Þjóðviljinn - 09.06.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. Júnl, 1979
Dalai Lama — ekki alveg
heillum horfinn.
Dalaí Lama
boöiö til
Mongólíu og
Sovétríkjanna
Sovétrikin og Mongúlia
hafa boöið Dalai Lama, hin-
um útlæga höfuðklerki og
goökonungi Tlbets, aö heim-
sækja þessi riki tvö og að
sitja ráöstefnu Búddasinna i
Asiu, sem halda á i Mongóliu
um miðjan mánuöinn og á að
hafa eflingu friöarins i heim-
inum aö höfuöviöfangsefni.
Þykir heimboö þetta nokkr-
um tiðindum sæta, þar eð
Dalai Lama mun ekki fyrr
hafa heimsótt ri"ki undir
stjórn kommúnista.
Eins og vænta mátti fer
heimboð þetta allmjög I
taugar kinverskra ráöa-
manna, en undan þeim flýði
Dalai Lama land eftir að
uppreisn Tibeta gegn Kin-
verjum 1959 misheppnaðist.
Segir kinverska fréttastofan
Xinhua að með þessu séu
Sovétmenn að reyna aö beita
tibetska leiðtoganum fyrir
sig i deilunum við Kina og sé
þaö hættulegt hátterni, „þar
eö þeir i Moskvu munu ekki
hika við að taka réttarstööu
Sinkíangs og Tibets til end-
urskoðunar og blása I glæður
óánægjunnar i þessum af-
skekktu landshlutum ef
átökin viö Kina færðust i
aukana.”
Kinverska stjórnin hefur
slðustu mánuðina margskor-
að á Dalai Lama og aöra Ti-
beta, sem flýðu land um
sama leyti, að snúa heim.
Heym rekinn úr
rithöfunda-
sambandi við
níunda mann
7/6 — Niu austurþýskir rit-
höfundar hafa veriö reknir
úr rithöfundasambandi
landsins, að sögn austur-
þýsku fréttastofunnar ASN.
Eru þeir sakaðir um and-
kommúniskan áróöur og fyr-
ir . að hafa rægt
Austur-Þýskaland og menn-
ingarmálastefnu þess I er-
lendum fjölmiðlum.
Meöal rithöfunda þessara
niu er Stefan Heym, sem af
mörgum er talinn snjallasti
rithöfundur Austur-Þýska-
lands. Svo er að heyra á
fréttum um þetta aö brott-
reksturinn hafi ekki gengiö
fyrir sig mótspyrnulaust, þvi
að það tók Austur-Berlinar-
deild rithöfundasambands-
ins fimm klukkustunda fund
að afgreiða málið og fjórð-
ungur þeirra 300 rithöfunda,
sem sátu fundinn, greiddu
brottvisuninni ekki atkvæöi.
Einn þriöji
breskra kaus
7/6 — Aðeins þriöjungur
breskra kjósenda ómakaði
sig á kjörstað I kosningunum
til þings Efnahagsbandalags
Evrópu, sem fram fóru þar i
landi i gær. Kjörsókn var
allsstaðar léleg nema i Norð-
ur-lrlandi, þar sem kosn-
ingabaráttan snerist að
miklu leyti upp i atkvæða-
keppni milli mótmælenda og
kaþólikka.
Iranskir einka-
bankar þjóönýttir
Óvíst um erlendar jjárfestingar
8/6 — transka stjórnin tilkynnti i
dag að allir bankar i einkaeign i
landinu hefðu verið þjóðnýttir,
bæði til þess að gæta efnahags-
legra hagsmuna landsins og örva
atvinnulifið. Erlendir bankamenn
i Teheran taka þessu með furðan-
legri stillingu og segja likur á þvi
að þetta geti bætt eitthvað ásig-
komulag banka þessara, sem
hefur verið hið versta undanfarið.
Meðal annars vonast erlendir
bankamenn til þess, að þjóðnýt-
ingin verði til þess að bankarnir
borgi erlend lán.
Basargan forsætisráðherra,
sem tilkynnti þjóðnýtinguna, gat
þess ekki hvað yrði um fjármagn
það erlent, sem fest er i 14 irönsk-
um einkabönkum, en fulltrúar er-
lendra banka i Teheran eru sagð-
ir farnir að manna sig upp i að
fara fram á bætur. Bankamála-
sérfræðingar segja erlenda
banka, einkum breska, banda-
riska, hollenska, vesturþýska,
franska, italska, japanska,
sovéska og arabiska hafa f járfest
allt að 100 miljónum dollara i
irönskum einkabönkum.
Basargan forsætisráöherra gat
þess að þjóönýtingin hefði verið
ákveðin fyrir nokkru, en ákveðið
heföi verið aö tilkynna hana ekki
fyrr en á afmælisdag Alis,
tengdasonar Múhameðs spá-
manns, en Ali er i sérstökum há-
vegum hafður i sjitadómi, þeirri
grein Múhameðstrúar sem Pers-
ar aöhyllast.
EBE-kosningarnar í Frakklandi:
Harðar deilur milli
hægri flokkanna
8/6 — Kosningabaráttan fyrir
kosningarnar til þings Efnahags-
bandalags Evrópu i Frakklandi
er hin harðasta og draga stóru
flokkarnir fjórir, gaulleistar,
Lýðræðisbandalagið, sósialistar
og kommúnistar hvergi af sér.
Hægri öfgamenn hleyptu i gær-
kvöldi upp fundi Lýðræöisbanda-
lagsins (flokks Giscards
d’Estaing forseta), þar sem
Simone Veil, heilbrigðismálaráð-
herra og einn atkvæðamestu
stjórnmálamanna Frakka um
þessar mundir, var meðal ræðu-
manna.
Hægriöfgamenn æptu ókvæðis-
orð að Veil út af frumvarpi um
fóstureyðingar, sem hún kom i
gegnum þingiö fyrir fimm árum,
og köstuðu fýlusprengjum.
Simone Veil, sem er Gyðingur og
lifði af fangabúðavist i Auschwitz
i siöari heimsstyrjöld, gaf til
kynna að hún vissi hvers eðlis
óeirðaseggirnir væru er hún
hrópaði til þeirra: „Ykkur tekst
ekki að hræða mig. Ég hef lifað af
það sem var verra en þið eruð.”
Veil er efst á lista Lýðræðis-
bandalagsins i kosningum þess-
um og skoðanakönnuðir spá henni
og fylgismönnum hennar stór-
sigri. Hinsvegar er þvi spáð að
gaulleistar muni tapa, jafnvel
miklu. Mikil heift hefur einkennt
baráttuna milli þessara tveggja
aðalflokka til hægri i frönskum
stjórnmálum, en þeir standa
saman að rikisstjórn. Ottast nú
ýmsir háttsettir stjórnmálamenn
til hægri að úlfúðin verði svo mik-
il aö stjórnin splundrist.
Gaulleistar eru á móti aukinni
sambræðslu Vestur-Evrópurikja,
en fylgismenn Giscards forseta
með.
Fréttaskýring:
Minnsta, þéttbýlasta og
þróaöasta land M-Ameríku
Uppreisnin i Nicaragua er ekki
lengur bundin við það land eitt,
heldur orðin að sameiginlegu
frelsisstrlði Mið-Amerikumanna,
þarsem barist er fyrir þvl að losa
þessi ógæfusömu lönd við aftur-
hald, einræði og yfirdrottnun
Bandarikjanna, sem ráðskað
hafa með Mið-Amerikurlkin eins
og einskonar nýlendur frá þvi á
nitjándu öld. Burtséð frá
Nicaragua virðist nú mest vera
að gerast í E1 Salvador.
E1 Salvador er minnst
Mið-Amerikulanda, aö flatarmáli
eins og einn islenskur landsfjórö-
ungur eða tæplega þaö. Það er
lika þéttbýlast landa þessara og
eru ibúar yfir fjórar miljónir.
Sökum landþrengsla hafa all-
margir Salvadorar flutttil strjál-
býlli grannlanda og uröu þeir
fólksflutningar meðal annars
undirrót striös milli E1 Salvador
og Hondúras fyrir nokkrum ár-
um. Illindi út af knattspyrnuleik
urðu aö sögn kveikjan að þvl
striði, sem stóð stutt.
68% barna óskilgetin
Samkvæmt nýlegum hag-
skýrslum er þorri Salvadora
Mestisar, það er að segja kyn-
blendingar hvltra manna (eink-
um Spánverja) og Indiána, og má
gera ráð fyrir að Indlánar hafi
lagt öllu meira til 1 púkkið. Af-
gangurinn er sagður „hreinkynj-
aðir” hvltir menn og Indiánar.
Um helmingur landsmanna býr i
borgum, enda þótt landbúnaöur
séaöalatvinnuvegurinn. Ibúar ná
að meöaltali 56 ára aldri. Sam-
kvæmt manntali 1971 lifir rúmur
fjórðungur landsmanna i óvigðri
sambúð og 68 af hundraði barna
fæddra það árvoru óskilgefin. Er
þó landið harðkaþólskt, svö sem
önnur rómanskamerisk riki. Um
helmingur landsmanna er ólæs og
óskrifandi, og er það svipaö og i
gra nnrikjunum.
Iðnþróun til litilla bóta
E1 Salvador hefur landamæri
að Gúatemala og Hondúras og
liggur aö Kyrrahafi. Landið er
fjöllótt ogloftslag lvið svalara en
gerist i þeim heimshluta. Aðal-
undirstaðan aö efnahag landsins
er kaffi, en bómull er einnig mikiö
ræktuð. Vegakerfi er sæmilegt á
miðameriskan mælikvarða og yf-
irhöfuð er E1 Salvador þróaðasta
land Mið-Ameriku. Iðnaður er
þar meiri en I grannlöndunum og
verkamanna- og iönaðarmanna-
stétt i borgum þar af leiðandi fjöl-
mennari. Framfarirnar i iðnaði
og öðru hafa einkum veriö siöan
um miðjan sjöunda áratuginn, en
eins og viðar hefur viljað ske i
Rómönsku-Ameriku hafa þær aö-
einsorðiðtil þess að breikka biliö
milli rikra ogfátækra. Yfirstéttin
hefúr fitnað stórum á framförun-
um og lúxuslifnaður hennar orðiö
hóflausari en nokkru sinni fyrr,
en hagur alls aimennings er engu
betri en áöur.
Svo er að heyra að sérstaklega
þetta hafi leitt til þess, að nú brýst
óánægja almennings út i ljósum
loga. Það veikir aöstööu hinna
vinstrisinnuöu stjórnarandstæö-
inga að þeir eru sundraðir; aö
minnsta kosti þrenn vinstrisam-
tök heyja skæruhernað gegn
stjórninni. Þar að auki eru sam-
tök námsmanna, verkamanna og
bænda, sem stóðu að töku sendi-
ráðanna og dómkirkjunnar ný-
verið. Fátt er vitað um þau sam-
tök, enda starfa þau auðvitað
leynilega eins og allir andstæð-
ingar hinnar hægri sinnuöu her-
foringjastjórnar verða að gera.
En liðsmenn þeirra virðast vel
agaöir og þjálfaðir.
Peningamenn flýja
svari stjórnarandstæðinga i E1
Salvador en vlðast annarsstaðar
og I samræmi við það ekki farið
varhluta af ofsóknum stjórnar-
innar og bófaflokka á hennar veg-
um. Sumir prestanna styðja
skæruliðana beinlinis vegna eðli-
legrar andstyggöar á óþjóðalýö
þeim, er landinustjórnar, en gera
má ráð fyrir aö ráðamenn kirkj-
unnar telji að herforingjastjórnin
gangi of langt i skepnuskapnum
og muni þvi kollsigla sig fyrr en
varir, ef hún dragi ekki snarlega
saman seglin. Ekki sfður alvar-
legt er það fyrir herforingjaklik-
unaog núverandi oddvita hennar,
Romero hershöföingja, aö inn-
lendir og erlendir peningamenn
teljiekki á hana veðjandi lengur.
Mikill fjármagnsflótti frá landinu
er hafinn. Erlendir kaupsýslu-
menn og atvinnurekendur yfir-
gefa landið og aðrir hætta við áö-
ur fyrirhugaðar fjárfestingar
þar. Þessi heilbrigöa varkámi er-
lendra peningamanna stafar
trúlega öörum þræði af þvi, aö
salvadorskir skæruliðar hafa ver-
ið skæöir meö að ræna þeim og
krefja auðhringana húsbændur
þeirra um gifurlegar fúlgur
lausnargjaids. — dþ
Hadar Cars — 90 kilómetra
hámarkshraði.
Svíar lækka
hámarkshrada
7/6 — Sænska stjórnin hefur
tilkynnt ráðstafanir sem
ætlast er tfl að dragi úr oliu-
og bensinnotkun i landinu
um 10% nú I sumar.
Ráðstafanirnar eru þær, að á
timabilinu 21. júní til 1.
september verður
hamarksökuhraði lækkaður
úr 110 kilómetrum á
klukkustund, i 90 kílómetra,
auk þess sem bensinstöðvar
fá að hækka verðið frá sér
um 10 aura sænska á literinn.
Hadar Cars, viðskipta-
ráðherra Sviþjóðar, sagðist
vona að þessar ráðstafanir
gerðu að verkum að ekki
þyrfti að skammta oliu og
bensin en stjórnin væri þó að
búa sig undir það til vonar og
vara.
Bókassa tók
sjálfur þátt í
barnamorðunum
7/6 — Ange Patasse, fyrrum
forsætisráðherra
Mið-Afrikukeisaradæmisins.
lýsti þvl yfir i dag að hann
væri að setja á stofn visi aö
útlagsstjórn, er vinna skyldi
gegn ógnarstjórn Bokassa
keisara. Patasse var sviptur
fofsætisráðherraembætti i
júli i fyrra.
Margir hafa nú tekið undir
ákærur Amnesty Inter-
national, Jjess efnis að
Bokassa hafi látið myrða allt
að hundrað börn og unglinga
fyrir að þau neituðu að
kaupa skólaeinkennisbún-
inga, framleidda af fyrirtæki
keisarans. mið-afriskur
stúdent, sem flýði til grann-
rikisins Kongó i s.l. mánuði,
hafði eftir öðrum
námsmönnum að Bokassa
hefði meö eigin hendi tekið
þátt i barnamorðunum og
meðal annars sést stinga
augu úr sumum barnanna.
Pravda mildast
í garð Kínverja
8/6—Pravda birti i dag frétt
meö vinsamlegum orðum I
garð Kinverja, og hefur
annað eins ekki sést I
sovéskum blöðum i al 1-
nokkur ár, svo að vestrænir
fréttamenn austur þar hafi
tekið eftir. Var Kinverjum
hrósað fyrir varnir gegn
mengun og þess getið aö
mjög hef öi tekist að draga úr
loftmengun i Peking.
Orðalagið i fréttinni er
talin visbending af hálfu
sovéskra valdhafa um að
þeir séu fúsir til aö bæta
samskiptin viö Ki'na.
Sovéskir fjölmiðlar gerðust
iviö mildari i garö Kinverja
nýlega eftir að kinverskir
ráöamenn gáfu i skyn, aö
þeir vildu viðræður við
Sovétmenn til að draga úr
viðsjám. A þriðjudaginn
bauð sovéska stjórnin þeirri
kinversku að senda háttsett-
an mann til viöræðna 1
Moskvu.