
sem notaður er við vörslu skjala
og röðun hvers konar gagna á
skrifstofum sveitarfélag og stofn-
ana þeirra.
Alexander Stefánsson, vara-
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga mun setja fundinn,
en si'ðan verða flutt átta fram-
söguerindi um hina ýmsa þætti
umræðuefnisins.
Um áttatiu manns höfðu á
mánudaginn tilkynnt þátttöku
sina á fundinum.
G. Einarsson frá Bolungarvik
meðal þátttakenda. Þá er
Magnus FSldt, unglingameistari
Sviþjóðar kominn til tslands og
fer hann austur að Kiaustri i
skákbúðir þar.
Þá fara unglingar til Noregs i
ágúst i skákbúðir og einnig hefur
borist boð til islenskra unglinga
að taka þátt i Akropolismóti i
Grikklandi i júli og einnig i skák-
móti i Glasgow i september.
Akveðið hefur verið að Jóhann
Hjartarson fari á heimsmeistara-
mót sveina sem haidið verður i
Belfort i Frakklandi I júli. Einnig
hefur verið ákveðið að Margeir
Pétursson fari á heimsmeistara-
mót unglinga i Noregi. Er stefnt
að þvi að bæði Jóhann og
Margeir geti haft aöstoðarmenn
með sér og hefur verið falast eftir
að Helgi Olafsson verði aðstoðar-
maður Jóhanns.
Þá verður send sveit á heims-
meistaramót unglinga undir 16
ára I sveitakeppni i Danmörku i
október og ættu Islendingar þar
að eiga sigurstranglega sveit.
Þá fara islenskar sveitir á
Norðurlandameistaramót grunn-
skóla og framhaldsskóla i sumar.
Norðurlandamótið i skák
verður haldiö i Sundsvall i
Sviþjóð 26. júli til 4. ágúst og
verða sendir þangað þau
Ingvar Asmundsson
skákmeistari Islands, Aslaug
Kristinsdóttir, kvenskákmeistari
Islands, Jón L. Arnason, Norður-
landameistari unglinga og Guð-
laug Þorsteinsdóttir kvenskák-
meistari Noröurlanda. öðrum
skákmönnum er einnig heimil
þátttaka á eigin vegum.
Fyrsti áfangi í átt til verðtryggingar:
Vextir hækka um
2.5% 1. júní
Lágir grunnvextir og
hækkandi verðbótaþáttur
Breytt vaxtaákvæöi taka gildi
hinn 1. júni. t samræmi viö þaö
markmiö ólafslaga aö inn- og út-
lán veröi að fullu verötryggö i
áföngum fyrir árslok 1980 veröur
fyrsta skrefiö tekiö nú. Sam-
kvæmt þvi veröur vaxtahækkun
nú almennt 2,5%. Grunnvextir
verða frá 5 til 7,5%, enveröbóta-
þáttur 17 til 27 % eftir tegundum
lána og reikninga.
1 frétt frá Seðlabankanum segir
að framkvæmd vaxtastefnu og
verðtryggingar samkvæmt Ólafs-
lögum geti einkum veriö tvenns
konar. Annars vegar að höfuðstóll
láns sé bundinn ákveðinni visitölu
og afborganir og vextir séu reikn-
aðir af verðbættum höfuðstól á
hverjum tima, svo sem nú á sér
stað hjá fjárfestingarlánasjóðum
og lffeyrissjóðum, en hins vegar
að vextir að meðtöldum verð-
bótaþætti verði látnir fylgja verð-
bólguþróun, og á sú regla fyrst og
fremst við almenn viöskipti inn-
lánsstofnana.
Mat verðbólgustigs verður
framvegis miðað við sérstaka
verðbótavisitölu þegar vaxta-
ákvarðanir verða teknar. Hún er
samsett úr 2/3 af visitölu fram-
færslukostnaðar og 1/3 af visitölu
byggingarkostnaðar. Miðaö er
bæði við reynslu og spár fram i
timann og þannig talið að byggt
sé á verðbólgureynslu sem mönn-
um er i fersku minni og þeirri
sem best er vitaö um i náinni
framtið. Núgildandi mat verð-
bólgustigs samkvæmt þessari
reglu er nú 41.8% segir i frétt
Seðlabankans.
Viðmiðunarvextir og
vaxtabreytingar.
Lögin mæla svo fyrir, að reglur
um verðtryggingu skuli einkum
við það miðaðar að tryggja allt
sparifé, sem bundið er til þriggja
mánaða eða lengur gegn verð-
rýrnun af völdum verðhækkana.
Vextir þriggja mánaða vaxta-
aukainnlána mynda samkvæmt
þessu viðmiðunargrund völl
vaxtakerfisins, og er við það miö-
að, að vextir af þeim verði orðnir
jafnir verðbólgustigi i árslok 1980.
Vextir þessara innlána eru nú
25%, eða sem svarar 60% af
metnu verðbólgustigi. Aformað
er að ná þessu hlutfalli upp i 100 i
sjö áföngum eða sem svarar 5,7
prósentustigum hverju sinni. I
fyrsta áfanga leiðir þetta til þess,
að þriggja mánaða innlánsvextir
þurfi að hækka um 2,5%, þ.e.
verði 27,5%, og munu flestir aðrir
vextir hækka að sama skapi.
I þessari reglu felst, að verð-
bótaþáttur vaxta mundi hækka
um nálægt 2,5% ársfjórðungslega
Framhald á 14. siðu
Vaxtabreytingin 1. júni Hér fer á eftir yfirlit hinna nýju vaxtaákvæöa, og eru núgildandi vaxtakjör tekin meö til samanburöar.
Vextir og veröbót frá 1.6.79.
Vextir j nú ! samtals Grunn vextir Verö- bóta- þáttur Vextir alls
Innlán: % % % %
alm.sparifé 19.0 5.0 17.0 22.0
6. mán. reikn 20.5 6.0 17.0 23.0
I2mán og lOára reikn 22.0 7.0 17.0 24.0
3ja mán. vaxtaaukareikn 25.0 5.5 22.0 27.5
12, mán vaxtaaukareikn 32.0 7.5 27.0 34.5
veltiinnlán 3.0 5.5
skammtima vixlar (forvextir) 23.5 25.5
samningsvixlar (forvextir) 23.5 5.5 20.0 25.5
hlr. (vextir og við- skiptagjald) 25.0 5.5 22.0 27.5
hlr. (skammtimayfirdr) 25.0 — 27.0
skuldabréf,alm 26.0 6.5 22.0 28.5
vaxtaaukalán 33.0 8.5 27.0 35.5
endurkaupanleg afurða- lán 18.25 3.5 17.0 20.5
verðtryggð skuldabréf (4ára lágmarkstimi) 2.0
vanskilavextir pr. mánuð 3.0 - — 4.0