Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. mal 1979
Kennarar
Tvo kennara vantar að gagnfræðaskóla Húsavikur. Aðalkennslugreinar enska og danska.
Upplýsingar veitir skólastjóri i 41166 eða 96-41344. sima 96-
Skólanefnd Húsavikur
UTBOÐ
Patrekshreppur óskar eftir tilboðum i að
byggja undirstöður og botnplötur grunn-
skólans á Patreksfirði. í f
útboðsgagna má vitja á sknfstofu
Patrekshrepps eða verkfræðistofu Stefáns
Ólafssonar h/f gegn 20 þús. kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á verkfræðistofu
Stefáns Ólafssonar h/f kl. 11 hinn 11. júni
1979.
Verkfræðistofa Stefáns ólafssonar h/f.
Hver er skólastefna íhaldsins?
Stöðvuðu framhalds-
skólafrumvarpið
í þriðja sinn sem það var lagt fram
Ein af þeim aöferöum sem
þingmenn nota til þess aö stööva
mál, sem þeir eru andvigir en
grunar aö þingmeirihluti sé fyrir,
er aö beita máiþófi. Þessu var
ekki mikiö beitt á þvl þingi, sem
nú er nýlokiö, en eitt þeirra mála
sem þannig dagaöi uppi var
frumvarp til laga úm framhalds-
skóla. Þaö komst aldrei frá neöri
deild, þvi þegar I upphafi umræöu
rööuöu fimm Sjálfstæöismenn sér
á mælendaskrá.
Þegar málið var síöan tekiö til
umræöu var þaö á kvöldfundi og
fjölmargir þingmenn farnir heim.
Ellert Schram sem fyrstur var á
mælendaskrá bar þá fram skrif-
lega breytingartillögu sem var of
seint fram komin og þurfti þvl aö
leita afbrigöa frá þingsköpum til
þess aö umræöur um hana mættu
fara fram. Voru þá ekki nægilega
margir þingmenn viöstaddir til
þess aö hægt væri aö veita af-
brigöi. Varð þvi aö fresta umræö-
unni.
A fundi neöri deildar siödegis á
laugardag var þess enn frestað aö
ræöa framhaldsskólafrumvarpiö.
Var Ellert Schram enn fyrstur
á mælendaskrá þar sem ræðu
hans var áöur hætt, þegar ekki
fengust afbrigöi til þess aö ræöa
tillöguna sem hann flutti. (Þess
skal getiö, aö tillagan fjallaöi um
aö hver skóli gæti sett lágmarks-
skilyröi um námsárangur milli á-
fanga og væri hverjum skóla
skylt aö sjá fyrir kennslu til þess
aö nemendur gætu staöist þær
kröfur). Ellert lýsti þvi yfir i upp-
hafi ræöu sinnar aö Sjálfstæöis-
menn heföu fariö fram á það viö
rikisstjórnina aö framhalds-
skólafrumvarpiö yröi ekki af-
greitt á þessu þingi. Viö þeirri
beiðni heföi viökomandi ráöherra
ekki orðið og ætlaöi sér greinilega
aö keyra frumvarpiö i gegnum
þingiö. Þvi ættu Sjálfstæöismenn
ekki annan kost en ,,ræöa máliö
ýtarlega” og frá öllum hliöum.
Talaði þingmaöurinn siöan á ann-
an klukkutima og var þaö siöasta
ræöan um máiiö sem haldin var á
þessu þingi. Sjálfstæöismenn og
þeir bandamenn þeirra sem vildu
koma I veg fyrir samþykkt þessa
frumvarps höföu þar meö komiö
sinu fram: Frumvarpiö fékk
aldrei þinglega meöferö. Þaö var
þæft þangaö til þaö var tekiö út af
dagskrá til þess aö ekki yröi töf á
öörum störfum þingsins þess
vegna.
Varöandi þá fullyröingu Ellerts
Schram, aö ætlunin hafi veriö ,,að
keyra frumvarpiö i gegn”, er rétt
að geta þess, að þaö var lagt fram
allnokkru fyrir jól og hefur siöan
veriö i meöferö menntamála-
nefnda neöri og efri deildar. Og
áöur haföi þetta frumvarp veriö
lagt fram tvisvar, þ.á.m. af rikis-
stjórn undir forsæti Geirs Hall-
grimssonar, svo ráöherrar Sjálf-
stæöisflokksins hljóta þá aö hafa
samþykkt þaö sem stjórnarfrum-
varp. Hvers vegna Sjálfstæöis-
flokkurinn leggst gegn þessu
frumvarpi nú, er þvi ekki auö-
skýrt. Afstaöa þeirra þingmanna
Alþýöuflokksins sem geröu breyt-
ingatillögur eöa töluöu gegn
frumvarpinu er öllu ljósari, þvi
hún byggist á ekta ihaldssemi.
Eöa hvaö er betra dæmi um
fáránlega ihaldssemi en aö leggja
til aö lögbinda aö Menntaskólinn
viö Lækjargötu starfi meö hefö-
bundnu sniöi!!!
Landspítalalóð -
Bygging 7
Tilboð óskast i að steypa upp frá gólfplötu
1. hæðar miðhluta byggingar 7 á lóð Land-
spitalans i Reykjavik, ásamt frágangi
útveggja með einangrun, klæðningu,
gluggum með gleri og lögn hitakerfis
hússins.
Verkið er um 16000 rúmm. að stærð og eru
gólf úr forsteyptum einingum.
Verkinu skal lokið 1. október 1980.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn
100.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 26. júni 1979, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Aðalfundur S.H. 1979
Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna verður haldinn að Hótel Sögu
fimmtudaginn 31. mai 1979 kl. 14.00.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið-
'Um eldhúsinnréttingar; einnig viðgerðir á
eldri innréttingum. Gerum við leka vegna
steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila.
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
i Bergstaðastræti 33, simar 41070 og 24613.
Alþingi í vetur
82 lög
og 29 ályktanir
A siöasta fundi sameinaós
þings flutti Gils Guömundsson
yfirlit um störf þingsins I vetur.
Þar kom m.a. fram, aö alls
voru haldnir 325 fundir i þinginu.
Flestir voru fundir i efri deild 119,
i neöri deild 101, en 105 i samein-
uöu þingi.
Flutt voru 172 lagafrumvörp, 92
stjórnarfrumvörp og 80 þing-
mannafrumvörp. Af þeim voru
samþykkt 61 stjórnarfrumvarp
og 21 frumvarp frá þingmönnum
eöa samtals 82.
Þá voru fluttar 102 tillögur til
þingsályktunar. Af þeim voru
samþykktar 29, 7 var visaö til
rikisstjórnarinnar, ein var af-
greidd með rökstuddri dagskrá
en 67 voru ekki útræddar.
78 fyrirspurnir voru fram born-
ar i sameinuöu þingi og voru þær
allar ræddar nema ein.
Tala prentaöra þingskjala er
900 og mál til meðferöar i þinginu
voru 319. —sgt
Bruggfrum varpið
gerjar milli þinga
Komst aldrei
í gegnum
neðri deild
Hiö fræga bruggfrum varp
Tómasar Arnasonar, eöa frum-
varp um einkasölu rikisins á efn-
um til brugggeröar, komst ekki i
gegnum Alþingi að þessu sinni.
IJklegt er taliö, aö þaö veröi lagt
fram aö nýju i haust, og þá mun
fátt veröa bruggurum til bjargar,
þvi vist er taliö, aö þaö hljóti
meirihlutafylgi. 1 efri deild fékk
þaö stuöning allra viöstaddra
nema Jóns G. Sólness, en áöur
haföi rökstudd dagskrá Þorvald-
ar Garðars veriö felld, en hann
lagöi til aö frumvarpinu yröi
frestaö uns fyrir lægi heildar-
endurskoöun á áfengislöggjöf-
inni.
1 neöri deild töluöu 7 þingmenn ,
viö fyrstu umræöu málsins og
voru þeir allir andvigir frum-
varpinu.
Fór þaö síðan til nefndar og
hefur ekkert um þaö heyrst hver
afdrif þaö hlaut þar.
—sgt
Frumvarp Svavars um gjaldeyris-
og viðskiptamál
Samþykkt, en
íhaldið mótmælti
Eitt af þvi sem aö lögum varð á
siðustu dögum þingsins var
stjórnarfrumvarp um skipan
gjaldeyris-og viðskiptamála. Lög
þessi gefa gjaldeyriseftirlitinu
víðtækari heimildir til starfa en
verið hafa I gildi m.a. til þess að
athuga gagngert bókhald fyrir-
tækja.
Þá er á grundvelli laganna
hægt aö setja hömlur á starfsemi
þeirra sem brotlegir gerast viö
gjaldeyrislöggjöf. Er þess aö
vænta að nú veröi gengiö sköru-
lega fram i þvi aö innleiöa heiöar-
lega viöskiptahætti i islenska
innflutningsverslun, m.a. meö þvi
að ganga eftir þvi að fyrirtæki
skýri frá öllum erlendum ,,um-
boðslaunum” og skili þeim til
banka. Þess skal getið, að nú er
ekki lengur i islenskum lögum aö
innflutningur sé „frjáls”. I upp-
hafsgrein hinna nýju laga stendur
nefnilega: „Innflutningur skal
ekki háöur leyfum” o.s.frv.
Verslunarráö tslands mótmælti
þessum lögum og kvað ákvæöi
þeirra ekki vera til bóta. Verslun-
arráöið var eins og menn muna
einnig þeirrar skoöunar á sinum
tima, aö ekkert væri bogið viö
innflutningsverslunina. ~sgt
Framsóknarmenn launuðu
krötum fyrir Framleiðsluráðið
Stöðvuðu eftirlaun
aldraðra fyrir Magnúsi
Framsóknarmenn voru aö von-
um reiöir þegar meginhluti krata
ásamt ihaldi stöövaöi framgang
frumvarps um framleiðsluráð
landbúnaöarins. Þvi var haldiö
fram i baksölum Alþingis, aö þeir
heföu ákveöiö aö hefna sin á kröt-
um meö þvi aö neita að afgreiöa
frumvarp um eftirlaun til aldr-
aöra, en þaö var stjórnarfrum-
varp úr ráöuneyti Magnúsar H.
Magnússonar. Frumvarp þetta
var flutt samkvæmt fyrirheiti
fyrri rikisstjórnar i sambandi viö
sólstööusamningana 1977. Mikill
ágreiningur var um frumvarpiö,
þvi þótt flestir teldu að hér væri
um framfaramál aö ræöa, sögöu
talsmenn verkalýöshreyfingar-
innar að þaö væri undarlegt aö
gefa fyrirheit eins og þetta og láta
svo verkalýöshreyfinguna borga
brúsann, en i frumvarpinu er gert
ráö fyrir þvi, aö lifeyrissjóöirnir
fjármagni eftirlaunin.
Hvaö sem hæft er i þeim orö-
rómi sem barst yfir kaffibollana á
Alþingi er vist, aö frumvarpiö um
eftirlaun aldraöra kom aldrei frá
nefnd og hlaut þvi ekki afgreiöslu.
—sgt